Fréttablaðið - 07.09.2011, Side 18

Fréttablaðið - 07.09.2011, Side 18
18 7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR www.sindri .is / sími 5 75 0000 VERKFÆRI SEM HÆGT ER AÐ TREYSTA Á! IBTTG-28305 283 HLUTA VERKFÆRASKÁPUR. 1/4”, 3/8” og 1/2” topplyklasett Fastir lyklar, sexkantar og skrúfjárn, djúpir toppar, höggskrúfjárn, öfuguggasett, slaghamar, splittatangir, tangir, bitar og fl. Lífstíðarábyrgð af toppum og föstum lyklum. TOPTUL THE MARK OF PROFESSIONAL TOOLS 179.900m/vsk Fullt verð 231.900 G ildir á m eðan birgðir endast. Ef þú ert hjá Símanum færðu Samsung Galaxy Ace snjallsíma á aðeins 46.900 kr. á miðvikudögum í september. Magnaður miðvikudagur! 8.000 kr. afsláttur í dag! Ólafur Ragnar Grímsson stærir sig nú af því, að hann hafi allt- af vitað, að þrotabú LB ætti fyrir forgangskröfum (Icesave). Hann hafi m.ö.o. vitað, að skuldir óreiðu- manna (eigenda LB) myndu aldrei lenda á almenningi. Hvorugt er að vísu rétt. En trúi hann þessu sjálfur vaknar sú spurning, hvers vegna hann hafi vísað máli, sem hann vissi allan tímann að væri ekki um neitt, í þjóðaratkvæðagreiðslu. Til hvers? Er nokkur önnur skýring en sú, að hann vildi endurreisa gengis- felldan orðstír sinn? Eftir hrun varð ekki framhjá því litið, að forsetinn hafði verið fremst- ur í flokki að hvetja óreiðumenn útrásarinnar til dáða sem veislu- stjóri þeirra og viðskiptasmyrill. Skrumræðan um viðskiptasnilli skuldakónganna var sérgrein hans. Sem kunnugt er ber forsetinn enga ábyrgð á stjórnarathöfn- um, skv. gildandi stjórnarskrá. Honum var því útlátalaust að vísa Icesave-samningnum í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Þar með birtist hann þjóðinni í nýju ljósi. Honum tókst að slá sjálfan sig til riddara sem vörslumann almannahags- muna. Veislustjóri útrásarinnar breyttist eins og hendi væri veif- að í hugrakkan Hróa hött. Þetta var hókus-pókus, allt fyrir ekkert. „Tær snilld“, eins og annar maður komst að orði af svipuðu tilefni. En forsetinn lætur ekki þar við sitja. Hann brigslar ríkis stjórninni um landráð, hvorki meira né minna. Með því að semja um Ice- save – beygja sig fyrir fáránlegum kröfum og ofbeldi Breta og Hol- lendinga, eins og hann kallar það – hafi ríkis stjórnin brugðist þjóðar- hagsmunum. Ísland er eina ríkið í heiminum, svo mér sé kunnugt um, þar sem forseti ríkisins getur brigslað sitjandi ríkisstjórn um landráð, án þess að það gerist nokkuð. Engin viðbrögð. Hvurnig er það – tekur enginn mark á for- setanum? Frá upphafi var um tvær leiðir að velja til að leysa Icesave-deil- una: Samningaleið eða dóm- stólaleið. Samningaleiðinni var hafnað – að frumkvæði forset- ans – en dómstólaleiðinni hefur ekki verið lokað. ESA (Eftirlits- stofnun EFTA) hefur komist að þeirri niðurstöðu, að sú ákvörðun íslenskra stjórnvalda að tryggja allar innistæður í íslenskum bönk- um og útibúum – en ekki útibúum í útlöndum – sé ólögmæt. Staðfesti EFTA-dómstóllinn þessa niðurstöðu er greið leið fyrir tjónþola að sækja rétt sinn fyrir dómstólum. Þá gætum við ekki borið fyrir okkur samn- inga um hámarksinnistæður, lægstu vexti og bestu kjör. Þá verða settar fram ýtrustu kröf- ur um fullar bætur, hæstu vexti og enga greiðslufresti. Þá kann að vakna fyrir alvöru spurningin um, hverjir hafi brugðist þjóðar- hagsmunum: Þeir sem höfnuðu samningaleiðinni og opnuðu fyrir dómstólaleiðina – eða hinir? Hvar verður Hrói höttur þá? Á Íslandsdeginum í Tallinn um daginn flutti forsetinn eina af þessum skrumræðum sínum um ágæti Íslendinga (les: eigið ágæti), sem telst vera orðin hans sérgrein – óminnugur orða Snorra um, að oflof er háð. Áður en forsetinn flutti ræðuna hafði eistneski utan- ríkisráðherrann á orði, að dætur hans ungar væru í sjöunda himni, af því að þeim hefði hlotnast sú náð að taka í höndina á átrúnaðar- goði sínu – poppstjörnu, sem væri þekkt sem hin eistneska „Lady Ga Ga“. Nærstaddur landi vor, sem heyrði þetta, missti þá út úr sér: Heldurðu að þær verði nokk- uð minna upp með sér af því að fá að taka í höndina á okkar íslenska „President Ga Ga“? Það er ekki í lagi, að forseti sem enga ábyrgð ber á stjórnar- athöfnum, brigsli þeim ráð- herrum, sem axla alla ábyrgðina, um landráð – án þess að það kalli á nokkur viðbrögð. Íslendingar eiga að vísu að vita um ábyrgðarleysi forsetans og geta þess vegna látið eins og orð hans séu ábyrgðar- laust blaður. Öðru máli gegnir um útlendinga. Þeir vita margir hverjir ekki betur en, að forset- inn sé æðsti valdamaður þjóðar- innar og að hann tali fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Sá mis- skilningur getur reynst þjóðinni dýr, þegar milliríkjasamningar, sem varða brýnustu þjóðarhags- muni, eru í húfi. Lítt dulin andúð forsetans á Evrópusambandinu og flestu sem því viðkemur, er t.d. þegar orðið milliríkjavandamál. Það fer t.d. ekki framhjá neinum, þegar forseti landsins brigslar Norðurlandaþjóðum og Pólverjum – sem redduðu okkur eftir gjald- þrot seðlabankans – um fjandskap. Þvílík ósvífni. Ríkisstjórn Íslands getur ekki látið svikabrigsl forsetans eins og vind um eyru þjóta. Ef forset- inn sér ekki sjálfur sóma sinn í að gæta tungu sinnar, geta ábyrgir stjórnmálaleiðtogar – eins og ráð- herrar utanríkis- og ríkisfjármála – ekki lengur leyft sér að láta hjá líða að svara fullum hálsi – þegar forsetinn fer yfir strikið. Þeim er skylt að taka af tvímæli um, hverj- ir beri ábyrgð á íslenskum þjóðar- hagsmunum. Eða á bara að útskýra málið fyrir viðsemjendum okkar með sögunni af „Lady Ga Ga“? Margir látast árlega í umferðarslysum hér á landi auk þess sem hundruð slasast alvar- lega, oft af því að einhver fór óvarlega eða sýndi af sér vítavert gáleysi. Þar sem hraðinn var of mikill miðað við aðstæður. Á einu augnabliki breyttust þannig aðstæður þúsunda manna sem eiga um sárt að binda. Margar fjölskyldur í land- inu, nánir vinir og samstarfsfélagar fórnar- lamba umferðarslysanna þekkja þá sögu vel. Fólksbíllinn er stundum kallaður þarfasti þjónninn í nútíma þjóðfélagi og hefur leyst gamla vininn, íslenska hestinn, af hólmi. Metn- aður er síðan fyrir sífellt kraftmeiri bílum sem eiga líka að vera öruggari við verri aðstæður og meiri hraða. Skriðvörn, bremsuvörn svo eitt- hvað sé nefnt auk líknarbelgjanna góðu. En bíll- inn getur sannarlega verið manns versti óvinur, ef ekki er farið varlega og hann misnotaður. Þar sem lögmálið um fallþyngd hundraðfaldast alltaf með hraðanum sem ekið er á. Tölvuleikir eru sýndarveruleiki sem ganga oft líka út á sem mestan hraða. Eftirvæntingin hlýt- ur því að vera mikil þegar út í raunveruleikann er komið og bílprófið er í höfn hjá yngstu öku- mönnunum. Að endurtaka leikina í raunverulegu umhverfi. Þar sem reynsluleysi, kæruleysi og sýndarmennskan verður hættuleg blanda í öfl- ugum bíl. Þeir sem eldri eru vilja því miður oft einnig vera „með í leiknum”. Og þótt hæfnin til aksturs sé ef til vill meiri, er pirringur og óþol- inmæðin oft meiri. Reynslan kemur að litlum notum þegar stórir sénsar eru teknir. Þar sem fegurð umhverfisins er raunveruleg, en skilyrð- in á veginum djöfulleg. Sumir segja að slys séu bara ákveðin líkindi að óheppni. Að sumu leyti satt en oftar ekki, sér- staklega þegar umferðarslysin eiga í hlut og sem í flestum tilvikum má koma í veg fyrir. Ekki síst alvarlegustu slysin þar sem hinn slasaði „var jafnvel í rétti“. Þau forðumst við best með því að keyra hægar og sýna aðgát og kurteisi. Og láta ekki náungann koma okkur sífellt úr jafnvægi, jafnvel þótt hann skori okkur á hólm, í kapp- akstur á stálhestinum sínum. Áhrifaríkustu verkefni lögreglunnar og Umferðarstofu eru að tryggja eins og hægt er umferðaröryggi vegfarenda og halda umferðar- hraðanum ávallt niðri. Þakka má fyrst og fremst þeim þann stóra ávinning sem náðst hefur hér á landi, þrátt fyrir allt, að fækka alvarlegustu umferðarslysunum umtalsvert. Á götum borgar- innar ekkert síður en úti á þjóðvegunum þar sem hárfín brotin lína sker samt sem áður allt of oft á milli lífs og dauða. Eftir nokkra áratuga starf á Slysa- og bráða- móttöku ætti maður að vera kominn með þykkan skráp. En sárin eru misalvarleg og víst er að sárin úr alvarlegustu bílslysunum eru ekki nein smásár. Það eina sem aldrei venst í starfinu. Ef aðstæður hefðu verið aðrar þegar mestu máli skipti í lífi fórnarlambanna. Jafnvel þegar lífið var rétt að byrja og tíminn framundan virtist svo óendanlega langur og bjartur. Ekkert er jafn ömurlegt og að sjá hvað eitt andartak í fávisku getur skipt miklu máli, í lifandi lífi. Síðan er það sorgin og margir hugsa sinn gang, en því miður í allt of stuttan tíma. Ríkisstjórn Íslands getur ekki látið svika- brigsl forsetans eins og vind um eyru þjóta. Eftir nokkra áratuga starf á Slysa- og bráðamóttöku ætti maður að vera kominn með þykkan skráp. En sárin eru misalvarleg og víst er að sárin úr alvarlegustu bíl- slysunum eru ekki nein smásár. Það eina sem aldrei venst í starfinu. Ef aðstæður hefðu verið aðrar ... Lady Ga Ga? Er hægt að gera eitthvað til að breyta þessum heimi? Eru vandamálin ekki svo mörg og yfir- þyrmandi, fátæktin og misskipt- ingin svo gríðarleg? Við endur- teknar hörmungarfréttir utan úr heimi getur verið auðvelt að draga þá ályktun. Þá er ágætt að hafa í huga að mikill árangur hefur þegar allt kemur til alls náðst á mörgum sviðum. Á tíu árum hefur tíðni nýrra HIV- tilfella dregist saman um fjórð- ung á heimsvísu. Nærri 7 milljón- ir manna fá auk þess reglulega lyf við alnæmi, samanborið við nokkur þúsund áður. Á fimm árum hefur dauðsföllum fækkað um 20%. Of mikið af tölum? Hugsum í stað- inn um ófríska konu sem grunar að hún sé með HIV. Hún er ótta slegin því ef hún er smituð eru verulegar líkur á að barnið hennar smitist. Auk þess veit hún að mögulega mun hún deyja frá barninu á næstu árum. Hræðileg staða? Góðu frétt- irnar eru að leiðir til að draga úr líkum þess að barnið smitist eru vel þekktar. Með því að kanna áður en að fæð- ingu kemur hvort ófrísk kona sé HIV-smituð er hægt að grípa til ráð- stafana. Aðgengi mæðra í þróunar- löndum að þessari þjónustu hefur stóraukist og æ fleiri konur gang- ast undir HIV-próf – raunar fjölg- aði þeim um fjórðung einungis á síð- asta ári. Árið 2005 fengu 15% af ófrísk- um konum með HIV þartilgerð lyf. Nokkrum árum síðar voru þær orðnar yfir 50%! Við meðferð stór- dregur úr líkum á að barnið smit- ist, auk þess sem móðirin þarf ekki að búa við lamandi ótta um að lifa ekki af. Það er sorglegt að nánast öll þau börn sem eru HIV-smituð fengu vírusinn frá móður sinni; á með- göngu, í fæðingu eða með brjósta- gjöf. Þessu er hins vegar hægt að breyta – og þessu er verið að breyta. Það eru góðar fréttir. Góðar fréttir Umferðarhraðinn og slysin Þróunarsamvinna ber ávöxt Inga Dóra Pétursdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi Stefán Ingi Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi Icesave Jón Baldvin Hannibalsson fv. utanríkisráðherra Umferð Vilhjálmur Ari Arason læknir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.