Fréttablaðið - 18.08.2011, Page 54
18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR30
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
ENSKI
BOLTINN
STÆRRI
EN ALLT
SKILA LEIFTURSÓKNIR ARSENAL TITLI Í ÁR?
512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Heill þér
Zlatan!
Hæ! Heill
þér Zigrún!
Hvað segirðu
beinasleggjan
þín? Eigum
við að borða
saman í kvöld?
Já, fáum
okkur eitt-
hvað „goth“
að borða!
Hehehe!
Myrkra-
húmor!
Vá! Ég
hélt að
hann
væri bara
goðsögn!
Sá árla rís...
... verður
margs vís.
En pirrar börnin
hans óendanlega.
Snertu
mig
ekki!
Þú snertir
mig fyrst!
Við
erum
komin.
Drífum
okkur.
Hættu að snerta mig!
Hættu að snerta mig!
Hættu að snerta mig!
Hættu að snerta mig!
LÁRÉTT
2. tarfur, 6. ógrynni, 8. skap, 9. frost-
skemmd, 11. í röð, 12. lítið barn, 14.
þvo, 16. kallorð, 17. ágæt, 18. svif, 20.
skóli, 21. högg.
LÓÐRÉTT
1. tónlistarstíll, 3. einnig, 4. nennu-
leysi, 5. svelg, 7. pest, 10. nár, 13.
hrós, 15. ilmur, 16. rámur, 19. tví-
hljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. boli, 6. of, 8. geð, 9. kal,
11. tu, 12. kríli, 14. skola, 16. hó, 17.
fín, 18. áta, 20. fg, 21. stuð.
LÓÐRÉTT: 1. rokk, 3. og, 4. letilíf, 5.
iðu, 7. farsótt, 10. lík, 13. lof, 15. angi,
16. hás, 19. au.
Fæðingargangur
Hvert
þeirra átt
þú, María
mín?
Íslenska sauðkindin er misvinsæl hjá landanum. Sumir segja hana heimska
og ljóta og eigna henni gróðureyðingu
landsins frá fjöru til fjalls. Vestfirskar
kindur komust einmitt í fréttir í vor fyrir
að éta sumarblómin í görðum Bolvíkinga.
Mér finnst hún alls ekki ljót og hélt hún
ekki lífinu í íslensku þjóðinni gegnum
aldirnar? Það kemur líka annað hljóð
í strokkinn þegar búið er að matreiða
hana á disk, þá erum við sammála um
að íslenskt lambakjöt sé það besta í
heimi!
INNFLUTNINGUR á lambakjöti
hefur lengi verið til umræðu.
Fólk kvartar yfir háu verði
á íslenska lambakjötinu og
vill hafa val. Ég geri mér svo
sem enga grein fyrir því hvaða
áhrif það mundi hafa á
íslenska kjötframleiðslu
almennt, en þó er ég
hrædd um að minnstu
fjárbúin fyndu fyrir
því, sem er synd,
minnstu búin fram-
leiða besta kjötið.
ÉG ER ekki viss um að
lambakjöt sé framleitt í
útlöndum á sama hátt og
hér. Hlaupandi frjálst um
fjalllendið þar sem það kryddar sig sjálft.
Vinnustundirnar á bak við hverja læris-
sneið eru þó óteljandi því þó að lambið
sjái um sig sjálft yfir sumarið verður það
ekki til úr engu.
VÖKUSTUNDIRNAR á sauðburði þar
sem tekið er á móti hverju einasta lambi
eru margar. Hvert eyra þarf að merkja
og skrá og eftir að lömbin fara á fjall er
borið á tún svo hægt verði að heyja ofan
í flokkinn. Í heyskap er bóndinn upp á
dynti náttúrunnar kominn og má ekki
missa af sólskinsstund. Á haustin er
hlaupið um fjöll á tveimur jafnfljótum
eftir hverri kind. Farnar eru margar
ferðir fram eftir hausti, þar til allt hefur
skilað sér í hús. Í sláturtíðinni fyllir ljúf-
fengt lambakjötið búðarhillurnar.
ÞAR MEÐ er vinnu bóndans þó ekki
lokið því huga þarf strax að næsta „fram-
leiðsluskammti“ ef hægt er að segja sem
svo. Fóðra vel og rækta hverja kind, svo
hún gefi af sér gæðaafurð að vori. Líf
bóndans snýst ekki um annað og hann
þekkir hverja kind.
ÞAÐ SEM hann fær svo í vasa sinn fyrir
heilt lamb er rétt um það bil kaupverð
eins læris út úr búð! Það má alveg hafa
það í huga næst þegar býsnast á yfir
verðinu á besta lambakjöti í heimi.
Litla lambið mitt