Fréttablaðið - 18.08.2011, Blaðsíða 72
18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR48
GOLF Áhugakylfingar, eins og Ólafur Björn Loftsson,
geta samkvæmt reglum um áhugamennsku ekki tekið
við verðlaunafé á atvinnumannamótum.
Eins og fram kemur á golfsíðu Fréttablaðsins í
dag tekur Ólafur fyrstur Íslendinga þátt í sterkustu
atvinnumótaröð heims þar sem um 150 kylfingar
keppa um 600 milljóna kr. verðlaunafé, og þar af fær
sigurvegarinn um 100 milljónir kr. í sinn hlut. Ef svo
fer að Ólafur vinni sér inn verðlaunafé á mótinu getur
hann ekki tekið við því.
Ólafur er að hefja lokaár sitt í Háskóla Norður-
Karólínu og hefur hann hug á því að reyna fyrir sér
sem atvinnumaður haustið 2012.
Það er mjög algengt að áhugakylfingar fái tækifæri
á atvinnumótaröðunum í Bandaríkjunum og Evrópu.
Yfirleitt eru það aðalstyrktaraðilarnir sem fá að bjóða
1-2 kylfingum á „sitt“ mót og er mikil eftirspurn eftir
slíkum sætum. Kylfingar á borð við hinn þekkta John
Daly hafa þurft að stóla á slík boð eftir að þeir hafa
misst keppnisrétt sinn á PGA-mótaröðinni.
Gæti fengið sjálfkrafa keppnisrétt í tvö ár
Það gerist mjög sjaldan að áhugakylfingar nái að
sigra á atvinnumóti en það gerði enginn annar en Phil
Mickelson síðast fyrir tveimur áratugum. Það er ekki
aðeins gríðarlega hátt verðlaunafé sem sigurvegarinn
fær með því að sigra á PGA móti. Að auki fær sigur-
vegarinn sjálfkrafa keppnisrétt í tvö ár fram í tímann
og Íslandsmeistarinn frá árinu 2009 gæti þegið slík
verðlaun ef því er að skipta.
Aðeins 125 kylfingar eru með fullan keppnisrétt á
PGA-mótaröðinni á hverju tímabili en í ár eru um 350
kylfingar með nafnið sitt á peningalistanum. Þeir sem
ná ekki að halda sér í hópi 125 efstu í lok tímabilsins
þurfa að fara í gegnum erfitt úrtökumót.
Ekki miklar líkur á sigri áhugamanns
Eins og áður segir eru ekki miklar líkur á því að
áhugamaður nái að vinna atvinnumót í golfi. Phil
Mickelson gerði það síðastur allra á bandarísku PGA-
mótaröðinni árið 1991 en frá árinu 1954 hafa aðeins
fjórir áhugamenn náð slíkum árangri. Scott Ver plank
(1985), Doug Sanders (1956), Gene Littler (1954).
Sömu sögu er að segja af Evrópumótaröðinni sem
hefur vaxið á undanförnum árum og gert atlögu að
yfirburðastöðu PGA-mótaraðarinnar. Aðeins þrír
áhugakylfingar hafa náð að vinna mót á Evrópumóta-
röðinni frá því að hún var sett á laggirnar í núverandi
mynd árið 1972. Þeir eru Shane Lowry (2009), Danny
Lee (2009) og Pablo Martin (2007).
seth@frettabladid.is
Ólafur Björn má ekki
taka við verðlaunafénu
Áhugamaður hefur ekki sigrað á PGA-mótaröðinni í tvo áratugi. Phil Mickelson
var sá síðasti sem afrekaði það, árið 1991. Ólafur Björn Loftsson getur ekki tekið
við hundrað milljónum ef hann sigrar á PGA-mótinu í Norður-Karólínu.
ÓLAFUR BJÖRN LÁRUSSON Tekur fyrstur Íslendinga þátt í
sterkustu atvinnumótaröð heims. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Skagamaðurinn Hjörtur
Júlíus Hjartarson þekkir þá til-
finningu vel að vinna sér sæti í
úrvalsdeildinni. Hjörtur tryggði
Skagaliðinu sæti í Pepsi-deildinni
næsta sumar með því að skora
jöfnunarmark liðsins á móti ÍR í
fyrrakvöld.
Þetta er í þriðja sinn á fjórum
árum sem Hjörtur fer upp með
sínu liði. Hann fór líka upp með
Þrótturum sumarið 2007 og fór
síðan upp með Selfyssingum
fyrir tveimur árum.
Hjörtur er markahæstur í 1.
deildinni í ár með 12 mörk í 15
leikjum en hann varð marka-
kóngur deildarinnar 2007 þegar
hann skoraði 18 mörk í 21 leik
með Þrótti. Hjörtur skoraði síðan
7 mörk í 10 leikjum með Selfyss-
ingum sumarið 2009.
Hjörtur hefur því alls skorað
44 mörk í 67 leikjum í 1. deild-
inni undanfarin fimm sumur en
sumar ið 2008 lék hann með Þrótt-
urum í úrvalsdeildinni.
„Ég hef ekkert gefið það út
hvort ég leiki með Skaganum á
næsta tímabili en líklega verða
þeir án mín. Maður veit samt
aldrei,“ sagði Hjörtur í viðtali á
Vísi eftir ÍR-leikinn. Það væri
kannski ekki vitlaust fyrir lið í 1.
deildinni, sem ætlar sér að fara
upp næsta sumar, að kanna stöð-
una á kappanum eftir þetta tíma-
bil. - óój
Hjörtur Júlíus Hjartarson:
Þrisvar upp á
fjórum árum
HJÖRTUR HJARTARSON Fagnar hér tólfta
marki sínu í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Kristján Andrésson
er mættur með lærisveina sína
í Eskilstuna Guif til landsins og
mun sænska liðið taka þátt í
Hafnarfjarðarmótinu sem hefst
í kvöld. Kristján hefur gert frá-
bæra hluti með sænska liðið.
FH, Haukar og Valur taka
líka þátt í mótinu sem fram fer í
Íþróttahúsinu við Strandgötu. Í
kvöld mætast FH og Guif klukk-
an 18.00 og strax á eftir spila
síðan Haukar og Valur. - óój
Hafnarfjarðarmótið í kvöld:
Kristján mættur
með GUIF-liðið
FÓTBOLTI Þór frá Akureyri var í
gær sektað um 35 þúsund krónur
vegna hegðunar stuðningsmanna
liðsins á bikarúrslitaleiknum
gegn KR um helgina en kveikt
var á blysum í stúkunni.
„Við erum afar ósáttir við þá
sem kveiktu á blysunum,“ sagði
Unnsteinn Einar Jónsson, for-
maður knattspyrnudeildar Þórs.
„Við gerðum allt sem í okkar
valdi stóð til að koma í veg fyrir
þetta en það tókst samt ekki.“
Hann segir að til greina komi
að banna viðkomandi að koma á
heimaleiki Þórs. „Við þurfum að
taka afstöðu til þess en það væri
rökrétt að gera eitthvað slíkt. Við
þurfum að stoppa þessa hegðun.“
Hann segist vita hverjir eiga
í hlut. „Einn var tekinn af lög-
reglu á staðnum og fær væntan-
lega sekt. Mjölnismenn hafa verið
mjög öflugir í sumar og eru í
baráttu um stuðningsmannaverð-
launin. Þetta gæti skemmt fyrir
þeim möguleikum en við vitum
að þeir sem gerðust brotlegir
eru ekki í þeim hópi sem kom frá
Akureyri á leikinn.“ - esá
Þór sektað um 35 þúsund kr:
Blysmönnum
mögulega refsað
MJÖLNISMENN Létu mikið fyrir sér fara
á bikarúrslitunum. MYND/EVA BJÖRK ÆGISDÓTTIR
FÉLAGAR MEÐ PREMIUM ICELANDAIR
AMERICAN EXPRESS® FRÁ
KREDITKORTI GREIÐA EKKERT
ÁRGJALD Í ICELANDAIR GOLFERS
+ Skráðu þig í
Icelandair Golfers á
www.icelandairgolfers.is
Icelandair Golfers er klúbbur
sem auðveldar þér að spila
golf út um allan heim.
Golfsettið
ferðast frítt!
Þú nýtur þessara hlunninda:
þegar þú ferðast með Icelandair.
aðilum Icelandair Golfers.