Fréttablaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 54
7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR42
„Þetta verða ég, Anna Svava
Knútsdóttir, Sævar Sigurgeirsson,
Baldvin Z, Hjálmar Hjálmars son
og Örn Úlfar Sævarsson,“ segir
Gunnar Björn Guðmundsson, leik-
stjóri Skaupsins.
Fyrsti fundur hópsins sem
stendur að baki Áramótaskaupinu
í ár var á mánudag en þetta verð-
ur í þriðja árið í röð sem Gunn-
ar heldur um stjórnartaumana
á þessum vinsælasta sjónvarps-
lið ársins. „Þessi hópur lítur vel
út á pappírnum og það var nóg af
hugmyndum á fyrsta fundi. Það
var allavega mikið stuð og mikil
stemning.“
Þau Anna Svava og Sævar Sigur-
geirsson hafa áður verið í Skaups-
hópnum en Baldvin Z og Örn
Úlfar eru nýgræðingar í hópnum.
„Gunnar hringdi í mig og bað mig
um að vera með. Ég gat ekki sagt
nei þótt ég glaður vildi því þetta er
jú bara þegnskylduvinna, að vinna
við Skaupið,“ segir Örn Úlfar í
samtali við Fréttablaðið. Hann
staðfestir jafnframt að hann eigi í
viðræðum við Ríkissjónvarpið um
áframhaldandi störf sem dómari
í Gettu betur. Því má með sanni
segja að störf hans muni liggja
frammi fyrir allra augum á þessu
ári. Og allir eiga eftir að hafa sína
skoðun á þeim.
„Ég lít bara á þetta sem áskor-
un og það er virkilega gaman að fá
svona tækifæri.“ Örn hræðist ekki
reynsluleysið í handritaskrifum,
hann hafi unnið á auglýsingastofu
þar sem skrif voru stór hluti af
daglegum störfum. „Og svo treyst-
ir maður líka á þessa snillinga sem
eru í hópnum og hafa verið að gera
bíómyndir og Skaup.“
Örn gerir sér hins vegar fylli-
lega grein fyrir því að sjálft gaml-
árskvöld sé ónýtt og jafnvel næstu
dagar á eftir. „Sama hvernig fer
þá verða alltaf einhverjir sem
verða ekki sáttir. Ég á hins vegar
nokkra vini í pólitík og það verð-
ur gaman að berja á þeim, þeir fá
allavega ekki neina sérmeðferð.“
Örn ætlar að leita til heldur
óvenjulegs sérfræðings þegar
kemur að því fá ábendingar um
hvað mætti betur fara í Skaup-
inu. „Afi minn hefur aldrei þolað
Skaupið og blótar því alltaf í sand
og ösku þannig að ég ætti að geta
fengið góða punkta frá honum.“
freyrgigja@frettabladid.is
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Ég leyfi útvarpsmönnum lands-
ins að velja ofan í mig tónlist-
ina; það er Morgunstund KK á
Rás 1 og Virkir morgnar á Rás 2
fyrir hádegi og Xið eftir hádegi.
Annars er Brother Grass að gera
góða hluti og Tom Waits klikkar
aldrei.“
Bergrún Íris Sævarsdóttir, teiknari og
þáttastjórnandi.
„Þetta er tiltölulega nýskeð, stofnfundurinn var í
ágúst,“ segir Eyrún Ellý Valsdóttir, íslenskufræðing-
ur og formaður fyrsta íslenska opinbera Eurovision-
aðdáendaklúbbsins, FÁSES. Klúbburinn verður hluti
af OGAE sem eru stærstu samtök aðdáenda Euro-
vision í heiminum.
Eyrún Ellý ásamt fimm öðrum stofnuðu klúbbinn
til að gera íslenskum Eurovision-aðdáendum kleift að
vera í sambandi við aðra Eurovision-aðdáendur, hafa
gott aðgengi að miðum á keppnina og geta fylgst með
hvað aðrir Eurovision-aðdáendur eru að hugsa og spá.
„Og styðja við bakið á RÚV þegar undankeppnin byrj-
ar, að skapa smá stemningu fyrir henni. Það hefur oft
verið mjög stór þáttur í starfi erlendu aðdáendaklúbb-
anna að ná upp stemningu í kringum landskeppnirn-
ar.“ Undirbúningur fyrir formlegan kynningarfund
stendur nú yfir en Eyrún segist gera ráð fyrir því að
hann verði í lok þessa mánaðar á skemmtistaðnum
Barböru. Hún bætir því jafnframt við að klúbbur-
inn setji að sjálfsögðu stefnuna á að fara til Bakú í
Aserbaídsjan þar sem keppnin verður næst.
Eyrún hefur alltaf haft mikinn áhuga á keppninni
og var með Eurovision-blogg ásamt vinkonu sinni,
Hildi Tryggvadóttur. Hún fór jafnframt á keppnina í
Osló og þar sagðist hún einmitt hafa fyrst orðið þess
vör hversu mikilvægt það er fyrir sanna Eurovision-
aðdáendur að vera í opinberum klúbbi. „Ef maður
er ekki með svona félagsskírteini er maður hálf-
útilokaður en um leið og þú færð passann opnast þér
næstum allar dyr,“ útskýrir Eyrún. - fgg
Stefnan verður sett á Baku
SAMAN Eyrún Ellý (t.h) ásamt vinkonu sinni Hildi Tryggva-
dóttur, en þær eru meðal stofnenda fyrsta íslenska Eurovision-
aðdáendaklúbbsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Það er bara kominn tími á nýjan tapas-
stað í Reykjavík,“ segir Lárus Gunnar
Jóhannsson matreiðslumeistari.
Lárus er að fara að opna nýjan tapas-
stað, Tapashúsið, niðri við gömlu höfn-
ina í Reykjavík. Lárus hefur í félagi við
Guðmund Hansson framreiðslumeistara
rekið Fiskfélagið við Vesturgötu sem
notið hefur töluverðra vinsælda.
Tapashúsið verður í Sólfellshúsi sem
var á Kirkjusandi frá árinu 1921 en
var flutt á Ægisgarð í byrjun þessa árs.
Svo skemmtilega vill til að í húsinu var
á sínum tíma rekin saltfiskvinnsla en
Spánverjar voru allra stærstu kaupend-
ur framleiðslunnar. Þannig að Spánar-
tengslin voru svo sannarlega til staðar
fyrir. „Minjavernd á húsið og þeir taka
það allt í gegn. Svo leigjum við það og
útvegum alla innanstokksmuni og bar-
inn,“ segir Lárus en tvö eldhús verða á
staðnum, eitt uppi og annað niðri.
Veitingastaðurinn verður fremur stór,
hann á eftir að geta tekið 130 til 140
manns í sæti. Lárus lofar því að matur-
inn verði á viðráðanlegu verði. „Þetta
verður svona spænsk-íslenskur staður,
við erum til að mynda að láta flytja inn
fyrir okkur spænskar skinkur en verð-
um líka með hangikjöt í svipuðum stíl,“
segir Lárus sem stefnir á að vera búinn
að opna áður en RIFF, alþjóðlega kvik-
myndahátíðin í Reykjavík, hefst síðar í
mánuðinum. - fgg
Flytja inn spænskar skinkur
NÝR TAPAS-STAÐUR Lárus Gunnar er að fara að opna nýjan
tapas-stað við gömlu höfnina í Reykjavík í svokölluðu Sólfellshúsi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÖRN ÚLFAR SÆVARSSON: AFI HEFUR ALDREI ÞOLAÐ SKAUPIÐ
ÞEGNSKYLDUVINNA AÐ
SKRIFA ÁRAMÓTASKAUPIÐ
HLAKKAR TIL AÐ BERJA
Á VINUM SÍNUM
Örn Úlfar Sævarsson er í nýjum
Skaupshópi sem hefur þegar tekið
til starfa. Hann hlakkar mest til að
berja á vinum sínum í pólitík og lofar
því að þeir fái enga sérmeðferð.
Baldvin Z er einnig nýgræðingur í
hópnum en hann leikstýrði síðast
Óróa sem naut töluverðra vinsælda.
Sævar Sigurgeirsson og Anna Svava
Knútsdóttir verða á sínum stað og þá
verður Hjálmar Hjálmarsson einnig
hluti af liðinu. Þetta verður þriðja
árið í röð sem Gunnar Björn leikstýrir
Skaupinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
TVEGGJA TÍMA
HLÁTURSKAST...
MEÐ HLÉI
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
„Mjög vel heppnaður farsi, hraður
og ótrúlega fyndinn“ – IÞ, Mbl
GRÍMAN 2011:
Áhorfenda-
sýning ársins
Sala áskrift
arkorta
í fullum gangi
– vertu með í vet
ur
SÝNINGAR H
EFJAST 9. SE
PT.
Sendu SMS
á 0 kr. í dag!
Gildir
einu
ngi
s f
yri
r s
m
s s
en
di
ng
ar
í
ís
le
ns
ka
g
sm
s
ím
a
Ef þú ert með GSM hjá
Símanum sendir þú SMS
á 0 kr. á miðvikudögum
í september.
Magnaður miðvikudagur!