Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 94
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR58
sport@frettabladid.is
BYRJENDANÁMSKEIÐ ERU AÐ HEFJAST
Upplýsingar eru veittar í síma 551 4003
og á heimasíðu félagsins www.thorshamar.is
KOLBEINN SIGÞÓRSSON skoraði tvö mörk fyrir Ajax í 4-1 sigri á Vitesse í toppslag hollensku úrvalsdeildarinnar
í gærkvöld. Kolbeinn skoraði tvö síðustu mörk Ajax á 63. og 71. mínútu en hann er nú markahæstur í deildinni með
fjögur mörk í fyrstu fjórum umferðunum. Þetta var þriðji leikurinn í röð sem Kolbeinn er á skotskónum.
FÓTBOLTI Tilkynnt var á blaða-
mannafundi hjá Knattspyrnusam-
bandi Íslands á fimmtudaginn að
samningur við Ólaf Jóhannes-
son, núverandi landsliðsþjálfara,
yrði ekki endurnýjaður. Teitur
Þórðarson, sem þjálfaði á sínum
tíma landslið Eistlands með
góðum árangri, er spenntur fyrir
starfinu.
„Það er engin spurning. Það er
pottþétt að ef sú aðstaða kæmi
upp að mér yrði boðin sú staða þá
myndi ég kíkja á það. Starfið er
mjög áhugavert,“ segir Teitur.
Sýna þarf breytingum þolinmæði
Hann hefur fylgst með íslenska
boltanum eins og hægt er í Kanada,
þar sem hann hefur starfað undan-
farin fjögur ár. Óhætt er að segja
að íslenska landsliðinu hafi geng-
ið brösuglega undanfarin misseri
en Teitur segir erfitt að dæma um
hvað valdi því.
„Ég veit að það hefur verið
töluverð breyting í gangi, mikið
af ungum og efnilegum leikmönn-
um að koma inn. Það gerir starf-
ið gríðar lega áhugavert því þá er
hægt að forma það svolítið. Þetta
hefur greinilega ekki verið auð-
velt, enda verður fólk að sýna
svona breytingum þolinmæði.
En það er engin spurning að við
eigum hörkuknattspyrnumenn,
leikmenn sem hægt yrði að ná
góðum árangri með.“
Teitur hefur lengst af ferils-
ins starfað erlendis, fyrst sem
atvinnumaður í knattspyrnu og
nú sem þjálfari í tæpan aldarfjórð-
ung. Hann segir íslenska þjóðar-
stoltið ekki minnka þrátt fyrir
langa fjarveru frá heimahögunum.
„Nei, það gerir það ekki.
Allavega ekki hjá mér. Það hverfur
ekki. Ísland er alltaf heima, landið
okkar. Það minnkar ekki.“
Fá æfingaleiki við sterkari þjóðir
Íslenska landsliðið á eftir að spila
þrjá leiki í riðli sínum í undan-
keppni Evrópumótsins 2012.
Undirritaður er á þeirri skoðun að
ganga eigi frá ráðningu nýs þjálf-
ara sem fyrst svo nýr þjálfari geti
nýtt þá leiki sem eftir eru í riðlin-
um sem undirbúning fyrir næstu
undankeppni.
„Það má alveg líta á það þannig.
Liðið hefur ekki það mikla
möguleika á að undirbúa sig og
þá eru svona leikir það besta
sem er í boði. Þegar ég var með
eistneska landsliðið gerðum við
eins mikið af því og við gátum að
fá æfingaleiki við betri þjóðir til
þess að undirbúa okkur. Það hefur
kannski ekki verið svo mikill
möguleiki á því heima á Íslandi.
Þar af leiðandi yrði möguleiki
fyrir þann sem tæki við að byrja
að prófa leikmenn í svona leikjum
þegar það er enginn möguleiki á að
komast áfram,“ segir Teitur.
Fyrri landsliðsþjálfarar hafa
haft ólíkar skoðanir á því hvern-
ig knattspyrnu íslenska landslið-
ið eigi að spila. Teitur hefur sína
skoðun á því.
„Það er engin spurning að
liðið verður að vera vel skipulagt
varnarlega. En það verður einn-
ig að vera leið til þess að sækja.
Þá millileið getur verið erfitt að
finna. En með þessa leikmenn sem
standa til boða held ég að það hljóti
að vera hægt.“
Starfið þarf að bjóðast tímanlega
Teitur segist hafa tekið sér gott frí
í sumar, en það hafi hann ekki gert
í þrjátíu ár. Hann hafi virkilega
notið þess að verja auknum tíma
með fjölskyldunni. Hann sé hins
vegar endurnærður eftir sumarið
og þreifingar hafi verið í gangi um
næsta starfsvettvang þótt ekkert
sé ákveðið ennþá.
„Þetta er eins og í öll þau skipti
sem ég hef lokið tímabili hjá
félögum. Þá líða nokkrir mánuðir
og svo fer allt á fulla ferð. Þá detta
yfirleitt inn einhverjir möguleikar,“
segir Teitur, sem segir að standi til
að bjóða honum starf landsliðsþjálf-
ara þurfi það að koma upp tíman-
lega því félög séu þegar farin að
setja sig í samband við hann.
Engan bilbug er að finna á
Teiti, sem er orðinn 59 ára gam-
all. Skagamaðurinn, sem skoraði
mörkin fyrir ÍA áður en hann lék
sem atvinnumaður undir stjórn
Arsene Wenger og Gerard Houl-
lier, segir áhuga sinn á faginu ekki
fara minnkandi. Þvert á móti.
„Eins og ég hef alltaf sagt:
meðan ég hef áhuga á að standa í
þessu og hef gaman af því þá geri
ég það. Þetta er það sem maður
hefur alltaf haft mestan áhuga á.
Að hafa fengið að vinna í öll þessi
ár við áhugamálið er náttúrulega
frábært.“ kolbeinntd@365.is
Eigum hörku knattspyrnumenn
Teitur Þórðarson undirbýr flutning til Noregs eftir fjögur ánægjuleg ár í Kanada. Teitur segir starf
landsliðsþjálfara Íslands mjög áhugavert og eina af þeim áskorunum sem hann eigi eftir að takast á við.
KVEÐUR KANADA MEÐ SÖKNUÐI „Ég er búinn að vera hér í fjögur ár og hefur gengið mjög vel. Þetta hefur verið afar ánægjulegur
tími.“ Teitur náði góðum árangri með Vancouver Whitecaps vestanhafs og tók mikinn þátt í uppbyggingu félagsins, sem nú leikur
sitt fyrsta tímabil í MLS-deildinni. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Þjálfaraferill Teits
1987–1988 Skövde
1988–1990 Brann
1991–1992 Lyn
1993 Grei
1994–1995 Lillestrøm
1995–1999 Eistland*
1995–1999 Flora Tallinn
2000–2002 Brann
2002–2003 Lyn
2004–2005 Ull/Kisa
2006–2007 KR
2008–2010 Whitecaps
2010–2011 Whitecaps FC
*upp um 72 sæti á styrkleikalista FIFA
HANDBOLTI Stjarnan verður með
í N1-deild kvenna í vetur þrátt
fyrir yfirlýsingar um annað. Þetta
var staðfest í gærmorgun eftir að
skipt hafði verið um stjórn í hand-
knattleiksdeild félagsins.
Baldur Ó. Svavarsson var for-
maður stjórnarinnar sem sendi
frá sér yfirlýsingu þess efnis
fyrr í vikunni að vegna erfið-
leika í rekstrinum yrði að draga
kvennalið Stjörnunnar úr keppni
í N1-deild kvenna. Í fyrradag var
brugðist við þessari yfirlýsingu,
bæði hjá aðalstjórn Stjörnunnar
og bæjaryfirvöldum, með áður-
nefndum afleiðingum.
„Þetta vakti menn af værum
blundi hér í bænum,“ sagði Baldur.
„Maður leikur sér þó ekki að því
að gera svona lagað. Og þetta var
ekki gert í þeim tilgangi að vekja
menn til lífsins. En þetta varð
engu að síður til þess að stuðn-
ingsmenn, aðalstjórn félagsins og
stjórnmálamenn tóku við sér.“
Sigurður Bjarnason, fyrr-
verandi landsliðsmaður í hand-
knattleik, er varaformaður
Stjörnunnar og tekur tímabund-
ið við formennsku í stjórn hand-
knattleiksdeildarinnar. Hann er
ósammála því að vekja
hafi þurft aðalstjórn
félagsins og bæjar-
yfirvöld af „værum
blundi“. Þvert á
móti hafi aðgerðirn-
ar skaðað félagið og
því hafi verið gripið til
aðgerða.
„Það var alvarlega
vegið að starfsemi
félagsins og þá
sérstaklega
yngri flokka
þ e s s . Í
félaginu
eru margar ungar stelpur sem
horfa mikið upp til meistara-
flokks kvenna. Það hefur verið
afreksflokkur í félaginu til fjölda
ára. Þessar stelpur langar til að
taka þátt í því og þarna sáu þær
það starf rifið niður. Það fannst
mér alvarlegast við þetta allt
saman – það var ekkert verið að
spá í því,“ sagði Sigurður.
Fundað var með leikmönnum
í fyrrakvöld og er mikill einhug-
ur sagður ríkja hjá leikmönn-
um um að halda áfram.
„Leikmenn
eru í sjokki
eftir þessa
atburði og
það verð-
ur verkefni
okkar að koma
liðinu í stand á ný,“
sagði Sigurður.
- esá
Stjarnan með í N1-deild kvenna eftir að skipt var um stjórn:
Leikmennirnir vildu halda áfram
FÓTBOLTI Dregið var í riðla í
Evrópudeild UEFA í gær. Fjögur
Íslendingalið voru í pottinum en
drógust þó ekki saman.
Eiður Smári Guðjohnsen,
Elfar Freyr Helgason og félagar
í AEK Aþenu eru í L-riðli með
Anderlecht, Lokomotiv Moskvu
og Sturm Graz. Eiður Smári
snýr því aftur á æskuslóðir því
faðir hans, Arnór, lék lengi með
Anderlecht í Belgíu.
Aðrir Íslendingar sem taka þátt
í keppninni eru Jóhann Berg Guð-
mundsson (AZ Alkmaar), Rúrik
Gíslason (OB) og þeir Sölvi Geir
Ottesen og Ragnar Sigurðsson
(FC Kaupmannahöfn).
48 liðum var skipt í tólf riðla og
komast tvö efstu liðin úr hverjum
riðli áfram í 32 liða úrslit, ásamt
þeim átta liðum sem urðu í þriðja
sæti sinna riðla í riðlakeppni
Meistaradeildarinnar. - esá
Íslendingariðlarnir
B-riðill
FC Kaupmannahöfn (Danmörku)
Standard Liege (Belgíu)
Hannover 96 (Þýskalandi)
Vorskla Poltava (Úkraínu)
G-riðill:
AZ Alkmaar (Hollandi)
Metalist Kharkiv (Úkraínu)
Austria Vín (Austurríki)
Malmö FF (Svíþjóð)
K-riðill:
FC Twente (Hollandi)
Fulham (Englandi)
OB Odense (Danmörku)
Wisla Krakow (Póllandi)
L-riðill:
Anderlecht (Belgíu)
AEK Aþena (Grikklandi)
Lokomotiv Moskva (Rússlandi)
Sturm Graz (Austurríki)
Evrópudeild UEFA:
Eiður Smári á
föðurslóðir
ARNÓR GUÐJOHNSEN Var valinn besti
leikmaðurinn í Belgíu árið 1987 þegar
hann var leikmaður Anderlecht.
ANNA GUÐRÚN
STEFÁNSDÓTTIR