Fréttablaðið - 27.08.2011, Qupperneq 26
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR26
hann sín persónulegu vensl ekki
þvælast fyrir hugsjóninni. Til
marks um það er að bróðir hans,
Kristján Már Sigurjónsson, er
virkjanaverkfræðingur á stofunni
sem hannaði Urriðafossvirkjun.
Það þarf vart að taka fram að þeir
bræður eru á öndverðum meiði.
Ólafur vitnar til ummæla jarð-
fræðingsins Páls Einarssonar,
sem efaðist um að hægt væri að
halda vatni í Heiðarlóni, uppi-
stöðulóni Urriðafossvirkjunar,
vegna þess hversu sprungið land-
svæðið væri. Þær athugasemdir
hafi verið hunsaðar, líkt og við-
varanir Heilbrigðiseftirlits Suður-
lands sem taldi að fráveitulagnir
gætu eyðilagst. Þá sé augljóst að
laxinn í áni sé dauðadæmdur. „Það
er búið að ákveða virkjunina og þá
er haldið áfram beint af augum
og öllum svona hliðarvandræðum
sópað burt,“ segir Ólafur.
Hann kallar allar virkjanirn-
ar þrjár „algjört brjálæði“. Því
eru hins vegar síður en svo allir
landeigendur á svæðinu sam-
mála. Margir eru himinlifandi
með áform um virkjanir á svæð-
inu, þær muni skapa langþráðar
tekjur og störf. Hvernig skýrir
Ólafur það? Í hans huga er það
nokkuð einfalt: „Ég er búinn
að kafa ofan í þetta og ég þori
að ganga fram fyrir skjöldu og
standa við mína sannfæringu,“
segir hann. Þar fyrir utan séu
margir á sama máli og hann en
vilji bara ekki rugga bátnum, eins
og sagt er.
Menn verða seint alveg sáttir
Helga Óskarsdóttir á Minna-
Hofi í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi er ein fjölmargra sem eru
á öndverðum meiði. „Mér hugn-
ast þessi áform alveg prýðilega,“
segir Helga, enda þurfi nauðsyn-
lega eitthvað að gerast á svæð-
inu. Jörð hennar liggur á milli
fyrirhugaðra Haga- og Árnes-
lóna en verður að hennar sögn
fyrir litlum sem engum beinum
áhrifum. Spurð hvort hún komi
ekki til með að sjá eftir því landi
í sveitinni sem þó verður fyrir
raski segist hún ekki hafa mikl-
ar áhyggjur af því. „Ég held bara
að það verði svo lítið rask,“ segir
Helga.
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti
Flóahrepps, fagnar því að
niðurstöður Rammaáætlunar hafi
loksins litið dagsins ljós. Þær séu
fyrirsjáanlegar hvað Urriðafoss-
virkjun varði fyrir alla þá sem
hafi kynnt sér málið. Ferlið hafi
tafið skipulagsvinnu í hreppnum
en nú liggi þetta loks fyrir og það
sé ánægjulegt.
„Svo á reyndar eftir að koma í
ljós hvort menn ætla að sættast
á þessa tillögu á Alþingi,“ segir
hann. Spurður hvort hann telji að
niðurstaða Rammaáætlunar sé
líkleg til að sætta stríðandi fylk-
ingar á svæðinu segist hann gera
sér vonir um að þessi vinnubrögð
sem þessi komist eins nálægt
því og mögulegt er. „Ég er alveg
sammála þessari aðferðafræði
– að flokka virkjanakostina – en
ég veit líka að menn verða seint
alveg sáttir,“ segir Aðalsteinn.
Hann segist ekki vita hvort
niður staðan hafi að einhverju
leyti breytt afstöðu þeirra sveit-
unga hans sem hvað sterkast-
ar skoðanir hafa á málinu. „En
það er mikil einföldun að ætla að
skipta íbúum Flóahrepps í virkj-
anasinna og virkjanaandstæðinga
– það er ekki þannig. Það er ákveð-
inn hópur sem er alfarið á móti því
að virkja og ákveðinn hópur sem
berst mikið fyrir þessu, og síðan
er stór hópur sem hefur vegið og
metið öll rök og ég á von á því að
hann sætti sig við þetta,“ segir
hann. Líklega tilheyri stærstur
hluti fólks þeim hópi.
FRAMHALD AF SÍÐU 24
Myndir
1. Albert Sigurjónsson, bróðir Ólafs
í Forsæti, á leið að vitja neta sinna í
Heiðarlóni. Hann hefur áhyggjur af því
að með tilkomu virkjana muni laxinn
hverfa úr ánni.
2. „Áætluð lónshæð“ segir á skilti sem
virkjanaandstæðingar hafa komið fyrir
við fyrirhugað Hagalón.
3. Til stendur að loka Búðafossi að
mestu og veita vatninu þess í stað um
Árneskvísl vinstra megin á myndinni.
Við það myndast Árneslón.
4. Á myndinni má sjá fyrirhugað
lónstæði Hagalóns, uppistöðulóns
Hvammsvirkjunar. Stór hluti þess lands
sem sést á myndinni mun hverfa undir
lónið.
5. Þessi ær og lömb hennar létu sér
fátt um finnast þótt fljótlega myndi
Heiðarlón stækka til mikilla muna.
það er mikil einföldun að ætla að skipta íbúum Flóa-
hrepps í virkjanasinna og virkjanaandstæðinga – það er
ekki þannig.