Fréttablaðið - 27.08.2011, Qupperneq 32
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR32
10.September nk.
Ungbarnasund
Námskeiðið hefst 5. f brúa nk. í Árbæjarlaug.
Sunddeild Ármanns
Barnasund
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst laugardaginn 15. janúar nk.
í Árbæjarskóla
Innritun virka daga frá kl. 17:00 og um helgar frá kl. 13:00
í síma 557-6618 (Stella) og Eygló í síma 866-0122
i ið hefst 10 sept. 2011 í Árbæjarlaug.
Innritun virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00
í síma 557-6618 Stella, stella.gunnars@gmail.com
stella.gunnarsdottir@reykjavik.is
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst laugardaginn 17. sept. nk.
í Árb jarskóla
Ber eru holl og góð fæða. Þau eru auðug af víta-
mínum, steinefnum, trefjaefn-
um og öðrum hollustuefnum.
Einkum eru þau rík af C-vítam-
íni og talsvert er af E-vítamíni
í aðalbláberjum og bláberjum.
Þessi vítamín eru andoxunar-
efni en þau hindra myndun
skaðlegra sindurefna í frum-
um líkamans. Sindurefni eru
talin tengjast hrörnun og því að
ákveðnir sjúkdómar þróist í lík-
amanum, svo sem krabbamein,
æðakölkun og ský á auga.
Rannsóknir hafa sýnt að
bláber hafa sérstaklega mikla
andoxunarvirkni. Töluvert er
af járni í krækiberjum en rann-
sóknir sýna að mörg börn og
konur á Íslandi fá ekki nægjan-
legt magn járns úr fæðunni.
Krækiber og aðalbláber eru
einnig trefjarík en trefjaefni
eru nauðsynleg fyrir eðlilega
meltingu.
Heimild. www.landlaeknir.is
■ EINTÓM HOLLUSTA
Bláberjalyng vex um land allt og því tiltölulega auðvelt að
komast í bláberjamó. Bláber
eru ekki jafn bragðmikil og
aðalbláberin en eiga hollustuna
sameiginlega með þeim.
Einföld bláberjasulta
1 kg af berjum
800 g – kíló af sykri.
Örlítið vatn. Blandað saman og soðið.
Sigtað og sett í krukku.
Bláber
Bestu berin að margra mati eru aðalbláber. Lyng þeirra
vex um nær allt land, en er ekki
algengt á Suðurlandi. Í snjóléttari
byggðarlögum finnst lyngið yfir-
leitt ekki á láglendi heldur ofar í
hlíðum, þar sem snjóalög hlífa á
vetrum.
Bláber með rjóma
Rjóma hellt yfir bláberin og örlitlum
sykri stráð yfir.
Aðalbláber
Nú blánar yfir berjamó
Berjatíminn er runninn upp. Hvort sem tíndur er lítill skammtur til að borða um leið eða margir lítrar til þess að sulta og frysta
til vetrarins þá er ljúft að leggjast út og tína ber. Ekki þarf að fara langt frá Reykjavík til þess að finna berjalönd.
Krækiberjalyng vex um allt land og nánast hægt að finna
krækiber hvar sem er. Kjörlendið
eru móar, melar, mosaþembur og
mýrlendi og það er víða að finna.
Þroskuð ber eru svört og sæt.
Skyrhræra
Skyri hrært saman við hafragraut.
Krækiberjum blandað saman við.
Borið fram með mjólk eða rjóma.
Krækiber
Fyrir þá sem komast ekki út úr bænum er tilvalið að tína rifs-
ber sem vaxa á runnum úti um
allan bæ. Þeir sem búa ekki svo
vel að eiga garð með rifsrunna
geta örugglega fengið að tína hjá
vinum eða vandamönnum ef af
nógu eru að taka. Þroskuð ber
eru rauð að lit. Ef sulta á berin
þá er eindregið mælt með því að
stilkunum sé skellt með í pottinn,
þá hleypur sultan frekar. Sama
á við um sólber sem vaxa á sól-
berjarunnum.
Rifsberjalíkjör
Falleg krukka fyllt af berjum.
Góðum slurk af sykri bætt út í.
Vodka hellt yfir.
Krukkunni snúið á hverjum degi í
þrjár vikur.
Rifsber og sólber
■ Þumalputtareglan við sultugerð er að nota eitt kíló af sykri á móti kílói af
berjum. Það er í góðu lagi að nota minna af sykri en þá má búast við því
að sultan geymist ekki eins vel.
■ Ef berin eru vel þroskuð hlaupa þau ekki eins vel og þá gæti þurft að
grípa til þess ráðs að nota hleypi.
■ Óþarfi er að einskorða sig við eina berjategund í sultum, það má blanda
saman berjategundum og svo er líka óhætt að prófa sig áfram í að
bragðbæta berjasultur með til að mynda kanil, engifer, vanillu eða
myntu svo dæmi séu tekin.
■ Krukkurnar sem sultan fer í þarf vitaskuld að þrífa vel og svo er
gott ráð að þurrka þær í 60 til 100 gráðu heitum ofni.
■ Margir kjósa að frysta ber til að eiga í kökur, út á graut
eða í heilsudrykki. Sumir setja örlítinn sykur með berj-
unum þegar þau eru fryst en ef berin
eru þurr og heil þá þarf þess ekki.
■ Gagnlegar síður fyrir áhugafólk
um berjatínslu eru til dæmis síða
Berjavina, www.berjavinir.com. Þá
eru uppskriftir og ráð á síðu Leið-
beiningastöðvar heimilanna
www.leidbeiningastod.
is.
Óhætt að blanda og bragðbæta
Fleiri berjategundir en hér hafa verið taldar upp vaxa ýmist
villtar eða í görðum hér á landi.
Duglegir berjatínendur hafa
margir dottið í þann lukkupott að
rekast á villt jarðarber sem eru
einkar gómsæt. Skollaber þekkj-
ast á Vestfjörðum og fyrir norðan.
Sífellt fleiri hafa tekið upp á því
að rækta hindber og kirsuber í
görðum en fyrir þeim er talsvert
haft og ekki víst að uppskeran
verði mikil. Reyniber sem vaxa á
reynitrjám eru algeng í görðum,
og úr þeim má gera gómsætt
hlaup þó þau séu bragðvond hrá.
Og svo öll hin
Hrútaber eru eins og önnur ber seinna á ferð í ár og því ekki
jafn auðfundin í ár og til að mynda
í fyrra. Þau eru nokkuð algeng um
allt land, vaxa í hlíðum, grösugum
bollum og skóglendi.
Hrútaberjahlaup
1 kg hrútaber
1 kg strásykur á móti hverjum lítra af
safti
Safi úr einni sítrónu.
Hrútaberin soðin og sigtuð. Saftin
mæld í pott og sítrónusafa bætt út í.
Soðið í 5 mínútur. Potturinn tekinn
af hellunni og sykri bætt út í. Sett á
krukkur og lokað strax.
Hrútaber
Heimildir: Íslenska plöntuhandbókin; Svanborg Sigmarsdóttir; Vefir Land-
læknisembættisins, Leiðbeiningastöðvar heimilanna og Náttúran.is
■ BERJALÖND Í KRINGUM HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Botnsdalur
Brynjudalur
Kjósin
Þingvellir
Bláfjöll
Heiðmörk
Álftanes
Undirhlíðar