Fréttablaðið - 23.07.2011, Side 29
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Harmóníkuhátíð verður haldin í Árbæjarsafni á morgun
en þar verða margir af fremstu harmóníkuleikurum lands-
ins saman komnir. Má þar nefna Karl Jónatansson
ásamt hinum sögufrægu Neistum, sem koma saman
í tilefni hátíðarinnar eftir langt hlé.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Með lag á heilanum
Kanadísk listakona ætlar að vinna sköpunarverk úr áratugagömlum Led Zeppelin-tónleikum.
V
ið komum frá landi snjóa og ísa, frá
miðnætursól þar sem heitir hverir
gjósa“ er lausleg þýðing á fyrstu
tveimur línum lagsins Immigrant
Song. Hin kanadíska listakona Katie
Bethune Leamen er hér á landi um þessar
mundir að rannsaka tónleikana sem Led
Zepp elin hélt í Laugardalshöll fyrir 41 ári.
„Ég er að reyna að átta mig á því hvað það
er við norðlægar slóðir og jökla sem heillar
mig. Bráðum ætla ég til Grænlands en mig
langaði alltaf að koma til Íslands og hafði
alltaf verið hrifin af þessu lagi, það er eitt-
hvað furðulegt við það.“ segir Katie. Það var
ekki fyrr en á Íslandi sem ég fór að hlusta á
textann að ráði. „Svo fór ég að skoða mynd-
ir frá tónleikum Led Zeppelin á Listahátíð
Reykjavíkur 1970 og þá uppgötvaði ég að það
sem þeir gerðu við sköpun lagsins Immigrant
Song er fullkomin hliðstæða við þær hugleið-
ingar sem ég er í núna í minni list. Það er:
hvaða áhrif hafa framandi staðir á listsköp-
un? „Fer maður til útlanda og skapar það sem
maður hefði gert heima hjá sér eða fer maður
til að verða fyrir áhrifum á sköpun sína,“
segir Katie sem finnst heimsókn Led Zeppel-
in til Íslands vera frábær útgangspunktur í
listrænni rannsókn sinni.
„Þeir voru hér í tvo daga, sömdu lagið
kannski í flugvélinni á leiðinni heim og fimm
dögum síðar frumfluttu þeir það á tónleik-
um. Þetta er heillandi dæmi um það hvernig
staðir geta haft áhrif á sköpun,“ segir Katie.
Nú bráðvantar Katie að komast í samband
við fólk sem var á þessum sögufrægu tón-
leikum í Laugardalshöll. Hún biður blaða-
mann að birta rafpóstfang sitt með greininni
og biðlar til lesenda að hafa samband við sig.
Póstfangið er katiebethuneleamen@gmail.
com. Hún vill ná tali af þeim sem voru á tón-
leikunum og spyrja um upplifun þeirra.
nielsg@365.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
STÓRÚTSALA
ENN MEIRI AFLÁTTUR
ALLT AÐ 60%
Meira í leiðinniWWW.N1.IS
VEIÐIKORTIÐ FÆSTÁN1
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Sérverslun með
www.vilji.is • Sími 856 3451
HVAÐ ER STUÐNINGSSTÖNGIN?
Hjálpar tæki sem auðveldar fólki að vera virkt og athafnasamt við daglegt líf án þess að þurfa að reiða sig á aðra.
Auðveld í uppsetningu
Engar skrúfur eða boltar
Tjakkast milli lofts og gólfs
Hægt að nota við hallandi loft, timburloft og mikla lofthæð
Margir aukahlutir í boði
Falleg og nútímaleg hönnun
Passar allsstaðar og tekur lítið pláss
Viðurkennd af Tryggingastofnun ríkisins
10 ÁR Á ÍSLANDI
STUÐNINGS
STÖNGIN
Hjálpa
rsessan
lyftir
70% af
þinni þ
yngd
Er erfit
t að
standa
upp?