Fréttablaðið - 27.08.2011, Side 10
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR10
FRÉTTASKÝRING: Orkuskipti í samgöngum 3. grein af 3
Milljarðar sparast í gjald-
eyri náist það markmið
að draga úr innflutningi
jarðefnaeldsneyta um
tíu prósent árið 2020. Þá
mun innlend framleiðsla
skila umtalsverðu í fram-
legð. Orkuskipti draga
úr útblæstri gróðurhúsa-
lofttegunda.
Hvert prósent sem sparast í inn-
flutningi jarðefnaeldsneyta spar-
ar gríðarlega mikinn gjaldeyri.
Eins og sést á töflunni hér til hlið-
ar var flutt inn eldsneyti fyrir 55
milljarða árið 2010. Náist markmið
ríkisstjórnarinnar um að auka hlut
endurnýjanlegra orkugjafa í sam-
göngum, þannig að þeir nemi tíu
prósentum, sparar það, gróflega
reiknað á verðlagi ársins 2010, 5,5
milljarða króna. Það er því ljóst að
eftir umtalsverðum upphæðum er
að slægjast í þeirri viðleitni að efla
nýja orkugjafa.
Að þessu viðbættu mun öll fram-
leiðsluaukning í öðrum orkugjöf-
um skapa störf og auka þann-
ig hagvöxt. Öll efnahagsleg rök
hníga því að því að auka hlut inn-
lendra orkugjafa. Við það bætist að
útblástur gróðurhúsalofttegunda
minnkar með bættum áhrifum
fyrir umhverfið. Í því liggja einn-
ig efnahagslegir hvatar, því frá
og með árinu 2012 þarf að greiða
fyrir útblástur á slíkum efnum.
Samgöngur og fiskveiðar
Langstærstur hluti innflutts elds-
neytis er notaður til fiskveiða og
í samgöngum, eða um níutíu pró-
sent. Um 104 þúsund tonn af koli
svoru flutt inn árið 2010 og um
25 þúsund tonn af koksi. Um níu-
tíu prósent af kolunum eru notuð
í Sementsverksmiðjunni á Akra-
nesi. Óverulegt magn af gasi er
flutt inn til landsins, en samkvæmt
upplýsingum frá Orkustofnun fer
um þriðjungur þess í stóriðju,
þriðjungur til heimilisnotkunar
og þriðjungur í þjónustu og annan
iðnað en stóriðju.
Sóknarfærið varðandi innlenda
orkugjafa liggur því klárlega í
samgöngum og fiskveiðum. Græna
orkan, klasasamstarf um orku-
skipti, miðar að því að auka hlut
visthæfra innlendra orkugjafa í
samgöngum á kostnað innflutts
kolefnaeldsneytis.
Markmiðið er að stuðla að verk-
efnum um visthæfa orku og að
nýta umhverfið til að prófa nýj-
ungar í visthæfum samgöngum.
Mikilvægt þáttur í því er að gera
Ísland áhugavert fyrir slíkar til-
raunir og að halda slíku kynn-
ingarstarfi áfram með bíla- og
vélaframleiðendum. Hluti slíkrar
vinnu er menntun, ásamt öflugu
rannsóknarstarfi.
Innflutningur eldsneytis hefur
aukist á undanförnum árum.
Árið 1993 voru flutt inn 655 þús-
und tonn af jarðefnaeldsneyti, en
þau voru orðin 781 þúsund árið
2010. Spáð er hækkandi heims-
markaðsverði á olíu og minni inn-
flutningur mundi því hafa veruleg
sparnaðaráhrif.
Útblástur
Á Íslandi er hlutfallslega einn
stærsti floti einkabíla í nokkru ríki
og hátt hlutfall eyðslufrekra bíla.
Ísland er með hæstu CO2-meðal-
talslosun nýskráðra bíla af öllum
löndum á Evrópska efnahags-
svæðinu. Meðaltalslosunin hefur
minnkað undanfarin ár en heild-
arlosunin hefur hins vegar aukist
með fjölgun bíla.
Útblástur gróðurhúsaloftteg-
unda er mældur í gígagrömmum,
eða Gg. Hann hefur aukist umtals-
vert á undanförnum árum, ekki
síst frá samgöngum.
Losun frá samgöngum var 621
Gg árið 1990 og 974 Gg árið 2008
og jókst um 57 prósent á því tíma-
bili. Í spá Umhverfisstofnunar um
þróun losunar til 2050 er reiknað
með að losun frá samgöngum geti
orðið á bilinu 847 til 940 Gg árið
2020 með óbreyttri þróun.
„Reiknað er með að lykilaðgerð-
ir á sviði samgangna skili þeim
árangri að losun frá samgöngum
verði um 40-140 Gg minni en ella
árið 2020. Með almennri þróun
í átt til loftslagsvænni bíla, lyk-
ilaðgerðum og öðrum aðgerðum
er talið raunhæft að losun vegna
samgangna geti verið undir 750
Gg árið 2020, sem væri 23 prósent
minnkun losunar frá 2008, en 21
prósent aukning miðað við 1990,“
segir í aðgerðaráætlun umhverfis-
ráðuneytisins í loftslagsmálum.
Milljarða hagsmunir í húfi
BÍLAFLOTI Mörg hundruð milljarðar króna liggja í bílaflota landsmanna. Hann eldist hratt og ljóst er að ef ná á fram orkuskipt-
um í samgöngum þarf að endurnýja stóran hluta hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Um þriðjungur af útblæstri
gróðurhúsalofttegunda á
Íslandi kemur úr skipaflot-
anum. Þar eru því tækifæri
til að draga verulega úr
mengun og um leið úr
innflutningi jarðefnaelds-
neytis. Katrín Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra segir að
sjónum verði einnig beint
að skipaflotanum.
„Við þurfum að ná fiski-
skipaflotanum inn í verk-
efnið líka, því við erum að horfa á orkuskipti yfir línuna.
Það á ekki að gera greinarmun á því um hvers konar
farartæki er að ræða, skip, flugvélar eða bíla. Áherslan
núna er á bílana, kannski af því að það er einfaldast, en
hitt er líka mjög aðkallandi. Við þurfum því að fá fulltrúa
geirans inn í Grænu orkuna.“
Sverrir Viðar segir mikilvægt að draga úr olíunotkun
í skipaflotanum án þess að sú fjárfesting sem í honum
liggur tapist. Verkefnið sé að mörgu leyti ólíkt bílaflot-
anum, þar sem skip hafi mun lengri líftíma en bílar.
„Eins þarf að huga að stærri tækjum eins og vinnuvél-
um. Það er tiltölulega lítið mál að skipta út einum fólks-
bíl, en það getur haft mikil áhrif að skipta út stórri gröfu sem hefur tuttugu
ára líftíma. Þetta eru mikil tæki með öflugar vélar sem verður að fara varlega
í varðandi breytingar. Það gæti því líklega borgað sig að stýra lífdísilnum inn
á þennan flota, því litlar breytingar þarf til að nýta hann.“
SVERRIR VIÐAR
HAUKSSON
Einkabílaeign er mikil hér á landi og í bílaflotanum liggur
mikil fjárfesting. Sverrir Viðar Hauksson, verkefnisstjóri
Grænu orkunnar, segir flotann eldast mjög hratt, en ekki
megi horfa framhjá þeim fjármunum sem í honum liggi.
„Ef við miðum við 200 þúsund bíla og setjum þriggja
milljóna meðalverð á hvern bíl, þá eru þetta 600
milljarðar. 400 milljarðar ef meðalverðið er tvær milljónir
á bíl. Þetta eru því miklar fjárfestingar sem þarna liggja.
Flotinn eldist hins vegar mjög hratt og meðalaldur er
kominn yfir tíu ár, verður líklega ellefu og hálft til tólf
í lok þessa árs. Við endurnýjum í raun ekki nema um
þriðjung af því sem nauðsynlegt er til að viðahalda
meðalaldrinum.
Árið 2010 voru um 3.000 nýir bílar skráðir og þeir voru
ekki nema 2.000 árið 2009. Þeir verða líklega um 4.500
til 5.000 í ár. Eðlileg endurnýjun á 200 þúsund bíla flota,
ef við ætlum að vera undir tíu árum í meðalaldri, er um
15.000 bílar á ári. Við náum því ekki þriðjungnum af því
sem með þarf.“
Því eldri sem bílaflotinn er, því óumhverfisvænni
verður hann. Það er því nauðsynlegt að endurnýja
bílaflotann, eigi að draga úr útblæstri.
Fjárfesting í gömlum bílaflota
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Til þess að svo megi verða þurfa
áætlanir um nýja orkugjafa að
ganga eftir.
Allt undir
Í raun liggur samfélagið allt undir
þegar kemur að orkuskiptum í sam-
göngum. Fjölmargir aðilar munu
koma að verkefninu, atvinnulífið
og stjórnkerfið. Græna orkan er
hatturinn sem allir munu starfa
undir.
Skipulagsmál sveitarfélaga
koma inn í vinnuna; gatnakerfið og
skipulag á nýju orkustöðvum eru á
þeirra könnu. Samþætta þarf reglu-
gerðir og lög til að verkefnið geti
orðið að veruleika.
Ljóst er að olíuverð mun hækka á
næstunni, nema eitthvað stórkost-
legt breytist. Efnahagsleg rök hníga
að því að draga úr innflutningi á
jarðefnaeldsneyti. Eins og iðnað-
arráðherra bendir á skapast einn-
ig fjölmörg störf við nýjan iðnað og
því er um þjóðþrifamál að ræða.
Verði framtíðarsýn stjórnvalda
að veruleika mun því margt breyt-
ast í íslensku samfélagi, enda snýst
það að miklu leyti – of miklu myndu
sumir segja – um bílinn.
Vinnufundur 15. september
Opinber stefnumótunarfundur
Grænu orkunnar verður haldinn
15. september. Á hann eru allir þeir
sem áhuga hafa á orkuskiptum vel-
komnir og þar verður haldið áfram
að móta þá stefnu sem Ísland mun
taka í orkuskiptum og telja upp
þær aðgerðir sem grípa þarf til.
Þeir sem áhuga hafa á málinu er
bent á að setja sig í samband við
verkefnisstjórn Grænu orkunnar.
19
93
19
94
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
850
800
750
700
650
600
Innflutningur á olíu
Þú
su
nd
lí
tr
ar
19
98
20
00
20
02
20
04
20
06
20
08
20
10
120
100
80
60
40
20
0
Olíuverð OPEC-ríkjanna
B
an
da
rí
kj
ad
al
ir
Tækifæri í skipaflotanum