Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 65

Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 65
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2011 7bylgjan 25 ára ● fréttablaðið ● ,,Ef þú hlustar á okkur þá hlustun við á þig.“ Er hægt að hafa betri stefnuskrá en þetta fyrir útvarpsþátt? Reykjavík síðdegis hefur verið á dagskrá Bylgjunnar frá upphafi og er sennilega ein- hver lífseigasti þátturinn í íslensku útvarpi. Það má líka sjá í þessari ritningargrein þáttastjórnenda þeirra Reykjavík síðdegis ákveðna hógværð. Þeirra hlutverk er að þjóna hlustendum, vera til staðar þegar þarf að fjalla um þjóðfélagsmál, stór og lítil. Þannig hefur þetta verið frá því Hall- grímur Thorsteinsson útvarpsmaður byrjaði með þáttinn á sínum tíma. ,,Við höfum alltaf haft að leiðarljósi að hafa góða tengingu við okkar hlustendur,“ segir Kristófer Helgason, sem hefur verið í Reykjavík síðdegis síðasta áratug. ,,Þeir hafa í gegnum árin beðið okkur að leita svara við hinum ýmsu spurningum sem brenna á þeim. Það gerum við góðfúslega!“ Hvernig undirbúið þið þáttinn á hverjum degi? „Undirbúningur stendur í raun yfir allan sólarhringinn! Radarinn alltaf opinn. Vita- skuld fá stóru málin í samfélaginu mestu at- hyglina en það er líka mikilvægt að muna eftir litlu málunum. Þessum litlu sögum úr daglega lífinu, því sem fólk er að gera og þykir ekki fréttnæmt í sjálfu sér. Það eru slíkar sögur sem oft á tíðum standa upp úr og flestir muna eftir þegar farið er yfir þátt- inn.“ Þú ert búinn að vera við hljóðnemann, Kristófer, á Bylgjunni nánast frá byrjun. Hvað er það í þessu starfi sem er svona gef- andi og dæmalaust skemmtilegt? „Fjölbreytileikinn í þessu starfi er mjög heillandi. Fyrir forvitna einstaklinga eins og mig þá er þetta draumastarf. Það má í raun segja að þetta sé þjónustustarf og ef hlust- andinn er ánægður þá gefur það mikið.” Alltaf Reykjavík síðdegis Bylgjan virka daga 16.00-18.30 Þorgeir Ástvaldsson er einn aðal útvarpsmaðurinn. Ekki spurning. Hann hefur eytt trúlega helmingi ævinnar í stúdíói, allt frá því að stjórna Skonrokki í Sjónvarpinu, (fyrsta lagið sem hann kynnti var Oliver’s Army með Elvis Costello, það er svo langt síðan!) til þess að stjórna Rás2, þáttum á Stjörnunni og Aðalstöðinni. Svo hefur hann verið á Bylgjunni í ein tuttugu ár. Þorgeir er útvarpsmaður sem kann á töfra miðilsins og miðlar þeim góðfúslega: „Já, ég hef farið víða um vegakerfi fjölmiðla í 36 ár en alltaf endað í útvarpi. Það getur verið að það sé gömul klisja að útvarp sé „leikhús hugans“ en það er bara sannleikur. Það er stundum einmanalegt með afbrigðum ef þú ert einn við hljóðnemann – þeim mun skemmtilegra með góðum vinnufélögum sem eru samæfðir. Það hafa margir dauðadómar hafa verið kveðnir upp um útvarp (Samanber: Video Killed the Radio Star) - í tímans rás hafa samt ótvíræðir kostir þessa forms haft vinninginn. Hin líðandi stund, andráin eða ,,núið’’ er höfuðkostur útvarps. Svo einfalt er það nú.’’ Óskalag Þorgeir og verðskuldað! Eftir 36 ára starfsferil í útvarpi, loksins, hvað lag viltu? „Hey Won’t You Play Another Somebody Done Somebody Wrong Song“ með B.J. Thomas, takk fyrir.“ „Video didn’t kill the radio star“ Undirbúningur stendur í raun yfir allan sólarhringinn! Radarinn alltaf opinn. MYNDIR/BALDUR KRISTJÁNSSON „Ég var ásamt Ólafi Stephen- sen, núverandi ritstjóra Frétta- blaðsins, gestur í þættinum Ís- landi í bítið alla föstudags- morgna í drjúgan tíma, þar sem við ræddum fréttir vik- unnar. Síðar gerist það að for- ráðamenn Bylgjunnar ákveða að hafa stjórnmála umræðuþátt alla sunnudagsmorgna og þegar leitað var hugmynda um stjórn- anda var mitt nafn efst á list- anum. Þannig gerðist það.“ Hvort er nafnið sótt í ljóð Gríms Thomsens eða instrumental- lagið eftir hljóm sveitina Pelican? „Hvorutveggja. Ég er gamal- dags og hrifinn af örnefnum. Í leit að nafni á þáttinn ók ég út og suður og aftur út og suður. Leit- aði í huganum að kröftugu nafni. Eins og gerist, þá laust nafninu og laginu í huga minn. Ég hlust- aði á fleiri útsetningar af lag- inu og var ágætlega undirbúinn þegar ég kynnti þessa hugmynd. Það var ákveðið að halda okkur við útsetningu Björgvins Gísla- sonar. Ég held að sú ákvörðun hafi reynst rétt. Kröftugt nafn og kröftugt lag.“ Þú færð til þín flott litróf af gestum til að kryfja samfélags- málin og alltaf af nógu að taka. Þessi þáttur gæti eiginlega verið einu sinni á dag frekar en viku- lega? „Mikið rétt. Ég hef oft hugs- að til þess að ekki væri úr vegi að hafa þáttinn með að- eins öðru sniði í miðri viku. Taka þá fyrir eitt stórt mál, til að mynda atvinnuleysi, sjávar- útveg, orku, auðlindir, mennta- mál, heilbrigðis mál og þannig get ég talið upp endalaust.“ Þú ert margreyndur blaða- maður og ritstjóri Sigurjón, hvað er það sem útvarpið hefur fram yfir það að taka viðtöl fyrir dag- blað eða tímarit? „Það er tvennt ólíkt, og þó ekki. Í útvarpi er ekki hægt að laga það sem aflaga fer, til að mynda mismæli, eða draga úr fullyrðingum og þess háttar. En eitt hef ég alltaf að leiðarljósi. Það er að mínar skoðanir skipta engu þegar ég er að ræða við fólk. Frekar leitast ég eftir að fá fram sem mestar upplýsingar, þannig að sem mest gagn verði af. Þar er enginn munur á hvers konar fjölmiðil ég nota. Og að síðustu, óskalag! Ef þú hringdir í Bylgjuna sem hlust- andi, hvaða lag myndir þú biðja um? „Ég gæti ekki annað en beðið um lag með Bubba. Er mikill aðdáandi hans. Og þar er af nógu að taka. Á þessu augnabliki er ég í rokkstuði og bið um Blindsker!“ Sigurjón á Sprengisandi En eitt hef ég alltaf að leiðarljósi. Það er að mínar skoðanir skipta engu þegar ég er að ræða við fólk. ● BESTU KVEÐJUR FRÁ ICE LANDAIR! ,,Við hjá Icelandair höfum verið afar ánægð með samtarfið við Bylgj- una í gegnum tíðina. Þetta er sterkur og traustur útvarps- og auglýsingamiðill sem virkar afar vel fyrir öll fyrirtæki, stór og smá. Bylgjan er búin að skapa sér ákveð- inn sess í hjörtum landsmanna, það er gaman að hugsa til þess í dag að Íslend- ingar komnir á fertugsaldur hafa í raun alla ævi getað hlustað á Bylgjuna, eða frá því þeir lærðu að kveikja á útvarpi. Þetta er búinn að vera viðburðaríkur aldarfjórð- ungur hjá Bylgjunni og við hjá Icelandair óskum stöðinni, starfsfólkinu og hlustend- um til hamingju með daginn. Góða ferð inn í framtíðina!” Guðmundur Óskarsson Forstöðumaður markaðs- og við- skiptaþróunar Icelandair „Ég gæti ekki annað en beðið um lag með Bubba.“ MYNDIR/BALDUR KRISTJÁNSSON ● STUÐKVEÐJUR FRÁ SENU! „Ég man vel þegar Bylgjan kom inn á markað- inn, frábært að fá einkarekna útvarpsstöð- stöð á íslenskan fjölmiðlamarkað. Það er líka gaman að sjá hvernig Bylgjan hefur vaxið og blómstrað, sem er ekkert sjálf- sagt mál á samkeppnismarkaði. Við hjá Senu vinnum mjög náið og mikið með Bylgjunni. Sena er með breitt vörusvið, tónlist, kvikmyndir, tölvuleiki, viðburði og leikföng. Bylgjan hentar öllum þessum spennandi vörum því hún kann að kynna hlutina á skemmtilegan hátt þannig að það gagnist augýsendum og hlustendur hafi líka gaman af. Bylgjan tvinnar hlutina skemmtilega saman og þjónar sínum við- skiptavinum og hlustendum frábærlega. Sendi ykkur stuðkveðjur frá Senu, Bylgja!“ Ísleifur B. Þórhallsson, markaðsstjóri Senu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.