Fréttablaðið - 27.08.2011, Qupperneq 78
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR42
Hvernig er nýja músarholan þín í Hörp-
unni? Frábærlega flott, með nafninu mínu fyrir
ofan dyrnar!
Saknarðu ekki gömlu músarholunnar þinnar?
Iss, nei, núna er hljómsveitin hér í Hörpu. Ég vil
vera þar sem sinfóníuhljómsveitin er.
Hvernig er að búa í Hörpunni, kemur ekki margt
fólk til þín? Það er gott og hlýtt í Hörpu, fullt
af fólki og alltaf skemmtileg tónlist í gangi ein-
hvers staðar í húsinu.
Hvað færðu að borða í Hörpunni? Hí, hí, ég finn
mér alltaf brauðmola og stundum ost.
Ertu ekki hræddur við að lenda í músagildrum?
Iss, nei, ég kann alveg að forðast þær.
En ertu hræddur við ketti? Jahahahá!
Spilarðu á eitthvert hljóðfæri? Ég spila á veiði-
hárin mín og svo er ótrúlega gaman að leika sér
á píanóhljómborði!
Langar þig að kunna á hljóðfæri? Já, það langar
auðvitað alla!
Hvert er uppáhaldshljóðfærið þitt? Harpa.
Hvað er skrýtnasta hljóðfæri sem þú hefur
séð? Stóra píanóið sem heitir flygill fannst mér
skrýtnast þegar ég sá það fyrst, því að ég hélt að
það væri heil hljómsveit inni í kassanum.
Hvert er uppáhaldslagið þitt? Lagið hans Maxa,
auðvitað!
Hvað er mesta ævintýri sem þú hefur lent í?
Þegar ég datt ofan í túbuna og þegar túbuleikar-
inn blés svo fast að ég flaug upp úr henni aftur.
Hefurðu prófað að fara inn í einhver hljóðfæri?
Já, túbu og píanó og svo kontrabassa.
Nú eru útlenskir krakkar líka farnir að þekkja
þig, ætlarðu að fara í ferðalög til útlanda bráð-
lega? Já, það er nefnilega risastór bókahátíð í
Frankfurt í Þýskalandi á hverju ári og núna er
hún svo músalega flott að landið okkar, Ísland, er
heiðursgesturinn og fær að sýna bækurnar sínar
í sérstökum heiðurssal. Það verður sko mikið
fjör, sérstaklega þegar ég mæti til að skemmta
börnunum.
Til hvaða lands langar þig mest að fara? Núna
er ég mest spenntur fyrir Bandaríkjunum því að
þar eru svo svakalega margir krakkar og bæk-
urnar mínar verða bráðum til þar handa þeim.
Finnst þér gaman að ferðast? Já, sérstaklega
sem laumufarþegi.
krakkar@frettabladid.is
42
Ég spila
á veiði-
hárin mín og svo
er ótrúlega skemmti-
legt að leika sér á
píanóhljómborði
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Steingeit.
Happatala: 10.
Áhugamál: Fimleikar.
Eftirlætissjónvarpsþáttur:
Modern family.
Besti matur: Grjónagrautur
og kjúklingur.
Eftirlætisdrykkur: Ávaxta-
safi.
Skóli: Álftamýrarskóli.
Námsgrein: Íslenska.
Áttu gæludýr: Nei.
Skemmtilegasti dagurinn:
Aðfangadagur, það er svo
gaman að opna alla pakkana.
Eftirlætistónlistarmaður:
Páll Óskar.
Uppáhaldslitir: Grænn og
rauður.
Hvað gerðirðu í sumar: Fór
á ættarmót fyrir vestan og í
sumarbústað með vinkonu
minni og svo passaði ég yngri
systkini mín.
Skemmtilegustu bækur:
Prinsessubækurnar.
Hvað ætlarðu að verða
þegar þú ert orðin stór:
Barnalæknir.
Astrid Eyberg Aradóttir
WWW.MINJASAFNREYKJAVIKUR.IS Á síðunni má til
dæmis finna myndir og skemmtilegan fróðleik um gömlu húsin í
Árbæjarsafni.
Hvernig á að koma fjórum
flóðhestum fyrir í Fiat?
Tveir fram í og tveir aftur í.
Ég var að frétta að maðurinn
þinn missti málið í sex vikur.
Nú? Hann sagði mér ekkert
frá því.
Hvernig brenndi drekinn sig á
hendinni?
Hann hélt fyrir munninn þegar
hann geispaði.
Mamman: Af hverju setur þú
bangsann þinn inn í frystinn
Halli minn?
Halli: Af því mig langar í
ísbjörn.
Maðurinn: „Og hvað ert þú nú
gamall góði minn?“
Strákurinn: „Ég er of ungur til
að vera gamall.“
LAUMUFARÞEGI Á FERÐ
Tónlistarmúsin Maxímús Músíkús eignaðist ný heimkynni í Hörpunni um síðustu
helgi. Blaðamaður Fréttablaðsins rétt náði í skottið á honum áður en hann skaust
í burtu til að lenda fleiri tónlistarævintýrum og kynnast fjölbreyttum hljóðfærum.
Maxímús Mús-
íkús er spenntur
fyrir væntanlegu
ferðalagi til Banda-
ríkjanna því þar séu
svo margir krakkar.