Fréttablaðið - 27.08.2011, Side 96
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR60
FÓTBOLTI Umræða um dómgæslu
í Pepsi-deild karla hefur verið
hávær síðustu vikurnar og hún
magnaðist enn frekar eftir leik
KR og ÍBV í fyrrakvöld. Leikmenn
og þjálfarar beggja liða lýstu yfir
óánægju sinni með dómgæslu Þór-
odds Hjaltalíns eftir leik og stuðn-
ingsmenn létu heldur ekki sitt eftir
liggja í netheimum. Fréttablaðið
fékk viðbrögð Gylfa Þórs Orra-
sonar, formanns dómaranefndar
KSÍ, við þessu.
„Mér finnst umræðan bera þess
merki að það er spenningur í loft-
inu. Ég var sjálfur eftirlitsmaður
á leiknum í gær og fannst Þóroddi
takast mjög vel upp,“ sagði Gylfi.
„Menn voru með sterkar yfirlýs-
ingar um einhver atvik sem þeir
töldu að hefðu ekki gengið sér í
hag. Ég skoðaði umrædd atvik í
sjónvarpi eftir leikinn og þá kom
í ljós að Þóroddur hafði rétt fyrir
sér í þeim tilfellum. Það er mik-
ill spenningur í mönnum og við-
brögðin eru fylgifiskur þess að
það er farið að draga til tíðinda
á Íslandsmótinu. Þetta er ekkert
nýtt,“ bætti Gylfi við.
Fyrir stuttu var umræða í
markaþætti Stöðvar 2 Sports um
Pepsi-deildina um að dómarar
væru undir áhrifum utanaðkom-
andi afla, sérstaklega KR-inga.
„Þarna var verið að taka til atvik
sem áttu að sýna að dómgæslan
hefði verið hliðholl KR en það væri
örugglega hægt að finna annað
eins af atvikum sem ekki eru KR í
hag. Hið sama mætti gera fyrir öll
lið og því er ekki mikið að marka
það,“ sagði Gylfi.
„Málið er einfalt. Sama hvað
hver segir og hvað þeim finnst
þá er dómarinn aðeins með eitt
að leiðarljósi. Hann fer út í leik-
inn til að dæma hann vel og gera
sitt allra besta. Hann er aðeins að
hugsa um næsta leik og ekki um
ummæli sem voru látin falla í fjöl-
miðlum í gær. Menn eru búnir að
læra það fyrir löngu að beina öllu
slíku frá sér,“ bætti hann við.
Gylfi óttast ekki að dómarar
verði ómeðvitað fyrir áhrifum
umræðunnar – enda fylgist þeir
vel með eins og allir aðrir. „Ég
tel að dómarar séu einfaldlega
með nógu sterk bein. Við höfum
til að mynda verið í samstarfi við
Háskólann í Reykjavík í okkar
undirbúningi þar sem við höfum
unnið með sálfræðingum og haft
aðgang að færu fólki sem hefur
reynst okkur mjög vel. Dómar-
arnir vita nákvæmlega að hverju
þeir ganga þegar leikurinn hefst.“
Og þegar leiknum lýkur og
umræðan verður hávær láta dóm-
ararnir það sem vind um eyru
þjóta, að sögn Gylfa. „Oftast er
þetta bara stormur í vatnsglasi
og við dómararnir brosum bara í
kampinn.“ eirikur@frettabladid.is
Brosum bara í kampinn
Mikil og heit umræða hefur verið um dómgæsluna í toppslag KR og ÍBV í fyrra-
kvöld, sem og á leikjum KR fyrr í sumar. Gylfi Þór Orrason, formaður dómara-
nefndar KSÍ, gefur lítið fyrir umræðuna. „Dómarar eru með sterk bein.“
SETIÐ UM DÓMARANA Finnur Ólafsson, ÍBV, ræðir við Þórodd Hjaltalín en KR-
ingurinn Grétar Sigfinnur Sigurðarson virðist eiga í snörpum samskiptum við Birki
Sigurðsson aðstoðardómara. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Veigar Páll Gunnarsson
var valinn í íslenska landsliðið á
nýjan leik fyrir leikina gegn Nor-
egi og Kýpur í undankeppni EM
2012 byrjun september. Veigar Páll
þekkir mjög vel til í Noregi, þar sem
hann hefur spilað í átta ár, og hlakk-
ar hann vitanlega mjög til að fá að
mæta Norðmönnum á nýjan leik.
„Það er mjög ánægjulegt að vera
valinn aftur í landsliðið enda mik-
ill heiður að fá að spila fyrir hönd
þjóðarinnar,“ sagði hann í samtali
við Fréttablaðið. „Það er heldur alls
ekkert leyndarmál að mér finnst
skemmtilegt að spila gegn Noregi.
Það er nánast þannig að maður
þekkir marga í norska lanndsliðinu
jafnvel og þá í því íslenska. Þetta
er því bara eins og að spila gegn
félögunum.“
Noregur er í 12. sæti á styrk-
leikalista FIFA en Ísland í 124.
sæti. Veigar Páll segir muninn á
landsliðunum þó ekki vera mikinn
þó svo að Norðmenn séu vissulega
með sterkara lið. „Munurinn er
ekki svo mikill – það er alveg ljóst.
Norska landsliðið er með aðeins
meiri breidd í sínu liði en ef við
hittum á góðan dag getum við vel
tekið þrjú stig. Ef okkur tekst að
vinna saman sem liðsheild getum
við vel tekið þrjú stig í Ósló.“
Hann segir muninn liggja einnig
að miklu leyti í sjálfstrausti og trú
á eigin getu. „Sjálfstraust og leik-
gleði er í hámarki í norska lands-
liðinu. Þegar leikmenn ganga inn á
völlinn ætla þeir sér sigur – sama
hver andstæðingurinn er. Skipt-
ir engu hvort það er Þýskaland
eða Færeyjar. Þeim hefur gengið
vel í langan tíma og er þetta bein
afleiðing af því.“
Ólafur Jóhannesson mun ekki
halda áfram sem landsliðsþjálf-
ari þegar undankeppninni lýkur í
haust. „Ég hef svo sem ekki sterkar
skoðanir á því,“ segir Veigar Páll
um það. „En miðað við árangur er
ágætt að prófa eitthvað nýtt. En Óli
er mjög fínn þjálfari og ég hef verið
mikið í hópi hjá honum. Ég hef því
ekkert slæmt um hann að segja –
alls ekki.“
Veigar Páll hefur átt velgengni að
fagna á sínum ferli en aldrei fengið
að njóta sín til fulls með landsliðinu.
Hann hefur fengið að líða fyrir það
að spila sömu stöðu og Eiður Smári
Guðjohnsen, sem hefur gengið fyrir
í landsliðinu. „Ég held að það hafi
haft sitt að segja og hef ég fullkom-
inn skilning á því. En svo þegar
Eiður gekk í gegnum smá lægð á
sínum ferli kom Gylfi (Þór Sigurðs-
son) til sögunnar og gekk í sama
hlutverk. Ég skil það líka mjög vel,“
segir hann og bætir við: „Ég verð
því að líta svo á að ég sé bara fórn-
arlamb aðstæðna og það er lítið sem
ég gert í því,“ sagði hann í léttum
dúr. - esá
Veigar Páll Gunnarsson segir norska landsliðið með gríðarlegt sjálfstraust:
Fátt skemmtilegra en að spila gegn Noregi
VEIGAR PÁLL Kominn aftur í íslenska
landsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Viðræður samtaka knatt-
spyrnumanna á Ítalíu annars
vegar og samtaka knattspyrnu-
félaga hins vegar hafa engan
árangur borið. Því verður ekkert
spilað í ítölsku úrvalsdeildinni
um helgina eins og áætlað var, en
fyrsta umferðin átti að hefjast í
dag.
Aðilar eru ósáttir um tvö atriði.
Félögin vilja geta bannað leik-
mönnum að æfa með aðalliðinu
séu þeir ekki í náðinni og að leik-
menn taki á sig þær hækkanir
á hátekjusköttum sem ítölsk
stjórnvöld hafa sett á.
Leikmannasamtökin sendu frá
sér yfirlýsingu í gær um að verk-
fallsaðgerðir væru óumflýjan-
legar eftir að nýju tilboði þeirra
var hafnað af samtökum félag-
anna. Fyrr í vikunni var verk-
falli knattspyrnumanna á Spáni
afstýrt, en fresta þurfti fyrstu
umferð spænsku úrvalsdeildar-
innar vegna verkfallsaðgerða þar
í landi. - esá
Ekkert spilað um helgina:
Boðað til verk-
falls á Ítalíu
EIGANDINN OG FYRIRLIÐINN Massimo
Ambrosini, fyrirliði AC Milan, og Silvio
Berlusconi, eigandi félagsins.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Jöfnunarmark Aarons
Spear á KR-vellinum í fyrrakvöld
mun hafa mikil áhrif á þróun
mála í titilbaráttu Pepsi-deildar
karla í sumar en það var líka enn
eitt dæmið um að Eyjamennirnir
hætta aldrei og eru alltaf líklegir
til að skora, sama hversu lítið er
eftir af leikjunum.
ÍBV-liðið hefur nú fimm sinn-
um breytt úrslitum leikja á loka-
mínútum sinna leikja í sumar,
það er á síðustu fimm mínútum
leiksins eða í uppbótartíma.
Fjögur af þessum fimm mörk-
um eru sigurmörk og því hafa
þessi fimm mörk í blálok leikja
skilað lærisveinum Heimis Hall-
grímssonar níu aukastigum í
sumar. - óój
Mörk ÍBV á síðustu stundu
1. umferð - ÍBV-Fram 1-0 93. mínúta
Tryggvi Guðmundsson tryggir ÍBV sigur á Fram
eftir sendingu frá Þórarni Inga Valdimarssyni.
3. umferð - Valur-ÍBV 0-1 91. mínúta
Þórarinn Ingi Valdimarsson tryggir ÍBV sigur á
Val eftir sendingu frá Matt Garner.
8. umferð - ÍBV-Stjarnan 2-1 86. mínúta
Andri Ólafsson tryggir ÍBV sigur á Stjörnunni úr
vítaspyrnu sem hann fékk sjálfur.
16. umferð - ÍBV-Keflavík 2-1 86. mínúta
Þórarinn Ingi Valdimarsson tryggir ÍBV sigur á
Keflavík eftir sendingu frá Tryggva Guðmunds-
syni.
Frestaður leikur - KR-ÍBV 2-2 93. mínúta
Aaron Spear tryggir ÍBV jafntefli á móti KR eftir
sendingu frá Kjartani Guðjónssyni.
Mörk ÍBV í lok leikja í sumar:
Eyjamennirnir
hætta aldrei
MIKILVÆGT MARK Eyjamenn fagna á
KR-vellinum í fyrrakvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Manchester United tekur
á móti Arsenal í stórslag helgar-
innar í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Óhætt er að segja að
heimamenn séu sigurstranglegri
þrátt fyrir að miðverðirnir Vidic
og Ferdinand glími við meiðsli.
Liðið skellti Tottenham 3-0 á
mánudag þrátt fyrir fjarveru
þeirra og virkar í fantaformi.
Lærisveina Arsene Wenger
bíður ærið verkefni enda leik-
mannahópurinn þunnskipaður.
Félagið var rétt búið að selja Cesc
Fabregas þegar sjálfkjörinn arf-
taki hans, Samir Nasri, var seldur
til City í vikunni. Jack Wilshere er
frá vegna meiðsla auk þess sem
miðjumennirnir Alex Song og
Emmanuel Frimpong eru í banni.
Stuðningsmenn Arsenal höfðu
þó ástæðu til þess að gleðjast í
vikunni þegar félagið tryggði
sér sæti í riðlakeppni Meistara-
deildar Evrópu. Það er vonandi
fyrir Wenger að hann geti byggt
á þeim sigri. Hann verður þó án
Gervinho, sem lagði upp mark í
2-1 sigrinum á Udinese, en fram-
herjinn er í leikbanni.
Wenger hefur verið gagnrýndur
fyrir að treysta á unga og óreynda
leikmenn en Ferguson er ein-
mitt hrósað fyrir hið sama um
þessar mundir. Englendingarn-
ir Phil Jones, Danny Welbeck og
Tom Cleverley hafa farið á kost-
um og koma vafalítið við sögu á
sunnudag.
Leikurinn á Old Trafford hefst
klukkan 15 og er í beinni útsend-
ingu á Stöð 2 Sport 2. - ktd
Risaslagur í enska boltanum á sunnudag:
Erfitt verkefni fyrir
höndum hjá Wenger
FÓTBOLTI Sautjánda umferð Pepsi-
deildar karla fer fram á morgun
og á mánudaginn.
Á morgun mætast Þór og
Grindavík á Þórsvelli klukkan
17.00 og Breiðablik og Valur á
Kópavogsvellinum klukkan 18.00.
Á mánudaginn byrja þrír
leikir klukkan 18.00: Keflavík-
Fylkir, KR-Fram og Víkingur-
ÍBV. Lokaleikur umferðarinnar
er síðan stórleikur Stjörnunnar
og FH sem hefst klukkan 19.15 á
gervigrasinu í Garðabæ. - óój
Pepsi-deild karla í fótbolta:
Tveir á morgun,
fjórir á mánudag