Fréttablaðið - 23.09.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.09.2011, Blaðsíða 4
23. september 2011 FÖSTUDAGUR4 SAMGÖNGUR Ríkisstjórnin hefur skuldbundið sig til að setja einn milljarð króna árlega í almenn- ingssamgöngur á höfuðborgar- svæðinu. Litið er á verkefnið sem kjarabót, þar sem samgöngur eru nú næststærsti útgjaldaliður heim- ila, næst á eftir húsnæði og hærri en matarinnkaup. Ráðherrar innanríkis- og fjár- mála undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis í gær, ásamt fulltrú- um Vegagerðarinnar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu. Við taka samningar um málið á grundvelli samkomulagsins. Yfirlýsingin hefur fengið grænt ljós hjá öllum borgar- og bæjar- ráðum sveitarfélaganna. Þau hafa jafnframt skuldbundið sig til að skerða ekki framlag sitt til Strætó bs. á tímabilinu, en það nemur í ár rúmum 2,5 milljörðum. Ögmundur Jónasson innanrík- isráðherra segir samkomulagið marka tímamót og þarna birtist ásetningur ríkisstjórnarinnar um að horfast í augu við kall tímans og efla almenningssamgöngur. „Nú er komið að hinum, sem hafa gagnrýnt það á undanförnum árum að það hafi ekki verið gert nóg í þágu almenningssamgangna. Það er margt sem styrkir okkur í þess- ari afstöðu. Þetta er jafnréttismál, því fólk mun þurfa að reiða sig á almenningssamgöngur í auknum mæli. Eldsneyti er dýrt og bílar eru dýrir og samgöngur eru nú í öðru sæti í útgjöldum heimila.“ Dagur B. Eggertsson, formað- ur borgarráðs, tekur undir að um mikil tímamót sé að ræða. „Þarna er um verulegar fjárhæðir að ræða sem skipta miklu máli við að bæta þjónustu við farþega,“ segir Dagur. Hann segir fjármagnið fyrst og fremst munu nýtast við að þétta netið á stofnæðum. Mark- miðið sé að farþegar þurfi ekki að kunna tímatöfluna heldur geti treyst á örugga, góða og hraða þjónustu. Dagur vonast til þess að viðræð- ur um framkvæmdir á grundvelli viljayfirlýsingarinnar fari af stað sem fyrst, helst strax. Ásgerður Halldórsdóttir, for- maður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og bæjar- stjóri á Seltjarnarnesi, segir mikil tækifæri fólgin í yfirlýsing- unni. „Við hlökkum til að vinna að þessu verkefni með Vegagerðinni. Nú eigum við eftir að leggjast yfir forgangsröðun verkefna.“ Verkefnið lýtur ekki einungis að eflingu strætisvagnakerfisins, aðrir valkostir verða einnig efldir svo sem hjólreiðar. kolbeinn@frettabladid.is Tíu milljarðar settir í almenningssamgöngur Ríkisstjórnin setur milljarð á ári næstu tíu árin í almenningssamgöngur á höfuð- borgarsvæðinu. Sveitarfélögin á svæðinu hafa skuldbundið sig til að skerða ekki framlög sín til strætó. Samgöngur næststærsti útgjaldaliður heimila. STRÆTÓ Fjármagn frá ríkisstjórninni mun nýtast við að þétta stofnæðar Strætó, segir formaður borgarráðs. Meðal annars verði skoðað að koma á fót fleiri forgangs- akreinum fyrir strætó. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL Ritstjórar og fréttastjóri DV voru í gær sýknaðir í meið- yrðamáli sem fjárfestirinn Heiðar Már Guðjónsson höfðaði á hendur þeim. Í umfjöllun DV var Heiðar Már sagður hafa skipulagt árás á íslensku krónuna árið 2007 ásamt alþjóðlegum vogunarsjóðum. Hann taldi umfjöllunina, og leiðara ann- ars ritstjóra DV, hafa skaðað sig persónulega og valdið sér tjóni í viðskiptum. Dómurinn telur að þótt blaða- maður hafi hugsanlega lagt rangt mat á heimildir hafi það ekki verið gert í vondri trú, og enn fremur að ósmekklegt orðalag í leiðara blaðs- ins teljist ekki refsivert. Þeir eru því sýknaðir og fjögurra milljóna bótakröfu Heiðars hafnað. Heiðar sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann segir niður- stöðuna rýra kröfur um ábyrga fjölmiðlaumfjöllun og draga úr æruvernd borgaranna. Hann geti ekki unað dómnum og muni áfrýja honum til Hæstaréttar. - sh Fær ekki fjórar milljónir: DV sýknað í máli Heiðars BELGÍA, AP Innanríkisráðherrar ESB náðu ekki samkomulagi á fundi sínum í gær um að taka Rúmeníu og Búlgaríu inn á landa- mæralausa Schengen-svæðið. Ráðherrar Hollands og Finn- lands segja að bæði lönd þurfi að gera meira til að uppræta spillingu og skipulagða glæpastarfsemi. - gb Landamæraleysi takmarkað: Rúmeníu og Búlgaríu neitað DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað- fest dóm Héraðsdóms Reykja- víkur yfir manni sem sakfelldur var fyrir að ráðast á annan mann með slökkvitæki. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í átta mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði á skilorði. Maðurinn var dæmdur fyrir að berja annan mann þrisvar sinnum í andlitið með slökkvi- tæki. Hann og fleiri töldu sig eiga sökótt við fórnarlambið vegna innheimtutilrauna, húsbrots og hótana. Mennirnir fóru því á fund hans vopnaðir þungri sleggju, golfkylfu og slökkvitæki, sem ofbeldismaðurinn beitti við árás- ina. Hæstiréttur dæmdi hann til að greiða fórnarlambinu 250 þús- und krónur í miskabætur. - jss Hæstiréttur staðfestir dóm: Sló mann með slökkvitæki HEILBRIGÐISMÁL Geir Gunnlaugs- son landlæknir segir mál Árna Richardssonar verkfræðings, sem í aðsendri grein í Frétta- blaðinu sagði landlæknis- embættið halda hlífiskildi yfir læknum sem gera mistök, enn til skoðun- ar hjá embætt- inu. „Auðvitað tökum við allar ábendingar alvarlega. Við reynum að taka á málum með hlutleysi og skoðum þau ítarlega. Þetta einstaka mál er enn til skoðunar hjá embætt- inu. Mál eru oft flókin. Við getum hins vegar ekki tjáð okkur um einstök efnisatriði í þessu máli að svo stöddu,“ segir Geir. - ibs Landlæknir svarar gagnrýni: Máli sjúklings- ins ekki lokið GEIR GUNNLAUGSSON Nú er komið að hinum, sem hafa gagnrýnt það á undanförnum árum að það hafi ekki verið gert nóg í þágu almennings- samgangna. ÖGMUNDUR JÓNASSON INNANRÍKISRÁÐHERRA VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 26° 21° 15° 15° 19° 20° 15° 15° 26° 19° 28° 23° 31° 15° 21° 22° 14° Á MORGUN 8-15 m/s. SUNNUDAGUR Sunnan 5-10 m/s. 6 7 7 7 8 8 4 10 10 10 10 4 4 3 3 5 2 7 7 13 5 3 8 11 7 13 10 9 10 10 8 12 BLAUT HELGI Heilt á litið verður lítið spennandi veður um helgina. Það má búast við dágóðri vætu og vindi um tíma í fl estum lands- hlutum. Hins vegur verður þokkalegra á sunnudag en þá lítur úr fyrir fremur hæga sunnanátt og skúrir. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður Í frétt blaðsins í gær um Þorláksbúð við Skálholtskirkju var farið rangt með nöfn Áslaugar G. Harðardóttur og Sigurbjörns Einarssonar biskups. Beðist er afsökunar á þessum leiðu mistökum. LEIÐRÉTTING Frá aðeins kr. 167.900 - með öllu inniföldu - Frábært tilboð - Allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum í 10 nátta ferð til Marmaris í Tyrklandi þann 9. október. Í boði er m.a. frábært sértilboð á Hotel Elegance ***** með öllu inniföldu á ótrúlegum kjörum. Einnig önnur mjög góð gisting á sérstökum sérkjörum. Tyrkland 9. október í 10 nætur Elegance 5 stjörnu hótel Kr. 167.900 – 10 nætur með öllu inniföldu Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2 – 11 ára, í herbergi á Hotel Elegance ***** í 10 nætur með öllu inniföldu. Verð í tvíbýli kr. 179.700 á mann. GENGIÐ 22.09.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 214,8818 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 118,38 118,94 182,49 183,37 159,06 159,96 21,362 21,486 20,367 20,487 17,183 17,283 1,5503 1,5593 184,35 185,45 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is BÆKUR Íslensk listasaga er loks aðgengileg með útgáfu fimm binda yfirlitsverks sem meðal annars mun auðvelda kennslu í skólum á viðfangsefninu. Þetta kom fram í máli útgefanda verksins, Jóhanns Páls Valdimarssonar, og ritstjóra þess, Ólafs Kvaran, á blaðamanna- fundi í gær. Þeir vonast til þess að í kjölfar útgáfunnar verði til kennsluefni um íslenska listasögu og yfirlitsrit fyrir erlendan mark- að. Sagt er frá um 400 listamönnum í máli og yfir 1.000 myndum í verk- inu, sem hefur verið í smíðum frá árinu 2007. Fjórtán höfundar skrif- uðu ritið. Markmiðið var að gefa út aðgengilegt verk en slá ekki af fræðilegum kröfum. Ólafur Kvaran sagði að fimmta bindið, sem grein- ir frá tímabilinu 1980 til 2000, hefði ákveðna sérstöðu. Viðfangsefnið væri það nálægt í tíma að söguleg fjarlægð hefði ekki myndast á verk listamannanna, hægast væri að líta á það sem dæmi um viðhorf í list- inni frekar en heildarmynd af tíma- bilinu. Verkið er prentað í 3.000 eintök- um og mun kosta um 50.000 krónur. Það er gefið út í samstarfi Forlags- ins og Listasafns Íslands. - sbt Fimm binda yfirlitsverk um íslenska listasögu er loksins komið út eftir fjögurra ára vinnu: Vonast eftir aukinni umfjöllun um íslenska list STOLTIR Halldór Björn Runólfsson, forstöðumaður Listasafns Íslands, Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi Forlagsins, og Ólafur Kvaran, ritstjóri Íslenskrar listasögu, kynntu verkið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.