Fréttablaðið - 27.08.2011, Side 18

Fréttablaðið - 27.08.2011, Side 18
18 27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR Helgina 4.-5. október 2008 stóðu Geir Haarde og samstarfsfólk hans í ríkisstjórn frammi fyrir ein- hverjum veigamestu ákvörðunum sem íslenskir stjórnmálamenn hafa staðið frammi fyrir frá stofn- un lýðveldis á Íslandi. Ákvörðun- in sem á endanum var tekin – að neita bönkunum um frekari fyrir- greiðslu hjá ríkinu (utan eitt lán til Kaupþings með veði í FIB) en setja þess í stað neyðarlög til þess að búa í haginn fyrir fall þeirra – var einstaklega róttæk í sögulegu samhengi. Hún var þar að auki alls ekki eini leikurinn í stöðunni eins og margir hafa haldið fram. Þessi ákvörðun hefur skipt sköpum fyrir hag okkar Íslendinga. Ég man enn eins og það hafi gerst í gær hvernig viðbrögð yfir- manna sendinefndar Alþjóðagjald- eyrissjóðsins (AGS) voru þegar fulltrúi forsætisráðuneytisins upplýsti þá um þessa ákvörðun íslenskra stjórnvalda eftirmiðdag- inn 6. október – nokkrum klukku- stundum áður en neyðarlagafrum- varpið var lagt fram á Alþingi. Þeir misstu andlitið, supu hveljur og áttu ekki til orð. Ætluðum við virkilega að fara þessa leið? Áttuð- um við okkur ekki á því hvers lags ragnarök við værum að kalla yfir land og þjóð með þessu? Seinna sama kvöld sat ég fund þar sem fulltrúar AGS reyndu að sannfæra okkur um að uppþot myndu brjót- ast út strax næsta dag og hamstur myndi leiða til skorts á matvælum fyrir lok vikunnar. Á svipuðum tíma stóð forsætis- ráðherra Írlands frammi fyrir sams konar ákvörðun. Fjármála- markaðir voru í þann mund að missa trú á þarlendum bönkum. Alveg eins og á Íslandi fullyrtu bankastjórar írskra banka að þeir hefðu meira en nóg eigið fé og að einungis væri um lausafjárvanda að ræða sem rífleg fyrirgreiðsla frá ríkinu gæti ráðið bót á. Í þess- ari stöðu gerði forsætisráðherra Írlands það sem stjórnarherr- ar hafa nánast alltaf gert í slíkri stöðu. Hann ábyrgðist fyrir hönd írska ríkisins allar skuldir írska bankakerfisins. Nú þremur árum síðar er komið í ljós að írskir bank- ar voru í mun verri stöðu en þeir héldu fram – alveg eins og raunin var með íslensku bankana. Munur- inn er hins vegar sá að á Írlandi lendir allt það tap á írskum skatt- greiðendum (þar til þeir gefast á endanum upp og lýsa yfir gjald- þroti) á meðan bróðurparturinn af tapi íslensku bankanna lenti á erlendum kröfuhöfum. Ef horft er yfir sögu síðustu áratuga hefur það gerst ítrekað að bankakerfi landa hafa lent í vand- ræðum. Viðbrögð stjórnvalda hafa nánast án undantekninga verið þau að hlaupa undir bagga með banka- kerfinu, óháð þeim kostnaði sem neyðaraðstoðin kallar yfir venju- lega skattgreiðendur í viðkomandi landi. Ummæli yfirmanns í Seðla- banka Evrópu eru fræg: „Við leyf- um ekki fatahreinsunum að fara á hausinn, hvað þá bönkum.“ Þessi ummæli lýsa vel þeirri gegndar- lausu hræðslu sem gagntekur fjár- málaelítu heimsins hvað það varð- ar að bönkum sé leyft að falla. Kostnaður írskra skattgreið- enda vegna bankakreppunnar stefnir í að verða meira en helm- ingi meiri en kostnaður íslenskra skattgreiðenda, þrátt fyrir að vandi bankakerfisins á Írlandi hafi reynst mun minni hlutfallslega en þeirra íslensku. Jafnvel löndum sem áttu við brotabrot af þeim vanda sem við reyndumst eiga við – eins og Holland og Bretland – tókst að íþyngja skattborgurum sínum meira í kreppunni en ríkis- stjórn Geirs Haarde (ef horft er framhjá tapi Seðlabankans vegna ástarbréfaviðskipta). Þegar kreppan skall á var Ríkissjóður Íslands nánast skuld- laus og í aðstöðu til þess að veita bönkunum hundruð milljarða í fyrirgreiðslu. Það var einmitt slík fyrirgreiðsla sem bankarnir sóttust eftir helgina örlagaríku. Forystumenn Landsbankans sótt- ust eftir eins milljarðs evra láni frá ríkissjóði. Þeir fullyrtu að slíkt lán myndi tryggja bankanum traust markaða og fleyta honum yfir fjár- málastorminn sem þá geisaði. Það var deginum ljósara að ríkisstjórn- in hafði tök á því að veita Lands- bankanum slíkt lán. Spurningin var hvort það væri skynsamlegt. Flestir sérfræðingar voru á því að eina vitið væri að reyna til þrautar að bjarga bönkunum. Wil- lem Buiter og Anne Sibert skrif- uðu til dæmis fræga skýrslu fyrir Landsbankann sumarið 2008 þar sem þau vöruðu við fallhættu íslenska bankakerfisins en sögðu að viðbrögð stjórnvalda við slíkri kreppu ætti að felast í því að verja bankana falli með öllum tiltækum ráðum, þar á meðal að selja eignir lífeyrissjóðanna og veðsetja orku- auðlindir þjóðarinnar. Þessar ráðleggingar Buiter og Siberts voru (og eru) talin „almenn sannindi“ á meðal fjármálaelít- unnar í heiminum. Það þarf ekki að horfa lengra en til viðbragða Evrópusambandsins við fjármála- vanda Írlands, Grikklands, Portú- gals og fleiri landa um þessar mundir til að sjá hversu ríkjandi þessu hugsun er. Það þurfti því bæði hugrekki og yfirvegun til þess að bjóða þessum „almennu sannindum“ birginn og feta ótroðna slóð í miðju því fjár- málafárviðri sem geisaði í byrjun október 2008. Geir Haarde og sam- starfsmenn hans í ríkisstjórn voru undir ævintýralegu álagi. Afdrif heillar þjóðar um langa fram- tíð voru háð réttum viðbrögðum. Upplýsingar voru ótraustar og þrýstingur um tilteknar aðgerðir var yfirþyrmandi. Þrátt fyrir það hafði forsætisráðherra nægilega yfirvegun til þess að taka ákvarð- anir sem reyndust réttar en voru í grundvallaratriðum á skjön við það sem allar aðrar þjóðir gerðu og kallaði til skamms tíma yfir okkur einstaklega hörð viðbrögð jafnvel nánustu vinaþjóða. Hefði ríkisstjórnin lánað Lands- bankanum einn milljarð evra helgina 4.-5. október hefðu þeir fjármunir líklegast tapast að mestu eða öllu leyti. Ríkissjóður hefði þá staðið verr og þurft að skera enn meira niður og hækka skatta enn meira. En það sem meira er, ef Geir og ríkisstjórn hans hefðu ekki tekið ákvörðun þessa helgi um að setja strax neyðarlög hefði fall bankanna getað valdið upplausn af allt annarri stærðargráðu en raunin varð. Skjót viðbrögð stjórnvalda á þessum tíma gerðu það að verkum að grunnstoðir fjármálakerfisins héldu áfram að virka þrátt fyrir að bankarnir hafi fallið. Fólk gat áfram keypt nauðsynjavörur með greiðslukortum, það gat áfram borgað reikninga í heimabankan- um, fékk áfram laun millifærð inn á bankareikning og svo framvegis. Fyrir vikið hélt stærstur hluti hag- kerfisins áfram að starfa eðlilega. Flestir útlendingar eru furðu lostn- ir yfir því að ekki hafi farið verr. Þeir trúa því varla að atvinnuleysi hafi aldrei farið yfir 10%. Það er ekki fyrr en maður útskýrir fyrir þeim að við höfum sett neyðarlög og leyft bönkunum að falla án þess að gera ríkissjóð gjaldþrota sem þeir byrja að skilja hvers lags er. Margir samverkandi þættir urðu til þess að bankakerfið á Íslandi blés út og sprakk með þeim efna- hagslegu afleiðingum sem við erum enn að glíma við. Vissulega hefur komið í ljós að margt hefði mátt gera betur, og sumt miklu betur. Á því bera stjórnmálamenn þess tíma pólitíska ábyrgð. En í aðdraganda hrunsins var stefna íslenskra stjórnvalda í raun sama eðlis og stefna margra nágranna- þjóða okkar. Ríkisstjórnir fjölda landa voru að gera sömu mistök- in. Þegar hins vegar á hólminn var komið skildi á milli Íslands og annarra landa. Stjórnvöld á Íslandi settu neyðarlög sem opnuðu fyrir það að bankarnir gætu fallið án þess að allt tap þeirra lenti á skatt- greiðendum eða þjóðfélagið gengi algerlega úr skorðum. Þetta var lang mikilvægasta ákvörðunin. Hún var rétt og bjargaði þjóðinni frá gjaldþroti. Að þessu leyti stóð Geir sig betur en starfsbræður hans annars staðar. Þessi atriði ætti Landsdómur að hafa hug- fast þegar hann tekur afstöðu til þess hvort Geir hafi brotið af sér í starfi. Á hvaða mælistiku ætlar hann eiginlega að leggja störf Geirs Haarde? Aðstæðurnar sem Geir og ríkis- stjórn hans stóðu frammi fyrir haustið 2008 voru einstæðar í Íslandssögunni. Hagsmunirnir sem um var að tefla voru yfir- þyrmandi. Úr öllum áttum bár- ust ráðleggingar, kröfugerðir og hugmyndir um hvernig bregð- ast skyldi við. Í þeirri fjármála- kreppu, sem ennþá sér ekki fyrir endann á í heiminum, var Ísland fyrst til þess að þurfa að horfast í augu við þann kalda sannleika að fjármálakerfið væri byggt á sandi. Tafarlausra aðgerða var þörf þótt „stríðsþoka“ fjármálakreppunnar kæmi í veg fyrir að allur sannleik- urinn lægi fyrir. Þegar svo hátt- ar mun enginn mannlegur mátt- ur megna það að gera allt rétt. Þá skiptir mestu að viðbrögðin við stóru atriðunum séu sem réttust. Í tilfelli Íslands tókst það. Þú ert kannski kennari yfir vetrartímann og þig langar að fara á strandveiðar á sumrin. Það er auðvitað þess virði að það sé hægt. Menn geta farið á grásleppu á vorin og strandveiðar yfir sum- arið. Þetta er viðbót við atvinnu- flóruna. Þetta er engin rómantík, það sjá allir í hendi sér.“ Þessi ummæli Ólínu Þorvarðar- dóttur alþingismanns í útvarps- þættinum Sprengisandi fyrr í sumar hafa setið í mér allt frá því ég heyrði þau fyrst. Snerist rétt- lætið í strandveiðunum þá eftir allt saman um þetta? Að færa opin- berum starfsmönnum og öðrum launauppbót í sumarleyfinu á kostnað þeirra sem hafa lifibrauð sitt af störfum við sjávarútveg allan ársins hring? Með strandveiðum afhentu svo- kallaðir fulltrúar réttlætisins á Alþingi fólki úr öllum mögulegum starfsstéttum 8.600 tonn af verð- mætustu fisktegundum okkar án endurgjalds. Á sama tíma var úthald fjölmargra fiskiskipa stytt vegna samdráttar í aflaheimildum vegna strandveiðanna. Þannig var togarinn Björgúlfur frá Dalvík, þar sem ég starfaði einu sinni, aðeins gerður út í átta daga í maí, níu daga í júní og tólf í júlí. Þetta er nú atvinnusköpun í lagi! Störfin og tekjurnar teknar af einum hópi til þess eins að færa öðrum. Í réttlæti Ólínu hlýtur eitt yfir alla að ganga. Í röðum sjómanna eru einstaklingar sem hafa lokið kennaramenntun eða hafa rétt- indi sem leiðbeinendur. Þegar illa viðrar til sjósóknar í vetur gætu þeir bankað upp á í skólum lands- ins og falast eftir ígripavinnu við kennslu og að sjálfsögðu með til- heyrandi launalækkun hjá öðrum kennurum. Þeir gætu líka sagt börnunum reynslusögur úr starf- inu og lýst því hversu gaman það er að vera á sjó í góðu veðri. Væri það ekki gráupplögð leið til þess að auka við atvinnuflóruna? Það þurfti því bæði hugrekki og yfir- vegun til þess að bjóða þessum „almennu sannindum“ birginn … Snerist réttlætið í strandveiðunum þá eftir allt saman um þetta? Að færa opin- berum starfsmönnum og öðrum launauppbót … Þegar á hólminn var komið Kennarar á strandveiðar og sjómenn í kennslu? Sjávarútvegsmál Páll Steingrímsson sjómaður Bankakreppan Jón Steinsson hagfræðingur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.