Fréttablaðið - 07.09.2011, Qupperneq 35
PERNILLA AUGUST Á ÍSLANDI
Opnunarsýningin að þessu sinni er framlag Svíðþjóðar, kvikmynd Pernillu August Svinalangorna eða Svínasítan.
Að því tilefni verður Pernilla August sjálf viðstödd opnunina í bíó Paradís þann 7. september klukkan 19:30.
Miðasala er í fullum gangi á Miði.is.
Pernilla August sem fædd er 1958 í Stokkhólmi er ein af þekktustu leikkonum Svía á alþjóðavettvangi.
Hún starfaði mikið með sænska meistaraleikstjóranum Ingmar Bergman sem fyrst leikstýrði henni í
Óskarsverðlaunamyndinni Fanný og Alexander (1982). Hún hlaut verðlaun sem besta leikkona fyrir leik
sinni í Den goda viljan í leikstjórn Bille August, eftir handriti Bergmans á kvikmyndahátíðinni í Cannes 1992.
Samstarf hennar og Bergmans hélt áfram í sjónvarpi (In the Presence of a Clown) og í konunglega leikhúsinu
í Stokkhólmi (Brúðuhúsið, The Winter’s Tale, María Stuart og Ghost).
August sló í geng í Hollywood þar sem hún lék móður Anakin geimgengils í myndum George Lucas,
Star Wars Episode 1 -The Phantom Menace (1999) og Star Wars Episode 2 -Attack of the Clones (2002).
Svínastíurnar er frumraun August sem handritshöfundar/leikstjóra.
BRIM
EFNISKJARNI
Í Brim er sögð saga ungrar konu sem ráðin er sem háseti
á fiskibát, þar sem þéttur hópur karla er fyrir. Hægt og
sígandi kemur í ljós að starf hennar var aðeins laust vegna
þess að sorglegur atburður hafði átt sér stað og vera
hennar um borð fer ekki vel í áhöfnina. Þar sem átök eiga
sér stað innan hópsins og einnig barátta við náttúruöflin,
verður áhöfnin að standa saman og takast á við örlögin í
sjóferð sem tekur óvænta stefnu.
UM KVIKMYNDINA
Brim er byggð á leikriti eftir leikhópinn Vesturport sem
frumsýnt var árið 2003. Eftir að hafa notið mikilla vinsælda
innanlands lagði hópurinn land undir fót og fór til
Wiesbaden, Tampere og Moskvu þar sem verkið hlaut
New Drama verðlaunin.
Árni Ólafur Ásgeirsson og meðhöfundur hans Ottó Geir
Borg ásamt Vesturport teyminu eiga heiðurinn af því að
koma leikritinu á hvíta tjaldið, en hópurinn myndaði af
mikilli nákvæmni daglegt líf á togara. Erfið veðurskilyrði á
33 daga upptökutíma auka enn á raunsæið og
afburðaleikur, hljóðmynd, tónlist og myndataka voru
verðlaunuð á Edduverðlaununum 2011 þar sem myndin
hlaut 6 verðlaun, þ.á.m. fyrir bestu mynd og bestu
leikkonu í aðalhlutverki (Nína Dögg Filippusdóttir).
Brim var opnunarmynd Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík 2010 og tók þátt í kvikmyndahátíðinni í Brussel
í júní 2011.
AÐSTANDENDUR
Leikstjóri Árni Ólafur Ásgeirsson
Handritshöfundar Ottó Geir Borg, Árni Ólafur
Ásgeirsson, Vesturport
Framleiðendur Þór S. Sigurjónsson, Skúli Fr.
Malmquist, Grímar Jónsson,
Gísli Örn Garðarsson
Aðalleikendur Ingvar E. Sigurðsson, Nína Dögg
Filippusdóttir, Gísli Örn Garðarsson
Framleitt af ZikZak Filmworks
[Oslo, 31. august]
ÓSLÓ, 31. ÁGÚST
EFNISKJARNI
Anders (34) er að ljúka meðferð, vegna fíkniefnaneyslu, í sveitinni.
Hann fær leyfi til að fara til borgarinnar í starfsviðtal á meðan á
meðferðinni stendur. En hann notar tækifærið og dvelur lengur í
borginni, ráfar um og hittir fólk sem hann hefur ekki séð lengi.
Anders er vel gefinn, myndarlegur og kemur frá góðri fjölskyldu,
en tækifæri sem hann lét sér úr greipum renna og fólk sem hann
hefur brugðist eru honum ofarlega í huga. Hann er frekar ungur en
finnst samt að lífið sé að mörgu leiti búið. Það sem eftir lifir dags og
langt fram á nótt, berjast draugar mistaka fortíðarinnar við
tækifærin til að elska, tækifæri til að lifa nýju lífi og vonina um að
það sé framtíð í morgundeginum.
UM KVIKMYNDINA
Oslo, August 31st er lauslega byggð á frönsku skáldsögunni ‘Le
feu follet’ eftir Pierre Drieu La Rochelle. Tímaleysið í bókinni varð
Joachim Trier og meðhöfundi hans Eskil Vogt hvatning og gaf
þeim tækifæri til að kanna „tilfinningalega og nær áþreifanlega
reynslu af tilvistarkreppu“. Franski kvikmyndaleikstjórinn Louis
Malle gerði kvikmynd eftir skáldsögunni árið 1963 undir nafninu
Le feu follet. Trier er trúr lýsingu Drieu La Rochelle’s á
fíkniefnaneytanda í meðferð sem reynir að takast á við vandamál
sín og finna tilgang lífsins. Með það að markmiði að gera
kvikmyndina dálítið eins og heimildamynd, notar leikstjórinn
Steadicam til að kvikmynda venjulegt fólk í Ósló samhliða
leikurum og aukaleikurum, eins og aðalleikarnum Anders
Danielsen Lie.
Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Un Certain
Regard. Gagnrýni var jákvæð og myndin hefur verið seld til um tólf
landa. Hún var einnig valin til sýningar á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Tórontó 2011. Myndin verður frumsýnd í
Noregi 31. ágúst 2011.
AÐSTANDENDUR
Leikstjóri Joachim Trier
Handritshöfundar Joachim Trier, Eskil Vogt
Framleiðendur Yngve Sæther, Sigve Endresen,
Hans Jørgen Osnes
Aðalleikendur Anders Danielsen Lie,
Hans Olav Brenner, Ingrid Olava
Framleitt af Motlys AS
Lengd: 105 mínútur
[Svinalängorna]
SVÍNASTÍAN
EFNISKJARNI
Morgun einn rétt fyrir jól fær Leena (34) símtal frá sjúkrahúsi í bænum
sem hún ólst upp í. Henni er sagt að móðir hennar sé að deyja.
Fréttirnar verða til þess að unga konan fer til að hitta móður sína í
fyrsta sinn frá því hún var fullorðin. Leena hefur barist til að losna við
sorgina vegna glataðrar, myrkrar æsku sinnar. Hún neyðist nú til að
takast á við fortíðina til að halda lífinu áfram.
UM KVIKMYNDINA
Fyrsta myndin sem sænska verðlaunaleikkonan Pernilla August
leikstýrir. Myndin er byggð á metsölubókinni „Svinalängorna“ eftir
Susanna Alakoski. Í stað þess að segja söguna frá línulegu
sjónarhorni, æsku Leenu, bætti August við sjónarhorni Leenu sem
fullorðins einstaklings. Fyrir August fjallar myndin um að „ljúga að
sjálfum sér og fólki í kringum sig“. „Þetta er sagan sem ég vildi segja
um hvernig hægt er að ná niðurstöðu og hvernig hægt er að lifa lífinu
áfram þrátt fyrir fortíðina“, segir leikkonan sem nú er orðin leikstjóri.
August hafði séð Noomi Rapace leika Medea á sviði og réði hana
áður en hún varð fræg fyrir Millenium myndirnar.
Myndin var heimsfrumsýnd á gagnrýnendaviku í Feneyjum 2010 þar
sem hún hlaut Audience-Critics Week verðlaunin og
UNESCO-Hope verðlaunin. Myndin hefur síðan hlotið mörg önnur
eftirsótt verðlaun eins og NDR Best Feature Film í Lübeck and þrenn
Guldbagge verðlaun fyrir bestu leikstjórn, bestu leikkonu í
aukahlutverki (Outi Mäenpää frá Finnlandi) og bestu klippingu (Åsa
Mossberg).
Um 650.000 manns sáu myndina í Skandínavíu (nær 400.000 í
Svíþjóð) og var hún ein metsölumynda Nordisk Film í Skandínavíu
eftir Millenium-þríleikinn.
AÐSTANDENDUR
Frjálslega byggð á skáldsögunni „Svinalängorna“
eftir Susanna Alakoski
Leikstjóri Pernilla August
Handritshöfundar Pernilla August, Lolita Ray
Framleiðendur Helena Danielsson, Ralf Karlsson
Aðalleikendur Noomi Rapace,Ola Rapace,
Outi Mäenpää, Ville Virtanen,
Framleitt af Hepp Film, Drakfilm
Lengd: 94 mínútur
ÍSLAND NOREGUR SVÍÞJÓÐ