Fréttablaðið - 27.08.2011, Page 17

Fréttablaðið - 27.08.2011, Page 17
LAUGARDAGUR 27. ágúst 2011 17 Komdu sæl Jóhanna.Erindi mitt við þig er kjör lögreglumanna, þ.e.a.s. í hvaða sporum þeir eru gagnvart viðsemj- anda sínum sem og eftirlaunamál. Mig langar til að biðja þig að setja á þig þau gleraugu sem þú notaðir þegar þú sjálf varst í kjarabaráttu fyrir hópi fólks. Ég heiti Gunnar S. I. Sigurðsson, er lögreglumaður og búinn að vera það síðastliðin 37-38 ár og er sem sagt enn að. Þegar ég hóf störf voru föst laun bara brandari (ekki ósvipað og þau eru í dag) og allt miðað við að ná upp kjörunum með yfirtíð, sem ekki er unnt í dag. Verkfalls- rétt höfðum við en létum síðan illu heilli af hendi, á móti átti að sjá til þess að launakjör lögreglumanna yrðu alltaf sambærileg ákveðnum viðmiðunarstéttum. Hástemmdar yfirlýsingar voru gefnar til að selja okkur þessa niðurstöðu. Margir okkar voru mjög ósáttir við þessa leið, töldu að lögreglumenn ættu eins og aðrir að berjast og semja fyrir sínum kjörum og hafa til þess löggilt verkfæri sem verkfallsrétt- urinn er. Annað væri niðurlægjandi fyrir stéttina. Mig minnir að fyrir verkfalls- réttinn fengjum við ígildi þriggja til fimm þáverandi launaflokka og þannig áttum við að haldast gagn- vart þeim sem ekki létu verkfalls- réttinn af hendi. Fljótlega voru gerðir samningar við aðra hjá rík- inu og má segja að í þeim samn- ingum hafi þessi launamunur jafn- ast út. Þá strax hófu viðsemjendur okkar að narta í samninginn, teygja hann og toga og skapa ágreining um útreikninginn. Síðan þá höfum við oftast verið á eftir og klárlega tapað þessari greiðslu sem við fengum fyrir verk- fallsréttinn. Núna er staðan þannig að við höfum verið samningslausir í tæplega þrjú hundruð daga. Þar sem ekkert gekk í vor að semja var deilunni vísað í gerðardóm. Til að gera deiluna enn langvinnari hefur það dregist að skipa í dóminn en síð- ustu fréttir herma að skipanin væri komin og á að fella úrskurð þann 23. sept. næstkomandi. Vel getur verið að dómur þessi verði okkur mjög í hag og að við lifum sælir og ánægðir næstu mánuði en það verður bara nokkra mánuði. Aftur stöndum við frammi fyrir kjaradeilu um laun og kjör þvert á það sem lagt var upp með á sínum tíma. Mér finnst þessi staða mjög nið- urlægjandi fyrir stéttina og að það hafi það komið fram sem mætir menn vöruðu við á sínum tíma. Því er það mín skoðun að samtök okkar ættu að taka upp baráttu fyrir verk- fallsréttinum og standa svo keik frammi fyrir viðsemjendum okkar. Okkur hefur verið misboðið svo lengi að nú er nóg komið, tími til að hysja upp um sig buxurnar og taka slaginn. Eftirlaun okkar miðuðust á sínum tíma við 70 ár eins og almennt hjá ríkisstarfsmönnum. Vegna eðli starfsins var það viðmið lækk- að niður í 65 ár og töldum við það áfanga á leiðinni. Nú veit ég ekki hvað þú þekkir vel til lögreglu- starfsins og ætla svo sem ekki að reyna að upplýsa hvorki þig né aðra sem þetta lesa um eðli starfs- ins. Ég hins vegar fullyrði og nýti mér þessi tæpu 38 ára starfsreynslu mína til að segja að starfið sé engu öðru líkt og eiginlega bannað fyrir fullorðna... og veika. Mikill munur er fyrir eldri (og oft lasburða) lögreglumenn að vinna í lögreglunni nú á dögum en fyrir um áratug. Það helgast af því að mikið hefur verið skorið niður og því mikil fækkun á stöðugildum. Það hafði það í för með sér að hver og einn lögreglumaður fór að vega þyngra í kerfinu. Hér áður gátu lög- reglumenn sem komnir voru á efri ár fundið starf „við hæfi“ innan embættanna. Nú er ráðið í þau störf fólk á Eflingartaxta og þessi eldri lögreglumaður verður að fara í fremstu víglínu. Ríkið hlýtur að þurfa að axla ábyrgð á gjörðum sínum eins og hinn almenni borgari. Margir okkar telja að misgjörðir ríkisins gagnvart okkur í samningamálum séu nægjanlegar þó ekki bætist við óviðunandi staða eldri starfsmanna. Það heyrðist fyrir ekki svo mörg- um misserum síðan að taka ætti þessi mál til skoðunar og kviknaði sú von hjá okkur sem erum komnir með 35-40 ára starfsaldur að gerð- ur yrði við okkur starfslokasamn- ingur í ljósi framanritaðs. Aftur- kippur virðist kominn í það mál og er það slæmt. Og það eru ekki bara við eldri mennirnir sem erum von- sviknir vegna þessa, þeir nýliðar sem eru utan starfs vegna fækkun- ar stöðugilda eru líka vonsviknir. Þrjá nýliða væri hægt að ráða inn fyrir hverja tvo eldri starfsmenn sem hætta. Ég gæti svo sem haldið áfram en læt staðar numið hér og vona Jóhanna að þú skoðir þetta mál með opnum huga. Sjálfur tel ég ótækt að lögreglu- menn þurfi að standa í þessum spor- um samning eftir samning, þurfa að standa í samningum með báðar hendur bundnar. Annað tveggja þarf að gera, taka upp það kerfi sem átti að tryggja stöðu okkar án verk- fallsréttar eða að láta okkur eftir verkfallsréttinn, sjálfum hugnast mér það betur. Þá þarf að taka afstöðu í eftir- launamálum lögreglumanna og eða að búa svo um hnútana að eldri lögreglumönnum sé unnt að klára starfið án þess að þurfa að fórna heilsu til þess. Opið bréf til forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur Kjaramál Gunnar S. I. Sigurðsson lögreglumaður Ríkið hlýtur að þurfa að axla ábyrgð á gjörðum sínum eins og hinn almenni borgari. Margir okkar telja að misgjörðir ríkisins gagnvart okkur í samningamálum sé nægjan- legt þó ekki bætist við óviðunandi staða eldri starfs- manna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.