Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 16

Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 16
16 27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR S k a g f i r s k a s ö n g s v e i t i n Söngfólk óskast Blandaður kór óskar eftir söngfólki í allar raddir. Létt og skemmtileg verkefni á dagskránni! Æft á mánudögum. Upplýsingar gefur Ingunn í síma 897 9595 eða email: ingunnsi@simnet.is Þeir sem skilja að skipulag skóla-kerfis ekki síður en námsefni ákvarðar hvaða lexíur nemendur læra, þeir sjá að skipulag prúss- neskra almúgaskóla sem var hann- að upp úr átján hundruð til að móta einstaklinga svo þeir tækju skilyrð- islaust við skipunum er ekki heppi- legt til að hjálpa börnum að þrosk- ast á heilbrigðan hátt. Langflestir kennarar eru allir af vilja gerðir. Þeir berjast í bökkum við að hjálpa börnunum okkar innan skólakerfis að prússneskri forskrift sem var hönnuð til að bæla forvitni, frum- kvæði og sjálfstæði nemenda. Einn mest verðlaunaði kennari Bandaríkjanna, John Taylor Gatto, útskýrði í ræðunni „Sjö lexíu skóla- kennarinn“ hvaða lexíur þetta rót- gróna prússneska skipulag kenndi nemendum í raun og veru. Ræð- una flutti hann þegar hann tók við verðlaunum sem besti kennari árs- ins í New York-fylki. Verðlaun- in og árangur nemenda sinna til- einkaði hann mótaðgerðum sem hann beitti til að forða nemendum sínum að nokkru leyti frá skaðsemi kerfisins. Hann hóf ræðuna á þess- um orðum: „Ykkur er frjálst að líta á þessar lexíur eins og ykkur sýnist, en trúið mér þegar ég segi að þess- ari kynningu er ekki ætlað að vera kaldhæðnisleg. Þetta er það sem ég kenni, þetta er það sem þið borgið mér fyrir að kenna. Dragið ykkar eigin lærdóm af því.“ „Fyrsta lexían sem ég kenni er ringulreið. Jafnvel í bestu skólunum leiðir ítarleg athugun á námsskrá í ljós bæði skort á samhengi og fjölda innri mótsagna. Tilgangur, en ekki samhengislausar staðreyndir, er það sem geðheilar manneskjur leita að.“ „Önnur lexían sem ég kenni er bekkjaflokkun. Mitt hlutverk er að fá nemendur til að láta sér vel líka að vera lokuð inni með öðrum börn- um eða að minnsta kosti láta það yfir sig ganga. Lexía bekkjaflokkunar er sú að allir eiga heima á sínum stað í valdapýramídanum.“ „Þriðja lexían sem ég kenni er áhugaleysi. Ég geri þetta með því að krefjast þess að börnin sökkvi sér niður í lexíurnar mínar en þegar bjallan hringir krefst ég þess að þau hætti undir eins. Þau verða að slökkva og kveikja á sér eins og ljós- rofa. Út- og innhringingar bólusetja hvert viðfangsefni fyrir áhuga.“ „Fjórða lexían sem ég kenni er tilfinningalegt ósjálfstæði. Með stjörnum og fýlukörlum, verðlaun- um, hrósi og skömmum, kenni ég börnum að láta vilja sinn af hendi til yfirvaldsins. Hvaða yfirvald sem er má úthluta eða svipta börnin rétt- indum, og það án áfrýjunar, af því að réttindi eru ekki sjálfgefin í skólum, ekki einu sinni tjáningarfrelsi.“ „Fimmta lexían sem ég kenni er vitsmunalegt ósjálfstæði. „Góðu“ börnin hugsa það sem ég set þeim fyrir með lágmarks mótþróa og sýna viðeigandi áhuga. Sem betur fer eru til margreyndar aðferðir til að brjóta vilja þeirra sem streitast á móti. Gott fólk bíður eftir sérfræðingum til að segja sér hvað skal gera. Þetta er mikilvægasta lexían sem ég kenni.“ „Sjötta lexían sem ég kenni er skammtað sjálfsálit. Ég kenni að sjálfsvirðing krakka skuli vera háð áliti sérfræðinga. Lexía prófa og ein- kunna er að börn skuli ekki treysta sjálfum sér eða foreldrum sínum, í staðinn skulu þau setja traust sitt á mat löggiltra sérfræðinga. Fólk verður að heyra það frá öðrum hvers virði það er.“ „Sjöunda lexían sem ég kenni er að maður getur sig hvergi falið. Til- gangur stöðugs eftirlits og að meina börnum tíma með sjálfum sér er sá að kenna að engum sé hægt að treysta, að einkalíf sé ekki réttlæt- anlegt. Fylgjast verður grannt með börnum ef þú vilt hafa samfélag undir þröngskorðaðri miðstýringu.“ Það eru til mörg skipulög á námi barna og unglinga sem gera kenn- urum og nemendum auðveldara og ánægjulegra að öðlast menntun og þroska. Hættum að berja á kenn- urum og sameinumst um að breyta kerfinu. Styðjum kennara sem skilja og vilja innleiða betra skipulag í skólum landsins. Það er þekkt staðreynd að þegar kreppir að skapast jarðvegur fyrir aukna fordóma og togstreitu í garð innflytjenda. Einnig kennir reynslan að veru- leg hætta er á því að þeir hópar sem einhverra hluta vegna eru berskjaldaðir fari verr út úr efna- hagskreppu en aðrir hópar í sam- félaginu. Blikur eru á lofti um að þetta sé einmitt raunin í íslensk- um veruleika. Það er staðreynd sem Íslendingar standa frammi fyrir í dag og mikilvægt er að bregðast við fljótt svo tryggja megi mannréttindi og virðingu allra sem samfélag okkar byggja. Það getur verið gagnlegt að skoða tölur og aðstæður í einu meðalstóru sveitarfélagi þar sem tiltölulega auðvelt er að hafa yfirsýn til þess að glöggva sig á stöðu mála. Atvinnuleysi útbreiddara meðal innflytjenda Á Akranesi búa nú 389 íbúar af erlendum uppruna, 6% af íbúa- fjölda bæjarins. Þar á meðal eru 56 börn á leik- og grunn- skólalaldri og hefur börnum af erlendum uppruna fjölgað mikið undanfarin þrjú til fjögur ár. Þegar þetta er ritað eru 255 manns á Akranesi án atvinnu, þar af 43 innflytjendur. 26 konur og 17 karlar, sem eru tæp 17% einstaklinga án atvinnu í bænum á meðan atvinnuleysi mælist í heildina um 8%. Undanfarin tvö ár hafa félags- þjónustan á Akranesi og Rauði krossinn á Akranesi orðið vör við vaxandi vanda innflytjendafjöl- skyldna. Fátækt og atvinnuleysi er útbreiddara meðal innflytj- enda en innfæddra og þvert á það sem margir áttu von á hefur inn- flytjendum ekki fækkað að neinu marki síðan kreppan skall á. Hér hefur erlent launafólk unnið sér inn réttindi og þegar litið er til þess að atvinnuástand í heima- landinu er oft mjög slæmt er eðlilegt að fólk ákveði að dvelja áfram á Íslandi og nýta sér áunn- in réttindi. Við þetta bætist svo að margir innflytjendur eru hér í eignarfjötrum og komast hvergi þótt þeir vildu vegna þess að þeir eiga hér eignir sem ekki hefur tekist að selja. Skuggaskýrsla Á Akranesi hefur fjöldi innflytj- enda nánast haldist óbreyttur en samsetning hópsins hefur breyst, einhleypir verkamenn hafa í nokkrum mæli leitað á önnur mið en fjölskyldumenn sem áður sáu fyrir fjölskyldum sínum í heima- landinu hafa nú fengið konur sínar og börn til Íslands. Það er reynsla þeirra sem sinna fjöl- skyldum á Akranesi, s.s. félags- ráðgjafa og skólastjórnenda, að vísbendingar séu á lofti um að rík ástæða sé til að hafa áhyggjur af aðstæðum hluta þessara barna. Skuggaskýrsla sem Barnaheill, Mannréttindaskrifstofa Íslands og UNICEF kynntu fyrir nokk- um vikum renna enn styrkari stoðum undir þetta og sama gildir um skýrslu Rauða kross Íslands, Hvar þrengir að? sem kynnt var á vormánuðum 2010. Þá er brottfall nemenda af erlendum uppruna úr framhaldsnámi áhyggjuefni, en af 21 nemanda sem hófu nám á haustönn 2010 í Fjölbrautaskóla Vesturlands hættu 6 námi áður en haustönn lauk og einn hefur hætt námi á vorönn. Brottfall nemenda af erlendum uppruna á síðasta námsári var því ríf- lega 30%, sem hlýtur að teljast óásættanlegt, ekki síst þegar litið er til þess að það sem tekur við nemendum sem hætta námi er atvinnuleysi. Einnig eru vís- bendingar á lofti um að hluti þeirra kvenna af erlendum upp- runa sem eru án atvinnu og án tengslanets búi við mjög bágar aðstæður, fátækt, einsemd og einangrun og skerta möguleika til þess að bæta aðstæður sínar. Með Rauða krossinum á Akra- nesi starfa ríflega eitt hundrað sjálfboðaliðar af erlendum uppruna að fjölbreyttum verkefnum. Þeir hafa margir deilt með okkur þeirri upplifun sinni að aðgengi að þjón- ustu og upplýsingum hafi minnkað og lífsbaráttan í þessu annars góða landi harðnað verulega fyrir fólk af erlendum uppruna. Forsenda þess að njóta þeirra mannréttinda sem íbúum á Íslandi eru tryggð í mann- réttindasáttmálum og stjórnarskrá er að tryggja gott aðgengi að upp- lýsingum og þjónustu og að stjórn- völd geri sitt ítrasta til þess að jafn- rétti sé ástundað í reynd. Því er þessi þróun verulegt áhyggjuefni. Hættum að berja á kennurum og sameinumst um að breyta kerfinu. Styðjum kennara sem skilja … Undanfarin tvö ár hefur félagsþjónustan á Akranesi og Rauði krossinn á Akranesi orðið vör við vaxandi vanda innflytjenda- fjölskyldna. Ljóst má vera af nýjasta útspili LÍU að þeir ætla sér í hart við þjóðina og hafa ekki minnsta áhuga á að skapa sátt um fiskveiðar. Með lögfræðiálitinu, sem LÍÚ lagði fram, er efast um eignarhald þjóðarinn- ar á fiskveiðiauðlindinni. Nýjustu útspil LÍÚ sýna hversu brýnt er að innkalla fiskveiðiheimildirnar án frekari tafa. Til viðbótar við þau nefndarálit sem fram voru komin fyrr í sumar hafa nú bæst við álit Landsbankans og Deloitte sem í reynd bæta ekki miklu við það sem áður var komið. Þar er t.d. hvergi reynt að leiða líkur að því hversu mörg sjávarútvegsfyrirtæki séu nú þegar ekki lífvænleg og muni ekki lifa af þótt engu verði breytt í tilhögun fiskveiða. Í skýrslum þess- ara aðila er ekki talað fyrir lausn- um sem til eru, til að koma til móts við stefnumótun stjórnvalda, held- ur er reynt að sjá ljónin í veginum og skýrslurnar síðan samdar út frá því. Öllum má vera ljóst hvaða hags- muni Deloitte er að verja en spyrja má hvaða hagsmuni Landsbankinn er að verja með slíkri skýrslugjöf. Leiðbeiningarskylda Landsbankans Þannig mætti ætla að Landsbank- inn reiknaði með að yfirlýstur vilji ríkisstjórnarninnar gengi eftir og skýrsla Landsbankans ætti því fyrst og fremst að leiðbeina um útfærslu hinnar mörkuðu stefnu. T.d. um að mikilvægt sé að samhliða innköll- un aflaheimildanna verði gefið út að útgerðir geti reiknað með því að halda 95% núverandi aflaheimilda sinna næstu 19 árin, ef farin verður sú fyrningarleið sem oftast er talað um, þ.e. að fyrna 5% aflaheimilda á ári næstu 20 ár. Þannig ætti Lands- bankinn einnig að leiðbeina um að e.t.v. þurfi sérstök tímabundin ákvæði í lög um ársreikninga sem taki á þeim sérstöku aðstæðum sem skapast á meðan verið er að fyrna kvótann til fulls. Það er sammerkt öllum þeim álit- um um fiskveiðistjórnunarfrum- vörpin sem fram hafa komið frá vor- dögum að helstu athugasemdirnar lúta að hinum svokölluðu „pottum“, veiðiheimildum sem ráðherra getur úthlutað að geðþótta o.s.frv. Hvergi er vikið orði að hinni svokölluðu „til- boðsleið“ sem upphaflega kom til greina við ráðstöfun kvóta, en sem LÍÚ hafnaði, þ.e. að útgerðir bjóði árlega, hver eftir fjárhagslegri getu sinni og útgerðarhæfi, í afnotarétt af 5% kvótans næstu 20 árin þar á eftir. Ætla verður að allir skýrslu- höfundar telji „tilboðsleiðina“ heppi- lega leið til að hámarka arð þjóðar- búsins af fiskveiðum enda hagrænir yfirburðir hennar fram yfir svokall- aða „samningaleið“ óumdeildir. LÍÚ hjólar í þjóðina Mannréttindi fyrir alla? Styðjum kennara við að breyta Sjávarútvegsmál Bolli Héðinsson hagfræðingur Menntamál Jón Þór Ólafsson heimspekingur Innflytjendur Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri Rauða krossins á Akranesi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.