Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 2
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR2
Nubo leggur mikla
áherslu á að vinna
með okkur að eflingu ferða-
þjónustunnar og taka þátt
í ýmsum verkefnum hér í
samfélaginu.
BERGUR ELÍAS ÁGÚSTSSON
SVEITARSTJÓRI NORÐURÞINGS
SVÍÞJÓÐ Sex menn frá Litháen
hafa verið handteknir í Stokk-
hólmi grunaðir um mansal. Þeir
voru handteknir á miðvikudags-
morgun eftir langa rannsókn.
Lögregla í Stokkhólmi rann-
sakar hvort mennirnir hafi neytt
tuttugu litháískar konur í vændi,
en segir að líklega séu konurnar
fleiri. Ekki hafa verið gefnar
nánari upplýsingar um konurnar.
Mennirnir sex eru á aldrinum
20 til 55 ára. Þeir eru nú í yfir-
heyrslum og í gegnum þær hefur
lögreglan jafnframt fengið
upplýsingar um mikinn fjölda
vændiskaupenda. - þeb
Litháískar konur í Svíþjóð:
Mansalshring-
ur upprættur
Gissur, er eftirsjá að svika-
hnappinum?
„Já, en það er alltaf best að hafa í
huga að sá er þjófurinn verstur sem
úr sjálfs sín hendi stelur.“
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumála-
stofnunar, er ekki sammála Persónuvernd
um ólögmæti hnapps á heimasíðu
stofnunarinnar, til að tilkynna bótasvik.
Hádegis- og eftirmiðdagstímar.
Betri líðan í hálsi, herðum og baki
undir leiðsögn sjúkraþjálfara.
Upplýsingar og skráning í síma
897 2896 og á www.bakleikfimi.is
BAKLEIKFIMI
MEÐ SAMBAÍVAFI Í HEILSUBORG
SPURNING DAGSINS
FJÖLMIÐLAR „Ég hlustaði alltaf á Bylgjuna þegar
hún byrjaði. Þá var ég sölumaður hjá Myllunni
árið 1986 og ók með kökur og brauð um Suðurnesin
á daginn. Á kvöldin var ég plötusnúður og lét
mig dreyma um að verða útvarpsmaður á Bylgj-
unni,“ segir Ívar Guðmundsson, dagskrárstjóri
Bylgjunnar.
Bylgjan, sem var fyrsta einkarekna útvarpsstöð
landsins, fagnar aldarfjórðungsafmæli í ár. Í tilefni
af áfanganum fylgir aukablað með Fréttablaðinu í
dag í ritstjórn Þorsteins J. Vilhjálmssonar.
Í tilefni afmælisins voru haldnir tónleikar á
Ingólfstorgi á Menningarnótt þar sem margir af
þekktustu tónlistarmönnum landsins stigu á stokk.
Hermann Gunnarsson ræðir síðan í þætti sínum í
dag við nokkra af þeim fjölmörgu útvarpsmönnum
sem starfað hafa á Bylgjunni.
Ívar segir mikið vatn hafa runnið til sjávar frá
því að Bylgjan fór í loftið fyrir 25 árum. „Fyrstu
tíu árin eða svo voru menn að læra að reka
útvarpsstöð. Hún hefur þroskast mikið síðan þá.
Nú erum við sú stöð sem fylgir hlustendum eins og
vinur,“ segir Ívar. - jab
DAGSKRÁRSTJÓRINN Bylgjan er vinur fólksins, segir Ívar Guð-
mundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bylgjan hefur þroskast mikið síðan hún fór fyrst í loftið, segir Ívar Guðmundsson:
Bylgjan verið í loftinu í 25 ár
LÖGREGLUMÁL Lögregla lagði
hald á snák í húsi í Hafnarfirði
í fyrradag. Dýrið var síðan flutt
að Keldum, þar sem gerðar voru
viðeigandi ráðstafanir.
Í húsnæðinu var jafnframt að
finna kannabisræktun en lagt
var hald á nokkra tugi kanna-
bisplantna, auk græðlinga.
Lögregla tók einnig í sína
vörslu kannabisefni sem fund-
ust á fleiri stöðum í húsinu, sem
og ýmsan búnað sem tengdist
kannabisræktuninni.
- jss
Margvíslegur fundur lögreglu:
Kannabisrækt-
un og snákur
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra sagðist
ekki reikna með því að stóra
kvótafrumvarp ríkisstjórnarinn-
ar yrði að lögum á september-
þingi.
Þetta kom fram í svari
Jóhönnu við spurningu á blaða-
mannafundi í Iðnó í gær. Reyn-
ist Jóhanna sannspá þarf því að
leggja frumvarpið fyrir Alþingi
að nýju á haustþingi. Þá sagði
Jóhanna að ekki hefði staðið til
að klára málið svo snemma.
Alþingi mun koma saman um
skamma hríð í september og
taka til umræðu þau mál sem
ekki tókst að klára á vorþingi.
- mþl
Jóhanna um kvótafrumvarp:
Klárast ekki
í september
STJÓRNSÝSLA Huang Nubo, eigandi
Zhong Kun Investment Group,
hefur samið um kaup af einka-
aðilum á um sjötíu prósenta hlut
af landi Grímsstaða á Fjöllum og
mun eignast landið ef innanríkis-
ráðuneytið veitir samþykki sitt.
Hunag Nubo er einn ríkustu
manna Kína og á hótel í Banda-
ríkjunum, Kína og víðar í Asíu.
Ætlun Nubos er að reisa um eitt
hundrað herbergja heilsárshótel á
Grímsstöðum á Fjöllum. Markhóp-
urinn mun vera efnaðir Kínverj-
ar og Bandaríkjamenn sem eiga
að geta notið friðsældar og úti-
vistar í þrjú hundruð metra hæð
í auðnum og náttúrufegurð Norð-
Austurlands. Áformin fela einnig í
sér byggingu 300 herbergja fimm
stjarna hótels í Reykjavík.
Heildarfjárfestingin er áætluð
fimmtíu til sextíu milljarð-
ar króna. Nubo ætlar sér að
flytja fjármagnið frá Kína. Þar
eru gjaldeyrishöft og því þurfa
kínversk stjórnvöld að sam-
þykkja gjaldeyrisyfirfærslu til
verkefnisins.
Lögum samkvæmt mega þeir
sem búsettir eru utan evrópska
efnahagssvæðisins ekki kaupa
fasteignir, þar með taldar jarð-
ir, hérlendis nema með samþykki
innanríkisráðuneytisins. Ekki
hefur enn verið óskað eftir slíkri
heimild. Nubo mun leggja mikla
áherslu á að málið fari aðeins í
gang í góðri sátt við allt og alla.
Með kaupunum eignast Nubo
yfir sjötíu prósenta hlut í Gríms-
staðajörðinni. Ríkið á 25 prósent
af landinu. Bjarni Harðarson,
upplýsingafulltrúi landbúnaðar-
ráðuneytisins sem fer með hlut
ríkisins í jörðinni, segir ekki víst
að málið komi þangað inn á borð.
„Það gæti komið til umfjöllunar ef
þarf að taka land úr landbúnaðar-
notum. Þá á ríkið land á Gríms-
staðatorfunni og hluti þess er í
óskiptri sameign. En það er samt
ekkert sem segir að það skapi
aðkomu ráðuneytisins að málinu,“
útskýrir Bjarni.
Sveitarfélagið Norðurþing
hefur skrifað undir viljayfirlýs-
ingu um samstarf um skipulags-
mál vegna hótelsins. „Þetta fellur
vel að okkar framtíðarsýn í ferða-
mennsku. Fjárfestingar af þess-
um mælikvarða skipta gríðarlega
miklu máli,“ segir Bergur Elías
Ágústsson sveitarstjóri.
„Nubo leggur mikla áherslu
á að vinna með okkur að efl-
ingu ferðaþjónustunnar og taka
þátt í ýmsum verkefnum hér í
samfélaginu.
Með þessu getur litla Ísland
líka fengið aðgang að gríðarlegu
markaðssvæði,“ segir Bergur,
sem kveður hægt að hefja fram-
kvæmdir eftir sex til átta mánuði
og opna hótelið eftir þrjú ár.
gar@frettabladid.is
Risahótel á Fjöllum
á borð Kínastjórnar
Jarðakaup kínversks kaupsýslumanns á Grímsstöðum á Fjöllum eru háð leyfi
innanríkisráðuneytisins. Allt að sextíu milljarða króna fjármögnun risahótela á
Grímsstöðum og í Reykjavík þarf síðan sérstaka heimild kínverskra stjórnvalda.
HUANG NUBO Á FJÖLLUM Bragi Benediktsson, eigandi og ábúandi í Grímstungu á
Grímsstöðum, fær hér vinargjöf úr hendi Huangs Nubo sem keypt hefur jörðina. Með
þeim er Ragnar Benediktsson. MYND/ÚR EINKASAFNI
NÍGERÍA, AP Minnst átján manns
létust og ellefu eru sárir eftir að
bílsprengja sprakk við skrifstofur
Sameinuðu þjóðanna í Abuja,
höfuðborg Nígeríu, í gær.
Bíl sem var hlaðinn sprengiefn-
um var ekið í gegnum tvö öryggis-
hlið við byggingu SÞ og inn í
móttöku hússins. Þar sprengdi öku-
maðurinn bílinn og sjálfan sig í loft
upp. Um fjögur hundruð starfs-
menn SÞ vinna í byggingunni.
Íslömsku öfgasamtökin Boko
Haram lýstu tilræðinu á hendur
sér í gær. Samtökin bera ábyrgð á
ýmsum hryðjuverkum og morðum
undanfarið ár. - þeb
Bílsprengja í Nígeríu:
Fjöldi látinn í
skrifstofum SÞ
DÓMSMÁL Þorsteinn Húnbogason, fyrrverandi
sambýlis maður Sivjar Friðleifsdóttur alþingiskonu,
hefur verið ákærður fyrir brot á fjarskiptalögum
og friðhelgi einkalífsins. Þetta kom fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
Ákæran var gefin út af
lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu í júní síðastliðnum,
en Þorsteinn er grunaður um
að hafa á síðasta ári njósnað um
Siv með því að koma fyrir ökurita
með GPS-tæki í bíl hennar og fylgj-
ast þannig með ferðum hennar.
Siv og Þorsteinn voru ógift en í
sambúð í 26 ár áður en þau skildu á
síðasta ári.
Samkvæmt frétt Stöðvar 2 getur slíkt athæfi,
rafræn vöktun með ökurita án samþykkis og
vitundar þess sem sætir eftirliti, varðað allt að
tveggja ára fangelsi.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu
Stöðvar 2 mun Siv hafa fundið ökuritann
og kært málið. Grunsemdir munu hafa
vaknað þegar sambýlismaðurinn fyrr-
verandi virtist vita um allar ferðir
hennar.
Eftir því sem fréttastofa
komst næst hefur Þorsteinn
einnig kært Siv til lög-
reglu en rannsókn á meint-
um brotum hennar var felld
niður hjá lögreglu. - þj
Fyrrverandi sambýlismaður þingmanns kærður fyrir brot á friðhelgi einkalífs:
Kom ökurita fyrir í bifreið Sivjar
Arnarvarp gekk vel
Þrátt fyrir afleitt tíðarfar í ár gekk
arnarvarp á landinu nokkuð vel. Á
vef Náttúrufræðistofnunar Íslands
segir að 29 ungar hafi komist á legg
hjá 19 pörum. Arnarstofninn hér á
landi telur um 66 pör og hefur staðið
í stað síðustu ár eftir samfelldan vöxt
frá sjöunda áratugnum.
NÁTTÚRA
SKÁK Keppnislið frá íþróttafélög-
um í höfuðborginni eigast við á
Iceland Express Reykjavíkur-
mótinu í skák sem Skákakademí-
an heldur á Hlíðarenda í dag.
Fjórir keppendur eru í hverju
liði og eru þar á meðal nokkrir
af þekktustu skákmeisturum
landsins. Meðal annars mun
Jóhann Hjartarson leiða lið
Fram, Helgi Ólafsson keppir
fyrir Val og Stefán Kristjánsson
fyrir KR.
Mótið hefst klukkan 13 og er
búist við fjölda áhorfenda. - þj
Skákmót á Hlíðarenda í dag:
Meistarar mæt-
ast við taflborðin
Í TREYJUNUM Keppendur á mótinu eru
kirfilega merktir sínum liðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA