Fréttablaðið - 18.08.2011, Side 28

Fréttablaðið - 18.08.2011, Side 28
18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR28 Alþjóðlegt málþing um Lewis-taflmenn- ina verður haldið í Skálholti á morgun. Fjallað verður um mögulegan uppruna fornu taflmannanna sem fundust á eyj- unni Lewis, eða Ljóð- húsum eins og eyjan er nefnd í fornum íslenskum heimild- um. Þeir eru taldir elstu taflmenn sem fundist hafa í veröld- inni, hafa svipmót nútíma taflmanna og eru meðal merk- ustu muna Breska þjóðminjasafnsins. Flestir eru skornir úr rostungstönnum og gerðir á árunum 1150 til 1200. Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur setti fram kenningu um að taflmennirnir hefðu verið gerðir í Skál- holti og nefndi Margréti hina högu sem mögulegan höfund, en hún var fyrsta nafnkunna myndlistarkona Íslands og hennar er sérstaklega getið í Pálssögu. Í ár er 800 ára ártíð Páls biskups Jónssonar (1155-1211), en steinkista hans fannst við uppgröft í Skálholti hinn 21. ágúst 1954. Málþingið er meðal annars haldið af því tilefni. Tveir breskir fræðimenn, dr. James Robinson frá Breska þjóðminjasafninu og dr. David H. Caldwell frá því skoska, munu tala á málþinginu auk fjögurra íslenskra fræðimanna. Málþingið stendur frá klukkan 10-17 og fer fram á ensku. Allir eru velkomnir. Skráning fer fram í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor@skalholt.is. Heimild: www.skalholt.is Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu eiginkonu, móður, tengdamóður, dóttur, ömmu og systur, Hellenar S. Benónýsdóttur sjúkraliða, Ósabakka 15, Reykjavík. Sérstakar þakkir fyrir alúð og hlýju færum við starfsfólki Landspítalans á deild 11E og öllum þeim sem hafa minnst hennar. Andri Jónasson Anna Rut Hellenardóttir Pétur Breiðfjörð Pétursson Heimir Þór Andrason Erla Gréta Skúladóttir Silja Dögg Andradóttir Sigurður Freyr Bjarnason Þóra Eggertsdóttir ömmubörn, systkini og aðrir aðstandendur Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna fráfalls og útfarar elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, Ásu Kristinsdóttur Grenimel 43, sem andaðist mánudaginn 11. júlí. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 10E á Landspítalanum og á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi fyrir góða umönnun. Svavar Björnsson Ásta Svavarsdóttir Tómas R. Einarsson Sigrún Svavarsdóttir Kristín Svavarsdóttir Sæmundur Runólfsson Björn Þór Svavarsson Sigrún Jóna Andradóttir og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, Halldór Sigurður Guðmundsson plötu- og ketilsmiður, Bakkastöðum 73, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 12. águst. Útför verður auglýst síðar. Bergljót Harðardóttir Hulda Björk Halldórsdóttir Sigfús Jónas Guðnason Guðmundur Halldórsson Þröstur Reyr Halldórsson Steinunn Guðjónsdóttir Hulda R. Einarsdóttir Jón Pálsson Jón Guðmundsson Guðrún Ólafsdóttir Helgi Guðmundsson Anna Magnúsdóttir afabörn og langafabarn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Magnús Albertsson matsveinn, Laufrima 1, Reykjavík, áður til heimilis að Grýtubakka 26, Reykjavík, andaðist á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 8. ágúst sl. Jarðarförin fer fram föstudaginn 19. ágúst kl. 15.00 frá Fella- og Hólakirkju. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim er vilja minnast hans er bent á að láta Slysavarnarfélagið Landsbjörg njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda, Ásdís Margrét Magnúsdóttir Þór Kristjánsson Ágúst Magnússon Magnús Kr. Þórsson Ólína Kr. Jónsdóttir Solveig Margrét Þórsdóttir Fanney Bjarnþrúður Þórsdóttir Ásþór Breki. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Lilían Kristjánsson Hamrabergi 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 15. ágúst. Útförin fer fram í Dómkirkjunni miðvikudaginn 24. ágúst kl. 13.00. Hörður Guðjónsson Brynhildur Sveinsdóttir Jóhanna Guðrún Guðjónsdóttir Guðmundur Jón Guðjónsson Dóra Magnúsdóttir Ásta Kristjana Guðjónsdóttir Jóhann Gestsson Þorsteinn Sigurður Guðjónsson Kristín Auður Halldórsdóttir og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Unnur Stefánsdóttir leikskólakennari, Kársnesbraut 99, Kópavogi, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 8. ágúst. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 19. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnist hinnar látnu er bent á Ljósið eða Samtök heilsuleikskóla. Hákon Sigurgrímsson Finnur Hákonarson Rósa Birgitta Ísfeld Grímur Hákonarson Halla Björk Kristjánsdóttir Harpa Dís Hákonardóttir Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir Innilegar þakkir til allra er sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför hjartkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Margrétar Sigurbjargar Sigurðardóttur Hólmi, Mýrum Hornafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunarheimilisins á Höfn. Guðjón Sigurður Arason börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri ástvinur, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ómar Konráðsson tannlæknir, Sunnuflöt 41, Garðabæ, lést 14. ágúst á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ þriðjudaginn 23. ágúst kl. 13.00. Edda Eyfeld Ásta Ómarsdóttir Ómar Richter Hrund Ómarsdóttir Swaroop Pusala Hafdís Huld Haakansson barnabörn og barnabarnabörn. SES Design og Budda Design senda frá sér nýja línu nú um helgina. Línan verður frumsýnd á Loka- stíg á Menningarnótt. Fata- og textílhönnuð- urnir Sigríður Elfa Sig- urðardóttir og Aðalbjörg Erlendsdóttir frumsýna á Menningarnótt nýja línu af skarti og silki- slæðum í versluninni Textíl á Lokastíg 28. Þær stöllur reka sa ma n v i n nu- stofuna RE-105 í Skúlatúni 4. Sig- ríður Elfa þæfir ull og prjón- ar undir merk- inu SES design en Aðalbjörg handmálar silki undir merkinu Budda Design. „Við höfum unnið í textíl í tuttugu ár og deilt vinnu- stofu árum saman,“ segir Aðalbjörg. „Yfirleitt vinnum við hvor í sínu lagi en stundum bland- ast þetta saman og við notum efni hvor frá annarri. Skartgrip- ina sem við sýnum á Menningarnótt gerir Sigríður en úr efni frá mér og ég geri slæður sem fara við skartgripina.“ Aðalbjörg og Sigríð- ur verða á staðn- um milli klukkan 12 og 16 og kynna línuna. Góð samvinna NÝ LÍNA Skartið vinnur Sigríður Elfa úr þæfðri ull og Aðalbjörg hannar slæður í stíl. MYND/OKSANA OG GEORG Sigríður og Aðalbjörg sam- nýta efni og í ullarskartinu má finna silkiafganga. Málþing um Lewis-taflmenn Merkisatburðir 1786 Reykjavík fær kaupstaðarréttindi ásamt Grundarfirði, Ísa- firði, Akureyri, Seyðisfirði og Vestmannaeyjum. Þá eru Íslendingar 38 þúsund, þar af eru Reykvíkingar 167. 1954 Minnismerki um Skúla Magnússon landfógeta er afhjúpað í gamla kirkjugarðinum við Aðalstræti í Reykjavík. Það er eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal. 1961 Grasagarðurinn í Laugardal í Reykjavík er formlega opnaður. 1966 Fyrsta skóflustunga að myndlistarhúsi á Klambratúni er tekin. Það gerir Jóhannes S. Kjarval. 1990 Listaverkið Sólfar eftir Jón Gunnar Árnason er afhjúpað við Sæbraut í Reykjavík.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.