Fréttablaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 23.07.2011, Blaðsíða 26
heimili&hönnun2 UNDIR SÓLINNI... ● THE BEAK SNAGINN er hannaður af hinni dönsku Bodil Vilhelmine Dybvak Pedersen. Hann er bæði sniðug og falleg lausn fyrir heimilið. Snaginn hefur áfasta klemmu sem getur haldið uppi ýmsum hlutum eins og jökkum, leðurstígvélum eða viskastykkjum. The Beak er ný vara í Epal. ● HOCH DIE TASSEN er ný hönnun eftir Hrafnkel Birgisson. Hann gefur gömlu postulínsundirskálinni nýtt líf með því að sameina hana við fallega hannaðan gler- vasa. Hver vasi er einstakur og mun koma í sölu hjá Birki- landi, www.birkiland.com, í byrjun næstu viku. ● JAPÖNSK LÍMBÖND FRÁ MT MASKING TAPE eru til í öllum regnbogans litum og með alls kyns munstrum. Ekki eru þau einungis notuð til gjafaskreytinga heldur er hægt að breyta kommóðu, matarstelli og jafn- vel búa til veggklukku með þeim. Límböndin eru búin til úr hrísgrjónapappír og er auðvelt að fjarlægja þau. Límböndin eru nýkomin í sölu hjá Epal. Margir hönnunarfjársjóðir leynast uppi á háalofti eða niðri í kjallara á mörgum heimilum. Margir telja húsgögnin verðlaus ef þau eru í lé- legu ásigkomulagi eða mikið notuð en það er fjarri lagi. Verðmæti þessara nytjahluta er mikið og eru húsgögn sem voru framleidd á meðan hönnuð- ir þeirra voru á lífi oft nefnd „the true originals“ sem útleggst á slæmri íslensku sem „sannir org- inalar“. Hönnuðir áður fyrr voru í nánu sambandi við sína framleiðend- ur og heimsóttu reglulega verk- smiðjurnar. Þá voru framleiðendur minni, handverkið meira og sam- skipti áttu sér stað beint á milli hönnuða og handverksfólksins. Hönnuðir líkt og Arne Jacobsen og Poul Kjærholm fylgdust stíft með að allt færi fram eftir þeirra óskum og að gæði og frágangur væru af bestu gerð. Þess vegna hafa húsgögn fram- leidd á þessum tíma fengið meira gildi og eru metin hærra þrátt fyrir slitið útlit og margra ára notkun. Á uppboðum og í sérverslunum með notaða hönnunarvöru seljast þekktustu húsgögnin fyrir háar upphæðir og nær aldrei ódýr- ara en ný vara hjá viðurkenndum framleiðanda. Það þykir oft kost- ur að leður eða viður sýni aldurs- og notkunarmerki og verðmæt- ið minnkar ekki við það. Þvert á móti. Á Norðurlöndunum er tiltölu- lega auðvelt að finna þekkta hönn- un. Hægt er að hafa heppnina með sér því það leynast stundum dýr- mæti á flóamörkuðum og hjá hjálp- arsamtökum eða á sorpstöðvum. Almenn kunnátta fólks á hönnun- arsögunni hefur þó aukist til muna svo fjársjóðafundur heyrir nær til undantekninga og helst leitar fólk til fagaðila. En það getur borg- að sig að taka til í geymslunni og sjá hvort þar leynist fjársjóður sem koma má í verð. Hönnunarfjársjóðir ● Hönnunarsagan hefur getið af sér marga þekkta hluti en sagan er löng og flókin og erfitt getur verið að kannast við allt. Sænski lampinn Bumlingen sást víða á heimilum um 1970 en selst dýrt hjá forn- munaverslunum í dag. Húsgögn og lampar eru klassískir hlutir sem margir eru á höttunum eftir. Ekki telst til lýtis ef sér á hlutunum eins og á leðrinu á þessum stól. Hann kemur frá Fritz Hansen og er oft nefndur Kínastóll- inn. Eggið eftir Arne Jacobsen er eftirsóttur „klassíker“ og sérstaklega stólar sem eru í eldri kantinum. Fóturinn hefur breyst í tímans rás og taka glöggir hönnunaráhugamenn eftir því þegar um eldri útgáfur er að ræða. ● Forsíðumynd: Vilhelm Gunnarsson Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Rit- stjórar: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sól- veig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Auglýsingar: Ívar Örn Hansen s. 512-5429 Útlitshönnuður: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is. heimili& hönnun  SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM HÍBÝLI  júlí 2011 UNAÐSREITUR Hjónin Janina og Jozef Misiejuk rækta garð með alls kyns fögrum blómum og sumum framandi. BLS. 4 Faldir fjársjóðir Sigga Heimis fjallar um eftirsótta nytjahluti. SÍÐA 2 Margt að sjá Kaupmannahöfn kraumar af spennandi hönnunarviðburðum. SÍÐA 6 VIKUTILBOÐ Á 500GB FLAKKARA ALLTAF Sigga Heimis iðnhönnuður skrifar í Heimili&hönnun sigga@siggaheimis.com Hér eru nokkrir aðilar og vefsíður þar sem hægt er að nálgast notaða hönnunarhluti: www.nittonhundra.se www.lauritz.dk www.tradera.se www.epal.is www. ring.is / m .ring. is [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög Þ að hljómar kannski kuldalega að hátta sig ofan í rúm undir frost- marki, en engu að síður staðreynd að gisting í snjóhúsum nýtur fádæma vinsælda hvar sem hún býðst. Eftir áramót sýnir Vetur konungur oft grimm- ustu klærnar og hrúgar niður snjó á mestu snjósöfnunarstaði veraldar. Því fagna ferða- menn sem dýrka vetrar ríkið og þrá að upp- lifa eitthvað nýtt og framandi, en einnig að komast í mikla nánd við náttúruna. Vinsæl- ar snjóhúsabyggðir eru í Lapplandi, Sviss, Slóveníu og Japan, þar sem hin ægifagra Kamakura-hátíð er haldin í febrúar ár hvert í Yokote í Akitahéraði í norðaustur Japan. Mikil snjókoma er í Yokote og ekki óalgengt að falli allt að 30 sentimetra snjór yfir nótt. Snjóhúsin sjálf kallast kamakura og inni í þeim er reist altari til tilbeiðslu vatnsguðs- ins, þar sem fólk biður fyrir góðri uppskeru, öryggi fjölskyldunnar, velgengni og vernd gegn eldum. Ólýsanlega fagurt er á kvöld- in á Kamakura þegar kertaljós lýsa upp snjóhúsin, en hvarvetna ræður rómantík ríkjum á snjóhúsaslóðum og vinsælt meðal elskenda að gefast hvort öðru undir bleik- lilluðum stjörnuhimni og glitrandi frostrós- um. -þlg JANÚAR 2011 FRAMHALD Á SÍÐU 4 OFURSVALT INÚÍTALÍF Snjóhús eru með fegurstu mann- gerðu smíðum náttúrunnar, en efniviðurinn hverfull eftir veðri og vindum. Um víða veröld er hægt að upplifa andrúmsloft inúíta í hnausþykkum, listilega smíðuðum snjóhúsum, til að mat- ast, vera og njótast. Góður markaður Íslendingar geta nú nýtt sumarfríið til að leigja út íbúðir sínar í gegnum fyrirtækið Iceland Summer. SÍÐA 2 Skemmtileg lífs- reynsla Lilja Björk Jónasdóttir starfaði við sumarbúðir barna í Banda- ríkjunum síðasta sumar og ætlar aftur í vor.SÍÐA 6 föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 11. mars 2011 Helicopter vekur athygli Á rúmstokknumTískan á pöllunumÁrshátíðarförðunin Fríða María Harðardóttirer sannur eyjarskeggi Kr. TILBOÐ 117.950 FRÁBÆRT FARTÖLVUTILBOÐ 15.6” Skand ínavísk hönnu narvei sla Mikil hönnu narsýn ing er haldin í Stok k- hólmi í febrú ar. Þar eru he lstu ný jungar hönnu narhei msins kynnt ar. Sýn ingin þ ykir gefa g óða m ynd af þeim straum um se m einken na ska ndinav íska hö nnun o g þang að flykkis t fólk f rá öllu m heim shornu m. Sýning arsvæ ðið er stórt o g yfirg ripsm ikið en ein nig er u sýn ingar víðs v egar um borgin a. Í ár var við ur alls ráðan di, ein s og oft áð ur end a grun nefni í skan dinaví skri framl eiðslu . Nát túrule gar á ferðir og umhve rfisvæ nar fr amleið sluaðf erðir n utu sín í b land v ið skæ ra og s terka liti. Ei nnig voru p astelli tir áb erand i og m á segj a að hvítt o g svar t sé á u ndanh aldi. Það g ætir a fturhv arfs t il eldr i tíma hjá un gum f yrirtæ kjum en me ð sam tíma framle iðsluh áttum . Efni eins o g kopa r og messi ng sáu st víð a svo ekki s é min nst á prjóna ða, he klaða og ofn a ull. Þ ægind i og mýkt voru á beran di í m ótsögn við ha rðar línur m ódern isma s em he fur ve rið vin æll undan farin á r. Skan dinaví sk hön nun er þó alltaf stílhr ein og einfa ldleik inn í f yrir- rúmi e n í ár var ha nn óve nju hlý legur. - she EVERYTH ING MAT TERS. heimi li& hönnu n febrúa r 2011 FRAM HALD Á SÍÐ U 4 Klassí sk hönnu n í nýju lj ósi Ungir hönnu ðir létu ljó s sitt s kína í Stokkh ólmi. Þ eirra á með al var Jaeuk Jung. SÍÐA 6 Mikill græju karl Ásgeir Kolbe insson útvarp smaðu r kann vel við sig í miðb ænum . SÍÐA 2 menning[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ] mars 2011 Íslensk menningarpólitík nefnist bók eftir Bjarka Valtýs- son, doktor í boðskipta- og menningarfræðum, sem kom út á vegum Nýhil á dögunum. Í bókinni er íslensk menn- ingarstefna greind fræðilega og sett í samhengi við al- þjóðlegar menningarstefnur. Bjarki varar við ofuráherslu á hina einhæfu íslensku menningarvitund, sem oft og tíðum dragi listamenn í dilka klisjunnar. l FRAMHALD Á SÍÐU 6 DRÖGUM VARLA FLEIRI ÍSJAKA TIL PARÍSAR FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR DÆMI Á djúpum miðumRagna Sigurðardóttir rýnir í sýningarnar Viðtöl um dauðann og Hljóðheimar. SÍÐA 2 Útsprungnar rósir Kjartan Guðmundsson dustar rykið af fyrstu plötu The Pogues. SÍÐA 2 matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]mars 2011 Dekrað við bragðlaukana Albert Eiríksson færir ljúffenga döðluköku í nútímalegra og heilsusamlegra horf. SÍÐA 2 Hreinn unaður Kristín Eik Gústafsdóttir býr til fádæma flotta tertu sem allir geta spreytt sig á.SÍÐA 4 Með sunnudagskaffinuKökur, huggulegheit og samvera. DÆMI Ívar Örn Hansen S: 5125429 , gsm 6154349 ivarorn@365.is Sigríður Dagný S: 5125462, gsm 8233344 sigridurdagny@365.is Sigríður Hallgríms S: 5125432, gsm 6924700 sigridurh@365.is AUGLÝSING Í SÉRBLÖÐUM SKILAR ÁRANGRI! fjölskyldan[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ] Þ órður Hermannsson sækir Hitt húsið með dóttur sína Karitas Lóu 6 mánaða. Þórður er 23 ára nýútskrifaður tónsmiður frá LHÍ. „Karitas Lóa er mitt fyrsta barn en kærastan mín átti tvö börn fyrir svo við erum með þrjú börn heima. Ég er í fæðingarorlofi núna og finnst mjög gott að geta hitt aðra foreldra og þá hittir hún líka aðra krakka.“ Þórður segir þá fræðslu sem boðið er upp á koma sér vel fyrir unga nýbak- aða foreldra en annanhvern miðvikudag eru faglegir fyrirlestrar eða kynning- ar. Hann segir félagsskapinn ekki síður mikilvægan. „Það er gott að hafa stuðning af fleiri ungum foreldrum en það eru ekki marg- ir vinir mínir komnir með börn. Hópur- inn sem hittist er á aldrinum 18 til 25 ára. Við erum öll með okkar fyrsta barn og að ganga í gegnum svipaða hluti. Það er alltaf febrúar 2011 Í hundunum Theodóra Róbertsdóttir sýnir á stærstu hundasýningu heims í næsta mánuði. SÍÐA 2 FRAMHALD Á SÍÐU 4 Ungir kenna fullorðnum Nemendur úr sjöunda bekk Grandaskóla kenna fullorðnum á tölvur. SÍÐA 6 Alla miðvikudaga milli klukkan 14 og 16 geta ungir foreldrar mætt með börnin sín í Hitt húsið, rætt málin og fengið faglega ráðgjöf varðandi umönnun ungbarna. Starfið ber yfirskriftina Ungt fólk með ungana sína. Gott að hitta aðra unga foreldra FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR okkar.is ze b ra Sérblöð Fréttablaðsins eru fjölbreytt og höfða til fólks á öllum aldri. Fjöldi mismunandi sérblaða kemur út í hverjum mánuði. Leitaðu ráða hjá ráðgjöfum okkar um hvar auglýsingin þín nær best til markhópsins. AUGLÝSINGAR Í SÉRBLÖÐUM *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.