Fréttablaðið - 05.08.2011, Blaðsíða 19
Steinseljurótarbitar
og mauk
3 steinseljurætur
ólífuolía
mjólk
Bitar: Skrælið
steinseljurótina og
skerið í tvennt eftir
endilöngu og svo
aftur í tvennt. Skerið
í u.þ.b. 6 sentímetra
bita. Steikið á pönnu
og klárið í ofni í 5-10
mínútur við 100°C.
Mauk: Skrælið stein-
seljurótina og skerið
í bita. Svitið í potti í
2-3 mínútur. Hellið
mjólk yfir og sjóðið þar
til steinseljurótin er
fullelduð. Setjið í mat-
vinnsluvél og maukið
slétt. Bragðið til með
salti og sítrónu.
Gúrkubitar
1 gúrka
ólífuolía
eplaedik
Skrælið gúrkuna og
skerið eftir endilöngu.
Kjarnhreinsið og skerið
í bita. Setjið bitana í
skál með olíu, salti og
ediki og látið liggja í
tíu mínútur.
Rúgbrauðskurl og
harðfiskpúður
1/2 rúgbrauð
1 pk. hraðfiskur
1 pk. söl
Setjið rúgbrauð í mat-
vinnsluvél og vinnið
smátt. Setjið í pott
með ólífuolíu og salti
og velgið upp Hitið
harðfiskinn
og sölin
við 100°
C í 40
mínútur. Látið kólna,
setjið í matvinnsluvél
og púðrið.
Lax
1 laxaflak
50 g sykur
50 g salt
börkur af 1 sítrónu
2 gashylki
Roð- og fituhreinsið
laxinn. Leggið hann
í sykur, salt og
sítrónubörk í 40 mín-
útur. Skolið vel. Skerið
flakið til helminga eftir
endilöngu og skerið
svo í gegnum miðjuna
í tvennt. Leggið bitann
á plastfilmu og rúllið
upp með ólífuolíu.
Herðið vel báðu
megin. Setjið í pott og
sjóðið í 14 mínútur við
vægan hita (50-70°C)
Fjarlægið plastið.
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512-5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
2
VOLGUR LAXARÉTTUR
með rúgbrauðskurli og harðfiskpúðri FYRIR 4F
annar Geir Ólafsson, mat-
reiðslumaður í Iðusöl-
um, leggur sig fram um
að nota íslenskt hráefni.
Hann segir sumarið besta tím-
ann til þess enda nóg af íslensku
grænmeti og öðru góðgæti á boð-
stólum. Ferskleiki og gott hráefni
er honum efst í huga.
Mikið stendur til í Iðusölum
en veitingastaðurinn Matbarinn
opnar þar á næstu dögum. Hann
bætist við ört vaxandi flóru mat-
sölustaða í miðbænum en Iðusalir
eru til húsa í Iðuhúsinu að Lækjar-
götu 2a. „Við munum leggja mesta
áherslu á smárétti og sushi og að
fólk geti komið beint inn af göt-
unni,“ segir Fannar. Staðurinn
er á þriðju hæð en á þeirri fjórðu
er veislusalur. Fannar segir stór-
ar svalir liggja út að stóru porti
fyrir aftan. „Það verða borð úti á
svölum og við eigum von á góðri
stemningu.“
Undanfarið hafa staðið yfir til-
raunir með ýmsa rétti og féllst
Fannar á að gefa lesendum for-
smekk að því sem í boði verður.
Þar er íslenskt hráefni í forgrunni
eins og verður á staðnum. Um
er að ræða laxarúllu með stein-
seljurót, gúrku, rúgbrauði, sölum
og hvítvíns-sabayon. Hér er á
ferðinni gamalkunnugt íslenskt
hráefni í nýstárlegum búningi.
vera@frettabladid.is
Fannar Geir Ólafsson eldar á Matbarnum sem opnar í Iðusölum innan skamms.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nú er best að elda íslenskt
Landskeppni við Færeyinga í skák verður haldin um
helgina. Teflt verður á Húsavík og Akureyri. Keppnin
fer fram í sautjánda sinn. Íslendingar hafa sigrað ellefu
sinnum en Færeyingar unnu naumlega þegar teflt var
á þeirra heimavelli fyrir tveimur árum.
ALLA LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300
www.geysirbistro.is
Verð
aðeins
1.895
með kaffi
eða te