Fréttablaðið - 18.08.2011, Síða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011
Fimmtudagur
skoðun 18
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Menningarnótt
18. ágúst 2011
191. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512-5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512
3
Lakme-tískuvikan á Indlandi hófst í gær og
stendur fram yfir helgi. Viðburðurinn, sem er
haldinn árlega, er þýðingarmesti tískuviðburður
landsins. Hér má sjá hönnun Archana Kochhar
en bleikar og appelsínugular rendur einkenndu
allt hennar framlag.
F lóra Karitas Buenano er ungur förðunarfræðingur hjá Mac í Kringlunni. Samhliða því tekur hún að sér sjálfstæð verkefni. Meðal þeirra er förðun fyrir myndband hljóm-sveitarinnar Hjaltalín, verkefni fyrir list-ræna hópinn Weird Girls Project og í kvöld mun hún farða fyrir úrslitakvöld fatahönn-unarkeppninnar Reykjavík Runway.
Flóra Karitas Buenano förðunarfræðingur segir náttúrulega förðun og dökkar varir vera ríkjandi í haust.
Sími 551 2070Opið mán.-fös. 10-18.Lokað á laugardögum í sumarGóð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.misty.is
Mjúkir og þægilegir herra skór úr leðri á fínu verði!
Náttúruleg og djörf
REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR
KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR
SEX VERSLANIR
FARTÖLVUR
BETRA
ALLTAF
VERÐ
VIÐSKIPTI Fyrirtækið Geogreen-
house áformar að hefja útflutning
á tómötum og miðast hugmyndirn-
ar við að fyrsta sending fari utan
í september á næsta ári. Að öllu
óbreyttu yrði það þá fyrsta fyrir-
tækið til að flytja út grænmeti
frá Íslandi. Nú þegar hafa náðst
samningar við breskt fyrirtæki
um markaðssetningu, pökkun og
dreifingu tómatana. Gangi áform-
in eftir verða tómatarnir meðal
annars til sölu hjá stórmarkaða-
keðjunni Marks og Spencer.
Tómatarnir verða ræktaðir í sér-
stökum hátæknigróðurhúsum sem
verða reist í þremur þrepum, en
að því loknu munu um 150 manns
starfa hjá fyrirtækinu. Áformað er
að hefja framkvæmdir næsta vor
og í fyrsta áfanga verður reist 3,3
hektara gróðurhús sem 35 manns
munu starfa við. Tveimur árum
seinna verður það stækkað upp í
10 hektara og þá yrði starfsmanna-
fjöldinn kominn upp í tæplega
hundrað manns. Ekki hefur verið
ákveðið hvenær lokaáfanganum
lýkur en þá eiga gróðurhúsin að
vera orðin 20 hektarar og eins og
fyrr segir munu þá um 150 manns
starfa hjá fyrirtækinu. Tómatarn-
ir verða fluttir með skipi til Imm-
ingham í Englandi.
Sigurður Kiernan, stjórnarfor-
maður Geogreenhouse, segir að
verið sé að vinna í samningi við
orkufyrirtæki en gróðurhúsið
verði staðsett við jarðvarmavirkj-
un. Hann kveðst ekki geta sagt
nánar til um staðsetningu fyrir
gróðurhúsið en Fréttablaðið hefur
heimildir fyrir því að rætt hafi
verið við bæjaryfirvöld á Reykja-
nesi um að reisa það þar.
Sigurður telur þessa vöru
hafa ýmsa kosti fram yfir þær
sem framleiddar eru víðast hvar
erlendis. „Við höfum þann kost á
Íslandi að geta notað besta vatn
í heimi við ræktunina á meðan
Bretar, Hollendingar og fleiri eru
að nota iðnaðarvatn í sína fram-
leiðslu,“ segir hann. „Við notum
ekki heldur skordýraeitur eins
og gert er víðast hvar erlendis og
það gefur vörunni ákveðinn gæða-
stimpil. Svo er þetta umhverfis-
vænt því við erum ekki að brenna
gas til að hita gróðurhúsin held-
ur notum við jarðvarma.“ Jarð-
varmavirkjun mun sjá gróðurhús-
inu fyrir heitu vatni, rafmagni,
vatni til að vökva og koltvísýringi.
Honum verður hleypt inn í gróður-
húsið til að örva vöxt.
Með svokölluðum aðlögunar-
samningi frá árinu 2002 var
íslenskum framleiðendum gert
kleift að flytja út grænmeti. Að
sögn Bjarna Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Sambands garð-
yrkjubænda, hefur þó enginn hafið
útflutning enn. „Reyndar hafa
verið gerðar tilraunir á útflutn-
ingi á rófum og kartöflum til Fær-
eyja en annars hefur enginn hafið
útflutning sem einhverju nemur,“
segir hann.
- jse
Vilja flytja út íslenska tómata
Fyrirtækið Geogreenhouse hefur uppi áform um að reisa 20 hektara gróðurhús. Skapar vinnu fyrir 150
manns. Ræktaðir verða tómatar sem verða fluttir út og seldir í Marks og Spencer meðal annarra staða.
1. áfangi
3,3 hektara gróðurhús = 6 MW
2. áfangi
10 hektara gróðurhús = 18 MW
3. áfangi
20 hektara gróðurhús = 36 MW
Hvað þarf mörg mega-
vött fyrir hvern áfanga?
í Kringlunni
Konukvöld
í kvöld frá kl. 18–21
ÞURRT AÐ MESTU Víðast hæg
norðlæg eða breytileg á landinu í
dag. Skýjað með köflum og þurrt
en stöku skúrir syðra. Hiti 7-16 stig.
VEÐUR 4
7 10
10
12
12
Náttúruleg en djörf
haustförðun
Mikil vinna liggur á bak við
náttúrulega förðun að sögn
Flóru Buenano hjá Mac.
allt
Hestaferðir í tuttugu ár
Hjónin á Oddsstöðum í
Lundarreykjadal hafa
skipulagt hestaferðir í 20 ár.
tímamót 26
FÓLK „Þetta er góður hópur en
erfiðast þykir þeim að læra
framburðinn,“ segir Gísli
Hvanndal, sem útskrifar sex-
tán nemendur
með BA-gráðu
í íslensku við
Háskólann í
Beijing næsta
vor.
Nemendurn-
ir eru valdir
af kostgæfni
inn í Háskól-
ann í Beijing
og aðeins þeir
bestu fá pláss við skólann.
Gísli hefur verið búsettur í
Kína undanfarin þrjú ár en það
var af einskærri ævintýraþrá
sem hann sótti um vinnuna.
Námið byrjaði á dramatískan
hátt 6. október 2008, á sama degi
og íslenska bankakerfið riðaði til
falls.
- áp / sjá síðu 54
Kennir Kínverjum íslensku:
16 útskrifast
með BA-gráðu
GÍSLI HVANNDAL
Hrifnir af landi og þjóð
Craig Murray og Darryl
Brown fagna tuttugu
ára sambandsafmæli á
tónleikum Frostrósa.
fólk 54
Krabbamein fótboltans
Er leikaraskapur og
svindl að gera út af við
knattspyrnuna?
sport 46
UNDUR UNDIR YFIRBORÐINU Kalmanshellir í Hallmundarhrauni er ægifagurt náttúru-
fyrirbæri sem fáir hafa barið augum. Á morgun verður hellirinn friðaður enda þolir hann ekki umgang manna.
Hellirinn er lengsti hraunhellir á Íslandi. Þar er eitt lengsta hraunstrá jarðar, 1,65 metrar að lengd. MYND/ÁRNI B. STEFÁNSSON
EFNAHAGSMÁL Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands kynnti í gær ákvörðun sína um 0,25 prósenta
hækkun stýrivaxta, sem nú eru 4,5 prósent. Nefndin
segir frekari hækkanir á næstu mánuðum líklegar.
Meginrökin fyrir hækkuninni eru tilgreind í til-
kynningu frá nefndinni sem viðbrögð við versnandi
verðbólguhorfum frá síðustu vaxtaákvörðun.
Bæði Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband
Ísland brugðust ókvæða við hækkuninni í gær og
sögðu hana óskiljanlega í ljósi efnahagsaðstæðna í
landinu. Þau telja hana draga úr efnahagsbatanum.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði hins
vegar í gær að hækkunin ætti ekki að koma á óvart
og væri í samræmi við fyrri yfirlýsingar nefndar-
innar.
Verðbólga er nú fimm prósent. Samkvæmt nýrri
þjóðhagsspá Seðlabankans verður hún 6,8 prósent á
fyrsta ársfjórðungi 2012. - mþl, shá
Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 0,25 prósent í gær:
Meiri hækkun stýrivaxta boðuð