Fréttablaðið - 27.08.2011, Side 90

Fréttablaðið - 27.08.2011, Side 90
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR54 Styrkir Reykjavíkurborgar Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má senda á netfangið styrkir@reykjavik.is www.reykjavik.is/styrkir Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsókn- um um styrki vegna starfsemi á árinu 2012. Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til sam starfs við félagasamtök, fyrirtæki og einstak linga um uppbyggilega starfsemi og þjón- ustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangs röðun borgaryfirvalda. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka: • félags- og velferðarmála • mennta- og frístundamála- grunnskólar/ leikskólar/frístundamiðstöðvar • íþrótta- og æskulýðsmála • mannréttindamála • menningarmála Á vefsíðunni www.reykjavik.is/styrkir er hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um umsóknar ferli. Einnig er þar að finna reglur um styrkveitingar og nánari upplýsingar um áherslur borgarinnar í einstökum málaflokkum. Umsóknarfrestur er til 1. október nk. og eru einungis teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Við mat á umsóknum munu reglur Reykjavíkurborgar um styrki og mannréttindastefna Reykjavíkurborgar vera höfð til hliðsjónar. Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Þá eru styrkir alla jafna hvorki veittir til kaupa á húsnæði né til greiðslu fasteignagjalda. Umsóknir verða metnar með hliðsjón af eftirfarandi: • markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð • hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf • hvort unnt sé að meta framvindu verksins • hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur • væntanlegum árangri og ávinningi fyrir umrædda starfsemi • fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn Styrkumsókn felur í sér að umsækjendur undir- gangast ákvæði reglna Reykjavíkurborgar um styrki. Gert er ráð fyrir að úthlutun nefnda og ráða verði lokið í ársbyrjun 2012. h u n a n g ·s Tímaritið Forbes hefur tekið saman lista yfir 100 áhrifamestu konurnar í heiminum. Á list- anum er að finna bæði nöfn úr stjórnmálum og skemmtanabransanum. Michelle Obama, Lady Gaga og Oprah Winfrey eiga það sameiginlegt að vera allar í topp 20 sætunum yfir áhrifa- mestu konur heims sem bandaríska tímaritið Forbes tók saman. Í fyrsta sæti listans er Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, og fast á hæla hennar kemur Hillary Clinton, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna. Forsetafrúin Michelle Obama er einnig í einu af fyrstu tíu sætunum. Tónlistarkonan Lady Gaga smellir sér í 11. sæti listans og með 12 milljónir fylgjenda á Twitter og 36 milljónir aðdá- enda á Facebook er Lady Gaga því áhrifamesta konan innan skemmtanabransans. Oprah Winfrey er í 14. sæti listans en hún nýtur ennþá töluverðra vinsælda þrátt fyrir að vera horfin af skjánum í bili. Beyoncé vermir 16. sætið og í 60. sæti situr eina ofur- fyrirsæta listans, Gisele Bündchen. Forbes velur ÁHRIFAMESTU konurnar 1. SÆTIÐ Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er áhrifamesta konan í heimnum. 2. SÆTIÐ Hillary Clinton, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, er nálægt toppnum. NORDICPHOTOS/GETTY Samtökin UN Women skipuleggja Fiðrildaviku sem fram fer um miðjan september. Markmið átaks- ins er að hvetja Íslendinga til að standa með „systrum“ sínum í fátækustu löndum heims. Þetta er í annað sinn sem Fiðrildavikan er haldin, en hún fór fyrst fram árið 2008 og söfnuðust þá um hundrað milljónir króna. Í tilefni átaksins hefur Sjón- varpið hafið sýningar á þáttunum Women on the Frontline sem fjalla um ólíkar birtingarmyndir ofbeld- is gegn konum. Eftir þættina, sem sýndir eru á hverjum mánudegi fram að Fiðrildaviku, eru sýnd stutt innslög sem unnin eru af Þor- steini Bachmann leikara og eigin- konu hans, Göggu Jónsdóttur. „Okkur finnst þessi málstaður mikilvægur og áttum að auki lausa stund, þannig við ákváðum að slá til og leggja málefninu lið. Það er mikilvægt að konur alls stað- ar njóti frelsis til að njóta þeirra tækifæra sem lífið hefur upp á að bjóða. Ef það er eitt vandamál sem heimurinn ætti að leysa þá er það þetta,“ segir Þorsteinn þegar hann er spurður af hverju hann og Gagga hafi tekið verkefnið að sér. Allir þeir listamenn sem unnu að innslögunum gáfu vinnu sína og segir Þorsteinn að allir hafi verið reiðubúnir til að leggja mál- inu lið. Einnig er í bígerð „viral video“ með Steinda Jr. en mynd- bandið mun flakka um netheima innan skamms. - sm Leggja konum lið MIKILVÆGT ÁTAK Þorsteinn Bachmann og Gagga Jónsdóttir leggja UN Women lið með því að framleiða innslög sem sýnd eru á eftir þáttunum Women on the Frontline á mánudögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Nýr kærasti söngkonunnar Mad- onnu, Brahim Zaibat, er aðeins tuttugu og fjögurra ára gamall en þrátt fyrir það er hann tilbúinn að ganga í hjónaband með söng- konunni. Þessu heldur tímaritið Enquirer fram. Parið er sjaldan myndað saman en hefur átt í sambandi í tæpt ár. Að sögn heimildarmanna gæti þó orðið breyting á. „Madonna er stolt af Brahim og eftir árs sam- band er hún tilbúin að opinbera það. Hún er mjög hrifin af honum og ánægð með hversu vel honum semur við börn hennar,“ var haft eftir heimildarmanni. „Brahim er alveg sama um frægð hennar og kemur fram við hana eins og konu, ekki stór- stjörnu. Honum líður vel í sam- bandinu og vill gjarnan kvæn- ast Madonnu. Það kæmi engum á óvart ef þau tilkynntu trúlofun sína innan skamms.“ Vill giftast Madonnu ÁSTFANGINN AF MADONNU Dansarinn Brahim Zaibat hefur verið kærasti Madonnu í rúmt ár. Hann vill gjarnan kvænast henni. NORDICPHOTOS/GETTY 14. SÆTIÐ Oprah Winfrey hefur töluverð áhrif á heiminn þrátt fyrir að vera horfin af skjánum í bili. 11. SÆTIÐ Lady Gaga er áhrifamesta konan innan skemmtanabransans ef marka má tímaritið Forbes. 8. SÆTIÐ Forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama, vekur athygli hvert sem hún fer.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.