Fréttablaðið - 07.09.2011, Page 44
7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR32
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
Aðeins
1.900 kr.
ÁVAXTABAKKI
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
FERSKT & ÞÆGILEGT
urri þróun honum tekst að halda
dampi. JBK Ransu sýnir verk af
sama toga og sést hafa á síðustu
árum og hér sakna ég öflugra
framlags nýrra verka.
Arnar Herbertsson er forvitni-
legur listamaður og málverk hans
nokkuð sér á parti í íslenskri
myndlist. Ekki síðri eru grafík-
verk hans og teikningar sem sýn-
ingin kitlar forvitni áhorfandans
með og gaman hefði verið að sjá
meira af þeim. Samspil málar-
anna þriggja er að finna í vinnu-
brögðum og sjónrænum þáttum
verka en afstaða þeirra til mynd-
listar er ólík, hér hefur hver sína
skoðun. Arnar tengist einna helst
straumum og stefnum frá fyrri
hluta 20. aldar, Ransu hugmyn-
dalist og málverki síðari hluta
sömu aldar en Davíð Örn er af
kynslóð listamanna sem vinnur
út frá dægurmenningu frekar
en hinu stóra samhengi listasög-
unnar. List tveggja síðarnefndu
hefur verið kynnt rækilega á síð-
ustu árum bæði á einka- og sam-
sýningum og kemur því minna á
óvart en forvitni legur myndheim-
ur Arnars Herberts sonar.
Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Heildstæð sýning,
litrík og skemmtileg heim að sækja.
Myndheimur Arnars Herbertssonar er
forvitnilegur og allrar athygli verður.
Málverk Davíðs Arnar og JBK Ransu
vinna ágætlega með verkum Arnars
sem eru þungamiðja sýningarinnar.
32
menning@frettabladid.is
Bókmenntahátíð Reykjavíkur
verður sett í dag. Meðal þeirra sem
flytja ræðu við það tilefni er Nób-
elsverðlaunahafinn Herta Müll-
er, sem er meðal erlendra gesta
hátíðarinnar að þessu sinni. Herta
Müller sem hlaut Nóbelsverðlaun-
in fyrir tveimur árum hefur verið
lítt þekkt hér á landi enda hefur
til skamms tíma einungis ein bók
eftir hana verið til íslenskri þýð-
ingu, bókin Ennislokkur einvalds-
ins, Der Fuchs war damals schon
der Jäger á frummálinu, sem kom
út árið 1995.
Nú er hins vegar komin út bókin
Andarsláttur eða Atemschaukel í
þýðingu Bjarna Jónssonar. Sú bók
vakti mikla athygli þegar hún
kom út árið 2009. Í henni segir frá
afdrifum ungs manns sem í lok
heimsstyrjaldarinnar síðari er
sendur í vinnubúðir í Rússlandi.
Maðurinn tilheyrir, líkt og Herta,
hinum þýskumælandi minnihluta
í Rúmeníu og byggir sagan að ein-
hverju leyti á minningum skálds-
ins Oskars Pastior og móður
Hertu.
Herta Müller fæddist árið 1953
í borginni Nitzkydorf í Rúmeníu.
Fyrsta bók hennar, Nieder ungen,
kom út árið 1982. Sú bók var rit-
skoðuð af rúmenskum stjórn-
völdum. Herta flúði ásamt manni
sínum árið 1987 til Þýskalands,
þar sem hún hefur búið síðan. Verk
Hertu eru flest sögð frá sjónarhóli
þýska minnihlutans í Rúmeníu en
þess má geta að í rökstuðningi
sænsku akademíunnar árið 2009
sagði að Müller hefði dregið upp
mynd af landslagi hinna landlausu
með einbeitni ljóðsins og hrein-
skilni hins lausa máls. - sbt
Herta Müller á Bókmenntahátíð
HERTA MÜLLER Verðlaunabók hennar Atemschaukel er nýkomin út í íslenskri
þýðingu og ber heitið Andarsláttur. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
15.00 Setning Bókmenntahátíðar í Reykjavík í Norræna húsinu. Meðal
ræðumanna eru rithöfundarnir Herta Müller og Einar Kárason.
Norræna húsið.
17.00 „Ég stend á brennandi hrauni.“ Ljósmyndasýning um ævi frönsku
skáldkonunnar Irene Nemirovsky, sem lést í fangabúðum nasista í
Auschwitz í seinna stríði. Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
20.00 Upplestur. Kristof Magnusson, Ragna Sigurðardóttir, Sara Sridsberg,
Hallgrímur Helgason, Ingo Schulze. Iðnó.
BÓKMENNTAHÁTÍÐ
„Það er mikil eftirvænting og
spenna í loftinu, enda er okkar
fyrsta heila starfsár í Hörp-
unni að hefjast,“ segir Margrét
Ragnars dóttir, markaðs- og kynn-
ingarstjóri Sinfóníuhljómsveitar
Íslands.
Í kvöld fara fram aukatónleikar
upphafstónleika hljómsveitarinnar
fyrir starfsárið 2011 og 2012 í Eld-
borg í Hörpu. Með hljómsveitinni
koma fram þeir Vladimir Ashke-
nazy og Víkingur Heiðar píanó-
leikari en hann leikur einleik með
hljómsveitinni í þriðja píanókons-
erti Rachmaninoffs.
Ashkenazy er þar á heimavelli,
en sjálfur hefur hann hljóðritað
píanókonserta Rachmaninoffs í tví-
gang sem einleikari, undir stjórn
André Previn og Bernards Haitink.
Þriðji píanókonsert Rachman-
inoffs gerir miklar kröfur til ein-
leikarans. Bæði er hann óvenju-
langur auk þess sem hann þykir
sérlega flókinn.
Eftirvæntingar gætir augljós-
lega víðar en hjá starfsfólki
Sinfóníunnar. Margrét segir að
bæði hafi miðasala gengið vel og
sala á áskriftarkortum aukist um
fimmtíu prósent á milli ára.
Uppselt er á upphafstónleikana
sem fram fara á fimmtudags-
kvöldið. Margrét segir að búist sé
við fullu húsi gesta á tónleikana
í kvöld líka, þótt ekki sé upp-
selt. Báðir tónleikarnir fara fram
klukkan 19.30. - hhs
Eftirvænting hjá Sinfó
Á ÆFINGU Víkingur Heiðar og Vladimir
Ashkenazy koma fram með Sinfóníu-
hljómsveitinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Listasafn Árnesinga ★★★
Almynstur
Arnar Herbertsson, Davíð Örn
Halldórsson og JBK Ransu.
Sýningarstjóri Sigríður Melrós
Ólafsdóttir.
Til 11. desember. Til 30. sept.
er Listasafn Árnesinga opið alla
daga 12-18, en frá 1. okt. fim-sun.
12-18.
Sýning á verkum þriggja mál-
ara af ólíkum kynslóðum stend-
ur nú yfir í Listasafni Árnesinga
í Hveragerði. Arnar Herbertsson
er fæddur 1933, JBK Ransu 1967
og Davíð Örn tæpum áratug síðar
eða 1976. Yfir fjörutíu ár skilja því
að þann yngsta og elsta, en þessa
gætir þó varla á sýningunni. Sig-
ríður Melrós Ólafsdóttir, deildar-
stjóri sýningardeildar Listasafns
Íslands er sýningarstjóri í boði
Listasafns Árnesinga. Það hefur
reynst Listasafni Árnesinga vel
að fá sýningarstjóra utan frá og
eflt starfsemi þess.
Arnar Herbertsson hefur unnið
að list sinni um árabil, hann var
einn af SÚM hópnum og sýndi
nokkuð framan af ferli sínum
en síðan heldur minna. Ef til
vill hefur brauðstritið ráðið þar
mestu, þó erfitt sé að fullyrða
um slíkt. Eftir 1990 hafa verk
hans verið meira í sviðsljósinu en
Arnar málar enn af krafti. 2009
vakti einkasýning hans í StartArt
á Laugavegi verðskuldaða athygli.
Í skrifum um sýninguna þá komu
verk þeirra JBK Ransu og Dav-
íðs Arnar einmitt upp í hugann,
það er í sjálfu sér rakið að sýna
verk þessara þriggja listamanna
saman.
Heildarsvipur sýningarinnar
í Hveragerði er nokkuð sterkur,
sérstaklega kallast á verk þeirra
Arnars og Davíðs Arnar, í síbylju
myndflatarins þar sem nær þrá-
hyggjukennt er unnið með hvern
fersentimetra en um formræna
myndbyggingu er síður að ræða.
Miðað við nýjustu verkin hjá
Davíð Erni virðist hann í nokk-
Þrjár kynslóðir málara mætast
KONTRABASSINN Í FLUTNINGI ANDERS AHNFELT RØNNE Anders Ahnfelt Rønne flytur
sýningu sína Kontrabassann eftir Patrick Süskind í Norræna húsinu fimmtudaginn 8. september klukkan 20.
Verkið er á dagskrá í tengslum við Alþjóðlega bókmenntahátíð í Reykjavík og aðgangseyrir er 1.500 krónur.
SÝNINGIN ALMYNSTUR Málverk Arnars Herbertssonar þykja sér á parti í íslenskri
myndlist og myndheimur hans forvitnilegur.