Fréttablaðið - 05.07.2011, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 05.07.2011, Blaðsíða 16
5. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR16 timamot@frettabladid.is „Hugmyndin kviknaði yfir norskum sjónvarpsþætti þar sem þroskahamlaður spyrill spurði frambjóðendur hvað þeim líkaði best í fari hvers annars. Ég hef aldrei séð jafn marga stjórnmálamenn verða kjaftstopp og hugsaði sem svo að þetta væri vitaskuld sjálfsagður hluti af margbreyti- leikanum þar sem menn hafa mismunandi sýn á hvað er mikilvægt,“ segir Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar, inntur eftir tilurð sjón- varpsþáttanna Með okkar augum, sem fóru fyrst í loftið í gærkvöldi í Ríkissjónvarpinu. Með þáttunum er brotið blað í íslenskri sjónvarpsþáttagerð því þeir eru þeir fyrstu sinnar tegundar þar sem fólk með þroskahamlanir starfar beggja vegna myndavélarinnar. „Í fyrravor tóku nokkrir einstaklingar með þroskahöml- un þátt í námskeiði í sjónvarpsþáttagerð og skiptu með sér verkum eins og áhugi og styrkur gaf tilefni til. Sumir gerð- ust dagskrárgerðarmenn meðan aðrir heilluðust af mynda- töku og hljóði,“ segir Friðrik um námskeiðið sem tókst svo vel að aðstandendur þess, Landssamtökin Þroskahjálp og Símenntunarmiðstöð, vildu ekki láta staðar numið. „Þættirnir hafa almenna skírskotun til þjóðarinnar í heild og eru ekki um þroskahamlað fólk fyrir fólk með þroska- hömlun. Hins vegar eru þeir unnir út frá sjónarhóli þroska- hamlaðra sem hafa allt aðra sýn en við hin og gerir okkur ríkari fyrir vikið, en mestu skiptir að fólki líði vel þegar það horfir á þættina,“ segir Friðrik um ódæmigerða nálgun sjón- varpsfólksins sem á eftir að koma á óvart. „Sannarlega velta þau fyrir sér eigin reynsluheimi, eins og því hvort þau megi giftast, eignast börn eða líftryggja sig, en þess á milli elda þau mat með Sigga Hall og fjalla um sumartískuna,“ segir Friðrik sem vonast eftir framhaldi á þáttagerðinni, enda eiga þáttastjórnendur fullt erindi við íslenskt þjóðfélag; einlægir, ferskir og með sýn sem flækir sig ekki í smáatriði heldur spyr beittra spurninga. „Það mætti stundum að ósekju dýpka umræðuna með því að leita til annarra en sérfræðinga, enda hafa þeirra ráð ekki reynst þjóðinni sérlega vel. Menn geta því spurt sig hvort farið hefði nokkuð verr ef leitað hefði verið í smiðju þeirra sem strax hefðu séð að keisarinn var ekki í neinu,“ segir Friðrik og brosir út í annað. Að sögn Friðriks fóru þáttastjórnendur meðal annars með spurningar sínar til líftryggingafélags. „Þar var þeim tekið með slíkum vandræðagangi að það vakti okkur til umhugs- unar. Af hverju var þeim ekki svarað eðlilega burtséð frá greindarvísitölu? Skiptir hún máli fyrir þjónustufyrirtæki, eða í hvaða stöðu viðskiptavinur er?“ spyr Friðrik sem með þáttunum vill breyta staðalímyndum fatlaðra. „Við viljum sýna fram á að þroskahamlaðir hafa fullt að gefa og eiga að falla með eðlilegum hætti í samfélagið. Við viljum því vita hvort menn séu undir það búnir að horfa, hlusta og finnast gaman með þeim, því auðvitað er í lagi að hlæja með fötluðum og því sem þeim finnst fyndið, þótt aldrei sé forsvaranlegt að hlæja að fötluninni sjálfri,“ segir Friðrik. thordis@frettabladid.is MEÐ OKKAR AUGUM: SJÓNVARPSÞÆTT- IR ÞROSKAHAMLAÐRA Á RÚV Mikið að gefa MEÐ OKKAR AUGUM Samhentur hópur stendur að baki þáttunum. Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma, Dagmar Koeppen Þinghólsbraut 56, Kópavogi, lést 2. júlí. Brynjar Bjarnason Erwin Pétur Koeppen Erwin Marcela Ingimar Magdalena Angela Sverrir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Sigurður Anton Jónsson Þórsgötu 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 30. júní. Útför hans fer fram 8. júlí kl. 15.00 frá Fossvogskirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Katrín Björgvinsdóttir Jóhann Rúnar Sigurðsson Aðalbjörg Jónsdóttir Björgvin Sigurðsson Ólafía Ragnarsdóttir Vignir Sigurðsson Eyrún Valsdóttir Svavar Sigurðsson Silvia Hromadko og barnabörn. Okkar elskulega, Arnþrúður Margrét Jóhannesdóttir sjúkraliði, Arahólum 4, áður Kópavogsbraut 107, lést þriðjudaginn 28. júní. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu, mánudaginn 11. júlí. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Grensásdeild og Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund. Sigurður Gunnlaugsson Aðalbjörg Sigurðardóttir Gísli Eiríksson Gíslunn Arngrímsdóttir Hulda Sigurðardóttir Haraldur Þorsteinsson Sigurlaug Sigurðardóttir Emil Valgarðsson Margrét Sigurðardóttir Eyþór Rafn Þórhallsson ömmu- og langömmubörnin. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Rósu Teitsdóttur áður til heimilis að Grund í Keflavík, sem lést miðvikudaginn 22. júní. Guðmundur Ólafsson Sigurvin Ólafsson Sigurfríð Ólafsdóttir tengdabörn, ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. Elskulegur sonur okkar, fóstursonur, barnabarn og bróðir, Óli Páll Ómarsson lést í Bandaríkjunum. Bálför hefur farið fram. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 7. júlí kl. 13.00. Greftrun í Fossvogskirkjugarði að athöfn lokinni. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Félag krabbameinsjúkra barna. Björg Benmakhlouf Mohammed Benmakhlouf Ómar F. Dabney Ingveldur Gísladóttir Alice Gestsdóttir Björn Ó. Jónsson Anna María Ómarsdóttir Adrae Benmakhlouf Ívar Hauksson Karen Ósk Sampsted Camilla Dís Ívarsdóttir Systir mín, Elín Daníelsdóttir Anker frá Guttormshaga í Holtum, andaðist á heimili sínu í Flórída 25. júní. Útförin hefur farið fram. Fyrir hönd eftirlifandi eiginmanns, Richards Ankers dætra og barnabarna og skyldmenna á Íslandi, Svava Daníelsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Helga Sigurðardóttir Lindartúni, Garði, verður jarðsungin frá Útskálakirkju, fimmtudaginn 7. júlí kl. 14.00. Sigurður Guðmundsson Ester Guðmundína Guðmundsdóttir Þórir Guðmundsson Ingibjörg Katrín Georgsdóttir Jónína Guðmundsdóttir Þröstur Steinþórsson Guðjón Guðmundsson Herborg Valgeirsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, Sigmundur Sigurgeirsson Hnotubergi 21, Hafnarfirði, sem lést í faðmi fjölskyldu sinnar þriðjudaginn 28. júní, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 7. júlí kl. 15.00. Guðný Guðnadóttir Ingigerður Sigmundsdóttir Sighvatur Kristjánsson Sigurgeir Sigmundsson Kristín Arnarsdóttir Ólafur Þór Sigmundsson Asefash Berhanu Margrét Sigmundsdóttir Helgi Ásgeir Harðarson Guðni Markús Sigmundsson Sólveig Magnúsdóttir Guðjón Viðar Sigurgeirsson Sigrún Jóhannesdóttir Helga Sigurgeirsdóttir Jón Berg Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn og bróðir, Sigvaldi Jóhannesson sem lést miðvikudaginn 29. júní, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 7. júlí kl. 13.00. Kristbjörg Ólafsdóttir systkini og makar. GEORGES POMPIDOU FRAKKLANDSFORSETI (1915-1974) fæddist þennan dag. „Þrennt leiðir til glötunar: konur, fjárhættuspil og tæknimenn. Ánægjulegast er það með konum, fljótlegast í fjárhættu spili, en eins öruggt og það getur orðið með tæknimönnum.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.