Fréttablaðið - 23.09.2011, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 23.09.2011, Blaðsíða 54
23. september 2011 FÖSTUDAGUR30 folk@frettabladid.is Mike Mills úr R.E.M. kom til Íslands með konu sinni í ágúst og söng með Bítladrengjunum blíðu á skemmtistaðnum Ob-la-di Ob- la-da við Frakkastíg. „Við máttum ekki kynna hann sem bassaleikarann í R.E.M. Hann var bara Mike Mills frá Aþenu í Georgíu,“ segir Tómas M. Tómasson, Stuðmaður og meðlimur Bítladrengjanna blíðu. „Ég rétti honum bassann en hann vildi ekki spila og sagði: „Þú kannt þetta miklu betur en ég“. Mills söng með þeim nokkur lög, þar á meðal Back in the USSR og Revolution. „Þetta var einkar geðugur náungi. Hann var að koma úr ferðalagi um Austur-Evrópu og var á leiðinni heim. Hann var mjög hrifinn af bandinu okkar og konan hans sem er tónlistar- gagnrýnandi var líka hrifin af okkur,“ segir Tómas. Þau skildu eftir sig netfang og sendu Bítla- drengirnir þeim kveðju í kjölfar- ið. „Við eigum eftir að senda þeim myndir og dót og gerum það við tækifæri.“ Tómas og félagar spila á Obladí- Oblada á hverju þriðjudagskvöldi og segir hann Mills alltaf velkom- ið að stíga með þeim upp á svið. Spurður hvað honum finnist um endalok R.E.M. segir hann: „Þetta tekur allt sinn enda. Ég vona bara að þeir hafi hætt í sátt og samlyndi.“ Mills alltaf velkominn SPILAÐI MEÐ MILLS Tómas M. Tómas- son spilaði með Mike Mills á tónleikum á Obladi Oblada í ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Bandaríska hljómsveitin R.E.M. hefur óvænt lagt upp laupana. Fréttablaðið tók saman lista yfir tíu eft- irminnileg augnablik úr 31 árs sögu þessarar áhrifa- miklu sveitar. 1980: Hljómsveitin R.E.M. er stofnuð í Aþenu í Georgíuríki af söngvaranum Michael Stipe, gítarleikaranum Peter Buck, Mike Mills bassaleikara og trommaranum Bill Berry. 1983: Fyrsta platan, Murmur, kemur út. Hún fær góða dóma og er valin plata ársins hjá Rolling Stone. Þar slær hún við verkum á borð við Thriller með Michael Jackson, Synchronicity með The Police og War með U2. 1988: Green verður fyrsta plata R.E.M. sem kemur út hjá stóru útgáfufyrirtæki, Warner Music. Þessi sjötta plata sveitarinnar slær í gegn og lögin Pop Song 89, Get Up og Stand fá mikla útvarpsspilun. 1991: Out Of Time verður fyrsta plata R.E.M. til að komast á toppinn bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Lagið Losing My Religion verður gríðarlega vinsælt. Ári síðar vinnur sveitin þrenn Grammy-verðlaun fyrir plötuna. 1992: Automatic For the People kemur út. Sungið er um missi og sorg og ballaðan Everybody Hurts, þar sem ungt fólk er hvatt til að gefast ekki upp, verður eitt vinsælasta lagið í sögu hljóm- sveitarinnar. 1994: R.E.M. fer í sitt fyrsta tónleikaferðalag í fimm ár til að fylgja plötunni Monster eftir. Heimsreisan heppnast sérlega vel. 1997: Bill Berry segir skilið við bandið eftir sautján ár við trommusettið. Tveimur árum áður hafði hann fengið einkenni slagæðagúlps á sviði með hljóm- sveitinni. Tónlist R.E.M. breytist með brotthvarfi hans og verður elektrónískari. Vinsældirnar dvína. 2002: Peter Buck kemst í frétt- irnar eftir að hafa verið drukk- inn um borð í flugvél British Airwaves. Hann er ákærður fyrir flugdólgshátt en sleppur við dóm. 2007: R.E.M. er vígð inn í Frægðarhöll rokksins. 2011: Fimmtánda og síðasta hljóðversplata R.E.M., Collapse Into Now, kemur út. Hljómsveitin hættir störfum hálfu ári síðar. Svipmyndir úr sögu R.E.M. R.E.M. Hljómsveitin R.E.M. áður en Bill Berry dró sig í hlé. Frá vinstri: Berry, Peter Buck, Mike Mills og Michael Stipe. NORDICPHOTOS/GETTY „Ég leik konu á öllum aldursstigum, alveg frá því að hún er sex ára og þar til hún er ólétt á fertugsaldrin- um,“ segir Tinna Hrafnsdóttir leik- kona. Hún á von á tvíburum, sem flest- um þætti eflaust nóg, en leikkonan er einnig að setja upp sýninguna um Hrekkjusvínin sem verður frumsýnd 14. október. Það verður kannski lítið mál fyrir Tinnu að leika ólétta konu en ögn erfiðara að túlka sex ára gamla stelpu. „Við erum að hugsa um að fela kúluna af öllum mætti og ein hugmyndin er sú að persónan sé með stóran bangsa fyrir maganum.“ Tinna gerir sér hins vel grein fyrir því að óléttan verður fyrr eða seinna til trafala og hyggst því bara leika í fyrstu sýningunum. „Ég er sett 2. mars en tvíburar hafa yfir- leitt þann vana á að koma fyrr í heiminn.“ Hún segir að heilsan hafi verið fín, hún geti í það minnsta dansað enn sem komið er og hún finnur ekki enn fyrir því að þetta séu tvíburar. „Þetta eru bara tveir stórar draumar að rætast, að verða mamma og setja upp eigin sýn- ingu. Við Sveinn [Geirsson] erum alveg í skýjunum og þetta er eigin- lega bara tvöföld hamingja,“ segir Tinna sem þarf nú að finna tvennt af öllu fyrir nýju erfingjana. Forsala á Hrekkjusvínin hefst í dag en boðið verður upp á vegleg- an afslátt af því tilefni. Hægt er að kynna sér það á midi.is. - fgg Felur kúluna á fyrstu sýningunum 625.996.580 HAFA HORFT á myndband Justins Bieber við lagið Baby á Youtube. Ekkert myndband hefur fengið meira áhorf. MYNDARLEG Tinna Hrafnsdóttir á von á tvíburum í lok febrúar en hyggst þó leika í fyrstu sýningum af Hrekkjusvínunum sem frumsýnt verður 14. október.FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V A LL I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.