Fréttablaðið - 05.07.2011, Blaðsíða 38
5. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR30BESTI BITINN Í BÆNUM
„Ég myndi velja Café Easy,
matstofu í íþróttamiðstöð ÍSÍ í
Laugardalnum, ódýrasti bitinn
í bænum. Ég held að það sé
reyndar lokað núna, náung-
inn sem rekur staðinn er víst í
sumarfríi.“
Reynir Örn Þrastarson fyrirsæta
„Það er búið að ganga mjög vel og ótrúleg tilfinn-
ing að taka þátt í þessu,“ segir Jóna G. Kolbrúnar-
dóttir um tónleika Bjarkar Guðmundsdóttur í Man-
chester en Jóna er hluti af kórnum Graduale Nobili
sem syngur bakraddir hjá Björk. Núna er tveimur
tónleikum lokið af sex en kórinn verður í Manchester
í tæpan mánuð ásamt stórstjörnunni og fylgdarliði
hennar.
„Við höfum það mjög gott. Gistum í flottum hótel-
íbúðum og höfum allt til alls. Við höfum líka náð að
skoða aðeins bæinn, sem er mjög fallegur, og fengið
flott sumarveður,“ segir Jóna en þær hafa líka verið
í ströngu æfingaprógrammi. Uppselt er á alla tón-
leikana og hafa þeir fengið góða dóma í miðlum á
borð við The Guardian og The Independent
„Tónleikarnir eru haldnir í hálfgerðri skemmu sem
tekur um 1.800 manns. Áhorfendur standa í kringum
sviðið og fylgjast með en við stöndum annaðhvort á
sviðinu eða röðum okkur upp í kringum það. Björk er
svo á iði úti um allt. Þetta er mjög sjónrænt og flott,“
segir Jóna og viðurkennir að það sé mögnuð upp-
lifun að standa á sviði með Björk fyrir framan æsta
áhorfendur. „Sumir hverjir eru alveg rosalega miklir
aðdáendur Bjarkar og nánast með hana í guðatölu.
Það er gaman að fylgjast með því.“
Kórinn fékk sérsaumaða kjóla fyrir tónleikana en
í þeim leynast ísaumaðir vatnspokar með röri sem
kemur út um hettuna. „Það er fyndið en nauðsynlegt
að geta fengið sér vatnssopa þegar manni hentar því
það verður mjög heitt á sviðinu,“ segir Jóna en ævin-
týri Graduale Nobili í Manchester lýkur þann 17. júlí.
- áp
Með vatnspoka á bakinu hjá Björk
„Það kom smá í kjallarann og við
vorum alveg fimm tíma að þrífa
það. En sem betur fer var þetta
bara hreint vatn og því fylgdu
engar rottur,“ segir Friðrik Weiss-
happel, veitingamaður á The
Laundromat Café í Kaupmanna-
höfn. Verslanir í nágrenni við veit-
ingastaði Friðriks voru ekki alveg
jafn heppnar og veitingamaðurinn
aðstoðaði verslunareigendur eftir
fremsta megni.
Kaupmannahöfn er á floti eftir
úrhellisrigningu um helgina en
Friðrik er með tvo veitingastaði í
miðborginni, einn á Norðurbrú og
annan á Austurbrú en þau svæði
sluppu hvað best. „Vesturbrú lítur
alveg skelfilega út; þar er útlitið
eins og í New Orleans eftir Katr-
ínu.“ Friðrik segir rigninguna hafa
verið eins og úr syndaflóði Biblí-
unnar, vatnsmagnið hafi verið
slíkt. „Ég var að keyra heim úr
matarboði og vinnukonurnar höfðu
ekki við. Konan mín var alveg
í taugaáfalli og mér stóð ekki á
sama, þrátt fyrir að hafa upplifað
ótrúlega hluti úr íslenskri veðr-
áttu.“
Frikki Weiss á flótta
FÁ SÉR VATN Jóna G Kolbrúnardóttir, hér ásamt Guðrúnu Matt-
hildi Sigurbergsdóttur í Graduale Nobili, segir það magnaða
upplifun að standa upp á sviði með Björk fyrir framan æsta
áhorfendur í Manchester.
SLAPP VEL Friðrik Weisshappel slapp
vel undan flóðinu í Kaupmannahöfn,
smá vatn lak inn í kjallara. Fólk úr
nærliggjandi hverfum kom hins vegar á
Laundromat til að þurrka föt og annað
slíkt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Feðgarnir Arnór Guðjohnsen og
Eiður Smári Guðjohnsen hafa
stofnað hlutafélag undir nafn-
inu aeae ehf. ásamt Emil Tómasi
Vigfússyni og Andrew Thomas
Mitchell. Arnór og Eiður Smári
hafa verið litlir hluthafar í sam-
skiptasíðunni skoost.com sem
þeir Emil og Andrew hafa rekið
síðan 2009 en ætla nú færa út
kvíarnar samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins.
„Þetta er bara leyndarmál
eins og staðan er í dag, þetta er
verkefni sem tengist internetinu
og það er í raun það eina sem
hægt er að segja um það. En
þetta er mjög spennandi,“ segir
Emil Tómas í samtali við Frétta-
blaðið. Arnór vildi litlu bæta
við þegar Fréttablaðið náði tali
af honum. „Þetta er á mjög við-
kvæmu stigi en hlutirnir ættu
að skýrast eftir nokkra mán-
uði. Ég get þó sagt að ég er að
fara að hella mér út í þetta og ég
er mjög spenntur fyrir þessu,“
segir Arnór. Hann vildi hvorki
tjá sig um hvort þetta tengdist
umboðsstarfinu sem hann hefur
sinnt né gefa upp með hvaða
liði Eiður Smári spilar á næsta
tímabili. Sem kemur þessari
frétt lítið við.
Eiður Smári hefur verið
duglegur að fjárfesta hér
á landi. Hann er einn eig-
enda gistiheimilisins Kex
Hostel við Skúlagötu sem
slegið hefur í gegn í miðbæ
Reykjavíkur. - fgg
NETFEÐGAR Arnór og
Eiður Smári hafa
stofnað hlutafélag
sem á að halda
utan um rekstur
vefsíðu. Mikil
leynd hvílir yfir
vefsíðunni.
Guðjohnsen-feðgar veðja á internetið
Bandaríski rokksöngvarinn Jon Bon Jovi
er staddur á landinu, eins og fram kom í
Fréttablaðinu í gær. Hann kom til landsins
ásamt fjölskyldu sinni um helgina.
Þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna var
í gær og Jon Bon Jovi og fjölskylda voru
komin á kreik á Hótel Borg fyrir hádegi.
Þau yfirgáfu Borgina upp úr ellefu á
tveimur svörtum Lincoln Navigator-jepp-
um. Þeim var ekið rakleiðis á Reykjavíkur-
flugvöll þar sem AS365N Dauphin-þyrla
Norðurflugs beið, en óvíst er hvert flogið
var með hópinn. Fréttablaðið hafði sam-
band við Norðurflug, en þar á bæ höfðu
menn engar upplýsingar um ferðir Jon
Bon Jovi.
Koma Bon Jovi til landsins hefur vakið
mikla athygli. Eins og Vísir.is og fleiri net-
miðlar greindu frá í gær heilsaði hann upp
á vegfarendur á Laugavegi um helgina.
Vinkonurnar Klara Björns og Beta Gagga
létu smella af sér mynd með söngvaran-
um, en þær rákust á hann á kaffihúsi í mið-
borginni.
Þá kom maður úr fylgdarliði Bon Jovi
við í plötubúð Smekkleysu á Laugavegi á
föstudag. Sagðist hann vilja kynna Bon
Jovi fyrir nýrri íslenskri tónlist og var
ráðlagt að kaupa nýju plötuna með hljóm-
sveitinni GusGus, Arabian Horse. Starfs-
fólk verslunarinnar fékk þau fyrirmæli
að hafa hljótt um komu söngvarans til
landsins, sem það gerði, en fyrsta fréttin
um komu Bon Jovi til landsins birtist
ekki fyrr en á mánudag í Frétta-
blaðinu.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
dvelur Jon Bon Jovi í turnsvítunni
á Hótel Borg á meðan hann jafn-
ar sig eftir aðgerð á hné. Hljóm-
sveit hans Bon Jovi kemur fram í
Istanbúl í Tyrklandi á föstudag-
inn, en heimildir Fréttablaðsins
herma að hann ætli að dvelja hér
á landi þangað til hann heldur til
Tyrklands.
atlifannar@frettabladid.is
JON BON JOVI: KEYPTI NÝJU PLÖTUNA MEÐ GUSGUS
Fagnaði þjóðhátíðardegi
Bandaríkjanna í þyrluferð
FRÆGUR HNAKKI Kastaníubrúnn hnakkinn á Jon Bon Jovi tók á móti ljósmyndara Fréttablaðsins á Reykjavíkurflugvelli í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÉKK PLÖTU MEÐ GUS GUS Maður á
vegum Jon Bon Jovi kom við í plötubúð
Smekkleysu á föstudag og keypti plötuna
Arabian Horse með GusGus fyrir Bon Jovi.
FRELSI OG
ÖRYGGI
Í SÓLINNI
Langvirkandi sólvörn
SPF
10
SPF
20
SPF
30
Könnun sýnir að 80% kaupir Proderm vegna góðra meðmæla frá öðrum Sænsku
Vitiligo húðsamtökin hafa valið Proderm sem þá sólvörn sem þeir treysta best.
Fæst í apótekum og Fríhöfninni
www.celsus.is
Engin ilmefni - ekkert zinc oxid eða titanum dioxid - engin nanoörtækni - ekkert paraben.
Þolir vatn og sjó og handklæðaþurrkun.
Engin glans eða fituáferð. Rennur ekki af húðinni, engir hvítir taumar.
Þróað fyrir norræna húð - fullorðna og börn.
Húðin verður mjúk, og fallega brún.