Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 10

Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 10
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR10 FRÉTTASKÝRING: Orkuskipti í samgöngum 3. grein af 3 Milljarðar sparast í gjald- eyri náist það markmið að draga úr innflutningi jarðefnaeldsneyta um tíu prósent árið 2020. Þá mun innlend framleiðsla skila umtalsverðu í fram- legð. Orkuskipti draga úr útblæstri gróðurhúsa- lofttegunda. Hvert prósent sem sparast í inn- flutningi jarðefnaeldsneyta spar- ar gríðarlega mikinn gjaldeyri. Eins og sést á töflunni hér til hlið- ar var flutt inn eldsneyti fyrir 55 milljarða árið 2010. Náist markmið ríkisstjórnarinnar um að auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa í sam- göngum, þannig að þeir nemi tíu prósentum, sparar það, gróflega reiknað á verðlagi ársins 2010, 5,5 milljarða króna. Það er því ljóst að eftir umtalsverðum upphæðum er að slægjast í þeirri viðleitni að efla nýja orkugjafa. Að þessu viðbættu mun öll fram- leiðsluaukning í öðrum orkugjöf- um skapa störf og auka þann- ig hagvöxt. Öll efnahagsleg rök hníga því að því að auka hlut inn- lendra orkugjafa. Við það bætist að útblástur gróðurhúsalofttegunda minnkar með bættum áhrifum fyrir umhverfið. Í því liggja einn- ig efnahagslegir hvatar, því frá og með árinu 2012 þarf að greiða fyrir útblástur á slíkum efnum. Samgöngur og fiskveiðar Langstærstur hluti innflutts elds- neytis er notaður til fiskveiða og í samgöngum, eða um níutíu pró- sent. Um 104 þúsund tonn af koli svoru flutt inn árið 2010 og um 25 þúsund tonn af koksi. Um níu- tíu prósent af kolunum eru notuð í Sementsverksmiðjunni á Akra- nesi. Óverulegt magn af gasi er flutt inn til landsins, en samkvæmt upplýsingum frá Orkustofnun fer um þriðjungur þess í stóriðju, þriðjungur til heimilisnotkunar og þriðjungur í þjónustu og annan iðnað en stóriðju. Sóknarfærið varðandi innlenda orkugjafa liggur því klárlega í samgöngum og fiskveiðum. Græna orkan, klasasamstarf um orku- skipti, miðar að því að auka hlut visthæfra innlendra orkugjafa í samgöngum á kostnað innflutts kolefnaeldsneytis. Markmiðið er að stuðla að verk- efnum um visthæfa orku og að nýta umhverfið til að prófa nýj- ungar í visthæfum samgöngum. Mikilvægt þáttur í því er að gera Ísland áhugavert fyrir slíkar til- raunir og að halda slíku kynn- ingarstarfi áfram með bíla- og vélaframleiðendum. Hluti slíkrar vinnu er menntun, ásamt öflugu rannsóknarstarfi. Innflutningur eldsneytis hefur aukist á undanförnum árum. Árið 1993 voru flutt inn 655 þús- und tonn af jarðefnaeldsneyti, en þau voru orðin 781 þúsund árið 2010. Spáð er hækkandi heims- markaðsverði á olíu og minni inn- flutningur mundi því hafa veruleg sparnaðaráhrif. Útblástur Á Íslandi er hlutfallslega einn stærsti floti einkabíla í nokkru ríki og hátt hlutfall eyðslufrekra bíla. Ísland er með hæstu CO2-meðal- talslosun nýskráðra bíla af öllum löndum á Evrópska efnahags- svæðinu. Meðaltalslosunin hefur minnkað undanfarin ár en heild- arlosunin hefur hins vegar aukist með fjölgun bíla. Útblástur gróðurhúsaloftteg- unda er mældur í gígagrömmum, eða Gg. Hann hefur aukist umtals- vert á undanförnum árum, ekki síst frá samgöngum. Losun frá samgöngum var 621 Gg árið 1990 og 974 Gg árið 2008 og jókst um 57 prósent á því tíma- bili. Í spá Umhverfisstofnunar um þróun losunar til 2050 er reiknað með að losun frá samgöngum geti orðið á bilinu 847 til 940 Gg árið 2020 með óbreyttri þróun. „Reiknað er með að lykilaðgerð- ir á sviði samgangna skili þeim árangri að losun frá samgöngum verði um 40-140 Gg minni en ella árið 2020. Með almennri þróun í átt til loftslagsvænni bíla, lyk- ilaðgerðum og öðrum aðgerðum er talið raunhæft að losun vegna samgangna geti verið undir 750 Gg árið 2020, sem væri 23 prósent minnkun losunar frá 2008, en 21 prósent aukning miðað við 1990,“ segir í aðgerðaráætlun umhverfis- ráðuneytisins í loftslagsmálum. Milljarða hagsmunir í húfi BÍLAFLOTI Mörg hundruð milljarðar króna liggja í bílaflota landsmanna. Hann eldist hratt og ljóst er að ef ná á fram orkuskipt- um í samgöngum þarf að endurnýja stóran hluta hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Um þriðjungur af útblæstri gróðurhúsalofttegunda á Íslandi kemur úr skipaflot- anum. Þar eru því tækifæri til að draga verulega úr mengun og um leið úr innflutningi jarðefnaelds- neytis. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að sjónum verði einnig beint að skipaflotanum. „Við þurfum að ná fiski- skipaflotanum inn í verk- efnið líka, því við erum að horfa á orkuskipti yfir línuna. Það á ekki að gera greinarmun á því um hvers konar farartæki er að ræða, skip, flugvélar eða bíla. Áherslan núna er á bílana, kannski af því að það er einfaldast, en hitt er líka mjög aðkallandi. Við þurfum því að fá fulltrúa geirans inn í Grænu orkuna.“ Sverrir Viðar segir mikilvægt að draga úr olíunotkun í skipaflotanum án þess að sú fjárfesting sem í honum liggur tapist. Verkefnið sé að mörgu leyti ólíkt bílaflot- anum, þar sem skip hafi mun lengri líftíma en bílar. „Eins þarf að huga að stærri tækjum eins og vinnuvél- um. Það er tiltölulega lítið mál að skipta út einum fólks- bíl, en það getur haft mikil áhrif að skipta út stórri gröfu sem hefur tuttugu ára líftíma. Þetta eru mikil tæki með öflugar vélar sem verður að fara varlega í varðandi breytingar. Það gæti því líklega borgað sig að stýra lífdísilnum inn á þennan flota, því litlar breytingar þarf til að nýta hann.“ SVERRIR VIÐAR HAUKSSON Einkabílaeign er mikil hér á landi og í bílaflotanum liggur mikil fjárfesting. Sverrir Viðar Hauksson, verkefnisstjóri Grænu orkunnar, segir flotann eldast mjög hratt, en ekki megi horfa framhjá þeim fjármunum sem í honum liggi. „Ef við miðum við 200 þúsund bíla og setjum þriggja milljóna meðalverð á hvern bíl, þá eru þetta 600 milljarðar. 400 milljarðar ef meðalverðið er tvær milljónir á bíl. Þetta eru því miklar fjárfestingar sem þarna liggja. Flotinn eldist hins vegar mjög hratt og meðalaldur er kominn yfir tíu ár, verður líklega ellefu og hálft til tólf í lok þessa árs. Við endurnýjum í raun ekki nema um þriðjung af því sem nauðsynlegt er til að viðahalda meðalaldrinum. Árið 2010 voru um 3.000 nýir bílar skráðir og þeir voru ekki nema 2.000 árið 2009. Þeir verða líklega um 4.500 til 5.000 í ár. Eðlileg endurnýjun á 200 þúsund bíla flota, ef við ætlum að vera undir tíu árum í meðalaldri, er um 15.000 bílar á ári. Við náum því ekki þriðjungnum af því sem með þarf.“ Því eldri sem bílaflotinn er, því óumhverfisvænni verður hann. Það er því nauðsynlegt að endurnýja bílaflotann, eigi að draga úr útblæstri. Fjárfesting í gömlum bílaflota Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Til þess að svo megi verða þurfa áætlanir um nýja orkugjafa að ganga eftir. Allt undir Í raun liggur samfélagið allt undir þegar kemur að orkuskiptum í sam- göngum. Fjölmargir aðilar munu koma að verkefninu, atvinnulífið og stjórnkerfið. Græna orkan er hatturinn sem allir munu starfa undir. Skipulagsmál sveitarfélaga koma inn í vinnuna; gatnakerfið og skipulag á nýju orkustöðvum eru á þeirra könnu. Samþætta þarf reglu- gerðir og lög til að verkefnið geti orðið að veruleika. Ljóst er að olíuverð mun hækka á næstunni, nema eitthvað stórkost- legt breytist. Efnahagsleg rök hníga að því að draga úr innflutningi á jarðefnaeldsneyti. Eins og iðnað- arráðherra bendir á skapast einn- ig fjölmörg störf við nýjan iðnað og því er um þjóðþrifamál að ræða. Verði framtíðarsýn stjórnvalda að veruleika mun því margt breyt- ast í íslensku samfélagi, enda snýst það að miklu leyti – of miklu myndu sumir segja – um bílinn. Vinnufundur 15. september Opinber stefnumótunarfundur Grænu orkunnar verður haldinn 15. september. Á hann eru allir þeir sem áhuga hafa á orkuskiptum vel- komnir og þar verður haldið áfram að móta þá stefnu sem Ísland mun taka í orkuskiptum og telja upp þær aðgerðir sem grípa þarf til. Þeir sem áhuga hafa á málinu er bent á að setja sig í samband við verkefnisstjórn Grænu orkunnar. 19 93 19 94 19 95 19 96 19 97 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 850 800 750 700 650 600 Innflutningur á olíu Þú su nd lí tr ar 19 98 20 00 20 02 20 04 20 06 20 08 20 10 120 100 80 60 40 20 0 Olíuverð OPEC-ríkjanna B an da rí kj ad al ir Tækifæri í skipaflotanum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.