Fréttablaðið - 18.08.2011, Page 64
18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR40
folk@frettabladid.is
Robin Gibb verður gestur Björg-
vins Halldórssonar á árlegum
jólatónleikum söngvarans í Laug-
ardalshöll. Þetta kom í fréttatil-
kynningu frá Senu í gær.
Robin var hluti af hinum fræga
söngflokki Gibb-bræðra, Bee
Gees, sem hann stofnaði með
tvíburabróður sínum Maurice
og Barry. Bee Gees eru meðal
söluhæstu hljómsveita heims en
bræðurnir seldu yfir hundrað
milljónir eintaka af hljómplötum
og gnæfðu yfir diskóið þegar það
stóð sem hæst.
Gibb er kvæntur listakonunni
Dwinu Murphy Gibb og þau eiga
saman einn son. Hann er mikill
bindindismaður og grænmetis-
æta. Robin Gibb verður ekki eini
Bretinn sem syngur á
tónleikum Björgvins
því eins og komið
hefur fram í Frétta-
blaðinu verður
óperusöngvarinn
Paul Potts
einnig
meðal
gesta.
Robin Gibb
syngur inn
jólin með Bó
BINDINDISMAÐUR Robin Gibb leggur
ekki kjöt sér til munns og er annálaður
bindindismaður. Hann verður gestur
Björgvins Halldórssonar á jólatónleik-
unum í Laugardalshöll.
NORDICPHOTOS/GETTY
Bandaríski ólátabelgurinn
Steve-O hyggst troða upp í
Háskólabíói 9. nóvember. Sýn-
ingin, sem ber heitið Entirely
Too Much Information Tour, er
blanda af uppistandi og áhættu-
atriðum en Steve-O er hluti af
Jackass-hópnum.
Þetta verður ekki í fyrsta skipti
sem Steve kemur til landsins því
hann var hluti af Jackass-hópnum
sem kom hingað fyrir tíu árum.
Mörgum er það eflaust í fersku
minni þegar þeir félagar ældu
í stefnumótaþættinum Djúpu
lauginni. Steve hefur hins vegar
tekið sig rækilega á, er núna
grænmetis æta og hættur að
neyta allra vímugjafa, sem voru
ansi stór þáttur í lífi hans.
Steve-O aft-
ur til Íslands
NÝ SÝNING Steve-O hyggst halda
sýningu í Háskólabíói 9. nóvember.
Harry Bretaprins hefur engan
tíma fyrir kærustu í augna-
blikinu, en hann er hættur með
undirfatafyrirsætunni Florence
Brundenell-Bruce. Þau hafa verið
saman síðan í júní en nú er ævin-
týrið á enda.
Nafnlaus heimildarmaður dag-
blaðsins Mirror segir Harry
vera mjög upptekinn við þjálf-
un sína sem þyrluflugmanns og
þess vegna hafi hann sagt fyrir-
sætunni upp. Eftir flugmanns-
námið ætlar Harry að snúa aftur
til Afganistans og sinna herþjón-
ustu.
Harry á lausu
HEFUR EKKI TÍMA Harry Bretaprins
er hættur með undirfatafyrirsætunni
Florence Brundenell-Bruce.
NORDICPHOTO/GETTY
Leður hefur heldur betur verið að
ryðja sér til rúms á tískupöllunum
undanfarið og nú hefur leðrið
skilað sér á rauða dregilinn.
Kjólar úr þessu sterka efni
eru greinilega vinsælir hjá
stjörnunum, sem keppast
um að skarta glansandi leður-
kjólum við fín tilefni. Merki á borð
við Hermés og Chloe voru með litríkt
leður í bolum, kjólum, pilsum og buxum í
vetrarlínum sínum fyrir komandi haust
og því þess virði að halda augunum
opnum fyrir fögrum leðurflíkum.
Leðurkjólatíska
í Hollywood
APPELSÍNU-
GULT Blake
Lively tók
sig vel út í
þessum skæra
leðurkjól.
MEÐ VÖSUM
Jennifer Aniston var
afslöppuð í leður-
kjól með hendur í
vösum.
BRÚNT Sænska
leikkonan Malin
Åkerman var
glæsileg í leður-
kjól með flottu
sniði.
TÍSKUFYRIR-
MYND Nicole
Richie hefur
alltaf þótt smart
til fara og fer
þessi svarti
leðurkjóll með
háum kraga
henni vel.
RAUTT
Leikkonan
Elisabeth
Banks
dró að sér
athyglina í
hárauðum
kjól.
ALKLÆÐN-
AÐUR
Að vera
klæddur
i leður
frá toppi
til táar er
vetrartískan
að mati
tískuhússins
Hermés.
NORDICPHOTOS/GETTY
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Ert þú næsta stjarnan í íslenskri fatahönnun? Skráðu þig þá til leiks í nýjum og spennandi
Sjónvarpsþætti í framleiðslu Saga Film þar sem við leitum að efnilegustu fatahönnuðum landsins.
Það er til mikils að vinna. Sigurvegarinn fær 1 milljón í verðlaun og tækifæri til að hanna fyrir
66°Norður, eitt öflugasta fataframleiðslufyrirtæki landsins.
Gríptu þetta einstaka tækifæri – og hannaðu fyrir Ísland.
Ert þú framtíðarhönnuður 66° Norður?
1,3 MILLJARÐAR hafa horft á eitthvert myndbanda bandaríska rapparans Eminem á Youtube samkvæmt bandaríska rokktímaritinu Rolling Stone. Hann var nýverið
krýndur konungur hipphoppsenunnar í Bandaríkjunum en hann hefur selt 7,5 millj-
ónir platna og er með fimm milljónir manna á twitter-síðu sinni.