Fréttablaðið - 05.08.2011, Síða 46
5. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR34
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Ég er í afskaplega fínu formi
bæði andlega og líkamlega,“ segir
gítarleikarinn snjalli Björgvin
Gíslason.
Hann heldur upp á sextugs-
afmælið sitt 4. september með því
að endurútgefa þrjár sólóplötur
sínar í viðhafnarútgáfu og halda
tónleika í Austurbæ og á Græna
hattinum á Akureyri. „Ég hef
aldrei haldið upp á afmælið mitt.
Ég hef verið úti í Perú eða ein-
hvers staðar. Mér fannst ágætt að
gera þetta svona,“ segir Björgvin
um tónleikana.
Hann hefur lengi verið talinn
einn besti gítarleikari landsins og
hefur spilað með þekktum sveitum
á borð við Náttúru, Paradís,
Pelican, Das Kapital og KK Band.
Síðast vakti hann athygli fyrir
gítarleik sinn á plötu Mugison,
Mugiboogie.
Þrjú ár eru liðin síðan Björgvin
keypti af Senu útgáfuréttinn að
sólóplötum sínum þremur: Öræfa-
rokk, Glettur og Örugglega, frá
árunum 1977 til 1983. Þær tvær
fyrstu komu aðeins út á vínyl og
hafa verið ófáanlegar í mörg ár.
Allar plöturnar hafa nú verið
endurhljómjafnaðar (e. master)
af Gunnari Smára Helgasyni, auk
þess sem sonur Björgvins, Óðinn
Bolli hjá Odinn Design, hannaði
veglegan pakka utan um góðgæt-
ið og nefnist hann Björgvin Gísla-
son 3X. „Það var aldeilis kominn
tími á að gefa þetta út. Ég hef ekki
fengið spilun á þetta í útvarpi enda
nennir enginn að setja rispaðan
vínyl á fóninn,“ segir Björgvin.
Hann hefur lítið spilað á tónleik-
um undanfarin ár en hefur haldið
sér við með gítarkennslu á heimili
sínu. Er alltaf nóg að gera? „Maður
skrimtir. Maður hefur náð endum
saman. Það er nóg fyrir gamlan
hippa sem er ekki kröfuharður,“
segir hann í léttum dúr.
Með Björgvin á afmælistónleik-
unum verða þeir Ásgeir Óskars-
son, Haraldur Þorsteinsson, Stef-
án Már Magnússon, Jón Ólafsson
og Björn Jörundur Friðbjörnsson
sem syngur. Miðasala hefst í dag
á Midi.is. freyr@frettabladid.is
BJÖRGVIN GÍSLASON: Í FÍNU ANDLEGU OG LÍKAMLEGU FORMI
Sextug gítarhetja með
endurútgáfu og tónleika
Í FÍNU FORMI Björgvin Gíslason spilar á sítarinn sinn. Endurútgáfa og tvennir tónleikar eru fram undan í tilefni sextugsafmælis
hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Í augnablikinu hringlar lagið
The Edge of Glory með Lady
Gaga í hausnum á mér.”
Georg Erlingsson Merrit, skipuleggjandi
Draggkeppni Íslands.
„Við höfum verið í sambandi við
hann í fjögur ár. Hann er gríðarlega
mikils metinn í Þýskalandi,“ segir
Helgi Már Bjarnason úr útvarps-
þættinum Party Zone á Rás 2.
Þýski plötusnúðurinn Henrik
Schwarz spilar á stóru Party Zone-
kvöldi sem verður haldið á Nasa
3. september. DJ Margeir hitar
upp. Schwarz hefur verið verið
einn áhrifamesti plötusnúður
Berlínarborgar síðasta áratuginn
og notið mikillar virðingar. Hann
spilaði nýlega á Sonar-hátíðinni í
Barcelona og hefur komið fram á
djasshátíðum og í tónlistarhöllum á
borð við Royal Festival Hall.
„Gengið er ekki hagstætt. Án
samstillts átaks og góðra styrktar-
aðila værum við ekki að flytja inn
þessa aðila. Það þarf að hugsa og
pæla í öllum hliðum málsins til að
svona gangi upp,“ segir Helgi Már
um komu Schwarz til landsins.
Party Zone hefur áður flutt til
landsins þýsku stuðboltana Timo
Maas, Tiefschwarz, Stephan Bodz-
in, Marc Romboy og Booka Shade.
Sá síðastnefndi spilaði í Laugardals-
höll á síðasta ári á Eventhátíð CCP
fyrir framan 3.500 manns.
Forsala miða á tónleikana á Nasa
hefst eftir helgi á Midi.is og í versl-
unum Brims. - fb
Berlínarsnúður
á leið til Íslands
MIKILS METINN Henrik Schwarz spilar á Party Zone-kvöldi á Nasa 3. september.
NORDICPHOTOS/GETTY
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég er
spurður hvort ég hafi reynslu af
pólitísku starfi þegar ég er beðinn
um að spila,“ segir plötusnúðurinn
Margeir Ingólfsson.
Hann er á leiðinni til Svíþjóðar
í nótt þar sem hann tekur þátt í
tónlistarhátíðinni Secret Island
Nation, ásamt Jóni Atla Helgasyni.
Áfangastaðurinn er leyndarmál
en Margeir veit þó að hann er
einhvers staðar á vesturströnd
Svíþjóðar.
„Þessi tónlistarhátíð er haldin á
hverju ári en þetta er í fyrsta sinn
sem við erum með,“ segir Mar-
geir en hátíðin gengur út á að búa
til lítið samfélag og hlusta á góða
teknótónlist saman.
„Fólki er safnað saman frá
Norðurlöndunum og Þýskalandi á
eyjuna. Fyrsti dagurinn fer í það
að stofna nýtt lýðveldi og skrifa
stjórnarskrá. Þess vegna var ég
spurður um pólitíska fortíð mína,“
segir Margeir en það á að stuðla að
því að gestir lifi í sátt og samlyndi
þessa fjóra daga sem hátíðin varir.
„Ég hef komið víða við á lífsleið-
inni og get eflaust hjálpað til við að
skrifa hressandi stjórnarskrá.
Svo leysist þetta upp í eitt
stórt dansiball með tónlistar-
atriðum þar sem við spilum.“
Margeiri var boðið
að taka þátt í hátíðinni
af bókaranum sínum í
Þýskalandi og dró Jón
Atla með sér. „Þetta er
örlítið öðruvísi en að
fara að spila á klúbbi úti
í heimi. Ég er að pakka
ofan í göngubakpok-
ann og svo verðum við
Jón Atli saman í tjaldi.
Tveir í tjaldi á leyni-
eyju,“ segir Margeir
og hlær. -áp
Tveir í tjaldi á leynieyju
HÁTÍÐ Á LEYNIEYJU Mar-
geir Ingólfsson og Jón
Atli Helgason ætla að
spila á tónlistarhátíðinni
Secret Island Nation
en hún er öðruvísi en
gengur og gerist.
„Þetta er töluvert áfall fyrir okkur,“ segir
Andri Ólafsson, bassaleikari og annar söngv-
ara hljómsveitarinnar Moses Hightower.
Bandaríski leikarinn Charles Aaron
„Bubba“ Smith lést á miðvikudag, 66 ára að
aldri. Hann var þekktastur fyrir hlutverk
sitt sem ljúfi risinn Moses Hightower í Police
Academy-myndunum sem voru vinsælar á
níunda áratug síðustu aldar. Andri og félagar
nefndu hljómsveitina eftir persónu Smiths og
voru slegnir að heyra um andlát leikarans.
Ætlar hljómsveitin að minnast Bubba
Smith á einhvern hátt?
„Þetta bar mjög brátt að, þannig að við
höfum ekki beinlínis haft mikinn tíma til
undirbúnings. En við munum að minnsta
kosti minnast hans með örfáum orðum á tón-
leikum í kvöld. Meira hefur ekki verið
ákveðið,“ segir Andri, en Moses
Hightower kom fram á tónleikum
í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi í
gær.
Andri játar að meðlimir Moses
Hightower séu aðdáendur Lögreglu-
skólamyndanna, eða allavega upp
að því marki sem það er hægt sem
fullorðnir einstaklingar. „Ætli það
sé ekki líklegt að hljómsveitin
haldi Lögregluskólavöku,“ segir
Andri og bætir við að hljóm-
sveitin heiðri minningu leikarans
með því að halda áfram að heita
Moses Hightower. „Og halda
áfram að gefa út plötur.“ - afb
Moses Hightower syrgir Moses Hightower
SORG Hljómsveitin Moses Hightower
syrgir nú leikarann Bubba Smith, sem lést
á dögunum. Hann lék ljúfa risann Moses
Hightower í Lögregluskólamyndunum á
níunda áratugnum. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Krakkasíðan er
í helgarblaði Fréttablaðsins
krakkar@frettabladid.is
Ragnheiður Ingunn
Jóhannsdóttir
hefur leikið í
atvinnuleikhúsi
og talað inn á
teiknimyndir frá unga
aldri, í haust leikur hún
í Galdrakarlinum í Oz.
Draumur að
verða leikkona
LEIKJANÁMSKEIÐ 8.–19. ÁGÚST.
Tveggja vikna leikjanámskeið fyrir börn 6-9 ára
verður haldið í Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði 8.-19.
ágúst. Þátttaka er ókeypis. Skráning og nánari
upplýsingar eru á www.astjarnarkirkja.is