Fréttablaðið - 05.08.2011, Page 20
5. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR2
Hvítvíns-sabayon
5 egg
90 g sykur
85 ml. Hvítvín
50 g léttþeyttur rjómi
Eggin soðin á lágum
hita í 15 mínútur. Látin
kólna. Skiljið eggja-
rauðuna frá hvítunni,
setjið í skál og blandið
sykri við. Hellið hvítvíni
í blönduna og setjið í
rjómasprautu. (hægt
er að blanda u.þ.b
50. gr af léttþeyttum
rjóma við með sleikju
til að fá þykkari og
sléttari áferð.
Færið laxinn upp á
disk. Dreifið gúrku,
steinseljurót, mauki
og sabayon í kring.
Sáldrið rúgbrauði
og harðfiskpúðri yfir.
Skreytið með dilli.
Framhald af forsíðu
Meðal dagskrárliða
á Hinsegin dögum,
eru hinsegin sigling
frá Ægisgarði í kvöld
og Regnbogahátíð
fjölskyldunnar í
Viðey á sunnudag.
Regnbogahátíðin var
haldin í fyrsta skipti
í fyrra og var ákveð-
ið að hún yrði árviss
viðburður.
www.gaypride.is
„Hér verður margt til skemmt-
unar og við tókum þá ákvörðun
að hafa aðganginn frían. En við
seljum happdrættismiða og verð-
um með markað með fjölbreytt
handverk, osta og krækling, ís frá
Erpsstöðum og fleira sem hægt er
að smakka. Meðal þess er græn-
meti úr garðinum hér í Ólafsdal
sem er ræktað á lífrænan hátt,“
segir Rögnvaldur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri og talsmaður
Ólafsdalshátíðar sem nú er haldin
í fjórða sinn.
Ólafsdalur er innst í Gilsfirði,
um sex kílómetra frá veginum
vestur á firði um Gilsfjarðarbrú.
Þar var fyrsti búnaðarskóli lands-
ins stofnaður árið 1880 af Torfa
Bjarnasyni sem rak hann til 1907,
meira og minna fyrir eigin reikn-
ing. „Á Landsbókasafninu liggja
11.000 bréf til Torfa,“ nefnir
Rögnvaldur til fróðleiks. „Til
samanburðar má nefna að á safni
Jóns Sigurðssonar eru 6.000 bréf.“
Skólahúsið í Ólafsdal er frá
1896 og félag sem stofnað var
2007 vinnur að endurreisn þess.
Í því eru 230 félagsmenn og einn
þeirra er Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti, sem ætlar að
ávarpa hátíðina á sunnudag. Fleiri
taka til máls, Kristján Kristjáns-
son, betur þekktur sem KK, sér
um tónlistarflutning og Leikhóp-
urinn Lotta sýnir leikritið Mjall-
hvít og dvergarnir sjö. Í skólahús-
inu eru þrjár sýningar, ein um
skólann, önnur um surtarbrands-
námur á Tindum á Skarðsströnd
og sú þriðja um Daladrenginn
Tómas R. Einarsson tónlistar-
mann. „Tómas gaf út frábæran
DVD-disk nýlega til minningar
um dóttur sína er dó af slysförum
í fyrra. Diskurinn heitir Streng-
ur og sýningin líka, þar eru textar
og tónlist eftir Tómas ásamt kvik-
mynd,“ lýsir Rögnvaldur.
Skólahúsið í Ólafsdal er gestum
til sýnis til 21. ágúst. Þar verður
námskeiðahald á næstunni, það
fyrsta er á morgun um grænmeti
og góðmeti milli 13 og 16. Á sama
tíma verður dagskrá fyrir börn
sem nefnist Leikið, byggt, eldað
og borðað. Nánari upplýsingar eru
á www.olafsdalur.is. „Með þessu
öllu viljum við vekja athygli á
staðnum,“ segir Rögnvaldur, „og
því stóra hlutverki sem hann hafði
að gegna á sínum tíma.“
gun@frettabladid.is
Fjölskylduhátíð á fornu mennta-
og menningarsetri í Ólafsdal
Vigdís forseti flytur ávarp og Leikhópurinn Lotta sýnir barnaleikrit á Ólafsdalshátíð í Gilsfirði á sunnudaginn. Auk þess verður fræðsluganga,
tónleikar með KK, markaður, veitingar, sögusýningar og sitthvað fleira á dagskránni. Svo er kaffihlaðborð á Skriðulandi í Saurbæ.
Skólahúsið er frá 1896. Félagar í Ólafsdalsfélaginu vinna að endurbótum á því. Leikhópurinn Lotta skemmtir börnum.
„Við tókum þá ákvörðun að hafa
aðganginn frían, segir Rögnvaldur en
tekur fram að margt verði til sölu og
vissara sé að hafa lausafé með sér því
netsamband sé stopult í Ólafsdal.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Með þessu viljum við
vekja athygli á staðnum
og því stóra hlutverki sem
hann hafði að gegna á
sínum tíma."
Blómstrandi hamingjudagar verða á Hótel Náttúru á morgun. Dagskráin
stendur frá 13 og fram á kvöld. Boðið verður upp á jóga, hugleiðslu, blómadropa-
kynningu, mat og skemmtun. Allur ágóði rennur til fjölskyldna sem eiga í miklum
fjárhagserfiðleikum. Upplýsingar um Hótel náttúru er að finna á www.hnlfi.is.
TAX FREE FRÁ FIMMTUDEGITIL LAUGARDAGS
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó,
Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,
Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
ÚTSALA
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
25-60% afsláttur
af öllum vörum