Fréttablaðið - 27.08.2011, Side 86
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR50
folk@frettabladid.is
Skráning á www.songlist.is / umsókn
eða á songlist@borgarleikhus.is
Kennsla í Borgartúni 1, hefst 5. september.
Kennsla í Borgarleikhúsinu, hefst 12. september.
Gleði - uppbygging - fagmennska - framfarir
l í t i , f t . t .
l í l i i , f t . t .
Raunsær og heillandi krimmi
MAÐURINN Á SVÖLUNUM er þriðja sagan í
s ennusagna okknum Skáldsaga um glæp.
KLASSÍK!
Eitt frægasta, og hingað
til traustasta, hjónaband
Hollywood stendur völtum
fótum þessa dagana. Leik-
araparið Will Smith og Jada
Pinkett Smith er að skilja ef
marka má bandaríska miðla
og hefur fréttaflutningur
af málefnum þeirra tekið á
sig nýja mynd undanfarna
daga.
Daginn eftir að Smith-hjónin gáfu
út yfirlýsingu þess efnis að þau
væru alls ekki að skilja birti tíma-
ritið InTouch Weekly forsíðufrétt
um parið. Þar er frú Smith sökuð
um að hafa haldið framhjá manni
sínum með meðleikara sínum úr
sjónvarpsþáttunum Hawthorne.
Meðleikarinn er enginn annar en
Marc Anthony, fyrrverandi eigin-
maður Jennifer Lopez. Blaðið hefur
heimildir fyrir því að Will Smith
hafi komið að eiginkonu sinni í
rúminu með Marc og rokið í burtu
í tárum. Eftir á rak hann hluta af
starfsfólki heimilisins fyrir að
halda þessu leyndu fyrir sér.
Talsmenn Smith-hjónanna og
Marc Anthony hafa sagt að ekk-
ert sé hæft í þessum fréttaflutn-
ingi og Smith-hjónin hóta að kæra
tímaritið.
Upplausn á heimili
Smith-hjónanna
GÓÐIR FÉLAGAR Ekki er víst að Will
Smith og Marc Anthony heilsist svona
innilega í bráð.
VINKONUR Jada Pinkett Smith og
Jennifer Lopez á góðri stundu á rauða
dreglinum árið 1997.
FYRIRMYNDARFJÖLSKYLDAN Smith-fjölskyldan hefur löngum verið talin til fyrir-
myndar í Hollywood. Hér eru þau Willow Smith, Jaden Smith, Jada Pinkett Smith og
Will Smith á góðri stundu. NORDICPHOTOS/GETTY
28
Hin nýgiftu Kim Kardashian
og Kris Humphries njóta hveiti-
brauðsdaganna á Ítalíu en þau
gengu í heilagt hjónaband um
liðna helgi. Parið segir að ferða-
lagið verði stutt að þessu sinni því
þau ætla að bruna til baka til Los
Angeles og vera viðstödd MTV
verðlaunahátíðina, sem fer fram
á morgun.
Kardashian segir að þau ætli að
fara á suðrænar slóðir um leið og
tækifæri gefst.
Tímaritin vestanhafs keppast
um að fá að birta myndir úr brúð-
kaupinu en People keypti réttinn á
tæpar 200 milljónir króna.
Njóta sín á Ítalíu
LÍTIL BRÚÐKAUPSFERÐ Kim Kardashian
og Kris Humphries eru í smá fríi á Ítalíu
til að slappa af eftir brúðkaupið mikla.
NORDICPHOTO/GETTY
ÁR ERU á milli söngkonunnar Madonnu og nýjasta kærasta hennar,
hiphop-dansarans Brahims Zaibat. Parið var í saman Í fjölskyldufríi í
Frakklandi á dögunum og sleikti sólina á ströndinni.
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt.