Fréttablaðið - 27.08.2011, Blaðsíða 22
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR22
É
g ákvað aldrei að
segja skilið við sviðs-
leikinn fyrir fullt
og allt. Þetta æxlað-
ist bara þannig að
ég hætti að leika á
sviði því ég gat ekki sameinað að
ferðast um heiminn og gera bíó-
myndir og leika í íslenskum upp-
færslum, því íslenskar sýningar
ganga oft og tíðum í svo langan
tíma. Núna verður takmarkaður
sýningafjöldi á listaverkinu, leik-
ið þétt í stuttan tíma, og það er
helsta ástæða þess að ég sá mér
fært að gera þetta,“ segir leikar-
inn, leikstjórinn og kvikmynda-
gerðarmaðurinn Baltasar Kor-
mákur, sem snýr aftur á íslenskar
fjalir í Þjóðleikhúsinu innan
skamms. Hinn 23. september
næstkomandi frumsýnir Þjóðleik-
húsið gamanleikinn Listaverkið
eftir Yasminu Reza á stóra svið-
inu, en þar bregða þeir Baltasar,
Hilmir Snær Guðnason og Ingvar
E. Sigurðsson sér á ný í sömu hlut-
verk og þeir gerðu fyrir fjórtán
árum, árið 1997. Þá var verkið sett
upp á Litla sviðinu, í Loftkastal-
anum og fleiri stöðum við miklar
vinsældir. Þetta verður í fyrsta
sinn í heil átta ár sem Baltasar
leikur á íslensku sviði.
Kominn með alvöru bumbu
„Það var einfaldlega of freist-
andi að takast á við þetta leikrit
aftur,“ segir Baltasar og útskýr-
ir að tækifærið til að vinna með
góðum vinum sínum, meðal ann-
arra þeim Hilmi Snæ, Ingvari og
leikstjóranum Guðjóni Pedersen,
sem einnig leikstýrði sýningunni
fyrir fjórtán árum, hafi ráðið
miklu um ákvörðun hans. „Fyrir
fjórtán árum var þetta rosalegur
„hittari“. Við lékum þetta úti um
allt land, meðal annars á Akur-
eyri um tíma, og það var mjög
ánægjuleg reynsla. Þá vorum við
eiginlega of ungir til að fara með
þessi hlutverk og vorum að leika
upp fyrir okkur. Núna erum við
loksins komnir á aldur við pers-
ónurnar í leikritinu. Á sínum tíma
var ég með gervibumbu og gler-
augu með engum styrkleika á
sviðinu, en nú er ég farinn að nota
gleraugu dags daglega og bumban
er alvöru,“ segir Baltasar og hlær.
Þessa dagana er Baltasar stadd-
ur í London, þar sem hann leggur
lokahönd á Hollywood-kvikmynd-
ina Contraband, og því gefst skilj-
anlega fremur knappur tími til
æfinga á Listaverkinu. Leikarinn
telur þá staðreynd alls ekki þurfa
að skemma fyrir í æfingaferlinu.
„Ég verð hérna í London fram
í september og svo fer allt á fullt
þegar ég kem heim. Það kom til
tals að strákarnir kæmu hingað út
til mín að æfa, en það var erfitt að
koma því við. Við þekkjum auðvi-
tað hlutverkin vel, sem flýtir fyrir
æfingaferlinu, en svo tökum við
bara bresku leiðina á þetta,“ segir
Baltasar og útskýrir að breskt
leikhúsfólk æfi sjaldan lengur en
í þrjár vikur fyrir hvert verkefni.
„Æfingatíminn í leikhúsunum á
Íslandi er óvenju langur miðað
við víða annars staðar, sem getur
bæði verið gott og slæmt. Oft er
frábært að geta gefið sér nægan
tíma í verkefnin en stundum gerir
þetta það að verkum að fólk er
ekki jafn mikið á tánum. Í þessu
tilfelli er þessi tilhögun þó nauð-
synleg, því það opnaðist smá glufa
hjá mér milli annarra verkefna. En
samt ekki,“ segir Baltasar. Það eru
orð að sönnu því verkefnastóðið
sem fyrir liggur hjá leikstjóranum
virðist yfirþyrmandi í augum
leikmanns.
Eru vinnualkar eins og ég
Eins og áður sagði er Baltasar
staddur í London þar sem hann
leggur lokahönd á kvikmynd sína
Contraband, sem er Hollywood-
endurgerð á íslensku kvikmynd-
inni Reykjavík-Rotterdam og
segir frá smyglara sem er platað-
ur út í eitt smyglið enn. Íslensku
myndinni leikstýrði Óskar Jónas-
son en í henni fór Baltasar með
hlutverk smyglarans Kristófers.
Það eru stórfyr ir tæki n
Universal og Working Title sem
framleiða Contraband og skart-
ar myndin stjörnum á borð við
Mark Wahlberg, Kate Beckin-
sale, Giovanni Ribisi og Ben Fost-
er í helstu hlutverkum. Auk þess
vinnur einvalalið með Baltasar
bak við tjöldin. Þegar blaðamað-
ur náði tali af leikstjóranum var
hann í miðjum klíðum að vinna
að litgreiningu myndarinnar með
kvikmyndatökumanninum Barry
Ackroyd, sem sá meðal annars um
myndatöku í myndunum The Hurt
Locker, United 93 og Green Zone.
„Á sunnudagskvöldinu sat
ég svo í stúdíóinu hér í Soho í
London, en á meðan var sinfón-
íuhljómsveit í Fox-myndverinu í
Los Angeles að taka upp tónlist-
ina fyrir myndina. Ég hlustaði á
í beinni útsendingu og kom með
athugasemdir. Tónskáldið Clinton
Shorter sér um tónlistina, en hann
samdi meðal annars tónlistina
fyrir „sci-fi“-myndina District 9,“
segir Baltasar og segist aðspurð-
ur vera afar ánægður með teym-
ið sem vinnur að myndinni með
honum. „Þetta er allt toppfólk.
Ég hef unnið með frábæru fólki á
Íslandi en aldrei teymi með svona
svakalega fínar ferilskrár. Sam-
starfið við alla gengur eins og í
sögu. Þetta eru allt vinnualkar
eins og ég og gera sitt besta.“
Ýmsar dyr hafa opnast
Vonir standa til að Contraband
verði frumsýnd í janúar í Banda-
ríkjunum. Áður, eða um næstu
jól, hyggst Baltasar þó frum-
sýna á Íslandi myndina Djúpið,
sem fjallar um harmleikinn við
Heimaey og frækilegt sundafrek
Guðlaugs Friðþórssonar árið
1984.
Þá keypti framleiðslufyrirtæk-
ið Working Title Films réttinn
að margumtalaðri víkingamynd
Baltasars í vor og segir leikstjór-
inn vinnu við undirbúning hennar
í fullum gangi. Meðal annars var
greint frá því nýverið að hand-
ritshöfundurinn Karl Gajdusek
hefði verið ráðinn til að fínpússa
handritið að myndinni, en hann
skrifaði meðal annars handritið
að hasarmyndinni Trespass, nýj-
ustu mynd Nicolas Cage og Nicole
Kidman og vísindahasarmyndinni
Oblivion, sem stórstjarnan Tom
Cruise kemur til með að leika í
og verður hugsanlega tekin upp á
Íslandi, að sögn Baltasars.
Þá leikstýrir Baltasar Afmælis-
veislunni, fyrsta leikriti Harolds
Pinter í fullri lengd, í Þjóðleikhús-
inu í vor. Hann hefur einnig verið
ráðinn til að setja upp Villiöndina
eftir Henrik Ibsen í norska þjóð-
leikhúsinu árið 2012, en hún verð-
ur opnunarsýning Ibsen-hátíðar-
innar sem leikhúsið heldur annað
hvert ár.
Baltasar viðurkennir fúslega
að vinnan við gerð Contraband
og samstarfið við nafntogaða
einstaklinga innan kvikmynda-
geirans ytra hafi opnað honum
ýmsar dyr. „Hollywood er ekkert
svo stór, þegar öllu er á botninn
hvolft. Þegar spyrst út að ákveð-
ið verkefni gangi vel líður ekki á
löngu þar til það kemur viðkom-
andi til góða. Núna berast mikið
fleiri verkefni til mín en áður
var,“ segir hann og bætir við að
nýlega hafi honum borist boð um
risavaxið verkefni. Hann vill þó
ekki tjá sig nánar um það að svo
stöddu. „Þetta er alveg geðveikt
dæmi, en það er best að stíga var-
lega til jarðar því Contraband
hefur ekki verið frumsýnd enn
og maður veit aldrei hvað gerist.“
Líður best í Skagafirði
Þessum mörgu verkefnum Baltas-
ars fylgja óhjákvæmilega mikil
ferðalög og flugferðir þvers og
kruss um heiminn. Aðspurður
segist hann oftast reyna að nýta
tímann í flugvélum til að horfa á
bíómyndir eða lesa handrit, sem
berast honum í stöflum.
„Auðvitað kemur fyrir að ég
verð þreyttur en þetta er drauma-
djobbið og það hvarflar ekki að
mér að kvarta yfir því. Ég reyni
líka að gera starfið eins fjöl-
skylduvænt og hægt er. Núna er
ég til dæmis með fjölskylduna úti
í London og við höfum það mjög
huggulegt. Litlu strákarnir okkar
fara með mér í vinnuna á hjóla-
bretti en sjálfur labba ég, enda
ekki jafn góður á brettinu og ég
var í gamla daga.“
Hann segir þó alls ekki inni í
myndinni að flytjast búferlum
í annað land, enda líði honum
hvergi betur en í Skagafirðin-
um með fjölskylduna og hestana
sína nærri. „Ég hef aldrei litið á
hlutina eins og að „meika það“ í
Hollywood sé eitthvert markmið
í sjálfu sér. Það er frábært að
geta unnið að spennandi verkefn-
um þegar þau bjóðast í útlöndum,
en ég er alveg eins til í að gera
íslenskar myndir eða vinna við
íslenskt leikhús. En úr því ég er
í aðstöðu til þess reyni ég eftir
fremsta megni að koma með eins
mikla vinnu og ég get til Íslands.
Það skapar störf og peninga og
verður vonandi til þess að íslenski
kvikmyndabransinn njóti góðs
af,“ segir Baltasar að lokum.
Ég hef aldrei litið á hlutina eins
og að „meika það“ í Hollywood sé
eitthvert markmið í sjálfu sér.
Í ÞÁ DAGA Aðalleikarar í Listaverkinu, þeir Baltasar, Hilmir Snær og Ingvar, fagna
frumsýningu verksins í Þjóðleikhúsinu árið 1997. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Aftur á svið eftir átta ára hlé
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Leikarinn og leik-
stjórinn Baltasar
Kormákur er önnum
kafinn ytra í hinum
ýmsu verkefnum en
stígur þó aftur á ís-
lenskt leiksvið í næsta
mánuði eftir langt hlé.
Hann sagði Kjartani
Guðmundssyni frá holl-
vinum, Hollywood og
hestamennsku.
ALLT AÐ GERAST Baltasar segir
margfalt fleiri verkefni berast
honum nú en áður var. Þegar
vel gangi spyrjist það fljótt
út í kvikmyndabransanum.
Hann ferðast milli Englands,
Bandaríkjanna, Íslands og fleiri
landa allt árið en líður best í
Skagafirðinum.