Fréttablaðið - 05.08.2011, Side 16

Fréttablaðið - 05.08.2011, Side 16
16 5. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 G erð fjárlaga fyrir næsta ár verður ekki auðveldari en fjárlagagerðin í fyrra. Sennilega þarf að taka enn óvin- sælli ákvarðanir en undanfarin ár, þótt mörgum hafi þótt glíman við hallarekstur ríkissjóðs erfið hingað til. Árni Páll Árnason viðskiptaráðherra vakti athygli á þessu í grein í Fréttablaðinu í gær og sagði ljóst að enn þyrfti að skera niður í ríkisrekstrinum. Víða væri komið að þolmörkum í skattlagningu og ekki auðvelt að minnka frekar fjárveitingar til óbreytts ríkisrekstrar. „Framundan er því að taka annars konar ákvarðanir – ákvarðanir um að breyta umgjörð ríkisrekstrar og því þjónustuframboði sem ríkið ábyrgist og stendur skil á úr sameigin- legum þjóðum,“ segir Árni Páll. Hann vill skilgreina umfang og grundvallarverkefni ríkisins þrengra en gert hefur verið. Þetta er svipaður tónn og Guð- bjartur Hannesson velferðarráð- herra sló í viðtali við Fréttablaðið fyrir tæpu ári, þegar hann sagði að skilgreina þyrfti hlutverk ríkisins upp á nýtt. „Ef við forgangsröðum upp á nýtt getum við svo hætt að borga ýmislegt sem við eigum ekkert endilega að borga sem ríki heldur sem einstaklingar – það sem við getum kallað hálfgerðar skrautstofnanir sem hafa orðið til í góðærinu,“ sagði Guðbjartur þá. Þessi áform velferðarráðherrans gengu reyndar ekki eftir í fjár- lagavinnunni í fyrra. Þá varð niðurstaðan fyrst og fremst sú að reynt var að komast af með minna fé til að reka svipaða þjónustu og verið hefur. Ríkisstofnunum fækkaði vissulega með sameiningum, en fá eða engin verkefni sem þær hafa með höndum voru lögð niður og ríkisstarfsmönnum hefur ekki fækkað í samræmi við fækkun ríkisstofnananna. Hugsunin hjá þessum tveimur ráðherrum úr Samfylkingunni er þess vegna alveg rétt – lykillinn að árangri í glímunni við fjár- lagahallann er að skilgreina hlutverk ríkisvaldsins þrengra. Það er auðvitað kaldhæðni sögunnar að það skuli vera vinstri stjórn sem situr uppi með það verkefni eftir að „hægri“- eða „frjálshyggju“- ríkisstjórnir þöndu umsvif ríkisins út. Vandinn er hins vegar sá að Árni Páll og Guðbjartur eru nánast ófáanlegir til að svara því skýrt hvaða stofnanir og verkefni ríkis- ins þeir eigi við. Kannski kemur það í ljós þegar hulunni verður svipt af nýju fjárlagafrumvarpi. Af ummælum Steingríms J. Sigfússonar í Fréttablaðinu í dag má þó ráða að um þessa nálgun að vandanum ríki ekki samstaða í stjórnarliðinu. Steingrímur segir að ekki verði hróflað við vel- ferðarþjónustunni og „norrænu velferðarsamfélagi“. Hagræðingin nú þýði ekki að verkefnum ríkisins fækki. En er það ekki einmitt vandinn sem núverandi stjórnvöld verða að horfast í augu við? Höfum við efni á allri sömu velferðarþjónustu og önnur norræn ríki við núverandi aðstæður – að minnsta kosti á meðan jafnhægt gengur að auka hagvöxt og umsvif í atvinnulífinu og raun ber vitni? Getur ekki verið að skera þurfi niður réttindi og þjónustu velferðarkerfisins, sem bætt var við í góðærinu; á meðan við reyndum að ljúga því að okkur að við værum ríkari en við erum, svo notuð séu orð fjármálaráðherrans? Frá því á föstudaginn langa 22. júlí hef ég fylgst af vaxandi aðdáun með því hvernig Norðmenn hafa brugðist við ólýs- anlegum hörmungum af reisn, yfirvegun og mannkærleika. Á Íslandi getur engum dulist að hryðjuverkin í Noregi færa illsk- una sem þrífst í sálum fjöldamorðingja á borð við Anders Behring-Breivik óþægi- lega nálægt okkur. En samstaða Norð- manna gegn ofbeldi og illsku er til eftir- breytni og hún hefur vakið athygli um allan heim. Hún gefur okkur von. Von um að hryllilegum hryðjuverkum sé hægt að svara með öðru en blóðhefnd. Allir hafa val um viðbrögð við voðaverkum sem þessum. Norsk stjórnvöld völdu erfiðari leiðina; þá að taka ekki upp orðræðu haturs og hefnda; en standa heldur vörð um lýðræðið, frelsið og fjölbreytni samfélagsins. Þessi leið býður ekki upp á barnalegt and- varaleysi um öflin sem þrífast í samfélög- um okkar, eins og einhver kynni að halda. Andúð á útlendingum, jafnvel botnlaust hatur, og hræðslan við það óþekkta þrífst alls staðar. Líka á Íslandi. Það er óþægi- leg staðreynd sem hvorki má mæta með tómlæti eða afneitun. Hér hafa allir hlut- verki að gegna; almennir borgarar, skólar, kjörnir fulltrúar, fjölmiðlar, trúfélög – í raun allir sem vilja standa vörð um lýð- ræðið, frelsið og fjölbreytnina. Verkefni okkar allra er að skapa ekki jarðveginn fyrir hatrið og illskuna í opinberri umræðu. Það gerum við m.a. með því að skapa alvöru fjölmenningarsamfélag þar sem fólk nýtur verðleika sinna en geldur ekki fyrir upp- runa sinn. Við gerum það með því að kenna börnum okkar að ofbeldi leysir engan vanda, heldur skapar nýjan og verri vanda. Við getum notað hina skelfilegu atburði í Noregi til þess að horfast í augu við sjálf okkur og samfélagið sem við byggjum. Við þessar aðstæður spyrja börn af visku sinni spurninganna sem máli skipta. Hver eru svörin við eldhúsborð landsmanna? Stöndum við keik í hinni barnalegu full- vissu okkar að Ísland sé öðruvísi – betra? – en nágrannalöndin? Varla. Og tómlæti er ekki í boði. Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN HALLDÓR Verkefni okkar allra er að skapa ekki jarðveginn fyrir hatrið og illskuna í opin- berri umræðu. Tómlæti er ekki í boði Hryðjuverk Þórunn Svein- bjarnardóttir formaður þingflokks Samfylkingarinnar Faxafeni 14 www.heilsuborg.is Skráning á mottaka@heilsuborg.is eða í síma 560 1010 HB-hópur Fjölbreyttar æfingar og hressir tímar fyrir lengra komna Þjálfari: Anna Borg sjúkraþjálfari Mán, mið og föst kl. 7.45 eða 9.00 Hefst: 8. ágúst 4 vikur Verð kr. 13.900 eða 9.900 í áskrift (3 mán binditími) Einnig karlatímar hjá Önnu á þri og fim kl. 11.00 frá 1. sept Hvernig á að endurskilgreina hlutverk ríkisins? Höfum við efni á norrænni velferð? Tuð CrossFit-kempan Annie Mist Þórisdóttir er orðin heimsmeistari í greininni. Að launum hlaut hún um þrjátíu millj- ónir króna. Fljótlega urðu það miklar fréttir að Annie þyrfti að greiða skatt af laununum. Viðbrögðin við því voru flest á þá leið að skattastefna ríkis- stjórnarinnar gerði það að verkum að afreksfólki væri ekki vært á Íslandi. Nú er Annie eflaust vel að fénu komin, en íþróttafólk í hennar stöðu þarf engu að síður að borga skatta af launum sínum eins og aðrir. Og verðlaunafé á stórmótum er einmitt eitt form launa. Það er lítið vit í að tuða yfir því. Popúlismi á undanhaldi? Það er oft auðvelt að vera í stjórnar- andstöðu. Þá fylgir orðum manns nefnilega ekki sama ábyrgð og ella. Þess vegna er það allrar athygli vert þegar stjórnarandstöðuþingmaður tekur óvinsæla pólinn í hæðina, eins og framsóknarkonan Eygló Harðardóttir gerir á bloggi sínu þegar hún efast um réttmæti þess að veita meiri fjármuni í Kvikmyndaskóla Íslands. Klassíski popúlistinn hefði ekki sagt hug sinn allan til þess máls. Endurtekur sagan sig? Nokkuð hefur verið skrafað um óboðlegt ástand í fangelsismálum undanfarið. Meðal kosta sem nefndir hafa verið er að nýta húsnæði þriggja heilbrigðisstofnana: Vífilsstaðaspítala, hjúkrunarheimilisins að Víðinesi og geðheilbrigðisstofnunarinnar að Arnarholti. Í því ljósi mætti rifja upp að helsta fangelsi Íslendinga, Litla- Hraun, var upphaflega reist sem sjúkrahús, þó að það hafi reyndar aldrei gegnt því hlutverki. Það skyldi þó ekki vera að sagan endur- tæki sig? Svo fer bráðum að losna húsnæði heilbrigðis- stofnunar í Fossvoginum. stigur@frettabladid.is kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.