Fréttablaðið - 07.09.2011, Side 10

Fréttablaðið - 07.09.2011, Side 10
7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR10 Fögnum saman í Ráðhúsinu Uppskeruhátíð áheitasöfnunar verður í Ráðhúsi Reykjavíkur kl.17 í dag, miðvikudag. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Frábær árangur Fleiri en nokkru sinni tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, eða alls 12.481. Fjöldi hlaupara sem skráðu sig á hlaupastyrkur.is og tóku þátt í áheitasöfnuninni ríflega tvöfaldaðist. Alls söfnuðust 43.654.858 kr., sem er rúmum fjórtán milljónum meira en í fyrra. - Stoltur bakhjarl hlaupsins síðan 1997 ÁHEITASÖFNUN REYKJAVÍKURMARAÞONS ÍSLANDSBANKA UPPSKERUHÁTÍÐ 1 Við hvað starfar tugþrautar- maðurinn fyrrverandi Jón Arnar Magnússon nú? 2 Hvað heitir nýr vígslubiskup í Skálholti? 3 Hvert er nafn hins íslenska Ópals á markaði í Danmörku? SVÖR 1. Hann er kírópraktor í Kópavogi. 2. Kristján Valur Ingólfsson. 3. Óbal. LÖGREGLUMÁL „Þetta er hálfpart- inn eins og að takast á við dauðs- fall í fjölskyldunni,“ lýsir Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Office 1, áhrifum þess að samstarfsmaður til margra ára var rekinn vegna stórfellds þjófnaðar. Tveir verslunarstjórar hjá Office 1 hafa verið látnir hætta á þessu ári vegna þess að þeir stálu samtals tugmilljónum króna frá fyrirtækinu að sögn Kjartans. Annar þeirra hefur viðurkennt þjófnað en hinn segist saklaus. Bæði þessi mál voru kærð til lög- reglu þar sem þau eru í rannsókn. Að sögn forstjórans er í öðru tilfellinu um að ræða mjög alvar- leg auðgunarbrot. Í því máli liggi játningin fyrir. „Það var svo mik- ill vinur og félagi starfsfólks- ins að þegar það mál kom upp þá varð að kalla til sálfræðinga. Þegar svona mikill trúnaðarbrest- ur verður milli einstaklinga getur það haft miklu víðtækari áhrif en að starfsmanni sé einfaldlega sagt upp og lífið haldi áfram eins og frá var horfið,“ segir Kjartan, sem eins og fyrr kemur fram lýsir áhrifunum eins og andláti innan fjölskyldu. Kjartan segir miklu hafa verið breytt hjá fyrirtækinu í kjölfar þjófnaðarmálanna „Við erum búin að setja upp mjög öflugt öryggis- myndavélakerfi sem er með sívöktun starfsmanna,“ segir for- stjórinn, sem kveður starfsmenn einnig hafa verið senda á nám- skeið um þessi mál. Eftir að verslunarstjórarnir voru látnir taka pokana sína var næturverði sagt upp störfum vegna þjófnaðar. Næturvörðurinn viðurkenndi með skriflegri yfir- lýsingu að hann hefði stolið iPod- hátalara að verðmæti 27.900 krón- ur og samþykkti að hætta strax og afsala sér ógreiddum launum. Kjartan skýrði öðrum starfs- mönnum frá aðdragandanum að brotthvarfi næturvarðarins með fjöldapósti. Það kærði nætur- vörðurinn til Persónuverndar. Sagði hann meðal annars að þjófn- aðurinn væri ósannaður „Þetta er mjög óþægileg staða fyrir mig,“ sagði í kæru næturvarðarins. Persónuvernd úrskurðaði að útsending fjöldapóstsins hefði verið óheimil. Kjartan segist vitan lega munu taka mið af niður- stöðunni en honum finnist þó umhugsunarvert að samkvæmt úrskurðinum hafi verið heimilt að upplýsa alla starfsmenn um málið á starfsmannafundi en ekki með tölvupósti. gar@frettabladid.is Áfallahjálp í Office 1 vegna verslunarstjóra Tveir verslunarstjórar og næturvörður voru reknir frá Office 1 á þessu ári vegna þjófnaðar segir forstjóri. Nú sé mun betur fylgst með starfsfólki. Persónuvernd segir að ekki hafi mátt nafngreina næturvörðinn í fjöldapósti til starfsmanna. KJARTAN ÖRN SIGURÐSSON Forstjóri Egilson ehf., sem rekur Office 1, segir mikinn og þungbæran trúnaðarbrest hafa orðið þegar verslunarstjóri til margra ára varð uppvís að stórþjófnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR UTANRÍKISMÁL Rýniskýrsla Evrópu sambandsins um íslensk- an landbúnað sýnir að sambandið krefst þess að Ísland lagi lög, stjórnkerfi og upplýsingakerfi að landbúnaðar stefnu sinni. Þetta segja Bændasamtökin. Slík aðlögun gengur þvert á kröfur samtakanna sem settar hafa verið fram vegna aðildar- viðræðna. Samtökin segja að með tilkomu skýrslunnar geti íslensk stjórnvöld ekki lengur vikið sér undan því að setja fram skýr samningsmarkmið um landbúnaðar mál. Bændasamtökin telja að aðeins með tillögur þeirra að leiðarljósi verði hagsmuna landbúnaðarins gætt. - þeb Bændasamtökin um ESB: Stjórnvöld skor- ist ekki undan ALÞINGI Utanríkismálanefnd mun halda opna fundi um aðildarvið- ræður að Evrópusambandinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, ítrekaði kröfu sína á fundi nefndarinnar í gær. Samþykkt var að bíða eftir formanninum, Árna Þór Sigurðs- syni, sem væntan- legur var til landsins í gær, og ákveða fyrsta opna fundinn í dag. Valgerður Bjarnadóttir, vara- formaður nefndarinnar, segir sjálfsagt að verða við kröfu um opna fundi, en þeir verði ekki reglulegir heldur af ákveðnu til- efni. - kóp Krafa í utanríkismálanefnd: Opnir fundir verða haldnir VALGERÐUR BJARNADÓTTIR BANDARÍKIN Byssumaður skaut þrjá til bana á pönnukökustað í Nevada í gær. Margir fleiri eru særðir og byssumaðurinn framdi sjálfsvíg eftir skotárásina. Ekki var ljóst hvað lá að baki skotárásinni þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær. Vitni sögðu byssumanninn hafa skotið mann á mótorhjóli fyrir utan veitinga- húsið International House of Pancakes í Carson City, höfuðborg Nevada-ríkis. Vopnaður riffli gekk hann svo inn á veitingahúsið og hóf skotárás. Önnur vitni herma að hann hafi síðan farið í nálæga verslunarmiðstöð og hald- ið áfram að skjóta. Hann skaut að lokum sjálfan sig. - þeb Drap að minnsta kosti þrjá: Skotárás á pönnukökustað VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.