Fréttablaðið - 23.09.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 23.09.2011, Blaðsíða 10
23. september 2011 FÖSTUDAGUR10 Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar í síma 585 8300 eða 585 8330. Við bjóðum upp á klæðskerasniðnar lausnir í vörudreifingu fyrirtækja. Hagstæð, örugg og gæðavottuð þjónusta. Sérhæfð vörudreifing Póstdreifing - Suðurhraun 1 210 Garðabær - Sími 585 8300 www.postdreifing.is DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á höf- uðborgarsvæðinu hefur ákært níu kannabisræktendur. Ákærurnar, sjö talsins, voru allar þingfestar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Sama dag voru fimm sakborninganna dæmdir. Þeir hlutu allt frá skilorðsbundinni refsingu upp í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi. Hinir fjórir bíða dóms. Ræktendurnir níu eru allir karlmenn, á aldrinum frá rúm- lega tvítugu til tæplega fimmtugs. Stórtækustu ræktendurnir, þrír menn sem ákærðir voru í einu lagi, voru með 137 kanna- bisplöntur í húsnæði við Stiga- hlíð í Reykjavík. Að auki var einn þeirra tekinn með átján kannabisplöntur á heimili sínu á Kleppsvegi. Samtals rækt- uðu níumenningarnir nær 400 plöntur. Að auki fundust hjá flestum þeirra kannabislauf, maríjúana og hass. Einn þeirra var með loft- byssu sem hann hafði ekki leyfi fyrir. Þeir hinna fimm sem dæmd- ir hafa verið og hlutu óskilorð- sbundinn fangelsisdóm höfðu allir brotið af sér áður og verið dæmdir fyrir þau brot. - jss Ræktuðu samtals nær 400 kannabisplöntur og voru með fíkniefni: Níu kannabisræktendur ákærðir KANNABISPLÖNTUR Flestar voru plönt- urnar 155 í einu máli. DÓMSMÁL Vinnslustöðin í Vest- mannaeyjum telur að útflutn- ingsálag á óunninn afla sé ólögmæt skattheimta sem byggist á hæpn- um forsendum og brjóti gegn EES- samningnum og nokkrum ákvæð- um stjórnarskrárinnar. Vinnslustöðin hefur stefnt Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, fyrir dóm vegna málsins og krefst þess að ólögmæti gjaldsins verði viðurkennt. Jón kom álaginu á með reglu- gerðarbreytingu í desember 2009. Það nemur fimm prósentum á allan botnfiskafla sem fluttur er óunn- inn á erlendan markað án þess að hafa verið endanlega vigtaður hér á landi. Markmiðið var að knýja á um fullvinnslu hérlendis og vísað til þess að samkvæmt skýrslu sem Matís vann megi reikna með að fiskur rýrni um nokkur prósent frá því að hann er veiddur og þangað til hann kemur til vinnslu erlend- is. Þar vegi hann því minna en ef honum væri landað hér og með gjaldinu eigi að jafna stöðu þeirra sem landa hér og erlendis. Í stefnunni, sem birt er Jóni Bjarnasyni fyrir hönd íslenska ríkisins, segir að álagið hafi í raun skert aflaheimildir Vinnslustöðvar- innar um 74 tonn frá því að það var lagt á og þar með valdið tapi upp á 24 milljónir. Karl Axelsson, lögmaður Vinnslustöðvarinnar, tiltekur í stefnunni ýmsar ástæður fyrir því að gjaldið hljóti að teljast ólögmætt. Í fyrsta lagi segir þar að gjaldið teljist vera skattur í skilningi laga, en að skatta megi ekki leggja á, breyta eða taka af nema með lögum sem kveði skýrt á um skattstofn, gjaldstig og fjárhæð að öðru leyti. Í þessu tilviki sé ráðherra með lögum veitt heimild til að leggja á álag að eigin vali, upp að tilteknu marki, og það standist ekki stjórn- arskrá. Í öðru lagi segir í stefn- unni að ákvörðunin um að hafa álagið fimm prósent styðjist ekki við málefna- leg sjónarmið, „enda er hún bæði byggð á skýrslu sem miðast við rangar forsend- ur og þá er hún jafn- framt ekki einu sinni í sam- ræmi við nið- urstöð- ur skýrslunnar“. Er þar vísað til skýrslu Matís um rýrnun fisks frá veiði til vinnslu. Þá er bent á að útflutnings álag hafi verið í gildi fram til ársins 2007. Þá hafi það verið afnum- ið eftir að samningur var gerður við Evrópusambandið um bættan markaðsaðgang fyrir sjávarafurð- ir. „Þessi samningur er enn í gildi og er alls óljóst hvers vegna sjáv- arútvegsráðherra telur nú unnt að leggja útflutningsálagið á þegar áður var talið að afnema þyrfti það vegna samningsins.“ Að síðustu segir að gjaldið brjóti í bága við eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, jafnræðisreglu hennar og meðalhófsreglu að auki. Þá brjóti það gegn bókun í EES-samningn- um um viðskipti með sjávarfang, sem kveður á um að markaðsskipu- lag í sjávarútvegi megi ekki vera til þess fallið að raska samkeppni. Álag- ið geti hins vegar dregið úr vilja útgerða til að flytja fisk úr landi, sem raski samkeppni á EES- svæðinu. stigur@frettabladid.is Ráðherra stefnt vegna gjalds á fiskútflutning Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefur höfðað mál á hendur íslenska ríkinu og krefst þess að útflutningsálag á óunninn afla verði dæmt ólögmætt. Álagið feli í sér ólöglega skattheimtu og sé brot á bæði stjórnarskrá og EES-samningnum. VINNSLUSTÖÐIN Í EYJUM Forsvarsmenn fyrirtækisins telja sig hafa orðið fyrir tugmilljóna tjóni vegna hins ólögmæta álags. JÓN BJARNASON ÁNÆGÐIR Hilmir Ingi Jónsson frá Remake Electric og Höskuldur H. Ólafs- son, bankastjóri Arion banka, handsala samninginn. ORKUMÁL Orkunotkun í höfuðstöðv- um Arion banka í Borgartúni verð- ur hér eftir stjórnað af búnaði frá íslensku nýsköpunarfyrirtæki, ReMake Electric. Búnaðurinn gerir mönnum kleift að fylgjast náið með orkunotkun og sendir sjálfvirkar tilkynningar um breytingar og óeðlilega notkun með smáskilaboðum og tölvupósti. Orkustjórnunarkerfið heitir eTactica og felst nýjungin í því að rafskynjunarbúnaði er komið fyrir í rafmagnstöflum í bankanum. „Með því að velja kerfið frá ReMake Electric fær bankinn verk- færi til að halda úti ítarlegu eftirliti með raforkunotkun,“ er haft eftir Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra Arion banka, í tilkynningu um málið. Það skili bankanum auknum áreiðanleika og sparnaðarleiðum. ReMake Electric hefur verið styrkt af Tækniþróunarsjóði og Impru. - sh Nýsköpun hjá banka: Fylgist náið með orkunotkuninni NOREGUR Þingmaður norska Fram- faraflokksins, Bård Hoksrud, hefur viðurkennt að hafa keypt sér kyn- lífsþjónustu hjá vændiskonu í Ríga, höfuðborg Lettlands, í síðustu viku. Slíkt er ólöglegt samkvæmt norsk- um lögum og rannsakar lögreglan nú málið. Fréttastofa TV 2 fylgdist með þingmanninum á ferð sinni í Ríga og náði honum á myndbandsupptöku þar sem hann fer inn í vændis- hús og kemur út hálftíma síðar í fylgd með konu. Fréttamaður stöðvarinnar bankaði upp á í vændishúsinu daginn eftir með falda myndavél. Honum var veitt- ur aðgangur og beðinn um að velja sér þá konu sem honum leist best á, en myndbandið sýnir glögglega að minnsta kosti fjórar konur á nær- fötunum. Fréttamaður valdi kon- una sem fylgdi Hoksrud út í bílinn kvöldið áður og sýndi henni mynd af þingmanninum. Hún játaði að hafa veitt honum þjónustu og segir þau hafa haft samfarir. Hann hafi borg- að meira en gengur og gerist. TV 2 greinir frá því að Hoksrud hafi nú hætt ábyrgðarstörfum innan flokksins en ætlar að halda áfram á þingi. Myndband TV 2 má nálgast á fréttavef stöðvarinnar. - sv Kynlífshneyksli í Noregi: Þingmaður fór til vændiskonu BÅRD HOKSRUD SJÁVARÚTVEGUR Samningavið- ræður í makríldeilunni í Norður- Atlantshafi hefjast á ný hinn 18. október. Þar verður reynt að leiða til lykta deilur um veiðar Íslend- inga og Færeyinga úr makríl- stofni sem ESB-ríki og Noregur hafa veitt ein úr þar til nú síðustu ár. Óformlegum undirbúnings- fundi lauk í London í gær, en Tómas H. Heiðar, aðalsamninga- maður Íslands, sagði í samtali við Fréttablaðið að fundurinn hefði verið gagnlegur. - þj Deilur um fiskveiðar: Gagnlegur fund- ur um makríl VIÐSKIPTI „Þetta eru stærstu skip- in sem við getum látið smíða fyrir okkur miðað við þær hafnir sem við erum að fara inn á á suðurleið okkar. Við erum ekki aðeins að bæta um sautján prósentum við flutnings- getuna heldur erum við einnig að setja í skipin fleiri tengingar fyrir frystigáma,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips. Fyrirtækið hefur samið um smíði tveggja nýrra gámaskipa í Kína sem afhent verða eftir um eitt og hálft ár. Áætlaður kostnaður er 5,8 millj- arðar króna. Í næstu viku verða tvö ár liðin frá því fjárhagslegri endur- skipulagningu Eimskips lauk. Gylfi bendir á að erfitt sé að finna leiguskip sem henti Eimskip og því hafi verið í skoðun síðustu sex mán- uði að smíða skip sérsniðin að þörf- um félagsins í Norður-Atlantshafi. Skipin tvö eru fyrstu gámaskip- in sem Eimskip lætur smíða í að verða fimmtán ár þegar Brúarfoss eldri var smíðaður. Þar á undan var Mánafoss smíðaður fyrir um fjöru- tíu árum. Nýju skipin munu fara suðurleið- ina svokölluðu. Brúarfoss og Selfoss fara þá leið í dag. Skipin eru hins vegar tuttugu ára gömul og farið að síga á seinni hlutann í líftíma þeirra; kannski fimm til tíu ár eftir hjá þeim í besta falli. - jab Eimskip semur um kaup á tveimur gámaskipum frá Kína fyrir 5,8 milljarða: Tími kominn á skipaflotann GAMLA SELFOSS Tvö ný gámaflutninga- skip frá Kína munu taka við af Selfossi og Brúarfossi, sem eru tuttugu ára gömul. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ENGA BISKUPA HÉR Mótmælendur í Berlín lýstu í gær andúð sinni á Benedikt Páli páfa XVI þegar hann heimsótti Þýskaland. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.