Fréttablaðið - 07.09.2011, Page 6
7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR6
Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík
Sími 590 2100 · askja.is
Nýir eigendur
óskast!
Verð kr. 3.690.000
Kia Sorento Ex Luxury 4x4
árg. 2006, ekinn 78 þús. km
2497cc, dísel, sjálfsk.
17” álfelgur
Leður
Verð kr. 1.190.000
Isuzu Trooper 4x4
árg. 2002, ekinn 221 þús. km
3000cc, dísel, beinsk.
7 manna
Álfelgur
Vel með farinn og traustur
Verð kr. 7.590.000
Jeep Cherokee Crd LTD 4x4
árg. 2008, ekinn 17 þús. km
3000cc, dísel, sjálfsk.
Verð kr. 2.190.000
Audi A3
árg. 2005, ekinn 48 þús. km
2000cc, bensín, sjálfsk.
16” álfelgur
Skyggðar rúður
Álfelgur
Leður
Kom á götuna 2010
Verð kr. 3.450.000
Nissan Qashqai SE 4x4
árg. 2009, ekinn 41 þús. km
2000cc, bensín, sjálfsk.
Álfelgur
Leður
Verð kr. 3.390.000
Nissan Navara 4x4
árg. 2006, ekinn 93 þús. km
2500cc, dísel, sjálfsk.
Dráttarkrókur
Stigbretti
Yfirbyggt skottlok
Verð kr. 1.990.000
Honda Accord
árg. 2006, ekinn 76 þús. km
1998cc, bensín, sjálfsk.
17” álfelgur
Skyggðar rúður
Kynntu þér úrval notaðra bíla á www.askja.is
Opið virka daga frá 9-18
Laugardaga frá 12-16
TILBO
ÐSVE
RÐ
Kr. 2
.990.
000!
TILBO
ÐSVE
RÐ
Kr. 9
90.00
0!
LÖGREGLUMÁL Sautján ára piltur sem
tekinn var með 30 þúsund e-töflur í far-
angri sínum í Leifsstöð fyrir tæpum
tveimur vikum reyndist einnig hafa í
fórum sínum tvö kíló af staðdeyfilyfinu
líkódíni. Þetta hefur efnagreining leitt
í ljós.
Pilturinn var handtekinn við komuna
til landsins frá Kaupmannahöfn aðfara-
nótt 24. ágúst. E-töflurnar fundust í far-
angri hans, ásamt fimm kílóum af duft-
efnum sem reyndust ekki vera ólögleg
fíkniefni.
Efnagreining hefur nú leitt í ljós að
þar var um að ræða þrjú kíló af alkóhól-
sykri, sem er alþekkt íblöndunarefni til
að drýgja fíkniefni, og tvö kíló af stað-
deyfilyfinu líkódíni.
Samkvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á Suðurnesjum er verið að skoða
þann möguleika að pilturinn hafi verið
blekktur í fíkniefnaviðskiptunum, enda
svipar líkódíni mjög til kókaíns og
gefur jafnvel oft jákvæða svörun í sér-
stökum kókaínprófum.
Reynist það raunin, að pilturinn hafi
haldið sig vera að flytja inn kókaín,
getur það haft talsverð áhrif á refs-
ingu hans. Að öðrum kosti varðar inn-
flutningurinn við lyfjalög, enda er ekki
hverjum sem er heimilt að flytja inn
staðdeyfilyf í miklu magni.
Pilturinn hefur lítið vilj-
að tjá sig um aðdrag-
anda málsins í yfir-
hey rslu m hjá
lögreglu. Ljóst
þykir að sautján
ára unglingur hafi
ekki getað fjármagnað
kaup á þessu magni fíkniefna
og því beinist rannsóknin að því
að finna vitorðsmenn hans eða þá sem
fengu hann til verksins. Það hefur ekki
enn borið árangur.
Gæsluvarðhald yfir piltinum rennur
út í dag. Að öllum líkindum verður kraf-
ist framlengingar á því. - sh
E-töflusmyglari á unglingsaldri reyndist einnig hafa flutt inn alkóhólsykur og tvö kíló af staðdeyfilyfjum:
Gæti hafa verið blekktur með staðdeyfilyfi
E-TÖFLUR Þung
refsing liggur við
því að flytja til
landsins e-töflur.
LÖGREGLUMÁL Ökumaðurinn
sem slasaðist eftir kappakstur á
Hafnarfjarðarvegi í fyrrakvöld er
66 ára gamall, fæddur í nóvember
árið 1944. Myndband úr leigubíl
virðist sýna að hann hafi att kappi
við hálfþrítugan ökumann annars
bíls á vel rúmlega hundrað kíló-
metra hraða.
Svo virðist sem mennirnir tveir
þekkist ekkert. Af myndband-
inu má ráða að annar þeirra hafi
einfaldlega ekið upp að hinum og
í kjölfarið hafi þeir báðir aukið
hraðann mjög, og sá yngri elt þann
eldri á ofsahraða.
Betur fór en á horfðist þegar
eldri maðurinn missti stjórn á
kraftmiklum Dodge Charger-bíl
sínum, hann lenti á ljósastaur og
valt nokkur hundruð metra út af
veginum við Fífuhvammsveg. Bíll-
inn var ákaflega illa farinn á eftir
og var í fyrstu talið að maður inn
hefði slasast mjög alvarlega. Svo
reyndist þó ekki vera. Hundur sem
var með honum í bílnum drapst
hins vegar.
Lögreglumenn sem Frétta blaðið
ræddi við í gær sögðu afskap-
lega óvenjulegt að maður á þess-
um aldri hegðaði sér með þessum
hætti; yfirleitt væru það ungling-
ar og ungmenni sem stæðu fyrir
ábyrgðarlausum kappakstri innan
um aðra vegfarendur, en ekki öku-
menn sem komnir væru að elli-
mörkum.
Heimildir Fréttablaðsins herma
raunar að þetta sé ekki í fyrsta
sinn á síðustu vikum og mánuð-
um sem lögregla fær veður af ein-
kennilegu og „gruggugu“ háttalagi
mannsins í umferðinni, eins og það
er orðað.
Yngri maðurinn stakk af af vett-
vangi en gaf sig fram síðar um
kvöldið.
Sýni voru tekin úr mönnunum
til að kanna hvort þeir hefðu verið
allsgáðir undir stýri. Það lá ekki
fyrir í gær. stigur@frettabladid.is
Ökuþór á sjötugsaldri
slapp með skrekkinn
Maður á sjötugsaldri atti kappi við hálfþrítugan mann á Hafnarfjarðarvegi á
yfir 100 kílómetra hraða og hafnaði að lokum utan vegar. Lögreglu hafa áður
borist ábendingar um einkennilega og „grugguga“ hegðun hans í umferðinni.
Slysið á Hafnarfjarðarvegi í gær var það þriðja í kjölfar
kappaksturs á stuttum tíma. Guðbrandur Sigurðsson,
aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, segir lögregluna vinna stöðugt að því að
koma í veg fyrir hegðun af þessu tagi.
„Almennt getur svona aksturshegðun þar sem menn
nota ökutæki til að etja kappi haft skelfilegar afleiðingar,
eins og dæmin hafa sannað, en við höfum nú talað um
að okkur hafi fundist vera minna um þetta í sumar en
undanfarin ár,“ segir Guðbrandur.
Hann segir að lögreglan sé farin að nota ómerkta
bíla í auknum mæli til að ná í skottið á ökuníðingum.
Oftsinnis gerist það að menn hægi á sér þegar þeir sjái
merktan lögreglubíl en gefi svo rækilega í þegar framhjá
honum er komið. Þá bíði þeirra hins vegar stundum
ómerktur lögreglubíll spölkorn frá.
„Fundist vera minna um þetta í sumar“
Umferðarslys vegna kappaksturs
Kópavogur
Miðbær
Breiðholt
Arnarbakki, 23. ágúst
Tveir ungir ökumenn,
18 og 19 ára, öttu kappi
sem endaði með því að
annar ók á ljósastaur. Þrír
farþegar slösuðust, en
enginn alvarlega.
Geirsgata, 16. ágúst
Bíll hafnaði á húsvegg
í kappakstri við annan.
Þrír ungir menn voru
í bílnum. Einn þeirra
lést en hinir slösuðust.
Hafnarfjarðarvegur,
6. september
Bíll lenti á ljósastaur
og valt út af veginum.
Bíllinn gjöreyðilagðist
en ökumaðurinn
slapp ótrúlega vel.
Telur þú eðlilegt að fá erlendan
þjálfara fyrir íslenska landsliðið
í knattspynu?
Já 62,7%
Nei 37,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Óttast þú að eldgos í Kötlu sé
yfirvofandi?
Segðu þína skoðun á vísir.is.
FÓLK „Það hefur ekki gengið illa hjá okkur,“ segir
Þorvarður Gunnarsson, forstjóri endurskoðunar-
fyrirtækisins Deloitte, nýkominn heim frá Heidel-
berg í Þýskalandi þar sem hann fagnaði um
helgina árshátíð ásamt starfsmönnum sínum og
mökum þeirra.
Alls fór um 300 manna hópur með áætlunarflugi
til Frankfurt og þaðan með rútu suður til Heidel-
berg. „Við dreifðum okkur á fimm flugvélar í
öryggisskyni eins og reglur Deloitte á alþjóðavísu
gera ráð fyrir,“ segir Þorvarður. Ferðakostnaðin-
um hafi verið skipt á milli fyrirtækisins og ferða-
langanna sjálfra.
Hann segir að það hafi verið venja hjá fyrirtæk-
inu að fara í starfsmannaferð sem þessa á þriggja
ára fresti til að hrista hópinn saman og engin
ástæða hafi þótt til að breyta út af þeirri venju
þrátt fyrir að viðhorf fólks til ferða af þessu tagi
hafi breyst umtalsvert eftir hrun.
Þorvarður segir ferðina enda ekki hafa verið
neina bruðlferð eins og þær sem kenndar eru
við árið 2007. „Alls ekki – síður en svo. Við hjá
Deloitte höfum alltaf reynt að gera hlutina á eins
hagkvæman og ódýran hátt og hægt er,“ segir
hann. „Og við ætlum að halda áfram að reyna að
gera þetta á þriggja ára fresti.“ - sh
Um 300 manns flugu fyrir helgi til Þýskalands til að fagna árshátíð Deloitte:
Með fimm vélum til Heidelberg
FALLEG BORG Í Heidelberg fór hópurinn í skoðunarferðir og
gerði sér glaðan dag. NORDICPHOTOS/GETTY
KJÖRKASSINN