Fréttablaðið - 27.08.2011, Qupperneq 43
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512-5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512
Gagnleg
Almenn skyndihjálp
Þrjú námskeið verða haldin í almennri skyndihjálp. Þar læra þátttakendur
grundvallaratriði í skyndihjálp og endurlífgun. Markmiðið er að
þátttakendur verði hæfir til að veita fyrstu hjálp á slysstað.
Námskeið 14. september, 4. október og 7. nóvember kl. 18-22.
Þátttökugjald er 4.500 krónur.
Slys og veikindi barna
Tvö námskeið verða haldin. Á námskeiðunum er fjallað um varnir gegn slysum
á börnum og orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri.
Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum af ýmsu tagi,
endurlífgun barna, andlegum undirbúningi við komu barna á sjúkrahús o.fl.
Námskeiðin geta gagnast öllum þeim sem umgangast börn hvort sem er í
starfi eða daglegu lífi.
Námskeið 27.-28. september og 1.-2. nóvember kl. 18-21.
Þátttökugjald er 6.500 krónur en 5.000 krónur ef maki eða eldra systkyni
tekur líka þátt.
Sjálfboðaliðar Kópavogsdeildar fá ókeypis á námskeiðin og félagsmenn
sem greitt hafa félagsgjaldið fyrir 2010 fá 10% afslátt. Frekari upplýsingar
og skráning er á www.raudikrossinn.is/kopavogur. Einnig er hægt að hafa
samband í síma 554 6626 og á kopavogur@redcross.is
Rauðakrosshúsið Hamraborg 11 - Opið alla virka daga kl. 9-15 raudikrossinn.is/kopavogur
námskeið
Upprifjun fyrir SAMRÆMDU PRÓFIN
í september í íslensku, stærðfræði og ensku
NÁMSAÐSTOÐ
Öll skólastig - Réttindakennarar
Nemendaþjónustan sf www.namsadstod.is s. 557 9233
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Sérverslun með
Mikið úrval af
fallegum skóm
og töskum
Gæði & Glæsileiki
www.gabor. is
Grasagarðurinn heldur uppskeruhátíð í nytjajurtagarð-
inum, býbændur kynna hunangsuppskeru sína í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum og Íbúasamtökin halda
útimarkað í trjágöngunum á milli Grasagarðsins og Hús-
dýragarðsins á laugardag. Sjá nánar á www.mu.is
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt.
Miðvikudaga
Sölufulltrúi:
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Þ
að væri rosa gaman að
fara í geimferð en ég
komst fljótlega að því
að NASA hefur ákveðna
viðmiðunarstærð fyrir geimfara
og ég er heldur hærri en þeir. Ég
passa því ekki í geimferjurnar,“
segir Ari, spurður hvort hann
langi ekki stundum til tunglsins
þegar hann fær loks frí frá anna-
sömu starfi sínu, en áður starfaði
hann í áratug hjá Geimferðastofn-
un Bandaríkjanna (NASA).
„Ég er sáttur því það er kappnóg
að taka þátt í starfinu á jörðu niðri
og mikið ferðalag í sjálfu sér. Ég
hef til dæmis unnið í sýndarveru-
leika á Mars, sem enginn alvöru
geimfari hefur enn gert,“ segir
Ari og blæs á samsæriskenning-
ar um að enn hafi enginn farið til
tunglsins.
„Geimferðir eru í fúlustu alvöru
og ágætt að rifja upp að Sovét-
menn öttu miklu kappi við Banda-
ríkjamenn á sínum tíma. Þeir
fylgdust því mjög vel með ferðum
þeirra til tunglsins og hætt við að
þeir hefðu látið í sér heyra ef eitt-
hvað hefði verið svindlað á því,“
segir Ari og hlær.
Hann segir NASA stórkostlegan
vinnustað.
„Ég er heppinn að vera hluti af
teymi á bak við geimferðir, Mars-
jeppana sem fóru til Mars 2003 og
Alþjóðlegu geimstöðina. Það er
ólýsanleg tilfinning að taka þátt í
svo stórum og mikilvægum skref-
um innan geimvísindanna,“ segir
Ari, sem tók við starfi rektors HR
í ársbyrjun 2010.
„Ég var kominn yfir heimþrána
þegar ég flutti aftur til Íslands.
Engu að síður er gott að vera kom-
inn heim og bandaríkri eiginkonu
minni líkar vel að búa hér þótt erf-
itt sé að læra tungumálið,“ segir
Ari, sem á morgun heldur upp á
eins árs afmæli sonarins Leifs
Finnian, en fyrir á hann annan son
á áttunda ári.
„Afmælisveislan verður á milli
blunda hjá þeim stutta svo hann
verði hress og skemmtilegur, en
móðir hans bakaði sérstaka köku
sem hann getur vaðið í með guðs-
göfflunum,“ segir Ari sem sjálfur
veitt fátt betra en að dunda við
matseld í fríum og hefur sérstakt
dálæti á sósugerð, en í frítíma
reimar hann líka á sig gönguskó
og gengur um reykneska náttúru.
„Starf rektors er annasamt, en
enn áhugaverðara og meira krefj-
andi en ég átti von á. Það er virki-
lega gefandi og þótt yfir 3.000
nemendur séu við nám í HR fer
maður fljótt að kannast við andlit-
in. Ég vil að nemendur hafi góðan
aðgang að mér, og líka þegar þeir
rekast á mig á göngunum, því það
er allra hagur að tala um það sem
gott er og það sem betur má fara,“
segir margverðlaunaður vísinda-
maðurinn Ari, sem ólst upp á
Melunum og eyddi æskuárunum
í hjólreiðar, fótbolta og saklaus
strákapör.
„Synir mínir verða örugglega
flinkari en ég og þeir opna augu
mín upp á nýtt. Ég nýti því helg-
arnar líka í að leggjast í gólfið
og leika við þá. Maður uppgötvar
nefnilega nýja hluti í heiminum
með því að setjast aftur niður með
Lego-kubbana.“ thordis@frettabladid.is
Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, kubbar, eldar og gengur um Reykjanesið um helgar:
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Passar ekki
í geimferjur