Fréttablaðið - 27.08.2011, Page 102
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR66
PERSÓNAN
Sverrir Gunnarsson
Aldur: 25 ára.
Starf: Starfsmaður í
Drekanum.
Fjölskylda: Í
sambandi með
Alexöndru Sól-
bjartsdóttur. Eiga
tvö börn, Sólbjörtu, fjögurra ára, og
Sverri Gunnar, eins árs.
Foreldrar: Gunnar Indriðason,
starfsmaður hjá Íslandspósti, og Elín
Sjöfn Sverrisdóttir húsmóðir.
Systkini: Elma Lísa Gunnarsdóttir
leikkona, Nína Björk ljósmyndari, og
Tinna Dögg hárgreiðslukona.
Búseta: Kópavogur.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Sverrir afgreiddi Viggo Mortensen í sölu-
turninum Drekanum á Menningarnótt.
„Þau eru alveg heilluð af Íslandi og í skýjunum enda
er búið að ganga mjög vel,“ segir Tanja Berglind
Hallvarðsdóttir, framleiðandi hjá True North.
Tanja heldur utan um tökur bandarísku verslana-
keðjunnar Urban Outfitters en tökulið frá henni er
statt hér á landi til að mynda fatnað fyrir jólabækl-
ing fyrirtækisins. Gullfoss og Geysir, Reykjavíkur-
borg, Bláa lónið, íslenski hesturinn og Dyrhólaey
eru meðal þess sem hefur leikið stórt hlutverk í
myndatökunum en sextán manns eru hér á vegum
keðjunnar.
Urban Outfitters er rótgróin bandarísk verslana-
keðja en fyrsta búðin var opnuð árið 1970. Búðirnar
eru frægar fyrir að fylgjast vel með tískustraumum
og bjóða upp á gott úrval af flottum fatnaði og
skemmtilegum húsbúnaði.
„Það er fullt af fallegum fötum hérna,“ segir
Tanja en Ísland hefur svo sannarlega skartað sínu
fegursta í blíðskaparveðri undanfarna daga.
Fleiri bandarískar verslanakeðjur hafa notað
íslenska náttúru sem bakgrunn upp á síðkastið en
fataframleiðandinn Macy´s var hér á landi fyrir
stuttu við tökur en True North vann líka fyrir það
fyrirtæki. - áp
Urban Outfitters myndar á Íslandi
Á ÍSLANDI Það verður íslenskur bragur á jólabæklingi Urban
Outfitters í ár og er verið að mynda þessa dagana á Íslandi.
NORDICPHOTO/GETTY
„Margit Sandemo og fjölskylda
hennar fengu veður af þessari
nafngift og hafa óskað eftir því
að RÚV breyti þessu. Enda á hún
þetta nafn,“ segir Sigrún Hall-
dórsdóttir, bókaútgefandi í Kaup-
mannahöfn.
Hún gefur út bækur norska
höfundarins Margit Sandemo,
en þeirra á meðal eru hinar vin-
sælu Ísfólksbækur sem selst hafa í
milljónum eintaka. Norska skáldið
er hins vegar ekki sátt við nafnið
á nýjum þætti Ragnhildar Stein-
unnar Jónsdóttur, sem heitir ein-
mitt Ísfólkið, og vill að RÚV breyti
þessu hið snarasta.
Sigrún segir að hún hafi þegar
leitað til Félags íslenskra bóka-
útgefanda með þetta mál og hún
ætlar að fara með það alla leið
ef þörf krefur. „Ég er einfald-
lega skuldbundin til þess. Það er
hluti af okkar samningi við hana
að við verndum hennar hugverk
fyrir svona stuldi,“ segir Sigrún,
sem hyggst í framhaldinu sækja
um einkaleyfi á nafninu Ísfólk-
ið. „Svona hlutir þekkjast ekki
í Danmörku en þetta er í annað
sinn sem ég stend í svona stappi
á Íslandi,“ bætir Sigrún við og
rifjar upp að fyrir tveimur árum
hafi verið gerðar upptækar bækur
eftir Sandemo sem prentaðar voru
í leyfisleysi á lélega prentvél og
seldar í Kolaportinu. „Fólk verður
að fá að eiga sín hugverk í friði og
Ísfólkið er nafn sem flestir tengja
við Sandemo.“
Í Ísfólkinu hittir Ragnhildur
Steinunn unga íslenska eldhuga
sem hafa skarað fram úr, hver á
sínu sviði. Meðal gesta eru Gunn-
ar Nelson bardagakappi og leik-
ararnir Anita Briem og Þorvald-
ur Davíð Kristjánsson. Þættirnir
hefja göngu sína á fimmtudags-
kvöld. Páll Magnússon útvarps-
stjóri segir málið vera í skoðun
innan veggja RÚV. „Við erum að
kanna þetta, annars vegar hver
lögformlega hliðin á málinu er og
SIGRÚN HALLDÓRSDÓTTIR: VERIÐ AÐ BRJÓTA Á RÉTTI GAMALLAR KONU
HÖFUNDUR ÍSFÓLKSINS
HJÓLAR Í RÍKISSJÓNVARPIÐ
María Sigurðardóttir, hárgreiðslunemi í Reykjavík,
er skráð til heimilis á Akureyri og hefur gefist upp
á því að vera ruglað saman við nöfnu sína, Maríu
Sigurðardóttur, leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akur-
eyrar. Hún brá því á það ráð að setja „ekki leik-
hússtjóri“ fyrir aftan nafnið sitt á vefsíðunni já.is.
Jólakort frá þjóðþekktum leikara gerði útslagið en
hann þakkaði Maríu kærlega fyrir samstarfið á
árinu sem var að líða.
„Ég fékk nokkur símtöl á dag og fólk var oft að
spyrja hvort ég væri leikhússtjórinn á Akureyri,“
segir María, sem hafði þó lítinn áhuga á að ræða
þetta mál við Fréttablaðið. Hún sagði að jólakortið
hefði ýtt henni út í þessa breytingu og nú fær hún
ekki lengur símhringingar frá vongóðum leikurum.
María fær því frið til að stunda hárgreiðslunám sitt
í friði.
Leikhússtjórinn María Sigurðardóttir sagðist
hafa heyrt af þessari breytingu hjá nöfnu sinni og
fannst hún alveg stórskemmtileg og fyndin. „Mér
finnst þetta gott hjá henni og við tvær þyrftum
einhvern tímann að hittast, hún fær mínar bestu
kveðjur,“ segir María en hún var að leggja lokahönd
á bækling frá leikfélaginu þar sem komandi leikár
verður kynnt. „Ætli Gulleyjan með Birni Jörundi
verði ekki stóra sprengjan í ár.“ - fgg
HRIFIN Maríu Sigurðardóttur, leikhússtjóra hjá Leikfélagi
Akureyrar, finnst „ekki leikhússtjóri“ vera fyndinn starfs-
titill og langar að hitta nöfnu sína sem gafst upp á
símhringingum frá leikurum.
hins vegar hvert sanngirnissjónar-
miðið er. Menn hljóta að þurfa að
velta því fyrir sér hvort bækurnar
hljóti tjón af því að sjónvarpsþátt-
ur nefnist þessu nafni. Við viljum
ekki brjóta nein lög heldur ætlum
einfaldlega að leggja mat á hversu
gild þessi sjónarmið eru og síðan
tökum við í framhaldinu afstöðu til
þess hvort ástæða sé til að breyta
nafninu,“ segir Páll.
freyrgigja@frettabladid.is
ÓSÁTT Margit Sandemo rithöfundur er
ósátt við nafnið á nýjum sjónvarpsþætti
Ragnhildar Steinunnar sem nefnist Ísfólkið.
Hún vill að RÚV breyti nafninu og Páll
Magnússon útvarpsstjóri segir málið vera
í skoðun.
Listaverkið (Stóra sviðið)
Lau 1.10. Kl. 16:00 2. sýn.
Lau 1.10. Kl. 19:30 3. sýn.
Sun 2.10. Kl. 19:30 4. sýn.
Fös 7.10. Kl. 19:30 5. sýn.
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 2.9. Kl. 19:30 16. sýn.
Lau 3.9.Kl. 19:30 17. sýn.
Fös 9.9. Kl. 19:30 18. sýn.
Lau 10.9. Kl. 19:30 19. sýn.
Fös 16.9. Kl. 19:30 20. sýn.
Lau 17.9. Kl. 19:30 21. sýn.
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Sun 18.9. Kl. 19:30 2. sýn.
Fös 23.9. Kl. 19:30 3. sýn.
Lau 24.9. Kl. 19:30 4. sýn.
Sun 25.9. Kl. 19:30 5. sýn.
Fös 30.9. Kl. 19:30 6. sýn.
Lau 1.10. Kl. 19:30 7. sýn.
Sun 2.10. Kl. 19:30 8. sýn.
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Sun 28.8. Kl. 14:00 31. sýn.
Sun 4.9. Kl. 14:00 32. sýn.
Sun 11.9. Kl. 14:00 33. sýn.
Sun 18.9. Kl. 14:00 34. sýn.
Sun 25.9. Kl. 14:00 35. sýn.
Hreinsun (Stóra sviðið)
Fös 21.10. Kl. 19:30 2. sýn.
Fim 27.10. Kl. 19:30 3. sýn.
Fös 28.10. Kl. 19:30 4. sýn.
Fim 3.11. Kl. 19:30 5. sýn.
Fös 4.11. Kl. 19:30 6. sýn.
Mið 9.11. Kl. 19:30 7. sýn.
Lau 19.11. Kl. 19:30 8. sýn.
Verði þér að góðu (Kassinn)
Fös 2.9. Kl. 20:00
Lau 3.9. Kl. 21:30
Sun 4.9. Kl. 21:00
Lau 10.9. Kl. 19:30
Sun 11.9. Kl. 19:30
María fékk nóg af ónæði frá leikurum