Fréttablaðið - 23.09.2011, Blaðsíða 22
23. september 2011 FÖSTUDAGUR2
Nú er tækifæri fyrir bakara
Kaka.is til sölu
Stór myndaprentari prentar á marzipan
Myndasafn
Heimasíða með sölukerfi og lén kaka.is
Hentar vel sem kvöld og helgarvinna
Verðtilboð
Tilboð sendist á soh@simnet.is
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18.
Opið á laugardögum 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ
Þessi og ýmsir aðrir í 90 D skál á kr.
2.000,- stakar buxur á kr. 1.000,-
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó,
Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,
Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
„Þetta verk fjallar um kristni-
tökuna á Íslandi út frá sjónarhóli
heiðingjanna,“ segir Þór Tulinius
leikari um einleikinn Blótgoða –
uppistand um heiðingja, sem hann
skrifaði og leikur. Einleikurinn
verður frumsýndur í Landnáms-
setrinu í Borgarnesi annað kvöld,
klukkan 20. „Það var upphaflega
lagt í þessa för til að reyna að
varpa ljósi á hugarheim heiðingja
fyrir og í kringum kristnitöku. Það
er nefnilega frekar óljóst hvernig
þeir tóku þessari breytingu, og því
oft haldið fram að kristnitakan hér
hafi gengið fyrir sig án blóðsúthell-
inga vegna þess að fólk hafi verið
hálf trúlaust hvort eð var. Á þessu
ferðalagi mínu um hugarheim heið-
inna manna kemst ég hins vegar að
þeirri niðurstöðu að þeir hafi raun-
ar verið mjög trúaðir,“ segir Þór.
„Heiðnin var alveg sprelllifandi og
er lifandi enn í dag.“
Leikstjórinn, Peter Engkvist,
hefur sett upp margar sýningar
hérlendis, meðal annars einleik-
inn Mr. Skallagrímsson sem naut
fádæma vinsælda. „Hann er frá-
bær leikstjóri,“ segir Þór. „Okkar
samstarf hefur gengið mjög vel og
verið skemmtilegt.“
Þrjú ár eru síðan Þór sást síðast
á sviði en hann hefur þó ekki setið
auðum höndum þessi ár. „Ég setti
upp sýningu hjá Riksteatern í Sví-
þjóð, var að setja upp úti á landi
hér á Íslandi, að skrifa þetta verk
og fleira, þannig að það var nóg að
gera,“ segir hann og hlær. Og hlær
enn meira þegar hann er spurður
hvernig tilfinning það sé að standa
á sviði aftur.
„Hún er ágæt, en mér finnst
þetta nú engin stór hvörf á mínum
ferli. Þetta er samt aðeins öðruvísi
og óskaplega skemmtileg upplifun.“
fridrikabfrettabladid.is
Kristnitakan skoðuð frá
sjónarhóli heiðingjanna
Þór Tulinius verður á sviðinu á Sögulofti Landnámsseturs annað kvöld með frumsýningu á eigin einleik
sem nefnist Blótgoðar – uppistand um heiðingja. Leikstjóri er Peter Engkvist og hefst sýningin kl. 20.
„Heiðnin var alveg sprellifandi og er lifandi enn í dag,“ segir Þór Tulinius sem frumsýnir einleikinn Blótgoða – uppistand um
heiðingja í Landnámssetrinu í Borgarnesi annað kvöld.
Hönnunarsagnfræðingurinn Elísabet V. Ingvarsdóttir mun ganga um sýningu
Hönnunarsafnsins á Hlutunum okkar með safngestum á sunnudaginn klukkan 14.
Á sýningunni hefur verið lögð áhersla á að sýna íslensk húsgögn frá ólíkum tíma-
bilum síðustu aldar og grafískar hönnun, íslenska leirlist og nýlega vöruhönnun.
Um helgar er hress-
andi að fara með
fjölskyldunni í
sund. Þá getur
verið gaman
að prófa eitt-
hvað nýtt. Á
vefsíðunni www.
sundlaugar.is er hægt
að skoða úrvalið af
öllum sundstöðum á
landinu.
www.sund-
laugar.is
Á sunnudaginn klukk-
an 15 mun sýningar-
stjórinn Birta Guð-
jónsdóttir leiða gesti
um nýlega opnaða
sýningu Hafnarhúss-
ins, Hraðari og hægari
línur. Með henni í för
verður listaverkasafn-
arinn og eigandi verk-
anna á sýningunni,
Pétur Arason.
Á sýningunni, sem
dregur nafn sitt af
samnefndu verki Krist-
jáns Guðmundssonar,
er gaumur gefinn að
hinu víðfeðma fyrir-
bæri teikningarinnar
í gegnum valin tví-
og þrívíð verk eftir
um sjötíu og fimm
íslenska og erlenda
myndlistarmenn.
www.listasafn-
reykjavikur.is
Ný fjölmiðlakönnun Capacent Gallup
staðfestir vinsældir Fréttablaðsins.
Rúmlega 72% íbúa höfuðborgarsvæðisins
á aldrinum 18-49 lesa að meðaltali hvert
tölublað Fréttablaðsins - nær þrefalt fleiri
en lesa næsta dagblað þar á eftir.
Fólkið í
landinu les
Fréttablaðið
Allt sem þú þarft...
Prentmiðlakönnun Capacent Gallup.
Apríl til júní 2011, meðallestur á tölublað.