Fréttablaðið - 07.09.2011, Síða 12
7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR
Sími 568 9009
gaski@gaski.is
www.gaski.is
Tilboð
í líkamsrækt
12 mánaða kort á
24.900 kr.
gildir til 30. sept. 2011
Frír tími með sjúkraþjálfara
sem setur upp æfingaráætlun
Gáski sjúkraþjálfun er til
húsa á eftirfarandi stöðum:
Bolholti 8, Reykjavík
Þönglabakka 1, Reykjavík
M
IÐ
VI
KU
DA
GU
R
| 7
. S
EP
T.
SETNING | NORRÆNA HÚSIÐ
LJÓSMYNDASÝNING NEMIROVSKY
í Borgarbókasafni Reykjavíkur
UPPLESTUR | IÐNÓ
Kristof Magnusson | Ragna Sigurðardóttir
Hallgrímur Helgason | Sara Stridsberg
Ingo Schulze
15:00
17:00
20:00
Bókmenntahátíð | Dagskrá
NÁNAR Á WWW.BOKMENNTAHATID.IS
RH
O
20
11
setið í fangelsum hér á landi, þó
er ekki vitað til þess að smit hafi
breiðst út meðal fanga. Magn-
ús ítrekar að það sé nauðsynlegt
að bæta aðgengi að smokkum og
nálum innan veggja fangelsa sem
og annars staðar.
„Fíkniefnaneysla er staðreynd í
fangelsum og af henni getur skap-
ast veruleg hætta. Og fólk hættir
ekki að lifa kynlífi þótt það sé í
fangelsi.“
Rakning vandasöm meðal fíkla
Magnús bendir á að rakning smit-
leiða HIV geti verið mjög vanda-
söm þegar fíklar eru annars vegar.
Þeir séu oft á tíðum ekki vakandi
yfir því með hverjum þeir stundi
kynlíf eða deila nálum. Laga-
skylda ríki hjá læknum að reyna
að rekja smitleiðir með því að fá
nöfn rekkjunauta og láta þá við-
komandi vita, sé möguleiki á því.
Þó sé algengt að læknar fái ein-
ungis uppgefin gælunöfn hjá þeim
sem greinst hafa, ef nöfn fást þá á
annað borð.
„Það þarf að byggja upp varnar-
garð í heilbrigðiskerfinu þannig að
vandamálið breiðist ekki út meira
en nú þegar hefur gerst,“ segir
hann.
Afar kostnaðarsamt fyrir kerfið
Talið er að hver HIV-smitaður
einstaklingur kosti heilbrigðis-
kerfið um 160 milljónir króna að
meðaltali. Sé einungis horft á lyfja-
kostnað fyrir hvern einstakling hér
á landi nemur hann að lágmarki á
bilinu 150 til 200 þúsund krónum á
mánuði, en getur hæglega orðið tvö-
falt hærri. Ársmeðferð, með rann-
sóknarkostnaði getur farið upp í
fimm milljónir króna fyrir hvern
sjúkling.
„Þessar 160 milljónir er viðmið-
unartala hér og á Norðurlöndunum.
Sumir sjúklingar hafa minni kostn-
að í för með sér, aðrir meiri. Það fer
allt eftir því hversu dýr lyfin eru og
hversu lengi þau eru tekin.“
Góðar ævilíkur
Miklar framfarir hafa orðið í lyfja-
gjöf við HIV á síðustu 15 árum. Ef
fólk er greint snemma eru ævilík-
ur þess oft á tíðum afar svipaðar
og hjá heilbrigðum einstaklingi.
Það fer þó allt eftir því hvort lyfja-
gjöf gangi vel og einstaklingurinn
stundi fulla meðferð.
Nokkuð viðtekið er að sjúkling-
ar eigi að hefja lyfjameðferð sem
fyrst. Magnús segir góðan árangur
hafa hlotist af slíku, en komi mikl-
ar aukaverkanir í ljós þurfi hugs-
anlega að endurskoða lyfjagjöfina.
„Ævilíkur eru orðnar mjög góðar.
Nýjustu rannsóknir sýna að væntar
ævilíkur eru svipaðar og hjá fólki
sem ekki er smitað. Lyfin eru orðin
það öflug, ef maður hittir á réttu
lyfjasamsetninguna, þá er hægt að
halda veirunni niðri,“ segir hann.
„Það eru fjölmargir einstaklingar
hér á landi sem eru með HIV og lifa
venjulegu lífi; stunda vinnu af full-
um krafti, eru í námi og eiga fjöl-
skyldur. En það er algjört lykilatriði
að koma fólki í meðferð sem fyrst.“
Hlutfall HIV-smitaðra
sprautufíkla hefur hækkað
gífurlega á síðustu árum.
Nauðsynlegt er að lágmarka
skaðann með vakningu,
betra aðgengi að smokkum
og hreinum nálum. Þegar
fíklar fá fréttir af jákvæðum
niðurstöðum búast þeir oft á
tíðum við þeim.
Fjöldi HIV-smitaðra sprautufíkla
hér á landi hefur margfaldast á síð-
ustu árum. Alls hafa 55 fíkniefna-
neytendur greinst með veiruna
síðan árið 1985. Um 40 fíklar eru
skráðir með HIV í gagnagrunni
Landspítalans, en hafa ber í huga
að þeir eru ekki allir virkir. Margir
þeirra eru búnir að ná sér eða eru
búsettir erlendis.
Alls hefur 271 einstaklingur
greinst með sjúkdóminn hér á landi
síðan fyrsta tilvikið greindist fyrir
26 árum síðan. Hlutfall sprautufíkla
með HIV hér á landi er mun hærra
en í nágrannalöndum okkar, þar
sem það er oftast undir fimm pró-
sent af sjúklingum.
Af þeim 55 sprautufíklum sem
greinst hafa hér á landi, hafa 34
greinst á síðustu fjórum árum. 17
einstaklingar hafa greinst með HIV
á þessu ári, þar af eru 13 fíkniefna-
neytendur.
Magnús Gottfreðsson, sérfræð-
ingur í smitsjúkdómum á Landspít-
alanum, segir atburðarásina sem
fari af stað þegar smit kemur upp
innan hóps fíkni-
efnaneytenda
vera afar hraða.
„Þetta er eitt-
hvað sem er vel
þekkt. En eins
og tíðnin er orðin
hér á landi þá er
hún óásættan-
lega há,“ segir
Magnús. „Hún er
orðin langt yfir
þeim mörkum
sem við eigum að sætta okkur við.“
Nauðsynlegt að lágmarka skaðann
Magnús segir afar mikilvægt að
lágmarka skaðann í samfélaginu
og gæta þess að veiran breiðist sem
minnst út. HIV sé sjúkdómur sem
einskorðast ekki við þann einstak-
ling sem er haldinn honum, held-
ur er veiran möguleg lýðheilsuvá,
líkt og aðrir sjúkdómar sem smit-
ast auðveldlega. Afar mikilvægt er
fyrir þá einstaklinga sem hafa smit-
ast að þeir geri sér fyllilega grein
fyrir aðstæðum og lifi ábyrgu kyn-
lífi, því HIV er fyrst og fremst skil-
greint sem kynsjúkdómur.
„Það þarf að lágmarka skaðann
eftir fremsta megni. Því er nauð-
synlegt að stunda öflugar forvarn-
ir sem koma að þessum málum og
bæta aðgengi fólks að smokkum
og hreinum nálum,“ segir Magnús.
„Það er algjörlega galið að aðgengi
að smokkum sé jafn lítið og það er
hér á landi og innflutningstollar séu
svona háir.“
HIV-smitaðir einstaklingar hafa
Hröð atburðarás þegar
fíklar smitast af HIV
Hvað þarf til að hefta útbreiðslu HIV?
■ Bæta aðgengi fíkla að ókeypis sprautum og nálum. Einnig þarf að bæta aðgengi þeirra að
félags- og heilbrigðisþjónustu.
■ Auka fræðslu um gagnsemi smokka og auka aðgengi að þeim án endurgjalds.
■ Auka árvekni lækna og hvetja þá til að taka oftar próf hjá skjólstæðingum sínum. Prófa
ætti alla fíkla, þá sem lifa óvörðu kynlífi og þá sem eru í fangelsum.
■ Draga úr smithættu með réttri lyfjameðferð.
■ Sporna gegn misnotkun örvandi lyfja eins og ritalíns og skyldra lyfja.
Bryndís Sigurðardóttir, smitsjúkdómalæknir á Land-
spítalanum, segir afar algengt að þegar fíklar fái fyrstu
fréttir um jákvæða niðurstöður við HIV, séu þeir svo
tilfinningalega dofnir að þeir sýni engin viðbrögð.
„Þau eru mjög oft í vímu þegar þau fá niðurstöð-
urnar kynntar, sýna fregnunum því afar lítil viðbrögð
og segjast oftar en ekki hafa búist við þessu,“ segir
Bryndís og bætir við að það sé mikill munur á því að
tilkynna fíkli að hann sé smitaður af HIV og einstaklingi
sem ekki eigi við fíkniefnavanda að stríða. „Þá koma
fram gríðarlegar tilfinningasveiflur, grátur og margar
spurningar. Þeir sem eru undir áhrifum lyfja vilja oft
ekki vita meira og vonast til þess að heilbrigðisyfirvöld
sjái bara um þá.“
Afar erfitt getur reynst að ná fíkniefnaneytendur í lyfja-
meðferð við veirunni, en fólk þarf að koma í reglulegt
eftirlit og taka lyf á hverjum einasta degi, ferli sem hefst
oft strax eftir greiningu. Bryndís segir algengt að fólk sem
á við fíkniefnavanda að stríða útskrifi sig af göngudeild
löngu áður en það er tímabært, til þess að ná sér í
fíkniefni.
„Þau vilja flest læknast af fíkninni og það er afar
mikilvægt að lækna hana áður en það er ráðist í lyfja-
meðferð gegn HIV. Margir hverjir hverfa alveg eftir fyrstu
greiningu og það getur reynst afar erfitt að ná sambandi
við þá á ný,“ segir Bryndís og tekur undir með Magnúsi
Gottfreðs syni að bráðnauðsynlegt sé að bæta aðgengi
að smokkum og hreinum nálum í landinu.
Víman deyfir viðbrögð við fregnunum
MAGNÚS
GOTTFREÐSSON
Fíkniefnaneysla
er staðreynd í
fangelsum og af henni getur
skapast veruleg hætta. Og
fólk hættir ekki að lifa kynlífi
þótt það sé í fangelsi.
MAGNÚS GOTTFREÐSSON
SÉRFRÆÐINGUR Í SMITSJÚKDÓMUM
Á LANDSPÍTALANUM
SPRAUTUFÍKILL Sprautufíklum með HIV hefur fjölgað gífurlega á síðustu árum og
segir smitsjúkdómalæknir á Landspítalanum að hlutfall smitaðra sé hér á landi
sé komið langt fram úr nágrannalöndunum. NORDICPHOTOS/GETTY
FRÉTTASKÝRING: Fjölgun HIV-smitaðra fíkla hér á landi
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00
Þráinn á tökkunum og
Gissur með fréttirnar
Sunna
Valgerðardóttir
sunna@frettabladid.is