Fréttablaðið - 18.08.2011, Qupperneq 16
16 18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Dagurinn hefst eins og flestir virkir dagar á heimilinu. Upp úr sjö rumska yngstu
börnin tvö, kanna hvort pabbi og mamma séu
ekki örugglega á sínum stað og taka svo til við
morgunverkin sín, vekja dúkkur og bangsa og
púsla legókubbum.
Eftir að hafa klætt sig, borðað morgunmat
og burstað hár og tennur er haldið af stað á
leikskólann. Okkar leikskóli er steinsnar frá
heimilinu og göngutúrinn er hressandi. Þegar
inn er komið fer svo hver að sínu hólfi, hengir
upp lopapeysu og buff, raðar skóm eða stíg-
vélum.
Á leikskólanum líður dagurinn við leik og
störf við hvers barns hæfi. Skipulagðar sam-
verustundir eru inni og úti þar sem unnið er í
stórum og smáum hópum. Félagsfærni og mál-
þroski eru á dagskrá, hreyfing, hlutverkaleik-
ir, söngur. Þetta er vinna leikskólabarnanna.
Þau starfa undir styrkri leiðsögn allan daginn,
allt þar til mamma og pabbi koma að sækja í
lok dags.
Þessa dagana ræða leikskólakennarar og
sveitarfélög um launakjör. Meðal annars
er rætt um 11% leiðréttingu á launum leik-
skólakennara sem hafa undanfarin ár dreg-
ist aftur úr hliðstæðum stéttum. Til að mynda
hafa leikskólakennarar um það bil 25% lægri
laun en grunnskólakennarar. Stéttirnar hafa
þó hliðstæða menntun og bera sambærilega
ábyrgð.
Ef við setjum prósentin ellefu í samhengi þá
jafngilda þau um 15 þúsund króna hækkun á
útborguð laun leikskólakennara, eftir skatta
og launatengd gjöld. Það er varla ein ferð í
Bónus.
Allir kennarar vinna mikilvægt starf. Fyrir
það eiga þeir skilið þakklæti okkar, virðingu
samfélagsins og sanngjörn laun. Leiðrétting
á launum leikskólakennara er bæði mikilvæg
og sjálfsögð. Við skorum á viðsemjendur leik-
skólakennara að mæta þeim af sanngirni og
leiðrétta laun þeirra í samræmi við menntun,
ábyrgð og laun viðmiðunarstétta þeirra.
HALLDÓR
Ef við setjum prósentin
ellefu í samhengi þá
jafngilda þau um 15 þúsund
króna hækkun á útborguð laun
leikskólakennara, eftir skatta og
launatengd gjöld. Það er varla
ein ferð í Bónus.
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Ein ferð í Bónus
Kjaramál
Árni Svanur
Daníelsson
foreldri og prestur
Kristín Þórunn
Tómasdóttir
foreldri og prestur
Mjög gott eintak af Toyota
Land Cruiser til sölu
Vel með farinn, 7 manna
Toyota Land Cruiser til sölu.
Leður áklæði, topplúga,
krókur ofl. Þetta er einn með
öllu.Árgerð 2005 - Ekinn
102.000 - Bensínbíll.
B
jarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins,
sagði í byrjun vikunnar að draga ætti umsókn Íslands
um aðild að Evrópusambandinu til baka. Yfirlýsingin
var ekki nýmæli. Rökstuðningurinn var það hins vegar.
Í viðtali við Vísi sagði Bjarni að tvennt hefði breytzt
frá því að sótt var um aðild að ESB, en sjálfur var hann einu sinni
hlynntur umsókn. Annars vegar ættu Íslendingar nóg með sitt,
meðal annars glímuna við að ná jafnvægi í ríkisfjármálunum.
Hins vegar væru evruríkin í kapphlaupi við tímann að bjarga for-
sendum samstarfsins og ESB að
þróast í „sambandsríki þar sem
hvert og eitt aðildarríki þarf að
gefa eftir af sínu forræði á sviði
ríkis fjármála“.
Um fyrri röksemdina er það
að segja að flest ríki sem sótt
hafa og samið um aðild að ESB
hafa um leið verið upptekin af
eigin vandamálum. Einhvern veginn hafa þau þó náð að sinna
hvoru tveggja í einu. Oft hefur það markmið að verða aðildarríki
sambandsins einmitt verið hvati til nauðsynlegra umbóta. Ef ríkis-
stjórnin væri til dæmis sammála innbyrðis um þetta markmið,
mætti ætla að minni lausatök væru á ríkisfjármálunum.
Um seinni röksemdina má segja að hún sé ný útgáfa af þeim
útjöskuðu rökum sem notuð hafa verið gegn því að sækja um aðild
að ESB undanfarin tuttugu ár eða svo; að framtíð sambandsins sé
í svo mikilli óvissu að ekki sé rétti tíminn til að sækja um aðild.
Evrópusambandið er hins vegar í stöðugri þróun. Í bráðum
sextíu ára sögu þess hefur ýmislegt gengið á og samstarfið lent í
alls konar uppnámi og kreppu. Árið 1992 sprakk til dæmis gengis-
samstarfið sem var undanfari evrunnar. Þá stóð ekki á spádómum
um endalok ESB, að evran yrði aldrei að veruleika o.s.frv. Reyndin
varð önnur. ESB-ríkin hafa að lokum jafnað ágreining og leyst
úr vandamálum vegna þess sameiginlega mats að sameinuð séu
þau sterkari en sundruð. Af sömu ástæðu hafa umsóknarríki ekki
hlaupið upp til handa og fóta og slitið viðræðum. Þau hafa horft
til langtímahagsmunanna af því að eiga aðild að þessu samstarfi.
Skrýtið er að heyra forystumenn Sjálfstæðisflokksins gagnrýna
viðleitni ESB til að framfylgja þeim aga í ríkisfjármálum sem
evruríkin undirgengust strax í upphafi og telja að hennar vegna
eigi Ísland ekki heima í samstarfinu. Fyrir ríki sem hefur sitt á
þurru í hagstjórninni, þar á meðal í ríkisfjármálum, er þessi agi
ekki vandamál. Fyrir skussana er hann það hins vegar.
Talandi um „forræði á sviði ríkisfjármála“ má rifja upp að
eftir að Ísland klúðraði eigin efnahagsmálum fengum við fjár-
hagsaðstoð frá vina- og nágrannaríkjum, sem settu það skilyrði
að við sýndum aga og ábyrgð með því að fylgja áætlun Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, meðal annars í ríkisfjármálum. Þannig getur
„forræðið“ farið fyrir lítið, jafnvel þótt ríki séu ekki í ESB.
Málflutningur formanns Sjálfstæðisflokksins bendir því
miður til að þar sé ekki horft til langtímahagsmuna og „ískalds
hagsmuna mats“ fyrir Ísland, heldur í mesta lagi fram í nóvember
og þá til mun þrengri hagsmuna.
Rök formanns Sjálfstæðisflokksins fyrir að draga
aðildarumsókn til baka halda illa vatni.
Þröngir hagsmunir
Afsagna að vænta?
Eitt af þeim verkefnum sem stjórn-
málamenn töldu hvað mikilvægast
í kjölfar hrunsins var að endurreisa
traustið á þeim sjálfum og stjórn-
málum almennt. Óhætt hlýtur að
vera að fullyrða að það hefur ekki
tekist. Skilmerkilegustu skoðanakann-
anir sýna að einungis 12,4 prósent
aðspurðra telja að Alþingi standi
vörð um hagsmuni almennings.
Það er snautlega lág tala. Í mörgum
fyrirtækjum væri það talin ástæða til
mannabreytinga ef aðeins
um það bil tíundi hver
viðskiptavinur bæri
trausts til starfsmanna
þess. Kannski stjórn-
málamennirnir sjálfir standi í vegi fyrir
endurreistu trausti á stjórnmálamenn.
Gagnrýninn Guðlaugur Þór
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing maður
Sjálfstæðisflokksinsm, hefur gagnrýnt
Guðbjart Hannesson velferðarráð-
herra þar sem hann segir að færa
þurfi þjónustu Landspítalans aftur til
2004. Guðlaugur vill nefndarfund
um málið og því er ekki úr vegi
að rýna í nokkrar tölur. Árið 2004
fékk Landspítalinn tæpa 24,8
milljarða króna á fjárlögum.
Sú upphæð hafði
vaxið í tæpa 33
milljarða árið
2011.
Ráðherrann Guðlaugur Þór
Guðlaugur er forveri Guðbjarts í
embætti, en hann var ráðherra
heilbrigðismála 2007 til 2009. Á því
árabili uxu fjárlög til spítalans um
rúmlega 1,6 milljarða króna. Í þriggja
ára ráðherratíð Guðlaugs fór spítalinn
5,1 milljarð króna fram úr fjárlögum,
þar af 1,6 milljarða árið 2008, eina
heila árið sem hann gegndi
embættinu. Kannski ofvöxtur
og umframkeyrsla síðustu
ára sé hluti af vandamálinu,
ekki bara hjá Landspítalanum
heldur víða annars
staðar?
kolbeinn@frettabladid.is