Fréttablaðið - 23.09.2011, Blaðsíða 62
23. september 2011 FÖSTUDAGUR38
krakkar@frettabladid.is
Krakkasíðan er
í helgarblaði Fréttablaðsins
Viðtal við Hafdísi og Klemma
úr Sunnudagaskólanum.
„Einu sinni þegar ég var að
fara til útlanda tók ég
stóran kíki með mér í flugvél
og reyndi að sjá Guð út um
gluggann, en ég sá
hann ekki!“
UM ÞAÐ BIL 6.000 BÖRN
GLÍMA VIÐ ADHD Á ÍSLANDI
SELUR ADHD ENDURSKINSMERKIN
VITUNDARVIKA 18. - 25. SEPTEMBER
ja takkATHYGLI
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Don‘t Stop Me Now með Queen.
Bara af því að það er búið að
vera föstudagslagið mitt frá upp-
hafi vega og Queen er best.“
Eygló Scheving, söngkona hljómsveitar-
innar Vicky.
Spurningabomba Loga Berg-
manns hefst í kvöld á Stöð 2 en
þá etja þau Ilmur Kristjánsdóttir
og Þorsteinn Guðmundsson kappi
við tvíeykið fræga Jóhannes Hauk
Jóhannesson, úr sjónvarpsþáttun-
um Hjá Marteini, og Guðjón Davíð
Karlsson úr Hringekjunni,
en þeir mynduðu
eitt sinn saman
dúettinn Jóa og
Góa. Jóhannes og
Guðjón Davíð eru
annálaðir keppnis-
menn, en eins og
frægt er orðið
þá veðjuðu
þeir kassa af
bjór um hvor
þeirra myndi
birtast fyrr
í Áramóta-
skaupi.
Það verður margvíslegt sprellað í
þáttunum og keppnin verður tekin
hæfilega alvarlega. Meðal þeirra
nýjunga sem verður bryddað upp á
er túlkun Rúnars Freys Gíslasonar
á þekktum dægurlögum. Rúnar
mun þá leika nákvæmlega eftir
texta lagsins og eiga kepp-
endur að giska á hvert
lagið er. Logi hefur
sjálfur lofað því að
spurningar þáttarins
verði í „bleikari“
kantinum. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Laugardagurinn 3. desember verð-
ur jólatónleikadagurinn mikli á
höfuðborgarsvæðinu. Í Háskóla-
bíói stíga sprelligosarnir síkátu
í Baggalúti á svið á sínum árlegu
aðventutónleikum en í Laugardals-
höll verður öllu meira umstang; þar
býður Björgvin Halldórsson lands-
menn velkomna á Jólagesti sína,
en meðal þeirra eru Paul Potts og
Robin Gibb. Í Hörpunni þetta sama
kvöld hefst síðan Frostrósamara-
þonið mikla þegar fyrstu tónleik-
arnir af átta fara fram.
Ísleifur B. Þórhallsson, sem
hefur veg og vanda af jólatónleik-
um Björgvins, segir að það hafi
komið sér í opna skjöldu þegar
hann frétti af því að Frostrósir
yrðu þetta sama kvöld. „Við höfum
alltaf verið fyrstu helgina í des-
ember,“ segir Ísleifur. Jólagest-
irnir hafa notið mikilla vinsælda
og hefur yfirleitt selst upp á þá á
ansi skömmum tíma. Ísleifur segir
viðbúið að þeir bæti við aukatón-
leikum sunnudaginn 4. desember,
sem rækjust þá einnig á við Frost-
rósatónleikana. Töluvert er í húfi
að allt gangi eins og í sögu því eins
og Fréttablaðið greindi frá í fyrra
voru miðar á Jólagesti og Frostrós-
ir keyptir fyrir tæpar 300 milljónir
íslenskra króna. Ísleifur hefur þó
engar áhyggjur og er rólegur yfir
þessu, þeir séu búnir að fá til liðs
við sig alla þá listamenn og starfs-
fólk sem þeir þurfi. „En mér finnst
þetta lélegt.“
Samúel Kristjánsson, skipu-
leggjandi Frostrósa, telur þennan
árekstur ekki eiga eftir að koma að
sök. „Við verðum með tónleikana
okkar í þrjá daga þannig að fólk
á alveg að geta skipulagt sig og
mætt á báða tónleikana.“ Samú-
ÍSLEIFUR B. ÞÓRHALLSSON: ÞETTA KOM MÉR Í OPNA SKJÖLDU
Slegist um að koma lands-
mönnum í jólaskapið í ár
Svissneska dreifingarfyrirtækið Frenetic
Films hefur fest kaup á dreifingarréttinum
að íslensku kvikmyndinni Svartur á leik eftir
Óskar Þór Axelsson. Myndin hefur nú þegar
verið seld til allra Norðurlandaríkjanna og
Bretlands en þar keypti Entertainment One
dreifingarréttinn. TrustNordisk sér um söluna
á myndinni og hefur fjöldi annarra dreifingar-
aðila sýnt henni mikla athygli. Myndin byggir á
samnefndri sögu Stefáns Mána og segir frá því
þegar undirheimar Reykjavíkur tóku stórstíg-
um breytingum í byrjun aldarinnar.
Þórir Snær Sigurjónsson, einn af framleið-
endum myndarinnar, segir þetta vera mjög
fínan árangur, viðkomandi fyrirtæki borgi vel,
en hann var hins vegar ekki reiðubúinn til að
gefa upp hversu há fjárhæðin væri. „En þetta
er líka merkilegt í ljósi þess að það eina sem
þeir hafa séð er þriggja mínútna langur kynn-
ingarbútur. Sem hefur reyndar mælst mjög vel
fyrir,“ útskýrir Þórir. Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins þykir stiklan allsvakaleg og gefa
til kynna mikið ofbeldi, sem raunar er daglegt
brauð í glæpaheimum Íslands.
Þá viðurkennir Þórir að það skemmi ekk-
ert fyrir að í framleiðandateyminu séu Chris
Briggs, sem hefur meðal annars framleitt
Hostel og Poseidon, og hinn danski Nicolas
Winding Refn. „Nöfn þeirra hjálpa náttúrulega
til, enda Refn sjóðheitur um þessar mundir
eftir velgengni Drive,“ segir Þórir. Með aðal-
hlutverk í Svartur á leik fara þeir Þorvald-
ur Davíð Kristjánsson, Jóhannes Haukur
Jóhannesson og Egill Einarsson. Frumsýn-
ing á Íslandi verður snemma árs 2012.
- fgg
Svartur á leik seld til Sviss
TIL BRETLANDS OG SVISS Svartur
á leik hefur nú þegar verið seld
til Bretlands og Sviss auk allra
Norðurlandaríkjanna. Þórir
Snær segir þetta góðan
árangur í ljósi þess að
viðkomandi aðilar hafi ein-
göngu séð þriggja mínútna
kynningarbút. Þorvaldur
Davíð leikur Stebba sækó
í myndinni.
el segir að tónleikarnir hafi verið
færðir yfir á þessa helgi sökum
þess að þetta hafi verið einu dag-
arnir þar sem þeir hefðu aðgang að
húsinu í nokkra daga fyrir æfing-
ar og undirbúning. „Tíundi des-
ember var líka eina helgin sem
Sissel Kyrkjebø gat komið, þannig
að svona gekk þetta upp.“ Hann er
hins vegar efins um að tónleika-
haldarar eigi eftir að gjalda fyrir
þetta. „Það hefur ekki verið mikill
leki á gestum á milli þessara tón-
leika og það eru kannski fimm til
tíu prósent sem þurfa að velja.“
freyrgigja@frettabladid.is
JÓLATÓNLEIKADAGURINN
Laugardagurinn 3. desember verður jóla-
tónleikadagurinn mikli. Í Laugardalshöll
býður Björgvin Halldórsson áheyrendur
velkomna á Jólagesti, en meðal þeirra eru
Robin Gibb og Paul Potts, og í Háskóla-
bíói stíga Baggalútsmenn á svið og
syngja. Í Hörpunni hefst hins
vegar mikið Frostrósamara-
þon þegar blásið verður til
leiks á fyrstu tónleikunum
af átta.
„Þetta er búið að ganga vel og ég man ekki einu
sinni hvað ég var á mörgum sýningum,“ segir
Brynja Jónbjarnardóttir fyrirsæta en hún var að
vinna á nýafstaðinni tískuviku í London.
Brynja er 17 ára gömul og flutti út til Lond-
on fyrir tíu dögum en hún hyggst láta reyna á
fyrirsætu starfið næsta árið. Hún sýndi meðal ann-
ars sumartískuna fyrir hönnuðina Danielle Scutt
og Roks öndu Ilincic, en síðarnefnda sýningin var
hennar uppáhalds. „Það var rosalega flott sýning
í gömlum kastala og falleg píanótónlist var spil-
uð undir. Á meðan ég stóð baksviðs og beið eftir
að sýningin byrjaði rakst ég á Önnu Wintour. Það
var skemmtilegt að sjá hana í eigin persónu,“ segir
Brynja en Wintour er áhrifamikil í tískuheiminum
enda ritstjóri hins bandaríska Vogue.
Þegar Fréttablaðið náði tali af Brynju var hún
að vinna að verkefni fyrir fatahönnuðinn Tom
Ford. Ford er mjög virt nafn í tískuheiminum en
hann var yfirhönnuður bæði Gucci og YSL tísku-
húsanna. Brynja var ráðin, ásamt tveimur öðrum
fyrirsætum, til að sýna sumarlínu Ford næstu þrjár
vikurnar en mikil leynd hvílir yfir fatnaðinum frá
Ford í ár. „Ég er bæði að sitja fyrir í myndatökum
og svo á lokuðum tískusýningum fyrir útvalda inn
á milli. Þetta er hörkuvinna frá 8 til 19 alla daga en
skemmtilegt og mjög falleg föt, meira má ég ekki
segja.“
Foreldrar Brynju styðja hana í vinnu sinni en hún
Rakst á Önnu Wintour
FLOTT Á TÍSKUPALLLINUM Brynja gekk meðal annars eftir
tískupallinum fyrir hönnuðina Roksöndu Ilincic og Danielle
Scutt og tók sig vel út. NORDICPHOTOS/GETTY
stundar fjarnám við Fjölbrautaskólann við Ármúla
samhliða fyrirsætustarfinu. „Þau sakna mín mikið
og ég þeirra en þau ætla að heimsækja mig sem
fyrst,“ segir Brynja. Hún er mikið á flakkinu og
heldur beint til New York þegar törninni í London
lýkur.
„Ég hef gaman af að ferðast og á meðan mér
gengur vel held ég áfram.“ - áp