Fréttablaðið - 18.08.2011, Blaðsíða 66
18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR
AÐALVINNINGUR MACBOOK
FARTÖLVA (Z0JQ)
Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
Leik líkur 9. september. Þú færð 3 mínútur til að
svara annars byrjar þú upp á nýtt
H
VER FÆR VINNIN
G
9.
SENDU SMS
ESL MAC
Á NÚMERIÐ 1900.
ÞÚ FÆRÐ SPURNINGU OG SVARAR MEÐ ÞVÍ AÐ
SENDA SMS SKEYTIÐ ESL A, B EÐA C Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! AUKAVINNINGAR ERU
TÖLVULEIKIR · DVD MYNDIR OG FLEIRA!
Bandaríski tónlistarmaður-
inn Kanye West tróð upp í
Tívolíinu í Kaupmannahöfn
í síðustu. Íslendingaskar-
inn þar var slíkur að greina
mátti íslensku úr öllum
áttum. Orðin „þetta er geð-
veikt“ og „alger unaður“
voru algengust. Birgir Þór
Harðarson var á svæðinu
og lýsir hér upplifun sinni.
Það var grenjandi rigning þegar
fyrirpartíið hófst á Norðurbrú
fimmtudaginn 11. ágúst. Tívolí-
garðinum var lokað um daginn
svo hægt væri að gera klárt fyrir
tónleikana og hann opnaður aftur
klukkan 18. Tónleikarnir sjálfir
hófust ekki fyrr en klukkan 22
um kvöldið.
Ég heyrði af fullt af fólki sem
hafði mætt á slaginu 18 og feng-
ið mjög gott pláss framarlega í
mannhafinu. Við mættum þegar
klukkan var farin að ganga tíu
og fengum því ekkert ofboðslega
gott pláss. Það var þó í lagi því
risastór skjár sýndi öll smá atriðin
sem ég hefði annars misst af.
Það var ótrúlegt hversu rúmt
var um alla 15.000 tónleikagest-
ina á tónleikasvæðinu í Tívolí.
Svæðið er nefnilega ekki mjög
stórt.
Rigningin buldi á gleraugunum
mínum þegar kunnuglegir tónar
heyrðust. Hr. West hóf tónleikana
á Dark Fantasy af síðustu sóló-
plötu sinni, My Beautiful Dark
Twisted Fantasy. Kanye-menn vita
að fyrsta línan í laginu er á „Can
we get much higher?“ eða „kom-
umst við nokkuð hærra?“. Hr. West
sannaði að hann kæmist hærra því
upp úr miðjum mannskaranum
reis lyfta og fyrir ofan okkur stóð
Kanye og sagði: „Ég hafði ímyndað
mér þetta í Chicago!“.
Hr. West hefði ekki getað sett
viðmiðið hærra en í þessu fyrsta
lagi. Hann hélt áfram að toppa
sjálfan sig í gegnum alla tón-
leikana þar sem hann tók alla slag-
arana sína.
Flottur á sviði
En það voru ekki aðeins ljúfir og
auto-tjúnaðir tónar hr. West sem
gerðu tónleikana að ótrúlegri upp-
lifun. Kanye West bjó nefnilega
til flottasta sjónarspil sem ég hef
séð á tónleikum síðan ég sá Sigur
Rós í Höllinni. Dansarar geta gert
helling fyrir sýninguna og þegar
þeir eru að veifa risastórum segl-
dúki yfir öllu sviðinu erum við
jafnvel að tala um eitthvað mjög
kúl. Ljósin voru einnig geðveik og
sviðsreykurinn gerði ljósin enn
svalari.
En ekki hvaða band sem er getur
skapað svona stemningu. Kanye
West hefur það fram yfir marga að
hann er alveg drullu svalur! Fötin
sem hann hóf tónleikana í voru
óendanlega töff og svo áður en
ég vissi af var hann mættur í ein-
hvern nettasta leðurjakka sem ég
hef séð. Og það sást í uppklappinu
að hann var ánægður með hversu
kúl hann er.
Uppklappið
Ég vissi eiginlega ekki að tónleik-
arnir væru búnir því fagnaðar-
lætin voru svo gríðarleg þegar lag-
inu Stronger lauk og sviðið hvarf í
reyk. Ætli það hafi ekki liðið svona
tvær mínútur áður en E-nótan sem
markar upphaf lagsins Runaway
hljómaði. Þegar reykurinn steig
til himna birtist hr. West í rauða
jakkanum, á upphækkun á sviðinu
fyrir framan hljómborð.
Það tóku allir undir þegar hann
hóf upp auto-tjúnaða rödd sína í
síðustu lögunum.
Það var ekki fyrr en tónleikarn-
ir voru búnir að ég áttaði mig á því
hversu gegnvotur ég væri og að ég
væri búinn að týna vinum mínum í
mannhafinu. Það kom ekki að sök
því það fyrsta sem ég heyrði var
á íslensku: „Þetta var geðveikt!“
Kanye átti Tívolí í Köben
ALGER UNAÐUR Kanye West var svalur á sviðinu í Tívolí í Kaupmannahöfn í síðustu viku. NORDICPHOTOS/GETTY
Óttar Filipp Pétursson
Hvernig fannst þér á
tónleikunum?
Bestu tónleikar sem
ég hef farið á á ævi
minni!
Hvað hefur þú farið
á marga tónleika?
Allavega fleiri en
einn.
Hver var hápunktur tónleikanna?
Þegar hann tók All of the Lights. Ég
vil ekki vera að ljúga að þér.
Fannst þér ekki svekkjandi að engin
ofurstjarna hafi komið með honum?
Ef Rihanna hefði komið þá hefði ég
örugglega pissað á næsta mann úr
gleði.
Gunnar Skúlason
Hvernig fannst þér á
tónleikunum?
Þetta voru frábærir
tónleikar!
Er eitthvað sem stóð
upp úr?
Nei, það var ekkert
eitt. En hann á alveg
ótrúlega mikið af
hitturum. Hann má eiga það að
þegar maður er búinn að fara á tón-
leikana þá er ekkert sem vantar.
Hver var hápunkturinn?
Flashing Lights alltaf í miklu upp-
áhaldi.
Sigrún Lína
Pétursdóttir
Hvernig fannst þér á
tónleikum?
Það var bara ótrú-
lega gaman. Þetta
var geðveikt.
Ef þú ættir að finna
eitt lýsingarorð yfir
tónleikana?
Íslenskur.
Hver var
hápunkturinn?
Þegar hann tók Runaway. Geðsjúkt.
Sigríður Dagbjört
Ásgeirsdóttir
Hvernig fannst þér á
tónleikunum?
Mér fannst alveg
rosalega gaman.
Kanye er virkilega
góður á sviði.
Ertu mikill aðdá-
andi?
Ég er ekki harðkjarna
aðdáandi en ég fíla tónlistina hans
mjög mikið og finnst virkilega gaman
að hafa séð hann á tónleikum.
Hver var hápunkturinn?
Toppurinn á tónleikunum var
klárlega þegar hann tók All of the
Lights og allt gjörsamlega trylltist og
brjálað ljósasjó byrjaði.
HVAÐ FANNST ÍSLENDINGUM Á KANYE WEST?
Það var magnað hvað hr. West tók
mörg lög sem slegið hafa í gegn.
Kanye hefur gefið út fimm plötur
sem allar hafa innihaldið nokkur
ofurvinsæl lög.
■ Dark Fantasy
■ Power
■ Jesus Walks
■ Can‘t Tell Me Nothing
■ Diamonds
■ Hell of a Life
■ Monster
■ Flashing Lights
■ Good Life
■ Love Lockdown
■ Say You Will
■ Heartless
■ Swagga Like Us/Run this Town
■ We Will Rock You/E.T.
■ Homecoming/Through the Wire
■ All Falls Down
■ Touch the Sky
■ Gold Digger
■ All of the Lights
■ Stronger
Eftir uppklapp:
■ Runaway (feat. Pusha T)
■ Lost in the World
■ Hey Mama
LÖGIN SEM KANYE
TÓK Í TÍVOLÍ
■ Lög af sólóplötum hans.
■ Ábreiða eða af öðrum plötum.