Fréttablaðið - 07.09.2011, Page 51
MIÐVIKUDAGUR 7. september 2011 39
ATC- 7,5t
Malbikskassi
-tilboðsverð
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- á lager - sala
- varahlutir
- þjónusta
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
batt í gær enda á rúmlega þús-
und daga bið eftir sigri í mótsleik
er liðið bar sigurorð af Kýpur á
Laugardalsvelli, 1-0. Kolbeinn
Sigþórsson skoraði markið strax
á fjórðu mínútu.
Eftir líflegan stundarfjórð-
ung í upphafi leiksins var útlitið
ansi gott hjá Íslandi. En þá fóru
leikmenn hægt og rólega að gefa
eftir og gestirnir færðu sig upp
á skaftið. Áhorfendur vörpuðu
öndinni léttar þegar staðan var
enn óbreytt að loknum fyrri hálf-
leiknum.
Þó átti lítið eitt betra eftir að
taka við í þeim síðari. Kýp verjar
voru meira með boltann, sóttu
oftar og sköpuðu oftar hættu.
Það er fyrst og fremst Hannesi
Þór Halldórssyni, sem lék í gær
sinn fyrsta landsleik, að þakka
að boltinn fór ekki inn því hann
varði oft á köflum mjög vel og var
afar traustur. Dimitris Christofi
komst næst því að skora á 74.
mínútu þegar hann komst einn
inn fyrir íslensku vörnina gegn
Hannesi, sem varði stórglæsi-
lega.
Íslensku leikmennirnir sköp-
uðu helst hættu með hröðum
skyndisóknum og þó svo að þeir
hafi verið duglegir að koma bolt-
anum inn í teig lauk sóknunum
allt of sjaldan með þokkalegri
marktilraun.
Markið hans Kolbeins var þó
einkar glæsilegt. Hjörtur Logi
átti langa sendingu upp vinstri
kantinn á Jóhann Berg, sem náði
að koma boltanum fyrir markið.
Þar sýndi Kolbeinn mikil klókindi
og stýrði boltanum í markhornið
fjær.
„Þetta gerðu þeir mjög vel,“
sagði Ólafur Jóhannesson lands-
liðsþjálfari eftir leikinn. Hann
segir að leikmenn hafi verið
þreyttir eftir Noregsleikinn og
það hafi sést eftir því sem leið á
leikinn.
„Svo þegar menn komast
snemma yfir verða þeir tauga-
óstyrkir og vilja ekki tapa
forystunni – enda löngunin eftir
sigrinum mikil,“ sagði Ólafur.
Þrátt fyrir það beið hann með
sínar skiptingar þar til tæpar
tíu mínútur voru til leiksloka.
„Miðjumennirnir voru duglegir
og hlupu mikið. Vængmennirn-
ir voru líka fínir og þá voru þeir
Kolli og Eiður eftir. Þetta eru þó
leikmenn sem geta búið til ótrú-
legustu hluti og því ákvað ég að
bíða. Við vissum að það myndi
koma góð sókn hjá okkur þar sem
við þyrftum að taka skynsamlega
ákvörðun en það vantaði nokkuð
upp á það í kvöld.“
Einn varamannanna sem komu
inn á, Björn Bergmann Sigurðar-
son, fékk besta tækifæri Íslands
í síðari hálfleik er hann þrumaði
knettinum í utanverða stöngina
úr þröngu færi en sem betur fer
dugði mark Kolbeins til sigurs að
lokum.
Ólafur var ánægður með þá
leikmenn sem komu inn í byrj-
unarliðið í kvöld, en margir leik-
menn voru fjarverandi vegna
meiðsla eða af öðrum ástæðum.
„Okkur munar um alla góða fót-
boltamenn en við eigum þó ágæt-
an hóp af knattspyrnumönnum
sem flestir hafa kynnst því áður
að spila með landsliðinu. Þeir
renndu því ekki blint í sjóinn.“
Hann neitaði því ekki að mönn-
um væri létt. „Þú getur rétt
ímyndað þér – þetta er mikill
léttir. Það er alltaf besti kostur-
inn að vinna leikina og nú datt
það okkar megin. Þeir fengu auð-
vitað sín færi en Hannes stóð sig
frábærlega í markinu.“
Ólafur hættir sem landsliðs-
þjálfari að lokinni undankeppni
EM 2012 og stýrði sínum síð-
asta leik á Laugardalsvelli í gær.
Kveðjugjöfin var sigur en and-
rúmsloftið bar keim af slæmri
stöðu landsliðsins og þeir fáu
áhorfendur sem komu á völlinn
létu oftast lítið í sér heyra. En
Ólafur gaf lítið fyrir það. „Ég er
þakklátur fyrir þann stuðning
sem ég fékk.“
eirikur@frettabladid.is
ÞRJÚ STIG ÞEGIN MEÐ ÞÖKKUM
Ísland vann sinn fyrsta sigur í mótsleik í tæp þrjú ár er landsliðið vann nauman 1-0 sigur á Kýpur. Ólafur
Jóhannesson kvaddi því Laugardalsvöllinn með sigri þó svo að það hafi staðið ansi tæpt á löngum köflum.
KOLLI MEÐ SIGURMARKIÐ Kolbeinn Sigþórsson skoraði eina mark leiksins eftir
aðeins fjórar mínútur. Hér er hann umkringdur í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI