Fréttablaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 16
23. júlí 2011 LAUGARDAGUR16 T il allrar hamingju er mannskepnan svo marg- slungin að hún rúmast ekki í einsleitri hugmynd sem við gjarnan gerum okkur um náungann. Einar Magnús Magnús- son, upplýsingafulltrúi Umferðar- stofu, virkar eflaust á suma eins og fyrirhyggjufýr sem hugsar um það eitt að hafa vaðið fyrir neðan sig. En þeir sem verða á vegi hans þegar hann hefur stimpl- að sig út hjá Umferðarstofu hitta fyrir mann með ólgandi blóð sem þráir frelsið og hið óþekkta. Það var til dæmis af þessum hvötum sem hann tók sig til og leigði sér Harley Davidson mótorfák í Flór- ída síðastliðið vor og krúsaði um slóðir langt frá ysi og þys ferða- mannanna. Góðmennið á óásjálega sendibílnum Ferðinni var heitið í norður frá Orlando. „Ég var ekki lengi að sannfærast um að Flórída hefur upp á svo miklu meira að bjóða en golf og Disneyland,“ segir Einar Magnús meðan hugurinn reikar vestur yfir haf. „Ég færðist líka í sanninn um að ljúflegheitin í Kan- anum eru ekki bara einhver yfir- borðsmennska. Það kemur svo ber- lega í ljós í svona ferðum þegar maður er bara upp á sitt eigið ágæti kominn, eins takmarkað og það getur stundum verið, að góð- mennskan ristir dýpra en svo. Mér er til dæmis minnisstætt þegar ég var kominn að sjálfvirku toll- hliði á einni hraðbrautinni en þá var ég ekki með neitt klink í sjálf- salann og þar með var engin leið fyrir mig að fara í gegnum hliðið. Nema þá að svindla og troða sér fram hjá hliðinu í augliti mynda- véla sem láta ekkert fram hjá sér fara og taka þá bara sektinni þegar hún kæmi. En það yrði nú ekki gott afspurnar að upplýs- ingafulltrúi Umferðarstofu færi um í trássi við lög á bandarískum þjóðvegum. Þannig að ég sný mér að næsta bíl sem kom þar að og spurði ökumann hvort hann gæti skipt fyrir mig dollaraseðli og bíl- stjórinn var nú heldur betur til í það. Þá er kallað á mig úr bíl þar fyrir aftan en sá óásjálegi sendi- bíll hefði tekið sig vel út í ein- hverri bófamyndinni og bílstjór- inn var ekki þannig útlits að það samrýmdist hugmyndum manns um hjálparstarfsmann. En hann kallar: „Farðu bara í gegn góði, ég er búinn að borga þetta fyrir þig.“ Ég vildi náttúrulega endi- lega borga manninum þetta en það kom ekki til mála. Ég ítrekaði svo bón mína þegar ég var samhliða honum á gatnamótum en hann bað mig manna heilastan að stinga seðlinum í vasann aftur og njóta ferðarinnar.“ í grillveislu hjá Harley-mönnum Þegar maður situr einn á Harley Davidson vélfáki á þessum slóðum getur ferðin tekið óvænta stefnu. „Eitt skiptið er ég að taka bensín en þá heyrast þvílíkar drunur að rúðurnar á bensínstöðinni skulfu í gluggunum. Þá var þar komið mikið Harley Davidson hjól og á því situr nokkuð skrautlegur náungi í stuttermabol sem er nú nokkuð langt frá því að teljast heppilegur hlífðarfatnaður hjá Umferðarstofu en hann var þó með hjálm. Hann var ekkert að drepa á hjólinu eins og venja er þegar menn stoppa á bensínstöðv- um. Hann gaf mér síðar þá skýr- ingu að það gæti reynst þrautinni þyngri að koma mótorfáknum í gang aftur. Þegar hann sér á hvers konar hjóli ég er segir hann við mig: „Heyrðu, þú verður nú endi- lega að koma í Harley-grillveisl- una sem er verið að halda í bænum Kissimmee, þetta eru ekki nema 15 til 20 mílur.“ Ég var til í það svo hann segir: „Eltu mig bara.“ Þannig kynntist ég honum Tony, þetta var í raun eins og ég hefði hitt gamlan bekkjarfélaga þarna á bensínstöðinni. Hjólið hans var ekki beint traust- vekjandi, hann hafði sett það saman úr gömlum pörtum sem voru þó allir úr smiðju Harley Davidson. Þetta var svo haganlega gert að það var meira að segja gír- stöng á hjólinu eins og tíðkaðist hér áður fyrr á einstaka hjóli og síðan var opið fyrir allar reimar sem þykir nú heldur þunnur þrett- ándi í öllum öryggisprófum. Hann bjó heldur ekki svo vel að vera með stefnuljós á hjólinu þannig að hann setti út aðra höndina til að gefa til kynna að hann ætlaði að beygja. Ég varð heldur betur að grafa Umferð- arstofugæjann í mér meðan ég var í slagtogi við Tony sem fór með aðra höndina útrétta og hina á gír- stönginni.“ Þó að Einar Magnús hafi ekki verið í árshátíðartauinu stakk hann óneitanlega nokkuð í stúf í þessu óvænta grillboði. „Af útgangi og klæðaburði að dæma hefði alveg mátt halda að maður væri staddur á samkomu hjá Hell´s Angels. En ég hef tamið mér það að gefa mig einmitt á tal við það fólk sem vekur upp hjá manni einhver varnarvið- brögð í fyrstu og hafði ég þann háttinn á að þessu sinni. Og viti menn, þessir hrjúfu kappar reynd- ust vera hin mestu ljúfmenni.“ Mótorhjólatöffarinn í skipulagsráðinu Það opnast mönnum ekki aðeins ævintýraheimur þegar setið er á Harley Davidson hjóli, heldur opnast einnig fyrir manni hliðið inn í samfélag Harley-manna. „Ég tók snemma eftir því að þeir sem voru á Harley-hjóli köstuðu á mann kveðju og ég veifaði þeim náttúru- lega á móti, kannski helsti hátíð- lega, það hefði mátt halda að ég væri stjórnmálamaður á kosninga- fundi. En svo tók ég eftir því að þetta var alveg sérstök kveðja og nýtti ég tækifærið á einni bensín- stöðinni og fékk menn til að kenna mér hana svo ég væri ekki eins og blautvoðungur í Harley-samfé- laginu.“ Rétt eins og Einar Magnús áttu margir þessara mótorhjólakappa annað líf, gjörólíkt því sem lifað var á vegum úti. „Ég fór til Mount Dora sem er norðan við Orlando og bregð mér þar í Yalaha-bak- arí sem er reyndar rekið af dótt- ur Charlie Chaplin og er marglof- að af bifhjólamönnum. Þeir koma þar margir við enda er það í miðri mótorhjólaleið. Þegar ég er þar að kaupa mér brauðmeti hitti ég fyrir hjón sem í fyrstu sýn gætu hæg- lega sýnst verðugir fulltrúa Hell´s Angels. Í þessu spjalli fékk ég eina áminninguna enn um að maður skyldi ekki dæma eftir útlitinu því þessi hjón taka sig til um helgar og skella sér í gallann og fara að rúnta um en á virkum dögum fara þau í hversdagsfötin og til vinnu á skrif- stofuna. Reyndar held ég að mað- urinn sé í einhverju skipulagsráði, menn slá kannski ekki um sig með slíkum titli meðal Harley-manna.“ Finnst gaman að kitla pinnann Það liggur náttúrulega bein- ast við að spyrja Einar Magnús hvort hann hafi ekið á löglegum hraða í hvívetna. „Já, ég tel mig nú hafa gert það en það komu upp nokkur skemmtileg atvik svona í ljósi þeirrar stöðu sem ég gegni hér á Íslandi. Mér er minnisstætt þegar ég fór að leigja hjólið hjá Eagle Rider-leigunni að þá var ég spurður hvort ég væri með slysa- tryggingu og kvað ég svo vera. „Nú, þá þarftu ekki hjálm,“ segir afgreiðslumaðurinn. Þetta þótti mér undarleg tilhögun. Eins var ég varaður við því, þegar ég var að fara afar skemmtilega leið í gegn- um appelsínuakra, að það væru svo margir lögreglumenn að mæla á þessari leið. Þetta hljómaði und- arlega í mín eyru enda erum við á Umferðarstofu ekki vanir því að vera varaðir við umferðarlögregl- unni.“ En þó að Einar Magnús sé sífellt að brýna fyrir landanum að draga úr hraðanum segist hann vel skilja þær hvatir að menn ani út í slíkan háska. „Það er ekkert launungar- mál að það getur verið gaman að keyra hratt en það þarf bara að finna því réttan vettvang. Ég er félagi í Akstursíþróttafélagi Suður- nesja og ég hvet menn til að snúa sér til akstursíþróttafélaganna hafi þeir þessa hvöt í stað þess að fá útrás fyrir hana í almennri umferð.“ Þegar blaðamaður kveður upp- lýsingafulltrúann er hann þess fullviss að þótt það fari Einari Magnúsi vel að hvetja menn til að hafa vaðið fyrir neðan sig þá færi það honum líklega engu verr að brýna fyrir mönnum að lifa líf- inu. Tekinn í samfélag Harley-manna Löngum hefur Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu, brýnt fyrir landanum að fara eftir reglum. Önnur og svolítið villtari hlið kemur þó í ljós í frásögn hans af mótorhjólaferð um Flórída í Bandaríkjunum. Jón Sigurður Eyjólfsson blaðamaður komst að því að þar tilheyrði hann samfélagi sem á fátt skylt við regluvæddu veröldina á Umferðarstofu. FULLTRÚI SKIPLAGSRÁÐS OG FRÚ Þau Brenda Fleming og Frank Franklin taka sig til um helgar og bregða sér í gallann og upp á vélfákinn. Virka daga verður Fleming síðan að skila sér í skipulagsráðið. MYND/EINAR MAGNÚS MAGNÚSSON Á MÓTORHJÓLALEIGUNNI EAGLE RIDER Fyrst var það að koma sér upp réttu græjunum og þessi fríði hópur var ekki lengi að koma vélfák af réttri tegund undir Einar Magnús. MYND/EINAR MAGNÚS MAGNÚSSON Á LÖGLEGUM HRAÐA Einar Magnús Magnússon er hér á ferð í Flórída á Harley Davidson mótorfáki. Hann tekur sig greinilega ekkert verr út í vélhjólaham en í hlut- verki upplýsingafulltrúa Umferðarstofu. MYND/HRUND GUNNARSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.