Fréttablaðið - 05.07.2011, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 05.07.2011, Blaðsíða 28
5. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR20 BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. sælgæti, 6. skammstöfun, 8. sægur, 9. aur, 11. gyltu, 12. báts, 14. teygjudýr, 16. pípa, 17. ferð, 18. óða- got, 20. stöðug hreyfing, 21. handa. LÓÐRÉTT 1. slitrótt tal, 3. kringum, 4. spörfugl, 5. húsfreyja, 7. læstur, 10. pili, 13. fálm, 15. ögn, 16. þjálfa, 19. tvö þúsund. LAUSN LÁRÉTT: 2. buff, 6. al, 8. mor, 9. for, 11. sú, 12. skips, 14. amaba, 16. æð, 17. túr, 18. fum, 20. ið, 21. arma. LÓÐRÉTT: 1. tafs, 3. um, 4. fossbúi, 5. frú, 7. lokaður, 10. rim, 13. pat, 15. arða, 16. æfa, 19. mm. KARÓKÍ KVÖLD Jæja, jæja, góðan daginn þú kynþokka... Hann skallaði spegilinn á baðinu sínu! Ég þekki þessa til- finningu! Ég vildi að myndi vaxa eins og Stanislaw. Mér finnst að ég hafi ekki stækkað neitt – lengi! ÚFF! Það hlýtur að vera auðveld leið til að þyngjast hratt. Þú gætir prófað að eignast börn og verða fertugur. Ókei! Mamma er farin í heimsókn til gamallar bekkjarsystur sinnar þannig að við erum ein yfir helgina. Á ég að fá tvo eða þrjá dropa af eyrnameðali í kvöld? Ég stjórna svo þið spyrjið mig ef þið viljið vita eitthvað. Þrír dropar. Takk fyrir að bíða með að hringja í þetta skiptið þar til ég var næstum því kominn út úr heimkeyrslunni. Að horfa á myndband er góð skemmtun. Um þau einföldu sannindi ætti eng- inn að velkjast í vafa. Að velja myndbandið getur hins vegar verið þrautin þyngri. ÓSJALDAN hefur dvöl á vídeóleigu snú- ist upp í erfiðar samningaviðræður. Það er kannski ekki frágangssök ef maður er einn á ferð, en því fleiri sem eru með í för því erfiðara verður valið. Allir hafa sína skoðun, einhver er búinn að sjá þessa mynd, hefur ekki áhuga á hinni akkúrat núna, þó svo viðkomandi væri jafnvel til í að horfa á hana síðar. BEINT lýðræði er mikið í umræðunni núna og stjórnlagaráð ræðir hugmyndir um hvernig auka megi það. Boðorð dagsins er að kjósa eigi beint um flest mál og þeir sem tala gegn því eru handbendi hins staðnaða valds. Líklega mun einhver telja þenn- an pistil því marki brenndan, enda býður umræðuhefðin í dag ekki upp á ígrundaðar rökræður þar sem menn taka afstöðu með eða á móti. Upphrópanir og sleggjudómar eru algengari, veltirðu einhverju upp talar þú augljóslega fyrir ákveðnum hagsmunum. RAUNIN er hins vegar sú að lýðræði er vandmeðfarinn hlutur, raunar svo vand- meðfarinn að séu brotalamir á er betur heima setið en af stað farið. Versta mögulega útkoma úr auknu beinu lýð- ræði yrði einhvers konar vídeóleigu- lýðræði þar sem sameiginleg niður- staða stýrist frekar af fjölda þeirra sem vilja spennumyndir, eða hve margir í hópnum eru þunnir og vilja heilalausa gam- anmynd. ÞETTA sést vel á þeim sveiflum sem reglu- lega verða í afstöðu þjóðarinnar. Fyrir um það bil ári vildi þjóðin, samkvæmt slíkum könnunum, ákæra fjóra ráðherrra vegna bankahrunsins. Nú vill þjóðin draga ákæru til baka á þann eina sem var kærður. Fyrir skömmu vildi þjóðin að viðræðum við Evrópusambandið yrði lokið og niðurstaða síðan borin undir þjóðina sjálfa. Nú vill þjóðin hætta viðræðum og snúa sér að ein- hverju öðru. Niðurstaða skoðanakannana ræðst líka af því hvernig spurningar eru orðaðar og stundum er sagt að hægt sé að fá hvaða niðurstöðu sem óskað er eftir. ÞJÓÐARSÁLIN, sé hún til, er hviklynd. Það er að mörgu leyti hið besta mál, ekki viljum við verða stöðnuð í einhverjum fyrirfram- gefnum skorðum. Stór og flókin mál sem leggja línurnar fyrir framtíð innbyggjara þessa lands næstu árin og áratugina mega hins vegar ekki ráðast af stundarhags- munum misgáfaðrar umræðu. Eitt í dag og annað á morgun. LÝÐRÆÐIÐ getur verið áhrifamikið tæki sé það notað á réttan hátt. Hver sem niður- staðan verður í framtíðinni, þarf að huga að því hvernig það tæki er notað. Annars endum við með málamiðlun um Steven Seag al-mynd sem engan í raun langaði að sjá. Vídeóleigulýðræðið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.