Fréttablaðið - 23.07.2011, Side 34

Fréttablaðið - 23.07.2011, Side 34
23. júlí 2011 LAUGARDAGUR4 » » » » » » » » » » » » » » » » » » Frá Grunnskóla Reyðarfjarðar Við Grunnskóla Reyðarfjarðar eru eftir- farandi stöður lausar til umsóknar: • Íþróttir • Hönnun og smíði Um 175 nemendur stunda nám við skólann sem staðsettur er í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu. Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst 2011. Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 474 1247 eða 863 1247. Netfang asta@skolar.fjardabyggd.is Skólastjóri Lögfræðingur – sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið – Reykjavík Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið auglý- sir eftir lögfræðingi til starfa á auðlindaskrifstofu ráðuneytisins. Verkefnin eru fjölbreytt en að stærstum hluta á sviði fiskveiðistjórnunar. Starfið er bæði spennandi og krefjandi og leitað er eftir krafmiklum og metnaðarfullum einstaklingi með góða menntun og samstarfshæfileika. Menntunar- og hæfniskröfur: • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði. • Gott vald á íslensku máli og enskukunnátta ásamt hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Frumkvæði, vandvirkni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Starfsreynsla úr stjórnsýslu og þekking á fiskveiðilöggjöfinni æskileg. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins og fjármálaráðherra. Umsóknir er hafi að geyma upplýsingar um men- ntun, fyrri störf, meðmælendur og annað er máli skiptir, sendist bréflega til sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík eða í tövupósti á postur@slr.stjr.is eigi síðar en 5. ágúst 2011. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið. Kennarar - Grunnskólinn á Þórshöfn Eftirtaldar kennarastöður eru lausar til umsóknar við Grunnskóla Þórshafnar: Íþróttir - 100% staða, íslenska - 75% staða, stærðfræði - 10 tímar á viku og enska - 10 tímar á viku. Einnig vantar stuðningsfulltrúa í 60% stöðu og matráð í 100% starf. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Arnfríður Aðalsteinsdóttir skólastjóri í síma 899-3480. Umsóknum skal skila á skolastjori@thorshafnarskoli.is Langanesbyggð er sveitarfélag í mikilli sókn. Það búa nú liðlega 500 manns í sérlega fjölskylduvænu umhverfi . Á Þórshöfn er öll almenn þjónusta, góður leikskóli og glæsilega íþróttamiðstöð, ásamt sundlaug. Í sveitarfélaginu og nágrenni þess eru fjölbreyttir útivistar- möguleikar í ósnortinni náttúru. Samgöngur eru góðar, m.a. fl ug fi mm daga vikunnar til og frá Reykjavík um Akureyri. 66°NORÐUR leitar að jákvæðum og kraft- miklum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna í krefjandi umhverfi , ná árangri í starfi og taka þátt með okkur í að byggja upp eitt sterkasta vörumerki íslendinga. Í boði eru störf hjá vaxandi fyrirtæki þar sem gerðar eru kröfur um fagleg vinnubrögð og góða samskiptahæfi leika. Við leitum að einstaklingum í eftirfarandi störf: MARKAÐSDEILD: Starfi ð er mjög fjölbreytt og felst í að takast á við hin ýmsu verkefni. Hæfniskröfur: Háskólamenntun og reynsla í markaðsmálum æskileg. Viðkomandi þarf að eiga auðvelt með að tjá skoðanir sínar og vinna með fólki. Starfi ð felur í sér verkefnastjórnun og viðkomandi þarf að geta unnið skipulega. Frumkvæði og sjálf- stæði í starfi eru nauðsynlegir eiginleikar. SPENNANDI STÖRF 66°NORÐUR fagnar nú 85 ára afmæli sínu en frá því félagið var stofnað hefur það hannað, framleitt og selt vinnu- og útivistarfatnað. Um þessar mundir eru vörur fyrirtækisins seldar í 15 löndum og er útfl utningur helsta vaxtarsvið félagsins. Hjá 66°NORÐUR starfa um 300 manns. ALÞJÓÐADEILD: Starfi ð felst í að halda utan um og byggja upp samskipti við erlenda samstarfsaðila. Hæfniskröfur: Háskólamenntun og alþjóðleg reynsla æskileg. Viðkomandi þarf að hafa góða tungumálakunnáttu, góða hæfni í mann- legum samskiptum. Mikilvægt er að búa yfi r framúrskarandi þjónustulund, hafa áhuga á því að selja og ná árangri. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Umsókn ásamt ferilskrá skal berast fyrir 2. ágúst á póstfangið 66north@66north.is . sími: 511 1144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.