Fréttablaðið - 05.07.2011, Blaðsíða 10
5. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR10
Betri þjónusta
í Vörðunni
Varðan er vildarþjónusta fyrir viðskiptavini Landsbankans.
persónulega þjónustu og fríðindi fyrir heildarviðskipti.
1. Hvaða stórstjarna tón-
listarheimsins sótti landið heim um
helgina og gistir á Hótel Borg?
2. Stjórnendur hvaða fyrirtækis
hafa samþykkt að endurgreiða
bónus sem þeir fengu árið 2009
þrátt fyrir taprekstur?
3. Hvað eru margar einbreiðar
brýr á hringveginum.
SVÖRIN
1. Jon Bon Jovi. 2. Stjórnendur Existu. 3.
Fjörutíu og tvær.
NÁTTÚRA Um tíundi hver fiskur í
Norður-Kyrrahafi er með plast í
meltingarveginum. Þetta eru nið-
urstöður nýrrar rannsóknar sem
greint er frá á vef Science Daily.
Rannsakaðar voru 27 fiskteg-
undir í Norður-Kyrrahafi. Miðað
við niðurstöðurnar er talið að fisk-
urinn á svæðinu éti á milli 12.000
til 24.000 tonn af plasti á ári.
Rannsakendur segja að senni-
lega sýni niðurstöðurnar minna
hlutfall fiska en það er í raun, þar
sem margir þeirra drepist vegna
plastsins. - sv
Rannsaka fisk í Kyrrahafi:
Tæp tíu prósent
borða plast
EFNAHAGSMÁL Málmar voru verð-
mætasta framleiðsluvaran hér
á landi árið 2010, en verðmæti
þeirra nam 37,1 prósenti af heild-
arverðmæti framleiðsluvara það
ár. Fiskafurðir komu næstar, en
verðmæti þeirra nam 32,5 pró-
sentum af heildarverðmætinu.
Verðmæti seldra framleiðslu-
vara 2010 nam alls 666 millj-
örðum króna. Þetta er aukning
um tæpa 92 milljarða króna.
Á sama tíma hækkaði vísitala
framleiðsluvara um 11,7 prósent.
Verðmæti seldra framleiðsluvara
hefur því hækkað að raungildi
um 4,3 prósent. Þetta kemur
fram á vef Hagstofu Íslands. - kóp
Meira selt 2010 en 2009:
Mest verðmæti
í málmunum
STRAUMSVÍK Málmar voru verðmætasta
framleiðsluvaran árið 2010.
STJÓRNSÝSLA Lögum um fæðing-
arorlof verður breytt í haust, en
frumvarp þess efnis var lagt fram
í vor. Hið sama gildir um lög um
orlof. Þetta er gert til að bregðast
við athugasemdum frá ESA, eftir-
litsstofnun EES.
Stofnunin gerði athugasemd
við það að í íslensku lögunum er
þess krafist að foreldri hafi verið
á íslenskum vinnumarkaði í að
minnsta kosti einn mánuð til að
hægt sé að leggja við þann tíma
starfstíma í öðru aðildarríki EES-
svæðisins. Eftir breytingu mun
Vinnumálastofnun meta hvert til-
vik fyrir sig. Þá verður orlofslög-
um breytt þannig að rýmri tími
gefist til að taka orlof út, sé það
flutt á milli ára. - kóp
Brugðist við tilmælum ESA:
Fæðingarorlofi
og orlofi breytt
Býður sig fram til formanns
Davíð Þorláksson lögmaður gefur
kost á sér sem formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna á sambands-
þingi sem fram fer í ágúst. Núverandi
formaður, Ólafur Örn Nielsen, gefur
ekki kost á sér til endurkjörs.
STJÓRNMÁL
EFNAHAGSMÁL Hækkun vaxta
myndi magna skuldakreppu fyrir-
tækja og heimila, valda auknum
fjölda gjaldþrota og meiri óróa á
vinnumarkaði. Þetta segir í grein
sem Gylfi Zoëga, prófessor við
Háskóla Íslands og nefndarmaður
í peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands, ritar í nýjasta hefti efna-
hagsritsins Vísbendingar.
Í yfirlýsingu peningastefnu-
nefndar Seðlabankans við vaxta-
ákvörðun um miðjan mánuðinn,
þegar vöxtum var haldið óbreytt-
um, kom hins vegar fram að
vegna aukins verðbólguþrýstings
væri hækkun
vaxta líklegri
e n l æ k k u n
á næstunni .
Þetta var ítrek-
að í greinargerð
Seðlabankans
til ríkisstjórn-
arinnar í byrj-
un mánaðarins.
Í grein sinni
bendir Gylfi
hins vegar á að kreppan hér stafi
ekki af of lítilli eftirspurn og
verðbólga ekki af of mikilli eftir-
spurn.
„Verðbólgan er að miklu leyti
innflutt, stafar af hækkun á hrá-
vöru á heimsmarkaði,“ segir hann
og kveður við að eiga skulda-
kreppu sem lami fjárfestingar og
mannaráðningar fyrirtækja og
rýri lífskjör heimila.
Við þær aðstæður geti vaxta-
hækkun aukið skuldabyrði og
haft svipuð áhrif og hækkað verð
hrávöru, fyrirtæki beini kostnaði
út í verðlag og verkalýðshreyf-
ingin verjist af enn meiri hörku.
„Friður á vinnumarkaði við hærri
vexti krefst meira atvinnuleysis,“
segir Gylfi. - óká
Í skuldakreppu hefur hækkun stýrivaxta öfug áhrif á þróun verðbólgunnar:
Hærri vextir magna kreppuna
GYLFI ZOEGA
FÓLK „Honum líkar vel og er alsæll.
Hann er búinn að hitta gamla bekkj-
arfélaga og leikur sér við þá. Þetta
gengur bara ofsalega vel,“ segir
Óskar P. Friðriksson, afi Leifs Magn-
úsar, átta ára drengs í Vestmanna-
eyjum.
Leif Magnús fluttist til Íslands
frá Noregi í lok júní. Móðir hans var
myrt á hrottafenginn hátt af kærasta
sínum í bænum Mandal í Noregi í vor
og í kjölfarið fór faðir drengsins,
Grétar Óskarsson, fram á forræði
yfir honum. Fjölskylda Leifs Magn-
úsar í Vestmannaeyjum ferðaðist svo
saman til Noregs til þess að ganga
frá formsatriðum við barnavernd-
aryfirvöld. Vinir og ættingjar Leifs
Magnúsar fylgdu honum til Íslands í
síðasta mánuði og dvöldu hér í viku.
Óskar segir hópinn hafa unað sér
vel á Íslandi.
„Þau hefðu þurft að vera í tvær
vikur, ein var bara ekki nóg,“ segir
hann. „En drengurinn er búinn að
koma sér vel fyrir í sínu gamla her-
bergi og byrjar í skólanum í haust
með sínum gömlu félögum. Hér er
hann bara á sínum stað.“ - sv
Leif Magnús Grétarsson Thisland er kominn heim til Eyja og líkar vel:
Gott að hitta gamla skólafélaga
VINIR SAMAN VIÐ SKÓGAFOSS Björnar Nilsen, Leif Magnús og Brynjólfur Brynjólfs-
son við Skógafoss í lok júní. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
VEISTU SVARIÐ?