Fréttablaðið - 29.06.2011, Blaðsíða 12
29. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR
Við lífrænt
án rotvarnarefna enginn viðbættur sykur
Nú hefur þú aðgang að enn fleiri
sjónvarpsstöðvum í Grímsnesinu.
Kynntu þér Vodafone Sjónvarp
gegnum Digital Ísland í 1414 eða
á vodafone.is.
Vodafone – með þér í sumar
Ertu á leið í
Grímsnesið?
vodafone.is
IÐNAÐUR Stofnað hefur verið til
formlegs samstarfs meðal fyrir-
tækja innan íslenska jarðvarma-
klasans um framþróun og vöxt
hans á næstu árum. Frá þessu var
gengið formlega á fundi í Arion
banka í gær en þar var einnig
kynnt skýrslan Virðisauki í jarð-
varma sem fjallar um klasann og
þá möguleika sem í honum felast.
Stofnaðilar eru alls um 20 en
meðal þeirra eru Landsvirkjun, HS
Orka, GEORG, Mannvit, Íslands-
banki, Samtök iðnaðarins, KPMG
og Arion banki.
Í skýrslunni eru skilgreind tíu
samstarfsverkefni sem miða að
uppbyggingu klasans á næstu
árum. Höfundar skýrslunnar eru
Hákon Gunnarsson og Þóra Mar-
grét Þorgeirsdóttir hjá fyrirtæk-
inu Gekon.
Verkefnin eru af margvísleg-
um toga en þau miða meðal annars
að því að auka samkeppnishæfni
greinarinnar og verðmætasköpun
í henni, auðvelda fjármögnun verk-
efna, stuðla að tækniframförum og
styrkja ímynd landsins.
Verkefnin verða unnin á tíma-
bilinu júlí 2011 til desember 2012
en þá verður árangur þeirra met-
inn og ákvarðanir teknar um frek-
ari þróun samstarfsins.
Íslenski jarðvarmaklasinn var
á síðasta ári kortlagður af Dr.
Michael Porter og Dr. Christi-
an Ketels í samvinnu við Gekon.
Porter veitir forstöðu Samkeppn-
ishæfnistofnun við Harvard Bus-
iness School og er einn helsti fræði-
maður heims á sviði stefnumótunar
og samkeppnishæfi þjóða. Porter
flutti erindi á fundinum í gær.
Niðurstaða greiningarinnar á
jarðvarmaklasanum var að mikil
tækifæri lægju í þróun hans á
næstu árum og áratugum. Þá
var bent á þrjú stór vaxtartæki-
færi. Fyrir það fyrsta að laða til
landsins orkuháða starfsemi. Þá
séu miklir möguleikar á útflutn-
ingi jarðvarmaorku verði lagður
sæstrengur til Evrópu. Og loks sé
töluverð sérfræðiþekking innan
íslenska klasans sem flytja megi
út.
Frá því að greiningin var kynnt
í haust hefur verið unnið að mótun
formlegs samstarfs sem nú hefur
verið gengið frá.
magnusl@frettabladid.is
Jarðvarmaklasanum
sett tíu aðalmarkmið
Um 20 íslensk fyrirtæki og stofnanir hafa stofnað samstarfsvettvang um þróun
íslenska jarðvarmaklasans. Mikil vaxtartækifæri eru talin til staðar í greininni
en unnið verður markvisst að framþróun klasans á næstu misserum.
HÚSFYLLIR Alls 60 ólíkir aðilar hafa komið að greiningu á íslenska jarðvarma-
klasanum.
Hugtakið klasi er skilgreint sem landfræðileg þyrping fyrirtækja og stofnana á
ákveðnu sviði, sem eiga sameiginlega hagsmuni og stuðningsnet. Með klasa
skapast ákveðin heild sem er mun sterkari en einstaka aðili hver í sínu lagi.
Skilgreint sem landfræðileg þyrping
DÓMSMÁL Tveir karlmenn, Andri
Þór Valgeirsson og Guðmundur
Berg Hjaltason, hafa verið dæmd-
ir í Héraðsdómi Reykjaness fyrir
að standa saman að smygli á 1,5
kílóum af kókaíni til landsins.
Andri Þór var dæmdur í tveggja
ára fangelsi en Guðmundur í átján
mánaða fangelsi.
Tollgæslan lagði hald á póst-
sendingu í janúar 2010 sem talin
var innihalda maríjúana. Í fram-
haldinu var leitað í húsi á Snorra-
braut, þar sem fannst íþrótta-
taska með klippum sem á fannst
hvítt efni sem talið var vera kóka-
ín. Þar fannst einnig merkimiði af
tösku sem sýndi að Guðmundur
hafði komið frá Alicante á Spáni í
nóvember 2009.
Guðmundur játaði kókaínsmygl
hjá lögreglu og kvaðst hafa farið
með töskuna til Andra. Í dómsal
breytti hann framburði sínum
og kvaðst hafa smyglað efnun-
um fyrir annað ónafngreint fólk.
Andri kvaðst ekkert vita um málið.
Dómurinn taldi breyttan framburð
Guðmundar ótrúverðugan.
Í dómskjölum kom fram að Guð-
mundur hefði átt að fá 100 grömm
af kókaíni og fíkniefnaskuld lækk-
aða úr 600 þúsundum í 200 þúsund
fyrir ferðina. - jss
HÉRAÐSDÓMUR Andri Þór Valgeirsson
var á síðasta ári dæmdur í þriggja ára
fangelsi fyrir að smygla, ásamt fleirum,
1,7 kílóum af kókaíni frá Spáni.
Tveir menn dæmdir í fangelsi fyrir fíkniefnasmygl í Héraðsdómi Reykjaness:
Fluttu inn 1,5 kíló af kókaíni